Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Qupperneq 9
Hagur-CCuramx Föstudagur 11. júlí 1997 - 9 ÞJOÐMAL Sjálfbær þróun - hvað er Arni Finnsson skrifar Sjálfbær þróun í íslensku samfélagi - Framkvæmda- áætlun til aldamóta - er titillinn á nýrri skýrslu sem gef- in var út af umhverfisráðuneyt- inu þann 16. júní sl. Ritið mark- ar stefnu íslenskra stjórnvalda í átt til sjálfbærrar þróunar fyrir hönd íslands og er afurð vinnu sem hófst árið 1993. Titillinn gefur til kynna að enn sé óunnið það verk sem í raun varðar hina íslensku leið til sjálfbærrar þróunar. Undir- titillinn er framkvæmdaáætlun til aldamóta - sem eru jú rétt handan við næstu kosningar - og það segir sig sjálft að það mun taka lengri tíma en þrjú ár fyrir íslenskt þjóðfélag að mæta þeim kröfum sem felast í sjálf- bærri þróun. Hugtakið sjálfbær þróun hef- ur velkst í umræðunni í tíu ár eða lengur, en hugtakið sló í gegn með útkomu skýrslu Brundtland-nefndarinnar árið 1987. Hugtakið er vandskil- greint, enda nær það í raun til allra mannlegra athafna sem flestar hafa áhrif á lífríkið með einum eða öðrum hætti. Til að glöggva sig á inntaki „sjáifbærrar þróunar" er brýnt að hafa hugfast að hugtakið er myndað sem andsvar við þeirri þróun sem leitt hefur iðnríki nútímans inn í þær ógöngur er nú ógna lífríki jarðar. Skilgrein- ing Brundtiand-nefndarinnar var hins vegar að „Sjálfbær þróun er þróun sem fullnægir þörfum samtíðarinnar án þess að skerða möguleika komandi kynsióða til að fuiinægja sínum þörfum.“ Gallinn er vitanlega sá að þessi skilgreining er gal- opin og hefur verið útfærð að þörfum alls kyns aðila með mjög ólíka hagsmuni. „Því fleiri kokkar, þeim mun verri súpa,“ segir máltækið. Skilgreiningu skortir Áðurnefnd skýrsla umhverfis- ráðuneytisins sneiðir fram hjá þessum skilgreiningarvanda þar eð ekki er gerð nein tilraun til að skilgreina hvað felst í hug- takinu sjálfbærri þróun“. í for- mála fyrri skýrslu fyrra ráðu- neytis Davíðs Oddssonar um sjálfbæra þróun, sem hét Á leið til sjálfbærrar þróunar og kom út 1993, segir að um sé að „ræða grunn sem lagður verður til grundvallar ítarlegrar fram- kvæmdaáætlunar í umhverfis- og þróunarmálum sem taka mun til allra þátta íslensks sam- Hins vegar segir á bls. 16 að heildarlos- un gróðurhúsaloftteg- unda verði um 100 þúsund tonnum meiri um aldamótin en árið 1990. Þá er stækkun álversins í Straums- vík reiknuð með, en ekki álver Norðuráls á Grundartanga og stækkun járnblendi- verksmiðjunnar á sama stað. Veit ekki hægri höndin hvað sú vinstri gjörir? félags.“ Hið sama mætti segja um hina nýútkomnu skýrslu því þó að hér sé um framför að ræða, verður ekki sagt að þessi framkvæmdaáætlun taki til allra þátta íslensks samfélags, né er Sá árangur sem náðst hefur er fyrst og fremst að þakka ÍSAL, sem hefur með húsalofttegunda frá Straumsvík umtalsvert, segir greinarhöfundur. hún sérlega ítarleg. Eyðurnar stinga í augun. Til dæmis segir um veðurfarsbreyt- ingar af völdum gróðurhúsa- áhrifa á bls. 23, að „Nýjustu tölvulíkön benda flest til að hlýn- un verði minni á íslandi og haf- svæðunum í kring en víða ann- ars staðar. Hækkandi sjávar- staða af völdum hlýnunar kann að leiða til aukinnar tíðni sjávar- flóða og hugsanlega gætu gróð- urhúsaáhrifin breytt styrk og stefnu hafstrauma, þ.á m. Golf- straumsins. Slíkt myndi hafa ófyrirsjáanleg og að öllum lík- indum alvarleg áhrif á veðurfar og fiskgengd." Hins vegar segir á bls. 16 að heildarlosun gróður- húsalofttegunda verði um 100 þúsund tonnum meiri um alda- mótin en árið 1990. Þá er stækk- un álversins í Straumsvík reikn- uð með, en ekki álver Norðuráls á Grundartanga og stækkun járnblendiverksmiðjunnar á sama stað. Veit ekki hægri hönd- in hvað sú vinstri gjörir? Ennfremur vantar umræðu um hvernig megi draga úr los- un gróðurhúsalofttegunda hér á landi til samræmis við skuld- bindingar íslands. Sá árangur sem náðst hefur er fyrst og fremst að þakka ÍSAL, sem hef- ur með nýrri tækni minnkað losun gróðurhúsalofttegunda frá Straumsvík umtalsvert. Sjávarútvegur í kafla um markmið og leiðir í sjávarútvegi má hins vegar finna ýmislegt lofsvert. Þar segir til dæmis í inngangi, að „Brýnt er að stjórnvöld marki sem fyrst stefnu um hvernig best megi efla ímynd íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar með góðri um- gengni við hafið og auðlindir þess.