Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.07.1997, Side 12
|Bagur4Smram
Veðrið
í dag
Föstudagur ll.júlí 1997
þurrkari
Þurrkari, 5 kg.
Snýst í báðar áttir, tvö hitastig
Verð kr. 33.155
Gæði, góð þjónusta.
gKAUPLAND
K/VUF>ANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna Qögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Gert er ráð fyrir sunnan- og
suðaustan golu eða kalda í
fyrstu, en síðan austlægri
átt. Á Norðausturlandi
verður skýjað með köflum
og úrkomulaust en annars
staðar er áfram gert ráð
fyrir vætu. Hiti verður á
bilinu 6 til 19 stig. Hlýjast á
Norðausturlandi.
Lánið lék ekki við
íslensku knatt-
spyrnuliðin þegar
dregið var í Evrópu-
keppnina. Skaga-
menn, ÍBV og KR
drógust öll á móti
lítt þekktum liðum
og þurfa öll að
leggja á sig löng og
kostnaðarsöm
ferðalög.
KR-ingar, sem keppa í Evr-
ópukeppni félagsliða, eru
sennilega heppnastir
með lið hvað frægðina varðar,
Dynamo Bukarest, sem lengi
hefur verið í fremstu röð evr-
ópskra knattspyrnuliða. Aftur á
móti virðast möguleikar þeirra
minnstir á að komast áfram,
a.m.k. við fyrstu sýn.
í Evrópukeppni bikarhafa fá
Eyjamenn gamla kunningja ís-
lendinga, Hibernian frá Möltu.
Fram lék við þetta lið árið 1972
og Skagamenn hafa einnig leik-
ið við það. Þá lék íslendingur-,
inn Guðmundur Baldursson
með Hibs um tíma, og einnig
Indriði Einarsson, þannig að
liðið er ekki algerlega ókunnugt
landanum.
Andstæðingar Skagamanna í
meistarakeppninni, FC Kosice
frá Slóveníu, eru algerlega
óskrifað blað hér á landi. Það
eina sem vitað er um Kosice er
að þeir hafa svipaða stöðu í
heimalandi sínu og ÍA hefur
haft hér á landi undanfarin ár.
Þeir eru einfaldlega langbesta
lið landsins. Hvort það dugar
svo gegn íslandsmeisturunum
verður að koma í ljós.
Við erum í þessu
til að vinna
Haraldur Haraldsson, þjálfari
KR, var ekkert óhress með
dráttinn þrátt fyrir allt.
„Það er allt þokkalegt um
dráttinn að segja. Við hefðum
auðvitað kosið að fá eitthvað
annað en fyrst svo er ekki tök-
um við því sem við fáum. Þetta
er mikið ferðalag og erfltt og
Odráttur
liðið er sterkt þannig að þetta
verður ekkert auðvelt. Við hefð-
um náttúrulega viljað fá eitt-
hvað nær okkur og líkara því
sem við þekkjum.
Við þekkjum þetta hð mjög
lítið. Það er mjög ungt en með
góða leikmenn. Markmaðurinn
þeirra er landsliðsmarkvörður
Rúmeníu og er sagður sterkur.
Þeir enduðu í 3. sæti á síðasta
tímabili en nú er þeim spáð
sigri á því næsta. Ég held að
þetta lið leiki þennan mið-Evr-
ópubolta en við erum að kynna
okkur það nánar.“
KR leikur fyrri leikinn hér
heima og þeir ætla að reyna að
fá að leika á KR-vellinum, þar
sem stemmningin er alltaf góð.
„Það hefði verið æskilegra að
leika útileikinn fyrst. Þá hefðum
við getað skoðað liðið betur og
farið varlegar í málin. Þá hefð-
um við vitað betur hvað við
gætum leyft okkur hér heima.
Við tökum á þessu og leggjum
okkur fram. Við erum í þessu til
að vinna,“ sagði Haraldur Har-
aldsson.
Hef ekki hugmynd
um þetta lið
Ólafur Þórðarson, fyrirliði
Skagamanna, var fámáll um
andstæðinga ÍA í Evrópukeppni
meistaraliða. „Ja, það er nú lít-
ið um það að segja. Ég hef ekki
hugmynd um þetta lið. Ég
reikna þó með því að þetta sé
sterkt lið og hef enga trú á
öðru. Þeir eru meistarar í sínu
landi. Maður hefði kosið ein-
hver önnur lið, hérna nær, en
það voru bara ekki svo mörg lið
í pottinum sem komu til greina
fyrir okkur. Það hefði verið
gaman að fá finnska liðið eða
Mozir frá Hvíta-Rússlandi sem
KR lék við í fyrra. Það hefði
verið vænlegri kostur, og jafnvel
hðið frá Kýpur. En það er ekk-
ert gefið í þessu."
Ólafur var ekkert yfir sig
ánægður með næstu andstæð-
inga, ef Skagamenn komast
áfram en það er hið geysi
sterka lið Spartak Moskva frá
Rússlandi.
Fobia
„Við íslendingar höfum verið
með fobiu gagnvart austan-
tjaldslöndunum svo við verðum
að segja að fyrir okkur hafi
þessi dráttur verið viðunandi,
„Það er allt þokkalegt um dráttinn að segja,“ sagði Haraldur Haraldsson
þjálfari KR.
þó við hefðum kosið styttra
ferðalag,“ sagði Bjarni Jóhann-
esson, þjálfari ÍBV. „Vissulega
eru möguleikar fyrir okkur að
komast áfram og það er það já-
kvæðasta í þessu. Það sem
menn hér miða við núna og er
ferskast, er að Færeyska lands-
liðið hefur unnið Möltu í tví-
gang, en félagsliðin þar hafa
yfirleitt staðið sig betur í Evr-
ópukeppninni en landshðið.
Við verðum að vinna okkar
heimavinnu vel og hér á að
vera metnaður til að ná lengra í
Evrópukeppninni en við höfum
gert undanfarin ár. Liðið er
með enskan þjálfara og með því
leika tveir enskir leikmenn og
þeir eru einnig með þrjá lands-
liðsmenn.“
Bjarni sagði að staða þess-
ara liða væri svipuð og hvernig
þau koma inn í Evrópukeppn-
ina. Þau enduðu bæði um miðja
deild og bæði töpuðu þau í bik-
arúrslitaleik fyrir liðum sem
síðan urðu tvöfaldir meistarar.
Að sjálfsögðu óskar Dagur-
Tíminn liðunum öllum vel-
gengni í Evrópuleikjunum. Það
er mikið í húfi fyrir öll liðin og
þá sem að þeim standa, ekki
síst gjaldkera þeirra. gþö
Skrifstofa íslandsflugs á Akureyrarflugvelii:
461 4050
Símbréf 461 4051
ISLANOSFUIE
-gerir fleirum fœrt ad fljuga