Dagur - Tíminn Reykjavík - 09.07.1997, Blaðsíða 11
Miðvikwdagur 9. júlí 1997 - 23
UPPÁHALDS ÚTVARPS- OG SJÓNVARPSEFNIÐ
FJÖLMIÐLARÝNI
Húrra fyrir
Fjölni
Fjölnir kom út á föstudaginn var, og ekki er því að
neita að þetta er efnismikið blað og áhugavert í
alla staði. Það þarf hugrekki til að gefa út svona
blað. Aðstandendur þess segjast ekki skrifa fyrir mark-
hópa. Sem betur fer, segi ég nú bara. Þau virðast líka
líta á sig sem hálfpartinn utanveltu við menningarelít-
una. Samt er ég hræddur um að allflestum „almenningi“
finnist þetta blað vera ósköp dæmigerð afurð slíkrar el-
ítu. Og þar af leiðandi lítið spennandi. Því miður. En
þakklæti þessa rýnis er fölskvalaust. Hugmyndin sjálf
gengur merkilega vel upp: Að nota forsendur gamla
Fjölnis til að búa til blað handa okkur sem af
einhverjum ástæðum erum stödd á „íslandi í dag“,
þeirri margþvældu tuggu. Enda hefur sennilega færra
breyst frá því á síðustu öld en virðist við fyrstu sýn. Þeir
tyggja tuggurnar bara svolítið öðru vísi núna. Maður
leyfir sér reyndar að efast um úthaldið. Þar þarf meira
til en hugrekki. En satt að segja skiptir ekki öllu máli
hversu mörg eintökin verða á endanum því þessi nýi
Fjölnir hefur í raun alla burði til að verða jafn langlífur
„eftir á“ og sá gamli. Eina raunverulega hættan er sú að
hann týnist um hríð í upplýsingaflóðinu.
Hildur Jónsdóttir jafn-
réttisráðgjafi fylgist
mest með fréttatím-
um, bæði í útvarpi og
sjónvarpi. Hún hefur
mest gaman af um-
ræðu- og fréttaskýr-
ingaþáttum. Frétta-
stofa Útvarps er í
uppáhaldi enda út-
varpið besti miðillinn
til að kafa dýpra ofan í
málin, að mati Hildar.
Fréttatímar eru
í uppáhaldi
Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi hjá Reykjavík-
urborg, segist vera lítill neyt-
andi hvað útvarp og sjónvarp
varðar. Hún fylgist þó reglulega með
öllum kvöldfréttatímum í útvarpi og
sjónvarpi að ógleymdum umræðu-
og fréttaskýringaþáttum og svo kíkir
hún auðvitað á stöku sjónvarpsþætti
og kvikmyndir.
„Ég hlusta ekki á útvarp í vinn-
unni þannig að mín útvarpshlustun
takmarkast eiginlega alveg við há-
degið í vinnunni og svo eftir að ég er
komin heim á daginn þá er það yfir-
leitt Rás 2, dægurmálaútvarpið, sem
verður fyrir valinu. Og síðan eru
það fréttatímar kvöldsins allir þrír
þannig að það er mjög mikið fréttahlustun á mínu heim-
ili á þessum tíma frá sjö til hálfníu á kvöldin," segir
Hildur.
En er það einhver fréttatími sem hún tekur fram yfir
annan?
„Útvarpsfréttir. Mér finnst sjónvarpsfréttir yfirborðs-
legri en útvarpsfréttirnar. Mér finnst meira svigrúm gef-
ast til að leita skýringa í útvarpi, dýpka fréttirnar. Ef ég
vel milli þessara þriggja fréttatíma, tveggja sjónvarps-
fréttatíma og eins útvarpsfréttatíma, þá er það útvarpið
sem stendur upp úr. Ég hugsa að það séu umræðu- og
fréttaskýringaþættir sem ég hef mestan áhuga á og þá
bæði í útvarpi og sjónvarp. Það er alltof lítið um slíka
þætti,“ segir hún.
Hildur viðurkennir að talsvert sé horft á sjónvarp á
sínu heimili á kvöldin, þó bara Ríkisútvarpið. Hún segist
vera afskaplega hrifin af breskum framhaldsþáttum og
finnst nú skemmtilegast endursýning á Ég, Kládíus.
