Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Síða 8

Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Síða 8
8 - Föstudagur 11. júlí 1997 JDagur-®mrám PJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: Símar: Netfang ritstjórnar: Áskriftargjald m. vsk. Lausasöluverð Prentun: Grænt númer: Dagsprent hf. Eyjólfur Sveinsson Stefán Jón Hafstein Birgir Guðmundsson Marteinn Jónasson Strandgötu 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Þverholti 14, Reykjavík 460 6100 og 800 7080 ritstjori@dagur.is 1.600 kr. á mánuði kr. 150 og 200 kr. helgarblað Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja 800 70 80 Fax auglýsingadeildar: 460 6161 - Fax ritstjórnar: 460 6171 Sterk staða ríkisstjórnarinnar í fyrsta lagi Ný skoðanakönnun sýnir að yfir 60% landsmanna styðja ríkisstjórnina þegar kjörtímabilið er rúm- lega hálfnað. Þetta er geysisterk staða. Þingmeiri- hlutinn er yfirgnæfandi og yrði kosið í dag fengi stjórnin áframhaldandi umboð með svipuðum styrk. Er góðæri, batnandi hagur og bjartari tímar með fögru sumri, þegar spurt er, eina skýringin? Nei. Ein skýring. Aðrar koma til: styrkir leiðtogar stjórnarflokkanna, svo dæmi sé tekið, uppákomu- lítil ríkisstjórn svo annað sé nefnt. í hinu mannfáa hólfi stjórnarandstöðunnar horfa málin öðruvísi við. Styrkur ríkisstjórnarinnar er niðurlægjandi áfall fyrir hana. Stjórnarandstöðu- flokkarnir hafa nú haft tvö ár til að ná vopnum sínum eftir kosningar, skipta um formenn í A- fiokkunum, ræða samstarf og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við almenning. Niðurstaðan? Enginn árangur. AIIs enginn! Þeir hafa nú sama eða minna fylgi en þegar kosið var! Spivining dxtg^ín^ Hvert biskupsefnanna Qögurra fannst þér koma best út í umræðuþætti Sjónvarpsins á miðvikudagskvöld? Jón Hákon Magnússon hjá Kynningu og markaði Hallur Hallsson hjá Mönnum og málefnum Mér fannst Karl Sig- urbjörnsson góður, það litla sem ég sá af þættinum. Mér flnnst hann hafa þetta yfirbragð sem biskup þarf að hafa; það er, trúverðugur for- ystumaður kristinnar kirkju. Karl hefur að því leyti þá í'ntynd af biskupi sem fellur mér í geð, að hinum biskupsefnunum ólöstuðum. Eg geri ekki upp á milli þessara bisk- upsefna, svona al- mennt talað. En mér fannst þeir Karl Sigurbjörnsson og Sigurður Sigurðarson vera trúverðugir í sínum mál- llutningi í þættinum. Guðrún Alda Harðardóttir lektor i’ið leikskólak. deild Háskólans á Ak. Eg var í rauninni ekki nægilega ánægð með neitt þeirra. Og síðan ber að taka fram að al- menningur hefur ekki kosningarétt í biskupskjöri, heldur aðeins 190 prestar, guðfræðikennarar, og nokkrir leikmenn, þannig að spyrja má til hvors hópsins biskupsefnin hafi verið að tala. Eftir þennan þátt gat ég ekki gert upp við mig hvort ég muni ganga á ný í þjóökirkjuna. Gunnar Þorsteinsson forstöðumaður Krossins Eg hreinlega horfði ekki á þáttinn. Ég var inni í Þórsmörk að grilla lamba- og svína- kjöt, og það var afar skemmtilegt ferðalag. í þriðja lagi Könnun Gallups sýnir einnig að á sama tíma og ríkisstjórn íslands heldur tiltrú almennings hefur hún dvínað á aðrar valdastofnanir samfélagsins. Dómskerfið, Háskólann og kirkjuna svo dæmi séu tekin. Sem sýnir jafnvel enn betur en tölur um fylgi við flokka hve staða stjórnarandstöðunnar er veik. Og veikist. Tilhlaupið fyrir Alþingiskosningar eftir tvö ár hefur mistekist og stjórnarandstaðan á jafnvel enn erfiðara nú en áður með að sýna fram á að hún bjóði upp á trúverðugri kost til að stjórna landinu en samsteypustjórn Framsóknar og Sjálf- stæðisflokks. Bleik er brugðið. Stefán Jón Hafstein. V____________________________________________________) Þingmenn alveg eins og fólk er Jlest... „Það er alveg ótrúlega mikil vinna að vinna sem alþingis- maður....Raunin er sú að þetta eru hreint bestu menn og það ótrúlega er að þeir eru flestir alveg eins og fólk er fiest." - Ólafur Jóhann Borgþórsson, nýútskrif- aður úr 10. bekk Barnaskóla Vest- mannaeyja, sagði Dagskrá frá starfs- kynningu á Alþingi. Við hverju bjóst ABBI eigin- lega? „íslendingar eru mjög viðkunn- anlegir. Allt öðruvísi en við átt- um von á.“ - Björn Ulvaeus ABBA-maður sagði Mogganum frá íslandsferð á dögunum. Óskirnar nú orðið út á plast og krít... „Ég varð standandi hissa yfir því að nú fann ég (á botni Pen- ingagjár) urmul alls konar plastkorta. Það var grúi er- lendra og innlendra símakorta, alls konar bankakort, debetkort og kreditkort, og meira að segja eitt í fullu gildi. Menn eru greinilega farnir að óska sér út á plast og krít.