Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.03.1997, Blaðsíða 9
Bagur-ÍEunmn Laugardagur 22. mars 1997 - 21
inga: sköpunargáfu - að virkja
hugann.
Hugarflug.
„Láttu þig dreyma um það sem
þú vilt að gerist," segir Guð-
finna, „skrifaðu það niður, skil-
greindu hvernig hægt er að
mæla það, og veldu svo skrefin
að því.“ En draumurinn á ekki
bara að vera eins manns (þó
það sé mögulegt).
Þau telja hugarflæðisfundi
starfsmanna ákaflega mikil-
væga til að skilgreina umbóta-
verkefni. Þar taka stjórnendur
og starfsmenn þátt í starfi. „Við
látum fólk skrifa niður allt sem
því dettur í hug til úrbóta. Síð-
an eru öll atriðin skrifuð upp
fyrir framan alla og rædd. Nið-
urstaðan er samsafn af góðum
hugmyndum, og síðan val á
þeim bestu eftir utnræður."
Ekki finna upp hjólið.
Þau leggja til að eftir hugar-
flugið sé viðeigandi upplýsing-
um safnað saman.
Þær uppýsingar geta legið
fyrr innan fyrirtækis eða stofn-
unar, þær geta verið utan dyra -
og svo er mikilvægt að kanna
hvernig aðrir hafa leyst úr
sams konar vanda. „Við viljum
ekki að stöðugt sé verið að
finna upp hjólið,“ segja þau,
fólk á að stytta sér leið, kanna
hvernig þeir bestu hafa farið
að og hafa það til marks við
eigin lausnir.
Aðgerðabinding
Aðgerðabinding er eitt af
þessum fínu orðum í fræðun-
um sem þýðir í raun að maður
skuldbindur sig til að gera eitt-
hvað í málinu. „Það er algengt
að fólk fari ánægt út af fundi,
allir fullir af góðum hugmynd-
um - sem enginn hrindir í
framkvæmd," segir Vilhjálmur.
Þau gera tillögu í málinu: skrif-
ið upp hugmyndinar og skrefin,
ákveðið hver á að leysa verk-
efnið og fyrir hvaða tíma.
Þannig lenda hlutirnir ekki í
útideyfu. Þetta virðist kalla á
talsverðan aga. „Fullkomna
skuldbindingu,“ segir Guð-
finna, „stjórnandinn verður að
vera fullkomlega skuldbundinn
og tilbúinn að takast á við
verkefnið, og það verða að vera
innbyggðar aðferðir til að
mæla hvort árangur hafi
náðst!“
Reykjavíkurborg er fíll
Undanfarna mánuði hefur
Reykjavíkurborg verið fflhnn í
starfi þeirra. Borgarstjóri og
æðstu embættismenn hafa
gengið í gegnum skóla árang-
ursstjórnunar. Þeir eru ekki
lengur blindu mennirnir sem
þreifa hver á sínum hluta fíls-
ins. Borgarstjóri hefur lagt
mikla áherlsu á að borgarkerf-
ið verði skilgreint eins og þjón-
ustustofnun. Hún hefur tekið
þátt í fræðslu í árangursstjórn-
un, sem leið til að gera starf
Reykavíkurborgar hagkvæmara
og árangursríkara. Ráðist hef-
ur verið í að kanna og/eða
breyta helstu stýrikerfum
borgarinnar. Dæmi: ramma-
fjárhagsáætlanir, langtímaáætl-
anir, upplýsingakerfi, starfs-
mannamál - og auk þess er
verið að bygga upp ferli fyrir
stöðugar umbætur. „Það er
ekki nóg að ráðast á eitt atriði,
heldm allt kerfið,“ segir Vil-
hjálmur.
