Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 2
T
14 - Laugardagur 22. mars 1997
ÍDagur-©mtrm
Barnahomið
Senn líður að páskum en börnin
þurfa þó að bíða enn um stund eft-
ir páskaegginu. Því er um að gera að
finna eitthvað sniðugt til að gera til að
stytta tímann fram að langþráðu fríi.
Kíkjum í Æskuna
Vilji börn liggja heima og kúra í fleti
meðan slyddan lemur rúður um helg-
ina má minna á að Æskan kemur enn
út. Nýjasta heftið kom fyrir skömmu
og þar má finna ýmsan fróðleik; vegg-
myndir af Mulder og Scully, viðtal við
Rúnar Alexandersson, fimleikameist-
ara, ljóð, sögur og síðast en ekki síst
hina ódauðlegu framhaldssögu Þor-
gríms Þráinssonar af „montnasta og
voldugasta ógnvaldi sem til er,“ sígar-
ettunni Sígó!
Eeemiil!
Flest börn kannast við langdregið kall
pabba hans Emils sem ómar um ná-
grenni Kattholts þegar drengurinn
hefur gert eitthvað af sér (sem er
ósjaldan); „EeemiiT. Á morgun kl. 14
verður sýnd sænsk kvikmynd í Nor-
ræna húsinu um Emil, ídu og heimils-
fólkið í Kattholti. Myndin tekur eina
og hálfa klukkustund í sýningu og er
með sænsku tali. Aðgangur ókeypis.
Fermingarveislur
Er ferming í ættinni á pálmasunnu-
degi? Þá er deginum reddað fyrir fjöl-
skylduna. Allir hafa gaman af að fara
í veislur, bæði ungir sem aldnir. Á
meðan hinir fullorðnu rabba um lífið
og tilveruna ærslast börnin saman og
allir gæða sér á hinum ljúffengustu
veitingum. Gaman, gaman.
Barnaguðsþjónustur
Páskar eru ekki bara fyrir fermingar-
börn. Eru börnin áhugasöm um trú-
mál? Nú er góður tími til að segja
þeim sögur og jafnvel taka þau með í
kirkju. Víða um land eru sérstakar
barnaguðsþjónustur yfir páskahátíð-
ina. Á Flateyri verður t.d. sérstök
guðsþjónusta fyrir börnin á morgun
kl. 11.15.
Líf og fjör í fjallinu
Þeir Akureyringar sem létu góða
veðrið fram hjá sér fara um síðustu
helgi og húktu inni ættu að nota tæki-
færið ef sólin skín aftur í dag og á
morgun og drífa sig með smáfólkið á
skíði. Aldrei að vita hve lengi snjórinn
endist. Þeir sem vilja ekki skíða geta
líka farið að horfa, því í Hlíðarfjalli
verður haldið skíðamót 12 ára og
yngri í dag og er reiknað með milli
250 og 300 keppendum. Sem sagt, líf
og Qör í gallinu.
Barnaskemmtun
í Bæjarbíói
Leikfélag Hafnarfjarðar hefur hugsað
fyrir þörfum hinna smáu þessa helgi
því í dag og á morgun klukkan 14 og
16 stendur félagið fyrir barna-
skemmtun í Bæjarbíói. Riijuð verða
upp nokkur skemmtilegustu Iögin og
atriðin úr leikritum eftir Thorbjörn
Egner, s.s. Karíus og Baktus, Dýrun-
um í Hálsaskógi og Kardemommu-
bænum.
Nýtt íþróttalms
á Kópaskeri
Þeir geta verið ánægðir með verkið, Marínó Eggertsson og
Jón Kr. Ólason.
Idag verður formlega vígt nýtt íþrótta-
hús á Kópaskeri og eru þetta mikil
tímamót í íþrótta-og menningarlífi
Öxarfjarðarhrepps. Hreppsnefndin
stendur fyrir vígsluhátíð frá kl. 14-16 og
um kvöldið er þorrablót Kiwanismanna
sem sérstaklega var frestað til þessa
dags.
íþróttahúsið er 408 fermetrar að gólf-
fleti, íþróttasalur sem mælist 22,5x15,4
metrar og svalir fyrir áhorfendur á
kappleikjum, sem einnig er hægt að nota
fyrir samsæti og aðra starfsemi. Ilúsið
var upprunalega vöruskemma Kaupfé-
lags Norður-Þingeyinga en árið 1992
keypti byggingafyrirtækið Trémál hús-
næðið og notaði fyrir starfsemi sína og
lager.
Sú hugmynd kviknaði að innrétta sal-
inn sem íþróttahús og fyrir 2 árum
ákvað hreppurinn að hrinda málinu í
framkvæmd og samdi við Trémál um
kaup á húsinu og framkvæmdir við
breytingarnar.
