Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.08.1997, Síða 5

Dagur - Tíminn Reykjavík - 15.08.1997, Síða 5
,IDagur-(IImTmn Föstudagur 8. ágúst 1997 -17 LEIKHÚS KVIKMYNDIR TÓNLIST SKEMMTANIR UMSJÓN Lóa Aldísardóttir Úti alla nóttina... Bókabfll opinn á Lækjartorgi. Finnur Bjarnason syngur á tónleikum í Borg arleikhúsi. Botnleðja spilar á Ingólfstorgi. Bubbi syngur á lokaathöfn við Tjörnina. Menningarnótt Reykjavíkurborgar tókst glimrandi vel ífyrra. Veðurguðir hlýddu en einhver kergja virðist í þeim núna. En Reykvíkingar eru hvattir til að láta ómerkilega skúraspá ekki eyðileggja fyrir sér menningarnóttina, nóttina sem öll fjöl- skyldan getur gengið á milli háleitra listviðburða og kraftmik- illa œskuhljómsveita án þess að fá á sig hornaugu úr öllum áttum. Hér á síðunni er búið að tína sam- an í nokkra efnisflokka megnið af því sem fjölskyldan getur gert sér til upplyftingar á menningarnótt. Setning: Herlegheitin hefjast með ávarpi borg- arstjóra og skemmtiatriðum á Ingólfs- torgi kl. 17. Meðal skemmtikrafta eru Jón Rúnar Arason, tenór, Skari skrípó, KK og Jón Ólafsson auk Götuleikhúss- ins. SÖFN: • Listasafn íslands verður opið kl. 17- 23, þar verða erlend grafík, frum- kvöðlar í íslenskri málaralist og mál- verk innblásin af íslenskum fornsög- um. • Listasafn og heimili Einars Jónssonar opin kl. 13-22. • Ljósmyndasýninginn í Árbæjarsafni opin til kl. 22. • Hægt að skoða sýningu 27 ungra ítalskra myndlistarmanna x' Nýlista- safninu, m.a. elektrómska tónlist. • Sýning ívars Valgarðssonar í Ásmund- arsal er opin til kl. 23. • Kl. 21 stundvíslega munu borgarfull- trúarnir Áriú Sigfússon og Guðrxín Ágústsdóttir taka þátt í náttsöng í litlu miðaldakirkjunni í Þjóðminjasafninu. • Hljómsveitin Fástína leikur fyrir gesti sýningarinnar Himnaríki eða helvíti í Þjóðarbókhlöðunni kl. 20. • Mætið kl. 14 aðalinngang Ráðhússins. Þá hefst stutt gönguferð um miðbæinn undir leiðsögn Péturs H. Ármanns- sonar arkítekts. • Allir eru velkomnir í bókabíl Borgar- bókasafnsins á Lækjartorgi miili 17 og 22. VERKSTÆÐI: • Grafíklistamenn sýna verk í leiguhús- næðinu sínu að Tryggvagötu 15 (kl. 17-24). • Myndhöggvarar í Reykjavík eiga 25 ára afmæli og halda sýningu að Ný- lendugötu 15 (kl. 14-24) GALLERI: • Gunnar Karlsson á Sjónarhóli. • í Galleríi Ilorni verða portrettljós- myndir Sigríðar Ólafsdóttur til sýnis og kl. 21 verður dagskrá til minningar um 60 ára ártíð Dags Sigurðarsonar utangarðsskálds. • í Stöðlakoti verður opið svona lengi: 14 —>?. Þar er síðasti dagur sýning- ar Gunnars J. Straumlands. • í Galleríi Fold (kl. 17-01) verða sýnd- ar frummyndir Halldórs Péturssonar af jóla- og tækifæriskortum og lista- menn verða við vinnu sína. • Charles Manson flytur ávarp í boði RelaxFax í Gallerí Hlust. Viljirðu á hann hlýða, hringdu þá í 5514348. VINNUSTOFUR: • í Galleríi Kóbolt við Laugaveg 55 verður opin vinnustofa þar sem gestir geta fylgst með leirklumpum verða að listrænum gripum. • Guðbjörg Káradóttir verður að renna leir á verkstæði sínu Krít í Hlaðvarp- anum. KIRKJUR: • Orgel, óbó, kór og náttsöngur mun hljóma frá 17.45-24 í Hallgrímskirkju. • Tónlist kl.22.30-23.30 í Dómkirkjurmi • Aftansöngur til heiðurs Móður Guðs verður sunginn á latínu kl.19 í Krists- kirkju. LEIKLIST: • Miðnætursýning (kl. 23) á Veðmálinu í Loftkastalanum. • Sýningum Evítu fer fækkandi. Söng- leikurinn verður sýndur kl.20 í Óper- unni en milli ki. 16-18 verður grill- veisla í Ingólfsstræti í samvinnu við Argentínu steikhús. • Götuleikhópurinn Afreksmenn og ör- lagavaldar flytur leikþáttiim Alfreð mikli kl. 22 við Bernhöftstorfu. TÓNLIST: • Unga kynslóð óperusöngvaranna syngur á einsöngstónleikum í Borgar- leikhúsinu kl. 14.30. • Tónlistarveisla Áshildar Haraldsdótt- ur og fjölda annarra í gamla Sjálf- stæðishúsinu/Sigtúni við AusturvöU kl. 18-24. • Fyrir þá sem ekki unna klassískri verða útitónleikar á Ingólfstorgi kl. 21-22.30 með hljómsveitunum Botn- leðju, Maus og Quaharashi. • Jazztríó Reykjavíkur og Þuríður Sig- urðardóttir leika og syngja léttan jazz kl.22- 23.30 í porti Ilafnarhússins. • Tónlist, gjörningar og upplestur í Máli og menningu kl. 17-01. VEITINGASTAÐIR OG KAFFIHÚS: • Hér verða ekki taldir upp allir staðir þar sem hægt verður að fá sér öl að drekka eður mat að borða, þeir eru yfirgengilega margir. Þeir staðir sem bjóða upp á fleira en mat eru m.a.: Lifandi tónUst til 3 á Ara í ögri, skandinavískur og jómfrúrlegur jazz frá kl. 22 á Jómfrúnni, gítarleikur fram á nótt í Kofa Tómasar frænda, leikþátturinn Frátekið borð eftir Jón- ínu Leósdóttur fluttur í Ráðhúskaffi kl. 21. ANNAÐ: • íslenskir pönkaðdáendur geta riíjað upp gullöldina kl. 19 í Ráðhúsinu þeg- ar Rokk í Reykjavík verður sýnd. • Slides-mynda tískusýning á framhlið Tunglsins. • Hópur ungra arkítekta hannar rými við Ingólfstorg þar sem innhverfu heimilislífsins er varpað út á gafl!? • Ljósmyndamaraþon Hans Pedersen hefst kl. 10 og stendur í 12 klst. Lokaathöfnin: Bubbi verður meðal þeirra sem kveðja menningarnóttina við Rcykjavíkurtjöm kl. 23.30. Siglt verður á bátum með logandi kyndla og stundvíslega á mið- nætti hefst flugeldasýningin. Skarí verður með skrípó á setningunni. Tónlist í Hallgrímskirkju fram á miðnætti. Evíta sýnd kl. 20. HELGIN FRAMUNDAN HVAÐ ER I BOÐI?

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.