Dagur - Tíminn Reykjavík - 22.04.1997, Blaðsíða 1
|Bagur-tEtmtmt
LIFIÐ I LANDINU
Þriðjudagur 22. apríl 1997 - 80. og 81. árgangur - 75. tölublað
Blað
Mynd: GS
Rífur vænan fisk úr roði
s
g finn mikinn mun á fólki
hér á Akureyri og fyrir
sunnan. í Reykjavík er
öllum sama um allt og alla. Hér
er fólk eðlilegt og sjálfum mér
líkt. Ég nefni sem dæmi að hér
við Hafnarstrætið var ég búinn
að standa í golunni í allan
morgun, þegar hingað kom
kona sem sá aumur á karh og
gaf honum bolla með heitri
súpu. Og stundum þegar Böðv-
ar og hans fólk í Akureyrarapó-
teki eru að drekka morgunkaff-
ið sitt þá kemur einhver af
starfstúlkunum hans hingað yf-
ir götuna og gefur mér smurt
brauð og kaffl á brúsa,“ segir
síldarspekúlantinn Bergur Hall-
grímsson.
Vorþeyr í lofti
Það er kominn vorþeyr í loftið á
Akureyri. Það má meðal annars
merkja af því að Bergur er
kominn norður eftir nokkurra
mánaða vetrarhlé, og þar
stendur hann nú sína plikt dag-
ana langa og selur sfld og ann-
að hnossgæti. Flatkökur og
þrumara frá Grími Arnarsyni,
flatkökukóngi á Selfossi, harð-
flsk frá Borgarflrði eystra og
satlflsk sunnan úr Grindavík.
-Ég er hér á Akureyri alltaf
aðra hverja viku frá í aprfl og
fram í desember ef ég get. Er
þá að jafnaði ijóra virka daga
hér og síðan allar helgar í Kola-
portinu í Reykjavík. Hina vik-
una, sem ég er ekki hér, nota ég
svo til aðdrátta fyrir sfldarverk-
un þá sem ég starfræki í Hafn-
aríirði."
Nafn Bergs Hallgrímssonar
rís sjálfsagt hæst sakir þess að
um þriggja áratuga skeið rak
hann sfldarvinnsluna Pólarsfld
á Fáskrúðsfirði - þar sem hann
hafði þegar best lét á þriðja
hundrað manns í vinnu og gerði
úr þrjá báta. En nú er hún
Snorrabúð Stekkur og fyrir um
þremur árum hætti Bergur sfld-
arútgerð sinni. Hætti rekstri
eystra og flutti suður. Það er
síðan annar handleggur og
stórmerkilegt hvað þetta eina
orð, suður, hefur mikla merk-
ingu. Og þótt það í raun og
sann standi ekki fyrir nema eitt
strik af 360 í kompásnum - er
það á stundum samnefnari fyrir
héraðsbrest og þaðan af verri
tíðindi.
Clausen-bræður góðir
kúnnar
„Ég og Helga
Bjarnadóttir,
kona mín, er-
um bæði frá
Fáskrúðsfirði,
en búum núna í
Kópavogi. Síð-
an rekum við
þessa sfldar-
verkun í Hafn-
arfirði sem er
starfrækt undir
mínu nafni. Við
kaupum hrá-
efnið hjá Borg-
ey og Skinney á
Hornafirði og
verkum þetta
síðan sjálf. Við
bjóðum uppá
margskonar
sfld og þar get
ég nefnt haust-
sfld, kryddsfld, púrtvínssfld,
sherry-sfld og síðan sfld sem við
verkum í rifsber, papriku og
gulrætur,“ segir Bergur, sem er
67 ára að aldri.
Bergur Hallgrímsson segir
að viðskiptavinir sínir í sfldinni
séu af mörgu
sauðarhúsi.
„Veistu það,“
segir Bergur,
„að einhver
mín mesta
gæfa í viðskipt-
um var sú þeg-
ar þeir Örn og
Haukur Clau-
sen-bræður
fóru að kaupa
af mér sfld í
Kolaportinu í
Reykjavík. Örn
hefur komið
með mikið af
kúnnum til mín
og sagt þeim að
þetta sé fyrsta
klassa sfld sem
ég væri með.
Þeir væru auð-
vitað ekki að
auglýsa sfldina fyrir mig væri
hún ekki allt í lagi. Það er mikil
upphefð fyrir mig að fá hól frá
þessum körlum, því fyrir þeim
ber almenningur virðingu og
það réttilega," segir Bergur.
Starfsgleðin í síldinni
„Nei, það er fráleitt nein goð-
sögn að sjarmi fylgi sfldinni.
Það er virkilega staðreynd. Og
af hverju? Það helgast af þeirri
starfsgleði sem alltaf hefur fylgt
sfldarvinnu. Það man ég þegar
best lét fyrir austan að enginn
þurfti að fara til læknis eða úr
vinnu vegna veikinda þegar
mest var að gera. Enda hafði
fólk mikla ánægju af þessari
vinnu og samneytinu við
skemmtilegt fólk, sem henni
fylgdi. Það að vera glaður og
kátur er lykilatriði í lífinu - og
gleðin er stærsta elementið í
þessari sfldarrómantík. Og það
veist þú líka sjálfur að hið glað-
væra hugarfar er mesta og
besta lækningin sem nokkur
maður getur veitt sjálfum sér.
Þess vegna ætla ég að vera eins
lengi og blikar á auga,“ segir
Bergur, um leið og hann rífur
vænan fisk úr roði. -sbs.
Vorþeyr í lofti á
Akureyri. Bergur
Hallgrtmsson kom-
inn í bceinn eftir
vetrarhlé - og
stendur nú dagana
langa við Hafnar-
strœtið og selur þar
síld og annað
hnossgœti.