Dagur - Tíminn Reykjavík - 10.05.1997, Side 5
JDagur-®imimT
Laugardagur 10. maí 1997 - 5
SVR
Vagnar SVR aka aðeins til miðnættis á föstudags- og laugardagskvöldum. Svarar ekki kostnaði að aka til kl. 01 á
þessum kvöldum.
Miðbci cj
Skipuriti breytt
fyrir móralinn
Akstursleiðir breytast
á nokkrum leiðum frá
15. maí nk. Skiptar
skoðanir meðal
vagnstjóra.
ann 15. maí nk. breytast
akstursleiðir nokkurra
leiða hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur. í þeim efnum hef-
ur m.a. verið stuðst við ábend-
ingar og óskir viðskiptavina. Þá
hefur stjórn SVR og borgarráð
samþykkt breytingar á skipuriti
SVR. Gert er ráð fyrir að þær
muni stuðla að betri starfsanda
innan fyrirtækisins.
Árni Þór Sigurðsson, stjórn-
arformaður SVR, segir að í
breytingum á skipuriti sé um að
ræða tilfærslu á tveimur deild-
um á milli sviða. Meðal annars
færist farþegaþjónustudeild frá
þjónustusviði yfir til markaðs-
og þróunarsviðs og tækni- og
innkaupadeild frá þjónustudeild
yfir á rekstrarsvið. Síðast en
ekki síst hefur verið stofnuð ný
staða deildarstjóra í aksturs-
deild til að styrkja innra starf
og stjórnunina í þeirri deild.
„Við teljum að við náum
fram markvissari vinnubrögð-
um og jafnframt betra vinnu-
umhverfi og starfsanda með
þessum breytingum," segir Árni
Þór.
Meðal vagnstjóra virðist vera
almenn ánægja með þessar til-
færslur þótt skiptar skoðanir
séu hjá þeim um ágæti þeirra
breytinga sem gerðar hafa ver-
ið á akstursleiðum. Á meðan
sumir eru sæmilega sáttir telja
aðrir að vagnstjórar verði
áfram undir óæskilegri tíma-
pressu. Þar fyrir utan koma
þessar breytingar til fram-
kvæmda í þann mund sem sum-
arleyfi vagnstjóra eru að heQast
og afleysingafólk tekur við.
Helstu á breytingarnar á
leiðakerfinu eru á leiðum 1, 3,
5, 6, 7, 14 og 115. Þessu til við-
bótar er það „nýja man“, þ.e.
ný leið á leið 9. Sú leið tengir
Ártún við athafnasvæði í Norð-
urbæ. Breytingarnar munu
bæta aðkomu viðskiptavina SVR
m.a. í Kringluna, Háskóla ís-
lands, Fossvogskapellu, Sjúkra-
hús Reykjavíkur, Grafarvog,
Landspítala, Loftleiðahótel og
BSÍ svo nokkuð sé nefnt. Tíma-
setningar á þessum leiðum
breytast nokkuð en þó aldrei
meira en sem nemur einum til
tveimur mínútum. -grh
Hafísinn
I.íktir á landföstum ís
Hafísinn var í gær aðeins
29 sjómflur norður af
Rifstanga á Melrakka-
sléttu og er mun austar en
venjulegt er á þessum árstíma.
Þór Jakobsson, veðurfræð-
ingur á hafísdeild Veðurstof-
unnar, segir að búast megi við
að hafísinn nálgist enn frekar
landið þar sem gert sé ráð fyrir
að norðan- og norðaustanátt
verði ríkjandi á svæðinu næstu
daga. Hafísinn mun fyrst verða
til trafala á siglingarleið áður
en hann kann að verða land-
fastur á Melrakkasléttu. Mikill
og þéttur ís er norður af land-
inu en Þór segir að vonandi sé
ísinn ekki það breiður norður
af Rifstanga að hægt verði að
sigla fyrir norðan hann verði
hann landfastur. ís var síðast
landfastur á Melrakkasléttu að
einhverju marki árin 1966-
1968, og frá fyrsta bæ vestan
Rifstanga, Blikalóni, sást ekki í
auðan sjó í sex vikur vorið
1967.
Á Melrakkasléttu hefur síð-
ustu daga verið hríðarveður,
þokuloft og lítið skyggni. Það
kemur sér mjög illa fyrir bænd-
ur þar sem sauðburður er að
heíjast á þessum slóðum. GG
Stutt og laggott
Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði
Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði var formlega opnuð í
vikunni. Hún á að þjóna heilbrigðisstofnunum landsins við
rannsóknir og skipulag rannsókna á hinum ýmsu sviðum
hjúkrunar. Megintilgangur Rannsóknarstofnunarinnar er að
efla rannsóknir kennara námsbrautarinnar og þar með
renna styrkari stoðum undir fræðimennsku í hjúkrun hér á
landi. Stofnunin mun einnig gegna mikiivægu hlutverki í
rannsóknartengdu framhaldsnámi, sem á að heijast í hjúkr-
unarfræðinni haustið 1998. í tengslum við opnun Rann-
sóknarstofnunarinnar voru haldnir vinnufundir með þekkt-
um bandarískum fræðimanni í hjúkrun, dr. Ivo Abraham,
prófessor við háskólann í Virginíu.
