Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.03.1997, Síða 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 26.03.1997, Síða 1
JDagur^Etmtrat LIFIÐ I LANDINU Miðvikudagur 26. mars 1997 - 80. og 81. árgangur - 59. tölublað Blað „MAÐUR ÉTUR EKKI HUGSJÓNIRNAR" Haftindur, byggður 1946, siglir inn í Húsavíkurhöfn. Hringferð skólabátsins Haftinds HF 123 hófst á Húsavík 14. mars s.l. og þaðan lá leiðin til Dalvíkur, ísa- Qarðar og áfram suður með viðkomu á nokkrum stöðum og lýkur ferðinni í Vestmannaeyj- um. Á hverjum stað koma nem- endur í sjóvinnu um borð og fara í róður og kynnast sjó- mennsku af eigin raun. En það eru fleiri unglingar en nemend- ur í sjóvinnu sem hafa róið á Haftindi. Atvinnulausir ungling- ar og þeir sem lent hafa í vandamálum vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu hafa átt þess kost að starfa á Haftindi í sum- ar, kynnast sjómennsku og vinna fyrir launum. Unglingastarf á öldum hafsins Karel Karelsson er skipstjóri á Ilaftindi og gerir bátinn að sögn út í miklum andbyr frá „kerf- inu“, þrátt fyrir að fjölmargir aðilar telji hann vera að vinna þjóðþrifastarf í uppeldismálum á öldum hafsins. Dagur-Tíminn ræddi við Karel á Húsavík, en þá var hann nýkominn að landi með hressa sjóvinnunema og dálítinn afla sem piltar drógu á færi. Baráttan við kerfið „Ég byrjaði í unglingastarfí árið 1975. Þá átti ég 20 tonna bát og leigði hann Unglingaheimili rík- isins og sjávarútvegsráðuneyt- inu og var með krakka frá Ung- lingaheimilinu það ár og aftur 1976 og 1979. Þau voru á sömu kjörum og unglingarnir í dag, þ.e. höfðu helming af þeim físki sem þau drógu á handfæri. Ég var m.a. með þau á rækju á Eld- eyjarsvæðinu, 2 unglinga um borð í einu með einn hlut sam- an. Haftind leigði ég fyrst 1994 af Óskari Karlssyni á Húsavík, en það átti að taka bátinn í úr- eldingu það sama ár og þá vildi Óskar gefa mér skrokkinn. Ég fór fram á það við sjávarútvegs- ráðuneytið að fá að skrá bátinn sem skólaskip og gera hann út með unglinga í áhöfn, en engin lög heimiluðu það og fordæmið þótti rosalegt. Þetta var heil- mikill barningur í kerfmu og það tók mig 7 mánuði að kom- ast í gegnum það og útvega peninga til að kaupa bátinn út úr úreldingu og þann tíma var ég tekjulaus." Leigukvóti ekki á lausu Á endanum tókst Karel að kría út fjármagn og ábyrgðir til að kaupa bátinn og gera hann út. Og hefur m.a. verið með greiðslur frá atvinnuleysis- tryggingasjóði og styrki frá þeim sveitarfélögum sem krakkarnir eru frá sem dekka laun unglinganna og fæðis- kostnað þeirra. Karel þarf sjálf- ur að standa straum af eigin launum og tveggja annarra sem eru um borð, og auk þess að greiða leigu á kvóta fyrir verk- efnið. Stóra vandamálið er að kom- ast yfir leigukvóta en hann ligg- ur ekki á lausu. Og skiiningur innan kerfisins er af skornum skammti. Karel sótti t.d. um styrk hjá LÍÚ og svar Kristjáns Ragnarssonar var: „Ég sé ekki hvað þetta sem þú ert að gera kemur sjómennsku við.“ Missti húsið og kenni- talan farin „En flestir eru sammála um að það sem ég er að gera sé af hinu góða og þarft verk. Og í þingsályktunartillögu sem Kristján Pálsson ofi. hafa lagt fram á þingi er lagt til að ríkið festi kaup á eða leigi skólaskip og þar er minnst með jákvæð- um hætti á mitt starf. Og Siv Friðleifsdóttir og fleiri hafa staðið vel við bakið á mér og ég er mjög þakklátur öllum sem stutt hafa þetta verkefni. En maður fær ekki íjármagn hjá lánastofnunum út á það að maður sé að gera góða hluti. Enda er ég búinn að missa hús- ið mitt einu sinni og kennitalan er löngu farin. Ég er ekki að tala um gróða í þessu sam- bandi, heldur aðeins að fá að framfleyta fjölskyldu minni um leið ég er að vinna starf sem ég tel nauðsynlegt fyrir samfélag- ið. En maður étur ekki hugsjón- irnar að eilífu, og ef svo heldur sem horfir, þá er eins víst að ég hætti þessu brölti um áramót." Báturinn Haftindur er um margt merki- leg fleyta. Báturinn er smíðaður í Hafnafirði hjá Júlíusi Nýborg árið 1946 og sjósettur 24. apríl það ár. Þetta er því einn elsti ís- lenski báturinn sem enn er í út- gerð og hefur því tvímælalaust menningarsögulegt gildi og eðlilegt að hann verði varðveitt- ur. Læra að vinna saman En hvernig hefur svo útgerðin með unglingana gengið? Mjög vel og ég veit t.d. um 6-8 stráka sem hafa fengið pláss og farið til sjós eingöngu út á þá reynslu sem þeir fengu hjá mér. Og hvað sjóvinnunemana varðar þá læra þeir að draga fisk á færi, blóðga, þrífa fiskinn og ísa hann í kör. Og ekki síður að hafa hlutina í lagi og vinna saman. Og mæður piltanna hafa sagt mér að þær hafi varla þekkt syni sína fyrir sömu pilta, þegar þeir voru allt í einu farn- ir að ganga frá í eldhúsinu eftir sig og þrífa, eins og þeir þurftu að gera í túrnum á Ilaftindi," sagði Karel Karelson sem leit- ast við að leysa unglingavanda- málin með því að fara með ung- lingana á sjó og koma þeim til manns með því að kenna þeim að vinna saman. js

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.