Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.07.1997, Side 5
4Dítgttr-®tmntn
Miðvikudagur 9. júlí 1997 -17
MENNING OG LISTIR
Það fer ekki hjá því að Óskari hafi ratast sönn orð á munn þegar hann sagði að Ólafur Darri væri eins og snýttur út úr sitt hvorri nösinni á Ólafíu Hrönn og Jóhanni. Ólaf-
ur er nýliðinn í hóþi aðalleikaranna, búinn með þrjú ár í Leiklistarskólanum og þurfti sérstakt leyfi skólanefndar til að taka þátt í myndinni. Myn*eól.
Svín var á vappi í
Hraðfrystistöðinni
við Mýrargötu í vik-
unni þar sem Óskar
Jónasson (leik-
stjóraútgáfan af
Skara skrípó) var
að taka upp auglýs-
ingasýnishorn (úff!)
eða bara trailer
eins og það heitir á
enskunni...
ökum er lokið á myndinni
Perlur og
svín. Hún
verður lfldega
frumsýnd í
október næst-
komandi og
verða þá fimm
ár liðin frá því
Óskar sendi frá
sér frumraun-
ina, Sódóma
lteykjavík.
Nýja myndin segir frá ævin-
týrahjónunum Finnboga og Lísu
frá Seyðisfirði sem eru flutt
suður. Fyrir sunnan kaupa þau
niðurnítt bakarí, ætla að græða
á því mikið og hratt til að kom-
ast í langt frí til heitari landa;
þ.e. uppfylla íslenska draum-
inn.
Persónurnar
stærri en þráðurinn
Leikararnir hjá Óskari fengu
ekki tilbúið handrit í hendurnar
að læra utan að. Hann fór þá
leið að láta leikarana vinna
handritið með sér. Fyrir þremur
árum byrjuðu aðalleikararnir
að vinna út frá ákveðnum ka-
rakterum og saman spunnu
þau þráðinn. Lífið fór á vett-
vang, smalaði saman í einni
tökupásunni þeim Óskari, Jó-
hanni Sigurðarsyni og Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur sem leika
hjónin og Ólaf Darra Ólafsson
sem leikur son þeirra.
-Af hverju ákvaðstu að fara
þessa leiðina í stað þess að
setjast fyrir Jraman tölvuna og
pikka...
ÓSKAR: Mig langaði til að
gera mynd þar sem karakter-
arnir væru meira leiðandi en
saga eða hugmynd. Að þessi
hjón drifu sög-
una áfram. Mig
langaði líka til
að þau væru vel
inní málunum,
væru með það á
hreinu hvernig
fólkið myndi
bregðast við
hinum og þess-
um aðstæðun-
um. Leikur gengur svo mikið út
á að vera karakter frekar en að
læra einhverja tækni í kringum
þá.
-Hvernig fannst ykkur þetta
takast?
ÓLAFÍA HRÖNN; Ég veit það
ekki. Maður lagði kannski upp
með eitthvað í byrjun sem
breyttist svo. En það skiptir
auðvitað mjög miklu máli að
hafa verið með í sögunni.
ÓLAFÍA: Hann er
svona unglingur
sem hangir alltaf
meðforeldrum stn-
um.
Ólafía vildi
hana klikkaða
ÓSKAR: Hún var svo klikkuð
persónan sem Ólafía var komin
með. Maður var hálfhræddur
við hana. Það var búið að gjör-
breyta henni þegar kom að tök-
um.
sólarlanda.
JÓHANN: Ja, já. Hana langar
svo til sólarlanda, konuna.
Hann hefur engan áhuga á að
liggja í sólbaði.
ÖSKAR: Tímaeyðsla.
JÓHANN: Hann er athafna-
maður. Vill gera hlutina.
-Hvernig ka-
rakter ertu þá
núna?
ÓLAFÍA
HRÖNN: Bara
rosalega jákvæð
og góð kona.
ÓSKAR: Styð-
ur manninn sinn, gengur í
gegnum súrt og sætt með hon-
um, sama á hverju gengur.
Er sko ekki kúgari
-En þú Jóhann?
JÓHANN: Ehmm, bhemm,
öhmm...
-Kúgarðu kerlinguna?
JÓHANN:
Kúgari?!! Nei.
Þetta er ekkert
svoleiðis mynd.
Þetta er bara
maður sem er
að láta sig
dreyma um að
detta í lukku-
pottinn. Verða
svoh'tið efnaður, sveimhugi sem
veður úr einu í annað. Er tilbú-
inn til þess að breyta úr einum
farvegi í annan mjög skyndilega
ef tækifærið gefst.
-Af hverju hefur hann trú á
bakaríisbransanum?
JÓHANN: Það er meira
svona dálítil tilviljun og heppni.
ÓSKAR: Ég held það sé eigin-
lega af því hann langar ekki til
ÓLAFÍA HRÖNN:
Bara rosalega já-
kvœð og góð kona.
JÓHANN: Kúg-
ari?H Nei. Þetta
er ekkert svoleiðis
mynd.
Fær kikk
út úr
fasteigna-
blaðinu...
ÓLAFÍA
HRÖNN: Er
hann kannski þessi týpa sem
finnst allt vera vinna? Líka það
að skemmta sér.
JÓHANN: Já, hann Finnbogi
er svona maður sem skemmtir
sér ekki mikið. Hann skemmtir
sér við það að vera einhvers
staðar á bflauppboði.
ÓLAFÍA: Það eru kikkin
hans.
JÓHANN:
Kíkja í fast-
eignablöðin...
Kanar sjá
heiminn í
Disney
World
-Það er talað
þarna um einhvern íslenskan
draum, hvernig er hann?
ÓSKAR: Það er að verða rík-
ur hratt og komast burt til sól-
arlanda.
JÓHANN: Ég myndi segja,
eins og afi minn, að það er
happdrættissjónarmiðið...
ÓLAFÍA: Er þetta ekki sama
og ameríski draumurinn?
ÓLAFUR: Jú, nema hvað Am-
eríkanar vilja ekkert fara til
sólarlanda, þeir vilja bara vera
heima hjá sér.
ÓSKAR: Þeir fara í Disney
World til að sjá heiminn.
Ekki bara
sætur strákur
-Óskar, af hverju valdirðu
skólastrákinn Ólaf Darra í hlut-
verkið?
ÓSKAR: Finnst þér hann ekki
vera eins og snýttur út úr sitt
hvorri nösinni á Jóa og Lollu?
Það er svo mikill íjölskyldusvip-
ur með þeim. Svo er hann bara
svo indæll.
JÓHANN: Þetta var ekki
„type-cast“. Þetta er bara góður
strákur.
ÓLAFÍA: Og ekki bara sætur
strákur.
JÓHANN: Rosalega efnilegur
leikari.
-En hvernig er þessi Bjart-
mar sonur þeirra?
ÓLAFÍA: Hann er svona
unglingur sem hangir alltaf
með foreldrum sínum.
ÓLAFUR: Hann er líka að
uppgötva að hann hefur erft
eitthvað af þessu viðskiptaviti
frá pabba sínum.
ÓLAFÍA: Hann heldur for-
eldrum sínum á jörðinni.
JÓHANN: Pabbi hans díriger-
ar honum líka svolítið.
-En hver ert þú, Ólafur
Darri?
ÓLAFUR DARRI: Ég er sonur
Ólafs og Bjarkar og reyni að
hafa vit fyrir þeim líka. Ég er í
leiklistarskólanum, búinn með
þrjú ár og vinn við glasaþvott á
sýkladeild Landspítalans... lóa