„Árangurinn skilar sér ekki
strax,“ segir Guðfinna, „hann
gerir það á 3-5 árum.“ Stofnan-
ir verða ábyrgari, stjórnendur
sjálfstæðari, starfsmenn hafa
meira að segja, viðskiptavinir
(notendur borgarþjónustu)
verði ánægðari og... þetta virð-
ist mikið mál. En hún nefnir að
ljölmargar aðrar borgir hafi
tekist á við svipuð vandamál og
sumar leyst þau á þann hátt að
Reykjavíkurborg geti af lært.
„Borgarstjóri hefur lagt mikla
vinnu í þetta og skuldbundið
sig fullkomlega, ásamt embætt-
ismönnum,“ segir Guðfinna, og
Vilhjálmur bætir við að liðs-
heild hafi myndast.
Lausnin liggur ekki í
augum uppi
Þau nefna dæmi af fylki í
Bandaríkjunum þar sem
glæpatíðni hafi aukist geigvæn-
lega á einum áratug. „Þetta
var hrikalegt vandamál." Gerð-
ar voru kröfur um úrbætur:
fleiri lögregluþjóna og fleiri
fangelsi. í þessu efni fór borgin
nýja leið. Vandinn var skil-
greindur og lausnum forgangs-
raðað.
í þessu tilviki kom í ljós að
verstu glæpamennirnir sem
stóðu að flestum glæpunum
áttu flestir eitt sameiginlegt
þegar upplýsinga hafði verið
aflað: ólæsi. Lausnin var því
ekki bara fólgin í því að efla
lögggæslu, heldur auka læsi. En
þetta tekur tíma og vandinn
leysist ekki strax.
Stjórnmálamenn urðu að
trúa því sem þeir voru að gera.
Að með því að bæta skólakerfið
myndi glæpum stórfækka.
Þannig er með mörg vandamál
að lausnirnar ligja ekki endi-
lega í hefðbundnum leiðum.
Forgangsröðun.
Þegar hér er komið sögu eru
þau hjón komin að lykilorði í
stjórnsýslu og pólitík: forgangs-
röðun. Verkefnin eru oft yfir-
gripsmikil, misvísandi og eiga
að taka á öllu í einu. Og enn
kemur ffllinn til sögunnar.
Guðfinna: „í gamla daga var
spurt: hvernig borðar maður
ffl? Og svarið var: einn bita í
einu. Nú er svarið: skoðaðu ffl-
inn vel, og veldu síðan hvað
skuli lagt áherslu á.“
Árangur - fyrir hvern,
hvenær?
Nú þegar allt þetta er komið í
gang, hvenær geta borgarbúar
vænst þess að árangurinn komi
í ljós? „Núna er eins og margir
bátar hafi lagt úr höfn - þeir
munu skila sér ef kerfisbreyt-
ingin heldur áfram - en það er
ekki víst að það gerist strax,“
segja þau. Miðað við reynslu
annarra borga má reikna með
fimm ára breytingaferli. Og
breytingar verða ekki í jöfnu
ferli, heldur eru stundum tekin
skref fram á við, og stundum
afturábak, þótt í heild verði
framfarir. Þau eru þó sannfærð
um viljann til að halda áfram
hjá borgaryfirvöldum, en viður-
kenna fúslega að stórfelldar
kerfisbreytingar og árangurs-
mæhng séu ekki einfalt mál.
Þetta geti reyndar verið mjög
flókið mál. En þau eru sann-
færð um að aðferðin og vinnu-
lagið sé rétt.
„Til að auka árangur og hag-
kvæmni hafa 2/3 OECD ríkj-
anna tekið upp þessi vinnu-
brögð.“ Starfinu hjá Reykjavík-
urborg er lokið, nú er það
stjórnendanna að nýta verkfæri
árangursstjórnunar og útfæra
breytingarnar.
„Alvöru breytingar taka
langan tíma og best er ef ferl-
inu er stjórnað innan frá, ekki
af utanaðkomandi ráðgjöfum."
Svo er bara að sjá hvernig ffll-
inn lítur út þegar þar að kem-
ur.
