Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 4
16- Miðvikudagur 30. apríl 1997 jH-igur-©mtnn TJmbúðahmst Lausn lífsgátunnar Hlín Agnarsdóttir skrifar Eg fann gamalt bréf frá breskum vini þegar ég var að taka til í pappírun- um mínum um daginn. Ég skrif- aðist á við hann í uppundir einn áratug. Hann var 16 árum eldri en ég, gáfaður, vel menntaður og þroskaður. Hann hafði geng- ið í gegnum þá lífsreynslu að skilja og kvænast aftur, var hættur að drekka, kominn á eft- irlaxm frá háskólanum símnn, búinn að kaupa sér hús út í sveit og orðinn strangtrúuð grænmetisæta og svo mikill dýraverndunarsinni að hann gekk ekki einu sinni í leður- skóm eða ullarfötum. í bréfinu er hann að svara kvörtunum mínum yfir tilgangsleysi lífsins. Þetta var á þeim tíma þegar ég bjó í London og stundaði fram- haldsnámi í leikstjórn, ein og fjarri fjölskyldu og vinum. Þeg- ar vorið kom fannst mér allt ómögulegt, ég sjálf, skólinn Bretar og bara allur heimurinn. Vonleysið og tilgangsleysið helltist jdir mig. Hlutskipti mannsins Ég fór í soddan þunglyndi að ég ákvað að skrifa þessum kæra vini mínum, út- skýra þessa líð- an mína og bera undir hann hvort ég ætti ekki að leita geðlæknis í Lundúnaborg, i þeirri heims- borg hlaut að vera til nægi- lega gáfaður maður sem gæti leyst fyrir mig lífsgátuna eða allt að því. Svar vinar míns leiddi mig út úr „Ltfið er stundum tilgangslaust og það gerir ekkert til, engin ástœða til að vilja deyja þess vegna. “ ógöngunum sem líf mitt hafði ratað í þetta vor. Hann sagðist eingöngu geta hughreyst mig með því að játa fyrir mér það eina sem hver og ein mann- eskja gæti játað og gefið ann- arri nefnilega það, að hann bæri mikla virðingu fyrir mér sem manneskju og honum þætti afar vænt um mig og því sæi hann enga minnstu „hlutlægu“ ástæðu til þess að ég örvænti um hag minn og líðan og svo orðrétt; „...og ég vil líka játa fyrir þér að mig er farið að gruna að þessi tilgangsleysistil- finning hafi ekkert að gera með þá tilgangsleysistilfinningu sem hver maður getur fundið til ein- hvern tíma á ævinni, ég held hún tilheyri hlutskipti mannsins í heiminum almennt." Þetta er nokkuð sem ég þarf að minna mig á annað slagið. Að lífið er stundum tilgangs- laust og það gerir ekkert til, engin ástæða til að vilja deyja þess vegna. Mannkynsfrelsarar Með vorinu grípur fólk stundum vorþunglyndi, veturinn og dimman er að hverfa og sumar- ið og birtan að ná yfirhöndinni. Þá er eins og annmarkar okkar komi betur í ljós, það eiga allir að vera svo glaðir þegar sumar- ið kemur, vera andlega og lík- amlega tilbúnir að njóta bestu árstíðarinnar. En ef svo illa stendur á, að þú ert ekki bú- inn að finna sjálfan þig og þér líður af einhverjum or- sökum illa, þá stendur þér ótalmargt til boða. Eitt af því sem flætt hefur yfir þjóð- félagið á und- anförnum ár- um í andlegri leit manneskj- unnar er ótrúlegt framboð af alls kyns uppljómunarnám- Eitt af því sem flætt hefur yfir þjóðfélagið á undanförnum árum í andlegri leit manneskjunnar er ótrúlegt framboð af alls kyns uppljómunarnám- skeiðum. skeiðum, sem standa yfir í nokkra daga eða eina helgi. Á þessum námskeiðum er fólki lofað bættri h'ðan og jafnvel boðið að kynnast leiðbeinend- um sem hafa í raun kynnst lausn lífsgátunnar", svo vitnað sé í einn bæklinginn sem ég las á dögunum. Ég fer ekki svo á Grænan kost án þess að rekast á nýja og nýja auglýsingu frá einhverjum mannkynsfrelsur- um sem vilja leyfa þátttakend- um að öðlast milliliðalausa reynslu af sannleikanum um það hverjir þeir séu.