Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.07.1997, Blaðsíða 7

Dagur - Tíminn Reykjavík - 24.07.1997, Blaðsíða 7
JkigHr-®ímtrat Fimmtudagur 24. júlí 1997 -19 fólkið Kunnuglegt andlit, sjálf Gwyneth Paltrow, í hallóklæðnaði eftir eng- an annan en Calvin Klein. Einu sinni var þetta í tísku en nú þykir einlitt og einfalt lummó. Courteney Fox í Valentino-kjól. Ekki fylgir sögunni hver þessi Val- entino er og kjóilinn er reyndar ekkert spes en ef lögmálið gildir þá er maður móðins, ef maður er í gylltu. Glansinn skiptir öllu. Gullið mo s Fína og frœga fólkið í henni Ameríku hef- ur lag á að klœða sig svo afher, kellingar í glimmerkjólum með fínerísskartgripi og karlarnir í smóking og allir í dressi eftir hestu hönnuðina og efnin ekki slor. Hér einu sinni var silfrið hámóðins, nú er það víst gullið, en hallœrislegast af öllu er einlitt og einfalt. Glansinn skiptir öllu. Gullið er í tísku og glimmerið stendur fyrir sínu. Það vill enginn falla í fjöldann og þá verður maður að vera í einhverju áberandi. er Lítt þekkt andlit á Islandi í síðkjól frá Cerruti. Hver fflar Ijósbláan? Hún. HESTALIFIÐ I LANDINU Upphitun fyrir landsmót Um nœstu helgi verður haldið stór- mót hestamanna á Melgerðismelum í tilefni af því að ver- ið er að Ijúka stór- um áfanga í upp- byggingu svœðisins fyrir Landsmót hestamanna á nœsta ári. Við erum að taka í notkun nýja og glæsilega kepp- nisvelli sem keppt verður á á næsta landsmóti sem hefst 8. júlí að ári liðnu,“ segir Sigfús Helgason, framkvæmdastjóri Melgerðismela. „Þetta verður stórmót enda margir af fræg- ustu knöpum landsins sem koma hingað og hér verða ís- landsmeistararnir frá íslands- mótinu sem var á Vindheima- melum um síðustu helgi. Þeir heiðra okkur með nærveru sinni og munu etja kappi við ey- firska hesta.“ Áhorfendabrekka fyrir 25 þúsund manns Uppbygging Melgerðismela hef- ur staðið á annað ár. „Við erum á fullu að undirbúa mótið á næsta ári og höfum m.a. verið að koma upp áhorfendabrekku sem tekur 25 þúsund manns. Við þurfum því ekki að hafa áhyggjur af því að það verði þröngt um fólkið." Að sögn Sigfúsar hefur stað- urinn fengið geysimikla upplyft- ingu. „Hann er ekki sá sami og hann var. Hór er búið að planta fleiri þúsund lerkiplöntum þannig að hér er allt að gróa upp og alls ekki um neina mela að ræða lengur.“ Þrátt fyrir alla þessa upp- byggingu er ennþá heilmikið eftir, að sögn Sigfúsar, fyrir landsmótið. „Samt sem áður hafa vanir hestamenn sagt að þetta sé glæsilegasta mótssvæði á landinu. Það er auðvitað mik- ið lof fyrir okkur.“ Að hestamannasið Sigfús segir að það verði keppt í mörgum greinum á mótinu um helgina og m.a. í sérstökum stjörnutöltflokki þar sem marg- ir af bestu hestum landsins muni etja kappi. Dagskrá móts- ins er líka þétt að sögn Sigfúsar. „Formleg mótssetning verður á laugardag klukkan 13 með ræðuhöldum og Hrossaræktar- fram á kvöld, eins og hesta- mönnum sæmir, með grillveislu og varðeldi. Sunnudagurinn fer síðan í úrslit í öllum flokkum." Sigfús segir að allir séu vel- komnir og næg tjaldstæði séu fyrir þá sem vilji koma og gista. Aðgangur er ókeypis. hbg samtök Eyfirðinga og Þingey- inga munu afhenda Melgerðis- melum eina milljón króna í frekari uppbyggingu. Hingað kemin líka prestur í fullum skrúða sem mun blessa nýja mótssvæðið og auðvitað verður áframhaldandi dagskrá langt

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.