AVIS-ísland orðið norskt
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson, eigandi AVIS-ísIand, hef-
ur selt fyrirtæki sitt, ásamt Ryðvarnarskálanum til Noregs.
Liva Bil sem rekur AVIS í Noregi og Svíþjóð kaupir öll hluta-
bréf Stjörnubíla hf. Verðið er sagt hafa verið afar hagstætt.
Menn sem ættu að þekkja til sögðu í gær að fyrirtækið hefði
selst á „rokverði“, enda vel upp byggt og með örugg við-
skipti.
-Hvað var kaupverðið, Hafsteinn?
„Ég er mjög sáttur, meira get ég ekki sagt,“ sagði Haf-
steinn í gær. Hann var með rúmlega 80 bflaleigubíla í þjón-
ustu og afar dýrt og gott netkerfi sem tengist AVIS um allan
heim. -JBP
Um 136,5 m. kr. hagnaður á Þórshöfn
Hraðfrystistöð Þórshafnar var rekin með 136,5 milljóna
króna hagnaði á árinu 1996, en árið 1995 var hagnaðurinn
133,9 milljónir króna. Rekstrartekjur námu 1,68 milljarði
króna sem er 35% aukning milli ára og rekstrargjöld 1,4
milljarðar króna. f árslok nam eigið fé HÞ 302,4 miUjónum
króna sem er 66% aukning milli ára og eiginijárhlutfall var
24%.
Á aðalfundi félagsins 16. maí nk. mun stjórn félagsins
gera tillögu um útgáfu jöfnunarhlutabréfa að upphæð 75
milljónir króna og verður hlutafé þá 375 milljónir króna.
Einnig verður lögð fram tillaga um greiðslu 7% arðs tU hlut-
hafa. GG
Tjarnarkvartett í Borgarnesi
Tjarnarkvartettinn heldur tónleika í Borgarneskirkju á veg-
um Tónlistarfélags Borgaríjarðar og Tónlistar fyrir alla
sunnudaginn 11. maíkl. 21.
Tónleikarnir eru byggðir á dagskrá sem kvartettinn flutti
í Finnlandi og nefndist „Komið sláið um mig hring“. Efnis-
skráin er alíslensk og endurspeglar sögu íslenskrar söng-
listar, allt frá rímnasöng og fimmundarsöngvum til dægur-
tónUstar síðustu ára með viðkomu í sönglagahefðinni og
sérstakri áherslu á leikhústónlist íslendinga.
26 saxófónleikarar á Akranesi
AUs 26 saxófónleikarar í einni hljómsveit halda tónleika á
Akranesi í dag en á fimmtudag voru þeir með tónleika í
Borgarnesi. „Þetta eru einu tónleikar sveitarinnar á landinu
að þessu sinni, einstakur viðburður sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara,“ segir í fréttatilkynningu. Það er hol-
lenska saxófónhljómsveitin Het Sax-Orkest, undir stjórn
Hans de Jong sem flytur fjölbreytta dagskrá í Tónlistarskóla
Akraness kl. 14 í dag, laugardag, m.a. svítu eftir Chatschat-
urjan og lög eftir Jacson-brothers, Gershwin o.fl. -ohr
Áskrifendur Sýnar orðnir 700 talsins
Áskrifendur að sjónvarpsstöðinni SÝN eru orðnir liðlega
700 talsins á Akureyri, en útsendingar stöðvarinnar hófust
fyrir skömmu á Akureyri. Seld hafa verið liðlega 500 loft-
net, og eru þau seld á kostnaðarverði, 1.790 krónur, en sér-
stakt tilboðsverð er í gangi á áskriftinni. Við ákrift að STÖÐ
2, sem er 3.350 krónur, bætast 650 krónur fyrir SÝN, en
kaupa verður 5 mánaða áskrift. Mikil ásókn var fyrstu dag-
ana eftir að áskriftarherferðin hófst, síðan dró úr henni en
síðustu daga síðustu viku lifnaði yfir henni aftur og er skýr-
ingin sögð sú, fyrst og fremst, að spennandi hnefaleika-
keppni færi fram á SÝN síðastliðinn laugardag milli Prinsins
Naseem Hamed og landa hans Billy Hardy um heimsmeist-
aratitilinn í fjaðurvigt. Sú skemmtun var hins vegar skamm-
vinn, keppnin stóð aðeins í 93 sekúndur. En það koma fleiri
hnefaleikakeppnir á SÝN sem Bubbi Morthens lýsir. í sumar
mun Sýn hefja útsendingar á út-EyQarðarsvæðinu og munu
Dalvíkingar, Ólafsfirðingar, Grenvíkingar, Árskógsstrending-
ar og Hríseyingar þá geta notið stöðvarinnar. GG