„Það varð til þess að ég tók bókina fram úr hillunni
og fór að lesa hana. Ég er búin að búa mig undir það að
horfa á þessa þætti,“ segir hún.
Hildur
Jonsdottir
JAFNRÉTTISRÁÐGJAFI
FUÁ REYKJAVÍKURBORG
AHUGAVERT
Sjónvarpið
kl. 22.05:
Umræður
um bisk-
upskjör
Nýr biskup íslands
verður kosinn á
næstu dögum og
tekur hann við af
herra Ólafi Skúla-
syni. Þau Auður
Eir Vilhjálmsdóttir,
Gunnar Kristjáns-
son, Karl Sigur-
björnsson og Sig-
urður Sigurðarson
hafa öll lýst því
yfir opinberlega að
þau hafi áhuga á
starfi biskups. Þau
taka þátt í um-
ræðuþadti í beinni
útsendingu þar
sem rætt verður
um embaíttið og
hæfni þeirra til að
gegna því. Umræð-
um stýrir Jóhanna
Vigdís Hjaltadóttir
og Elín Þóra Erið-
finnsdóttir stjórn-
ar útsendingu.
ÚTVARP • SJÓNVARP
S J Ó N V A R P I Ð
17.50 Táknmálsfréttir.
18.00 Fréttir.
18.02 Leiöarljós
18.45 Auglýsingatíml - Sjónvarpskringlan.
19.00 Myndasafniö.
19.25 Undrabarniö Alex (24:39). (The Secret
World of Alex Mack) Myndaflokkur um
13 ára stúlku sem býr yfir undraverðum
hæfileikum. Aðalhlutverk leika Larisa
Oleynik, Meredith Bishop, Darris Lowe
og Dorian Lopinto. Þýðandi: Helga Tóm-
asdóttir.
19.50 Veður.
20.00 Fréttir.
20.30 Víkingalottó.
20.35 Þorpiö
21.10 Bráöavaktin (21:22). (ER III) Banda-
rískur myndaflokkur sem segir frá lækn-
um og læknanemum í bráðamóttöku
sjúkrahúss. Aöalhlutverk: Anthony Ed-
wards, George Clooney, Noah Wyle,
Eriq La Salle, Gloria Reuben og Juli-
anna Margulies. Þýðandi: Hafsteinn Þór
Hilmarsson.
22.05 Biskupskjör. Umræðuþáttur á vegum
fréttastofu. Umræðum stýrir Jóhanna
Vigdís Hjaltadóttir og Elín Þóra Frið-
finnsdóttir stjórnar útsendingu.
23.10 Ellefufréttir.
23.25 Fótboltakvöld. Sýnt verður úr leikjum í
9. umferð Sjóvár-Almennra deildarinnar.
23.55 Dagskrárlok.
@ S T
09.00 Líkamsrækt (e).
09.15 Sjónvarpsmarkaöurinn.
13.00 Njósnararnir (e) (Undercover Blues).
Kathleen Turner og Dennis Quaid leika
hjónin Jeff og Jane Blue, nútimalega
spæjara sem trúa á hjónabandið og
fjölskyldulífið. Líf þeirra beggja var í
rúst þegar þau kynntust. Ekki vegna
þess að þau væru fráskilin eða í ástar-
sorg, heldur vegna þess að kúlunum
rigndi yfir þau bæöi á átakasvæði í Mið-
Ameríku.
14.30 Sjónvarpsmarkaöurinn.
15.00 Mótorsport (e).
15.30 Ellen (4:25) (e).
16.00 Prins Valíant.
16.20 Snar og Snöggur.
16.45 Regnboga-Birta.
17.05 Snorkarnir.
f SÝN
17.00 Spítalalíf (7/25)(e) (MASH). Ljósblá mynd. Stranglega bönnuð börn-
17.30 Giliette-sportpakkinn (6/28) (Gillette). um. 1995.
Fjölbreyttur þáttur þar sem sýnt er frá 00.40 Dagskrárlok.
hefðbundnum og óhefðbundum íþrótta-
greinum
18.00 íþróttaviöburðir í Asfu (27/52) (Asian
sport show). íþróttaþáttur þar sem sýnt
er frá fjölmörgum íþróttagreinum.
18.55 Golfmót í Bandaríkjunum (PGA U.S.).
19.55 íslenski boltinn. Bein útsending frá 8-
liða úrslitum í bikarkeppni Knattspyrnu-
sambands íslands (Coca- Cola bikar-
inn).