“ Þessi sjálfsleit miðar öll að því því að manneskjan finni kjarnann í sjálfri sér og þar með sannleikann um sjálfa sig, sem á að vera algjörlega full- nægjandi. Allir sem hafa gengið í gegnum slíka reynslu verða fullkomlega ánægðir," eins og segir í áðurnefndum bæklingi. Engilsásjónur frá Kaliforníu Sumir eru að leita að sjálfum sér alla ævina og elta uppi námskeið, miðla, gúrúa og geð- lækna langt fram í andlátið til að láta segja sér hvernig þeir eigi að lifa lífinu. í þessari endalausu sjálfsleit getur líka falist sjálfsblekking og lygi, því líklega er ekki til neinn einn sannleikur um mann sjálfan, sem hægt er að finna í eitt skipti fyrir öll á helgarnám- skeiði. Sannleikurinn um okkur sjálf er breytilegur og misjafn og ekki endilega alltaf sá sami. Og stundum er hann haugalygi, sjálfsblekking og ímyndun. Það sem við héldum að væru okkar raunverulegu tilfinningar voru það ekki. Það sem við héldum að væri kjarninn var það ekki. í dag þegar náin tengsl bresta og hver hjónaskilnaðurinn rekur annan er ekkert skrítið að leitin að tilgangi og sannleika leiki stórt hlutverk. Þessi leit verður bara oft svo sjálfhverf að fólk glatar hæfileikanum til að elska og virða aðra en sjálfa sig. Þess vegna geta konur og kallar frá Kalíforníu með engilsásjónu og orkuflæðibros ferðast um heim- inn endalaust, haldið námskeið fyrir villuráfandi sálir og haldið sér uppi um leið. Allir á móti ölliim s I vo virðist sem . glundroðakenningin í ' borgarstjórn sé að vakna til lífsins á ný, þótt formerkin séu nokkuð önnur en í gamla daga. í þá tíð þótti fínt að slá um sig með þessari kenningu í borgarstjórnar- umræðunni og bætja þá við vel orðuðum og hár- beittum slagorð- um um nauðsyn þess að „varast vinstri slysin". En nú er öldin önnur og önnur boðorð sem ríkja. Sjálfstæðismenn hafa orðið að leggja þessari afar gagn- legu kenningu eftir að R-list- inn kom fram á sjónarsvið og reyndist eins samheldinn og raun ber vitni. Gangurinn hefur líka verið eftir því, all- ur á afturfótunum. Garri fær ekki betur séð en að sjálf- stæðismenn í borgarstjórn séu nú orðnir leiðir á þessu gæfuleysi sínu og vilji end- urvekja glundroðakenning- una til að reyna að rjúfa kyrrstöðuna og frekar en ekkert þá búa þeir til glundroðann í eigin röðum. Árni Sigfússon sem til skamms tíma var óumdeild- ur foringi í borgarstjórnar- ílokknum er nú skyndilega orðinn einn af þremur eða Ijórurn sem telja sig ekki síð- ur til forustu fallna en hann. Gegn Árna í Degi Tímanum í gær kemur fram að Inga Jóna Þórðar- dóttir ríður á vaðið og til- kynnir að hún sækist eftir fyrsta sæti listans fyrir næstu kosningar. Þannig ræðst hún beint og ódulbúið á Árna, sitjandi leiðtoga, sem nýlega lýsti því yfir að hann ætlaði sér að leiða listann enda hann ekki betur vissi en hann væri óumdeildt borgar- stjóraefni Sjálfstæðisflokks- ins. En þar með er sagan ekki öll því Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson kemur fram í sömu frétt og lýsir því yfir að hann tellji Ingu Jónu á miklum villigötum, ekki endilega vegna þess að hún ætli gegn Árna, held- ur vegna þess að hún kann sig ekki. Öfugt við Ingu Jónu segist Vilhjálmur ælta að gefa yfir- lýsingu á réttum tíma og tala þá fyrst við stuðningsmenn sína og keppinauta í flokkn- um, í stað þess að gefa út yfirlýsingar í íjölmiðlum. Vil- hjálmur sendir Ingu Jónu þannig baneitruð skeyti en lætur síðan fljóta með í kaupbæti að hann vilji breyta fyirkomulagi prófkjöranna. Þar kemur Árni Sigfússon til skjalanna og hellir sér yfir skoðanir Vilhjálms og segir að auðvitað eigi borgarbúar (sjálfstæðismenn) að fá að velja sér sinn leiðtoga í próf- kjöri. Fínn glundroði Staðan er þá þannig í fyrstu umferð að Inga Jóna ræðst að Árna og Vilhjálmur ræðst að Ingu Jónu og Árni ræðst að Vilhjálmi. í annari umferð má því reikna með að menn fari að svara markvissar fyr- ir sig og þá ráðist Árni að Ingu Jónu og Inga Jóna að Vilhjálmi og Vilhjálmur að Árna. Ergó: Fínn glundroði. í forustunni eru allir á móti öllum. Og þá er bara að sjá hvort sagan endurtekur sig ekki og við taki þrú kjörtíma- bil þar sem glundroðinn ríkir einn og heldur sjálfstæðis- mönnum í minnihluta? Garri.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.