* Framtiðarsýn er stðan endurskoðuð á liverju ári og lögð til grundvallar ársáætlunar ogjjárlaga- gerðar * Árangu Framtíðarsýn ^ Stefnumótandi ( áœtlunargerð J \'SOrg SH ~~íí-s ] Hagkvœnu ^ . ogþjór | viðsk Stöðugar endurbætur ] Eftirfylgni og V arsskýrsla Árangt "sstjórnun "n Mælingar á árangri & 1 hagkvœmni í rekstri. Kerfisbundin arbúarj eftirfylgni ivegi: V ií, árangur j 1 xusta við , J V iptavini) fStarfsmannamál$g 1 starfsmannastefna. J Þátttaka starfsmanna rsstjórnun
Reykjavíkurborg eins og hún lítur út frá sjónarhóli árangursstjórnunar. Kjörorðin eru: hagkvæmni, árangur mið- að við markmið.
BORGARSKIPULAG
REYKJAVÍKUR
Borgartúni 3-105 Reykjavík
Sími 563 2340 Myndsendir 562 3219
Borgarskipulag Reykjavíkur auglýsir starf á Aðal-
skipulags- og almenningstengslasviði laust til um-
sóknar.
Umsækjandi þarf að hafa menntun sem arkitekt. Þekk-
ing á og reynsla af vinnu við aðalskipulag, þ.m.t. um-
ferðarskipulag, upplýsingamiðlun og tölvur er æskileg.
Lögð er áhersla á að umsækjandi eigi auðvelt með að
starfa með öðrum og geti sýnt frumkvæði í starfi. Laun
skv. launakjörum Reykjavíkurborgar.
Umsóknum skal skilað fyrir 7. apríl nk. til Vinnumiðlun-
ar Reykjavíkur að Engjateigi 11, 105 Reykjavík. Nánari
upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg R. Guðlaugsdótt-
ir, yfirskipulagsfræðingur, í síma 563 2340, tölvupóstur
irg@ rvk.is
S A
AKUREYRARBÆR
Sumar- og afleys-
ingastörf 1997
fyrir 17 ára og eldri
Laus eru til umsóknar sumarstörf og allar afieysing-
ar hjá deildum og stofnunum Akureyrarbæjar, sum-
arið 1997. Þar með taldar stofnanir sem áður til-
heyrðu Svæðisskrifstofu máiefna fatlaðra.
Reglur sem settar hafa verið varðandi sumar- og af-
leysingastörfin liggja frammi í starfsmannadeild.
Sumarvinna 16 ára unglinga
Unglingum fæddum árið 1981, er gefinn kostur á að
sækja um 6 vikna vinnu í sumar, 7 tíma á dag, sam-
tals 210 vinnustundir.
Umsóknareyðublöð fyrir ofangreind störf fást í
starfsmannadeiid Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, og
skal skila öllum umsóknum þangað.
Umsóknarfrestur er til 9. apríl nk.
Vinna unglinga 14 og 15 ára verður með sama
hætti og sl. sumar og verða störfin auglýst sérstak-
lega síðar í vor.
Starfsmannastjóri.
AKUREYRARBÆR
Búsetu- og öldrunardeild
Dvalarheimilið Hlíð
Sjúkraliði
Til umsóknar er starf sjúkraiiða við Vestur-Hlíð,
þjónustumiðstöð fyrir aldraða.
Um er að ræða starf á næturvöktum. Æskilegt er að
viðkomandi hafi reynslu af umönnun aldraðra og
geti unnið sjálfstætt.
Upplýsingar um starfið gefur Rannveig Guðnadóttir
í síma 462 7930.
Upplýsingar um kaup og kjör eru gefnar í starfs-
mannadeild Akureyrarbæjar í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild, Geisla-
götu 9.
Umsóknarfrestur er til 4. apríl nk.
Starfsmannastjóri.
V
J