“ Undir skal þetta tekið heils hugar. Raunar er með öllu óverjandi að stjórnvöld hafi ekki þegar mótað stefnu fyrir sjávar- útveg í umhverfismálum. nýrri tækni minnkað losun gróður- Mynd: GVA Skýringin er meðal annars sú að undanfarin 10 ár eða svo hafa hagsmunasamtök á borð við LÍÚ eða Fiskifélag íslands, oftar en ekki verið með klærnar öfugar út í umhverfismálum. Þessi hagsmunasamtök hafa því miður beint kröftum sínum að baráttunni við alþjóðleg um- hverfisverndarsamtök. Þau hafa fyrir þær sakir átt erfitt með að koma auga á möguleik- ana sem felast í að nýta sér það forskot sem íslendingar hafa á flestar aðrar þjóðir í fiskveiði- stjórnun í markaðssetningu. Hér er um gríðarlega mikilvægt hagsmunamál að ræða þar eð fískneytendur á mörkuðum er- lendis munu í æ ríkari mæli spyrja eftir því hvort fiskvörur séu vottaðar samkvæmt staðli um ábyrgar og sjálfbærar fisk- veiðar. Höfundur situr í stjórn Náttúruverndar- samtaka íslands. Prestastefnan á Akureyri 1997 Sigurður Lárusson skrifar Samkvæmt útvarps- og sjónvarpsfróttum af prestastefnunni sem hald- in var nýlega á Akureyri bar þar margt á góma svo sem vænta mátti. Athyglisverðust fannst mér setningarræða herra Ólafs Skúlasonar biskups. En margt annað sem sagt var frá í fréttum fannst mér ekki sérlega merkilegt. Til dæmis fannst mér það furðuleg lítils- virðing fyrir lýðræðinu hjá meg- inþorra prestanna, að vilja af- nema algerlega þann litla hluta sem eftir er af lýðræðinu við val presta í einstök prestaköll. Þar á ég að sjálfsögðu við, að eftir að almennar prestskosningar voru lagðar niður fyrir tæpum 20 árum og í staðinn tekinn upp sá háttur að láta fáeina kjörmenn greiða atkvæði um hvaða prestur skyldi þjóna við- komandi prestakalli, að vísu með þeirri undantekningu að ef 25% af kosningabæru fólki í viðkomandi prestakalli óskaði skriflega eftir almennri kosn- ingu þá væri skylt að verða við því. Það taldi ég þó vera lág- marksrétt safnaðarfólksins. En ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að með því að taka kosningaréttinn af fólkinu hafi verið brotinn á því dýrmætur réttur til að velja sér andlegan leiðtoga. Það kom líka glöggt fram þegar síðast var kosinn prestur á Selfossi að hvorugur þeirra tveggja sem fengu flest atkvæði kjörmannanna náði kosningu heldur prestur sem fékk fá eða engin atkvæði kjörmanna. Þetta nefni ég sem eitt af mörgum dæmum um þá ólýðræðislegu kosningu sem gilt hefur mörg undanfarin ár. Ef ég man rétt var á síðasta Alþingi samþykkt að skipa prest aðeins til 5 ára í senn. Það er að vísu nokkur réttarbót fyrir söfn- uðinn, en mér finnst lýðræðisleg- ast að koma gamla laginu á aft- ur. Á prestastefnunni mun hafa verið samþykkt að afnema kjör- mannafyrirkomulagið og einnig skipun presta til fimm ára. Það finnst mér alveg óþolandi. Fólkið í hverju prestakalli á að hafa Frá Prestastefnunni á Akureyri. skilyrðislausan rétt til að velja sér prest en ekki láta einhverja embættismenn skammta sér prest og mér finnst að lágmarkið sé að hægt sé að skipta um prest á fimm ára fresti. Það þjónar engu réttlæti að neyða söfnuðina til að sitja uppi með sama prestinn í 30-40 ár, ef það er óánægt með hann. Og það er síst til að auka kirkju- sókn eða til að stuðla að boðun fagnaðarerindisins. Svo er ann- að sem mig langar að minnast Mynd: GS á, en það eru kröfur prestanna um verulega launahækkun. Það finnst mér ganga í berhögg við kenningar Krists. Það kann að vera að fastalaun presta séu það lág að prestar sem þjóna í fámennum sveitaprestaköllum hafi skammarlega lág laun, en þá tel ég að sameina ætti nær- liggjandi prestaköll svo að hver prestur þjónaði a.m.k. 1000 sóknarbörnum. Þá myndu aukatekjur hans verða það miklar að hann hefði sæmilegar tekjur. Samgöngur hafa batnað svo mikið víðast hvar síðastliðin 50 ár að hver prestur í strjál- býlinu ætti að geta þjónað á miklu stærra landsvæði. Og allir vita að prestar í 4000-5000 manna söfnuði hafa mjög góð laun. Þær fréttir sem komu mér mest á óvart frá þessum ljöl- menna fundi voru þær að prest- arnir kröfðust þess að ekki mætti skerða tekjutryggingu presta eftir að þeir kæmust á ellilífeyrisaldur, þó að þeir hefðu frá 35.000 króna tekjum og allt að 150.000 króna tekjum á mánuði auk venjulegra elli- launa. Þetta fannst mér sýna best fégræðgi þeirra. Vita þessir menn að tekju- tryggingin var lögleidd á árun- um eftir 1970. Henni var fyrst og fremst ætlað að hjálpa þeim að draga fram lífið sem ekki höfðu aðrar tekjur en ellilaun- in. Nú er ijöldi fólks sem hefur tugi þúsunda úr lífeyrissjóðum á mánuði og ýmsar aðrar tekj- ur. Prestastefnunni hefði verið nær að kreQast þess að bóta- þegar sem hafa innan við 50.000 kr. í tekjur fengju a.m.k. 60.000 kr. á mánuði í hvaða stétt sem þeir eru.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.