Dagur-Tíminn var á Kópaskeri í vik-
unni og leit þá inn í íþróttahúsið, þar
sem menn voru að leggja
síðustu hönd á verkið. Við
hittum að máli þá Marinó
Eggertsson, bygginga-
meistara og Jón Kristinn
Ólason, starfsmenn Tré-
máls. Marinó hannaði í
stórum dráttum íþrótta-
húsið, en Tækniþjónustan
á Húsavík sá um lokaút-
færslu. Og verkið lofar meistarann. Það
virðist hafa tekist ótrúlega vel til með að
hanna og innrétta svo íjölnota hús í
þessu rými. Þarna er hægt að halda 250
manna samkomur og stunda hvurskyns
íþróttir og raunar hvaða félagsstarfsemi
sem er. Aðgengi er gott fyrir fatlaða að
húsinu og á
salerni, en
upp stiga að
fara á sval-
irnar.
Jón Krist-
inn segir að
það sé hægt
að tala um
byltingu
með tilkomu
hússins.
íþróttaað-
staða á
staðnum
hefur í raun
engin verið,
og skólinn
hefiu alls
ekki getað uppfyllt lögbundnar kröfur
um íþróttakennslu. Aðeins hefur verið
notast við matsal Fjallalambs hf. og
einnig farið með börnin á íþróttanám-
skeið í Lundi. Nú gjörbreytist þetta og
sömuleiðis möguleikar á öðru tóm-
stundastarfi eldri og yngri, samkomu- og
tónleikahaldi.
Hreppurinn samdi við Trémál um
kaup á húsinu og vinnu við breytingar
fyrir 24,5 milljónir og að viðbættum
kaupum á húsgögnum og öðrum búnaði,
taldi Jón að endanlegur kostnaður
hreppsins yrði í kringum 26 milljónir,
sem hlyti að teljast lágt verð fyrir hús
sem hefði svo ijölbreyttu hlutverki að
gegna í samfélaginu. js.
Unnið að lokafrágangi á íþróttasalnum.
Gísli Ferdinands,
hinn spilandi skó-
smiður, segir hálfa
öld nægan tíma í
lúðrasveit. Nú sé
kominn tími til að
hætta. Mynd: E Ól.
Enginn vill losna við mig
„Ég œtla að stoppa núna
eftir þessi fimmtíu ár. Mér
finnst þetta orðið helvíti
gott, “ segir Gísli Ferdin-
ands, skósmiður og flautu-
leikari, sem heldur
upp á það í dag að
hann hefiir spilað í
lúðrasveit í hálfa öld.
Gísli byrjaði í Lúðrasveitinni Svani
árið 1947 og hefur starfað með
sveitinni síðan. Mest spilar hann á
piccoloílautu en í gegn um árin hefur
hann spilað í fleiri hljómsveitum, var í
Sinfóníuhljómsveitinni í þrjú ár og hefur
spilað með leikhúshljómsveitum, og spil-
að bæði á þverflautu og piccoloflautu.
En hvað er það sem fær menn til að end-
ast í Iúðrasveit í 50 ár?
„Ég veit það ekki. Ætli ég sé ekki bara
svona vitlaus. Kannski er þetta líka orð-
inn vani. Reyndar er ég margbúinn að
velta fyrir mér að hætta en enginn vill
losna við mig. Mér finnst gaman að því
að þeir vilji hafa svona gamla karla með
sér.“
Gísli segir ýmsilegt hafa breyst hjá
lúðrasveitinni í gegn um árin. Áður hafi
þótt gott að hafa 12-16 manns í lúðra-
sveit en nú telst sveitin vart spilahæf séu
hljóðfæraleikarar færri en tuttugu.
„Krakkar byrja líka svo snemma að
læra. Þau eru orðin þrælklár strax um
16-17 ára aldur,“ segir Gísli og viður-
kennir að honum sé farið að finnast erf-
itt að halda í við unga fólkið enda orðinn
svolítið latur að æfa sig eftir öll þessi ár.
f tilefni þess að hálf öld er liðin frá því
Gísli byrjaði að spila með lúðrasveit mun
hann spila einleik á piccoloflautu á tón-
leikum á vegum Lúðrasveitar Akureyrar
en þar verður Lúðrasveitin Svanxu sér-
stakur gestur. „Þeir ætla að láta mig
puða við ansi erfiðan mars sem heitir
Stars and Stripes forever," segir Gísli.
Tónleikarnir verða til húsa í Laugar-
borg, EyjaQarðarsveit og heíjast klukkan
15.00. AI
Leiðrétting
Tvær villur reyndust vera í listanum
yfir fermingarbörn Akureyrarkirkju.
Stefán Hrafnsson, Munkaþverárstræti 8,
fermist á skírdag klukkan 10:30. Eydís
Ólafsdóttir, Dalsgerði 5d, fermist 1. júní.