“ - Hinrik Pétursson atvinnukafari sagði Alþýðublaðinu frá hreinsunarferð á botn Peningagjár á Þingvöllum og þeim miklum breytingum sem þar hafa orðið á 30 árum, þegar „aflinn" fólst aðallega í þúsundum platna úr bílaplötuspilurum ásamt brjóstahöldum og nærbuxum svo það helsta sé nefnt. Kötturiiin sem fór sínar eigin leiðir Iskemmtilegum pistli í Degi-Tímanum lýsir miðaldra ömmupoppari hvernig hann leysir algengt heimilisböl. Það gerir hann með því sem hann kallar nú- tíma geðlyf. Þægileg lausn og algeng, því samkvæmt skýrslum eykst sala á geðlyíj- um jafnt og þétt og langt umfram sölu- aukningu á öðrum meðalategundum. Hægt er að losna við heimilisböl með öðru móti, og er sú aðferð í sókn, eins og skýrslur sýna. Hún er sú að flýja heimið og leita sér athvarfs annars staðar. Það gerði kötturinn á nefndu heimili, enda mun hann ekki hafa fengið geðlyf til að standast þann stríðsrekstur, sem leggur heimili og geðheilsu fólks í rúst. Neysla geðlyíja og flótti af heimili stafar af víðsýni og staðfestu. Húsbónda- nefnan sór það nefnilega þegar hann var að alast upp, að aldrei skyldi hann verða svo þröngsýnt foreldri, að biðja krakk- ana sína að lækka í græjunum. Hver kúgar hvern? Ekki þarf að orðlengja framhaldið. Börnin hafa annan músíksmekk en for- ejdrið og kötturinn og víðsýnin og um- burðarlyndið ríkir á heimilinu og von- andi komast alfrjálsu börnin aldrei að því að þau eru á góðri leið með að splundra heimili sem haldið er saman með hjálp geðlyfja. Greinarkornið sem hér er vitnað til er skrifað í gamansömum ýkjustíl, en nokkur alvara kann að búa undir. Hér og hvar eru farnar að skjóta upp kollinum athugasemdir um agaleysi í þjóðfélaginu. Það eru auðvitað ekki nema þröngsýnar sálir sem láta shkar skoðanir í fjós. Ungi, fallegi, gáf- aði og vel menntaði æskulýðurinn okkar kann fótum sínum forráð og þarf hvorki á aðfinnslum né leiðbeiningum gamlingjanna að halda. Ef krakkarnir vilja spila rapp á hæsta hljóðstyrk, er það þeirra mál og aðrir á heimilinu ráða hvort þeir drekkja sér í alkóhóli, lognast út af með hjálp geð- lylja, eða hlaupast á brott. Allt eru þetta kunnar og algengar flóttaleiðir. Hér má staldra við og spyrja gagns- lausu spurningarinnar: Hvort kom á undan eggið eða hænan? Einstrengingsleg þröngsýni Hræðslan við þröngsýnina býður upp á agaleysi. Kurteisi er hlægileg og að mestu aflögð, umgengnisreglur eru gamlar og hallærislegar hefðir og er þá skammt í allsráðandi tillitsleysi. Hvar byrjar heimilisofbeldið marg- umtalaða? Stfellt er verið að segja manni að miklu meiri brögð séu að því en almennt fæst viðurkennt. Að börn beiti foreldrana ofbeldi er óhugsandi, eða þá að það þarf mikla þröngsýni til að viðurkenna það. Enda er hávaðaofbeldi viðurkennd skemmtun og lifsstíll, sem þykir nánast dónaskapur að amast við af þeim sem ekki kunna að meta það að láta ærast. í þjóðsögum voru það tröll sem ærðu menn og gerðu ómennska. En það eru nú bara gömul hindurvitni. Nú á dögum æra aðrir glóruna úr fólki og hljóta lof og aðdáun fyrir. Oíbeldisdýrkunin er nánast alls stað- ar í nútímanum. Ofbeldið og tillitsleysið gagnvart náunganum er engum tilviljun- um háð. Ofbeldið og agaleysið gegn sjálfum sér birtist í eiturfíkn og kæru- leysi um eigið heilsufar til líkama og sál- ar. Afvötnunarskýrslur SÁÁ tala sínu máli, kornungir eiturfíklar eru að leggja stofnanirnar undir sig. Hraðvaxandi notkun geðlyija ætti að vera viðvörun. Tilefnislausar árásir og alvarlegar lík- amsmeiðingar er orðið leiðigjarnt frétta- efni, enda orðið eins algengt og smá- vægilegir bflaárekstrar voru í eina tíð. Hér skal viðurkennt að þessi skrif bera vott um einstrengingslega þröng- sýni og hugarfar sem ekki samrýmist því alfrelsi sem unga fólkið á að búa við. Sjálfsagi er úrelt hugtak eins og tillit- semin. En gallinn er bara sá að þegar gamlingjarnir láta fara með sig eins og tuskur beinist athafnasemi æskunnar gegn sjálfri sér og þá fara málin heldur betur að vandast. Það eru nefnilega ekki allir eins frjálsir og staðfastir og kötturinn, sem fór sínar eigin leiðir, eins og segir frá í lærdómsríkri bók. OÓ

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.