Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.08.1997, Síða 1
C\£\ V
n«in .v
LIFIÐ I LANDINU
Blað
Föstudagur 15. ágúst 1997 - 80. og 81. árgangur -151. tölublað
Ekkimæta
í
35 ára gamall haföi hamn rekið sjoppu í
jjölda ára. Ákvað þá að venda kvœði sínu
í kross, láta drauminn rœtast. Fór í einn
virtasta leiklistarskóla Bretlands, Bristol
Old Vic! Og er nú að setja upp nýjan ís-
lenskan söngleik á Hótel íslandi...
Söngleikurinn Prinsessan verður frumsýndur á Hótel Islandi 4. sept. í
nafni Leikfélagsinns Regínu og Sniglabandsins, sem sér um tónlistina. í
vikunni var Jonathan Howell, breskur bardagalistamaður, að þjálfa riddar-
ana í bardagaatriðunum.
Það var einmitt hér í neðanjarðarlestinni sem þeir bræður Gunnar og Stefán Jóhannes voru að bræða með sér
hugmyndina að söngleiknum. Kona nokkur hafði fylgst með hrókasamræðum bræðranna á hrognamáli og hafði
gaman af. Hún bauðst til að taka mynd af þeim og þáðu þeir það.
Gunnar Stefánsson hafði
rokið sjoppuna Snæland í
Mosfellsbæ í mörg ár
þegar honum flaug í hug að
breyta um karríer. Hann segir
leiklistina hafa verið leyndan
draum, og verður að taka hann
trúanlegan því að sögn bróður
hans hafði Gunnar aldrei sýnt
áhuga á leiklist fyrr en fyrir
íjórum árum þegar hann tók
þátt í leikhópi Hlínar Agnars-
dóttur, Leyndir draumar.
Leiddist
Til að fá nú ekki kúltúrsjokk við
að fara úr söluturninum í skóla
aftur byrjaði Gunnar á því að
fara á árskúrsus í Emerson
College, þar sem læra mátti ým-
islegt varðandi
listir; skúlptúr,
myndlist, tón-
list, frásagnir.
Ekki var það
nóg fyrir fyrr-
um sjoppustjór-
ann. Honum
leiddist og
ákvað að stofna
leikhóp. Kvikn-
aði þá hug-
myndin að
Prinsessunni
sem hópurinn
setti upp en í
mun styttri og
hrárri útgáfu en sú sem verður
á sviði Hótel íslands í septem-
ber. Þótt leikritið væri hrátt
virðist það hafa dugað til að
fleyta honum inní Bristol Old
Vic skólann.
„Það sá þetta maður úti sem
er mjög virtur frásagnaþulur í
Englandi, leikari og rekur m.a.
frásagnarskóla við Emerson
College. Hann skrifaði bréf um
mig til Bristol Old Vic og talaði
um að hann hefði aldrei nokk-
urn tímann séð amatöra gera
aðra eins hluti. Ég kann nú ekki
að lýsa því bréfl mjög náið.
Þetta var bara flott verk, það
verður að segjast eins og er...“
sagði Gunnar og glotti hógvær.
„En það varð allavega til þess
að menn gáfu því gaum sem ég
var að gera.“
Því varð úr að Gunnar fór í
leikstjórnarnám þótt upphaf-
lega stefnan hefði verið tekin á
leiklist. „En þetta á víst að vera
svo flottur og merkilegur skóli
og það var svo merkilegt að
fara þangað," sagði Gunnar og
fannst því ekki annað hægt en
að grípa tækifærið. „Þeim
fannst ég nú bara merkilegri en
skólinn,“ bætti hann svo við, lít-
illátur að vanda, og benti til
marks um það að hann fékk að
þvæla 8 manna leikhóp úr skól-
anum til íslands
í páskafríinu til
að setja upp
Northern
Lights, í Þjóð-
leikhúskjallar-
anum og á
Tálknafirði.
Handrits-
höfundur
og vélstjóri
Gunnar bætti
síðar lögum inn
í leikritið um
Prinsessuna og
hann ákvað ásamt félaga sínum
að setja leikinn upp á íslandi.
En þá vantaði handritshöfund.
Gunnar hafði samband við
bróður sinn, Stefán Jóhannes
Sigurðsson, vélstjóra í frysti-
húsinu á Tálknafirði, og bað
hann um að koma út. Jóhannes
hlýddi kallinu, kom út í tæpa
viku, hljóp á eftir Gunnari um
allar jarðir með möppu og
pappír, skrifaði niður hugmynd-
ir og flaug heim. „Fjórum vik-
um seinna var handritið bara
tilbúið með textum og öllu,“
segir Gunnar stoltur og hrósar
bróður sínum í hástert. Jóhann-
es er ekkert skólaður í hand-
ritagerð en er geysilegur kvik-
myndaáhugamaður sem kemur
sér vel því kvikmyndir spila
stóra rullu í söngleiknum.
„Þetta er ekki söngleikur til að
koma og vera í fýlu á heldur
áttu að skemmta þór.“
Njósnari, kúreki,
geimfari, hermaður
Söngleikurinn er óður til kvik-
mynda, leiklistar og tónlistar -
og ekki bara rokksins því í
verkinu eru spilaðir slagarar,
bútar úr sinfóníum, djass,
Carmina Burana, Mozart og tvö
lög samin sérstaklega fyrir leik-
inn.
Söngleikurinn er nefnilega
tímalaus. Hann segir frá einum
degi í lífi prinsessu sem þarf að
gifta í DAG - enda orðin hvorki
meira né minna en 21s árs.
Þennan dag er haldið einvígi
mikið en þangað koma bestu
riddarar heims til að berjast
um prinsessuna og 1/2 ríkið.
Persónurnar eru sumar eins og
klipptar út úr Grimms-ævintýr-
um en riddararnir eiga sér fyr-
irmyndir úr kvikmyndum.
„Einn er njósnari, annar kú-
reki, þriðji geimfari og (jórði
hermaður."
Nettbilaður
Gunnar er með ýmislegt fleira á
prjónunum. Hann segist ekki
ætla að reyna að komast að hjá
stóru leikhúsunum enda verður
að segjast að það er einyrkja-
baugur yfir þessum manni,
stofnanavesen og leikfélagslýð-
ræði blönduðust geði hans hk-
lega illa. „Ég er bara sjálfstæð-
ur maður og ef mig langar að
setja upp leikrit þá geri ég það.
Ef ekki, þá fer ég bara að vinna
eitthvað annað. Æi, ég veit ekki,
maður er nú nettbilaður..." lóa
... talaði um að
hann hefði
aldrei nokkurn
tímann séð
amatöra gera
aðra eins
hluti...