21.50 Strandgæslan (2/26) (Water Rats I).
Spennandi myndaflokkur um lögreglu-
menn í Sydney í Ástralíu.
22.45 Spítalalíf (7/25) (e) (MASH).
23.10 Símtal dauöans (e) (Over The Wire).
Ö Ð 2
17.15 Glæstar vonir.
17.40 Líkamsrækt (e).
18.00 Fréttir.
18.05 Nágrannar.
18.30 Sjónvarpsmarkaöurinn.
19.00 19 20.
20.00 Melrose Place (21:32).
20.45 Börn Simone de Beauvoir (1:2) (Simo-
ne de Beauvoir's Babies). Fyrri hluti
spánnýrrar breskrar framhaldsmyndar.
Hópur kvenna hittist eftir 20 ára stúd-
entsafmæli til að ræða það sem á
daga þeirra hefur drifiö. Þær voru ung-
lingar á áttunda áratugnum og hugsuðu
þá um lítiö annað en karlmenn.
22.30 Kvöldfréttir.
22.45 Njósnararnir (Undercover Blues).
00.15 Dagskrárlok.
0 RÍKISÚTVARPIÐ
09.00 Fréttir.
09.03 Laufskálinn.
09.38 Segöu mér sögu, Mamma litla.
09.50 Morgunleikfimi
10.00 Fréttir.
10.03 Veöurfregnir.
10.17 Sagnaslóð.
10.40 Söngvasveigur.
11.00 Fréttir.
11.03 Samfélagiö í nærmynd.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir.
12.50 Auölind. Þáttur um sjávarútvegsmál.
13.05 Hádegisleikrit Útvarpsleikhússins.
13.20 Inn um annað og út um hitt.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan
14.30 Út og suður.
15.00 Fréttir.
15.03 Dagur í austri
15.53 Dagbók.
16.00 Fréttir.
16.05 Tónstiginn.
17.00 Fréttir.
17.03 Víösjá.
18.00 Fréttir - ísland og nútiminn.
18.30 Lesið fyrir þjóöina:
18.45 Ljóö dagsins, endurflutt frá morgni.
19.30 Auglýsingar og veöurfregnir.
19.40 Morgunsaga barnanna endurflutt.
20.00 Breskir samtímahöfundar.
21.00 Út um græna grundu.
22.00 Fréttir.
22.10 Veðurfregnir.
22.15 Orö kvöldsins:
22.30 Kvöldsagan, Purpuraliturinn
23.00 Stríöiö á öldum Ijósvakans. íslenskt út-
varp frá Þýskalandi í seinni heimsstyrj-
öldinni. Síöari þáttur.
24.00 Fréttir.
^BYLGJAN
| RÁS
2
09.05 King Kong.
12.00 Hádegisfréttir.
12.10 Gullmolar Bylgjunnar í hádeginu.
13.00 fþróttafréttir.
13.10 Gulli Helga - hress aö vanda.
16.00 Þjóöbrautin. Fréttir kl. 17.00 og 18.00.
18.03 Viöskiptavaktin. Þáttur sem unnin er í
samvinnu Bylgjunnar og Viðskiptablaðs-
ins.
18.30 Gullmolar. Músik maraþon á Bylgjunni
þar sem leikin er ókynnt tónlist frá ár-
unum 1957-1980
19.00 19 20. Samtengdar fréttir Stöövar 2 og
Bylgjunnar.
20.00 Kristófer Helgason spilar góöa tónlist,
happastiginn og fleira. Netfang:
kristofer@ibc.is
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.. Að lokinni
dagskrá Stöövar 2 samtengjast rásir
Stöövar 2 og Bylgiunnar.
09.03 Lísuhóll.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Hvítir máfar.
14.03 Brot úr degi.
16.00 Fréttir.
16.05 Dagskrá.
17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Dagskrá dægurmálaútvarps.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Milli steins og sleggju.
19.50 Knattspyrnurásin. Bein lýsing frá bikar-
keppninni. Átta liða úrslit.
22.00 Fréttir.
22.10 Plata vikunnar og ný tónlist.
24.00 Fréttir.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2. 08.10-8.30
og 18.35-19.00.Útvarp Noröurlands. 18.35-
19.00 Útvarp Austurlands. 18.35-19.00
Svæöisútvarp Vestfjarða.