Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 22. mars 1997 iDagur-'CLímmit
Guðfinna og Vilhjálmur á
námskeiði með
embættismönnum
borgaryfirvaida í Gerðubergi.
Gunnar Eydal meðtekur
boðskapinn um
árangursstjórnun.
Þreifað á fílnum
Nútímastjórnendur
þurfa að leggja
áherlsu á mannlega
þáttinn og átta sig á
því að allt breytist.
Guðfinna Bjarnadóttir
og Vilhjálmur Krist-
jánsson kennaþeim
að takast á við
verkefnið!
Stjórnun í dag er stjórn
breytinga," segir Guðfinna
og mælir í orðskviðum
þekktra bandrískra stjórnenda:
besta leiðin til að spá fyrir um
framtíðina er að skapa hana!
Hún og maður hennar, Vil-
hjálmur, ættu að fara nokkuð
nærri um nauðsynlegan
þankagang góðra stjórnenda og
leiðtoga: þau reka ráðgjafa-
skrifstofu í Bandaríkjunum.
Starfsvettvangurinn er risafyr-
irtæki og „nemendur" þeirra
taka afdrifaríkar ákvarðanir
um rekstur, ávöxtun fjár og at-
vinnu milljóna manna. Þau
selja þjónustu sína þeim sem
vilja styrkja stjórn. En þau tala
mikið um fíl.
Blindir menn og fíll
Fíllinn í orðræðu þeirra er
reyndar gamla sagan um
blindu mennina sem voru beðn-
ir að lýsa ffl með því að þreifa
á honum: sá sem þreifaði á
rananum sagði að ffll væri eins
og slanga, sá sem tók um aft-
urlöppina sagði að fíll væri eins
og trjádrumbur, og sá sem
handijatlaði eyrað sagði fíl eins
pappír; þeir höfðu allir rétt fyr-
ir sér, en enginn samt. Enginn
hafði heildarsýn á fílinn. Nú-
tímastjórnandinn er í sömu
stöðu: hann þarf upplýsingar,
og þær upplýsingar eru í fórum
starfsmanna og viðskipta-
manna, eða hjá þeim sem
reynslu hafa af því að glíma við
verkefni af sama toga.
Ef stjórnandinn heldur að
hann viti allt sjálfur er hann
eins og blindi maðurinn sem
þreifaði á rananum...
Lykilorðið er árangur. Stjórn-
endur verða að skila árangri.
Fyrirtæki krefjast ávöxtunar, í
opinberri stjórnsýslu ættu
menn ekki að sætta sig við ann-
að en hámarks hagkvæmni og
sem besta þjónustu. Hag-
kvæmni, árangur og gæði verða
stöðugt að vera í jafnvægi.
Menn eru ekki lengur verðlaun-
aðir fyrir að eyða um efni fram
hjá hinu opinbera. Skattborg-
arar vilja borga minna fyrir
meiri árangur! Það er hér sem
Guðfmna og Vilhjálmur mæta á
staðinn með Iykilorðið: árang-
ursstjórnun. í henni felst kraf-
an um að menn stjórni með það
að leiðarljósi að ná árangri.
Sálf ræði... verkf ræði.
Hún er sálfræðingur og verk-
fræðingur, sem er heppileg
blanda þegar reynt er að fá fólk
til að vinna skipulega. Hann er
menntaður í
opinberri
stjórnsýslu.
Áhersla þeirra
er á mannlega
þáttinn - í öllu
sem þau gera.
„Við segjum
ekki stjórnend-
um hvað þeir
eigi að gera,
heldur hvernig
þeir geti aflað
upplýsinga,
lært af öðrum
og nýtt sér sér
verkfæri til að
ráða við
vandamálin." Stjórnandinn
verður að hafa sýn. Langtíma-
hugsun. Ef hann veit ekki hvert
hann ætlar, er ekki hægt að
velja bestu leiðina til að ná ár-
angri. En það er ekki nóg, því
hann verður að geta metið
hvort hann er á réttri leið. Þetta
er reglan um mælanleg mark-
mið. Og hún felur í sér val á
góðum mælikvörðum. Maður á
sem sagt að temja sér að meta
reglulega og markvisst hvernig
gangi. Hvort sem það er mælt í
peningum eða öðru.
Stjórnandinn, en hvað
með fólkið?
Þessi áhersla á stjórnandann er
í raun ekki „stjórnendadýrkun"
þótt auðvelt sé að ímynda sér
það - og auðvelt sé að ímynda
sér að einhverjum stjórnanda
flnnist freistandi að gera það!
Þau Guðfinna og Vilhjálmur
undirstrika lýðræði. Lýðræðis-
lega stjórnun sem er árangurs-
rík og hagkvæm. „Liðsheild" er
orð sem Vilhjálmur vill leggja
höfuðáherlsu á; liðsheild allra
stjórnenda, en ekki bara
þeirra, því þá verða þeir eins og
blindu menn-
irnir. Starfs-
menn (og við-
skiptavinir og
notendur þjón-
ustu) verða að
vera hluti af
verkáætlun. Til
viðbótar við
lýðræði kemur
valddreifing.
Og í öllu ferl-
inu er spilað á
mótsögnina:
frelsi/agi.
Sterkur stjórn-
andi þarf að
búa yfir mikl-
um aga, en jafnframt þarf að
dreifa valdinu til þeirra sem
eru í eldlínunni - starfsmanna.
Og þá er komið að því sem þau
segja að felist í stjórnun breyt-
í i Tilgangur, áœtlanir, markmið og meginleiðir Direction
¥
r x Sífellt mat á árangri Milestones & Measures - Navigation tools
1
r i Styrking og leiðrétting á ferli og venjum Strengthen what works and re-direct what does not work!
Darwinískt
ferli til stöðugra
umbóta
Árangursstjórnun felst í stöðugum umbótum, þær felast í vinnuferlum og vinnuvenjum.
Þau kenna stjórn-
endum að ná ár-
angri og auka hag-
kvœmni og bœta
þjónustu.
Eru þau þá ekki
ómissandi hvar sem
er? Nei, hluti af
starfi þeirra er að
gera sig óþörf.