Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 6

Dagur - Tíminn Reykjavík - 30.04.1997, Blaðsíða 6
18 - Fimmtudagur 30. apríl 1997 Jlagur-tHíntimx MENNING OG LISTIR Eins og aðráða krossgátu Náttúrufrœðingar vorufyrr á tíð ófáir á skáldabekk. Frœgastur þeirra Jónas okkar Hall- grímsson. Erfða- frœðingurinn Sturla Friðriksson hefur líka ort allan sinn vísindaferil og núer nýkomin þriðja Ijóðabókin. Ljóð líðandi stundar... Iforstofunni að óvanalegu heimili sínu skreyttu fram- andlegum munum, ísbjarn- arfeldi, kengúruskinni og öðru slíku, sagði Sturla að mönnum þætti sjálfsagt að ljósmynda eftirtektar- verða staði á ferðalögum til að varðveita þá í minningunni. Sturla yrkir um þá. „Þegar maður kom á bæi sem gestur hér áður fyrr var oft skál með ljósmyndum á borði. Þetta var fyrir tíma al- búmanna og mönnum var boðið að skoða myndirnar x' skálinni.“ Sturla sagðist vel geta hugsað sér að hafa slíka skál með vís- um og kvæðum fyrir gesti. En með því að setja kvæðin á bók nær hann óneitanlega til fleiri lesenda. „Þegar íslendingar setjast upp á best- bak þá verða marg- ir þeirra skáld. “ Skáld á hestbaki Sturla Friðriksson er doktor í erfðafræði og starfaði í hartnær hálfa öld hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins við rannsóknir á gróðurfari. Svo fátt eitt sé nefnt af afrakstri vinnu hans má nefna að bændur víða um land nota nú grasstofn, sem hann kynbætti, við ræktun túna og beita búfénaði á fóðurkál sem Sturla hóf ræktun á til að lengja beitartímann. Fimm ár eru síðan Sturla hætti störfum við RALA og fá- um árum áður sendi hann frá sér sína fyrstu ljóðabók (Ljóð langföruls, 1988). Hann hefur þó fengist við ljóðagerð frá því hann var strákur enda ljóðelskt fólk í ættinni og ein formæðra hans er Guðný frá Klömbrum skáldkona. I fyrstu orti Sturla einkum þegar stórafmæli eða hátíðir voru yfirvofandi hjá fjöl- skyldunni en síðar fór hann að festa reynslu sína af ferðalög- um í bundið ljóðaform. Sem uppvaxandi vísindamaður er ekki skrýtið að eftir lærdóm í bragfræði hafí hann spurt sjálf- an sig. „Get ég ekki alveg eins búið þetta til eins og þessir forverar mfn- ir?“ Tækifæris- kveðskapur virðist oft verða til í hestaferð- um og settu þau hjónin, Sig- rún Laxdal og Sturla, saman fjölritað hefti sem þau nefndu Hjónasvipur með vísum sem urðu til á löng- um reiðtúrum með vinahópi þeirra um landið. „Þegar ís- lendingar setjast upp á hestbak þá verða margir þeirra skáld.“ í biðsölum Nútímaferðalangar kannast við þau ókjör af tíma sem fer til spillis meðan beðið er eftir flug- vélum, lestum og rútum. Sturla hefur ferðast mikið erlendis Hluti úr kvæðinu „Mannætur á Fiji-eyjum“: Samt glötuðu margir fleiru á flœkingi sínum, fullhraustir kappar, sem voru þó enn betur metnir en ég hér á Fiji í litlum leiðangri mínum, er lifandi voru þeir steiktir á glóðum og etnir. Því sœjorum þessum var útrýmt af ótta við smitið. Og af því að landsmenn voru ekki nýjungagjarnir, var svona strangt hjá þeim útlendingseftirlifið og umhverfisnefndir með haldgóðar mengunarvarnir. Þeir vildu þar aðeins einstœða menningu geyma, en öll þeirra tilþrif sýna oss hvílíkur vandi það er að búa við friðsœld í horninu heima og halda þjóðinni hreinni í ósnortnu landL Sturla hefur ferðast víða og ort um fjarlæga staði. En hann yrkir líka um það sem nær stendur. Fífa er yrkisefnið í kvæðinu Sleðahundur. vegna starfa sinna og hann not- aði þennan dauða tíma í biðsöl- unum til að rifja upp hugsanir sínar og koma upplifunum sín- um í ljóð. í stað þess að súpa öl, fletta tímaritum annars hugar eða ráða krossgátur eins og margir ferðalangar, yrkir hann enda lítur Sturla á ljóðagerð sem eins konar þraut. „Mér þykir gaman að eiga við mis- munandi form. Þetta er eins og að ráða krossgátur." Hækur með Ijóðstöfum í bókunum hans þremur yrkir Sturla nefnilega í ýmsum mis- munandi bragformum og þar má segja að komi saman vís- indamaðurinn og kvæðamaður- inn. Og klassísku ljóðstafirnir skipta Sturlu miklu máli. „Mér þykir nú lítið til ljóða komið sem ekki eru rímuð. Ég hef ekki lagt það fyrir mig að setja sam- an óbundið mál í annarlegri uppsetningu og kalla það ljóð.“ Sturla notar hið japanska hækuform í nýju bókinni sinrú og trúr íslenskum bragreglum notar hann þar stuðla og rím. „Ég verð nú að segja að mér finnst meira gaman að hækunni þegar hún er komin í það form.“ íslendingasögu árlega Þó að óhefðbundin ljóðskáld dagsins í dag höfði ekki til Sturlu er hann ekki hættur að lesa, fjarri því. Les gjarnan ljóð og svo „h'ður varla almennilegt ár að ég þurfi ekki að lesa ís- lendingasögu. Maður þarf líka að fara yfir Sturlungu þó maður lesi hana ekki í belg og biðu.“ lóa Hver á Ijóð sem skekur? Um 80 titlar hafa borist í ljóðakeppni Dags-Tímans og Menors og eru þeir frá tæplega fímmtx'u höfundum. Stefán Þorláksson, formaður dómnefndar, segir að þátttakan sé mun meiri en hann hafði látið sér setta í hug. „Það er enginn heildasrsvipur á þessu og þetta kemur úr öll- um áttum, en þar sem allir skrifa undir dulnefni er erfitt að ráða í aldur.“ „Ég er búinn að lesa þetta yfir en við næsta lestur mun ég vinsa dálítið úr, við í dómnefndinni berum okkur svo saman þegar við erum öll búin að finna það sem okkur finnst verð- launavert." Eftir hverju leitar þú í Ijóði? „Maður leitar að kvæði sem manrn verður dálítið starsýnt á, sem hróflar dáh'tið við manm.“ Auk Stefáns eru þau Margrét Björgvinsdóttir og Þórarinn Guðmundsson í dómnefndini og mun úrskurður nefndarinnar liggja fyrir um miðjan maí. -mar

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.