Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.09.1997, Side 1

Dagur - Tíminn Reykjavík - 17.09.1997, Side 1
Verð í lausasölu 150 kr. aaur- Qíxmxnn 7 Miövikudagur 17. september 1997 - 80. og 81. árgangur 174. tölublað BlaðJL Fréttir og þjóðmál Fjárfestingarbankinn 1 Siglufjörður Bjarni ráð- inn forstjóri Stjórn Fjárfestingarbanka at- vinnuh'fsins hf. réð í gær Bjarna Ármannsson, forstjóra Kaupþings hf., í starf forstjóra. Hann lauk prófi í tölvunarfræði frá Háskóla íslands árið 1990 og lauk MBA gráðu frá IMD við- skiptaháskólanum í Lausanne í Sviss árið 1996. Hann er 29 ára gamall hefur síðasta misserið gegnt starfi forstöðumanns Kaupþings, en þar hefur hann starfað síðan 1991. Bjarni sagði í samtali við Dag-Tímann að tilboð um að taka við þessu starfi hefði á margan hátt komið á óvart. Starfið sé öðruvísi en það sem hann hafi verið í, þó á margan hátt séu aðalatriðin þau sömu. Bjarni segir að starfsmenn þeirra sjóða sem renna inn í Fjárfestingarbankann þurfi sem fyrst að fá skýr skilaboð um hlutverk þeirra og hver sé stefna bankans. Hann segir að stofnun sem þessi geti haft veruleg áhrif á þróun atvinnu- og viðskiptalífs. HH Sjá nánar viðtal við Bjarna á blaðsíðu 2. Pylsan þekkir engin landamæri og er hungruðum saðning í erli hversdagsins, hvort heldur er í New York, á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn eða á Siglufirði, þar sem þessi mynd var tekin. Mynd: as Forsjármál Stjómvöld kærð til Strassborgar Forsjár- og umgengn- isdeila manns frá Kongó og íslenskrar konu kemur 1. októ- ber til kasta Evrópu- dómstólsins. André Miku Mpeti, við- skiptafræðingur frá Kongó, sem dvalið hefur hér á landi um árabil, hefur með fulltingi stjórnvalda í heimalandi sínu kært til Evr- ópudómstólsins í Strassbourg meðferð á forsjármáh sínu hér á landi og þátt íslensks stjórn- og dómsvalds í því. Verður máhð tekið tU fyrra stigs meðferðar í Strassbourg 1. október næstkomandi, en þá verður ákveðið hvort málið fer aUa leið til úrskurðar. Andró Miku hefur um nær fimm ára skeið barist fyrir því að fá forsjá, en tU vara virk- an umgengnisrétt, yfir tveimur börnum sínum með íslenskri konu. Fyrir Uggur úrskurður um forsjá móðurinnar, sem hann véfengir. Sjálfkrafa réttur hans tU umgengni, sem byggir á 58. grein barnalaga, hefrn- ekki verið virtur að hans sögn, þrátt fyrir ítrekaðar óskir til yfir- valda um liðsinni. frá André Miku Mpeti. Með fulltingi stjórnvalda í Kongó hefur forsjármál hans og meðferð þess hér á landi ver- ið kært til Evrópudómstólsins í Strassborg. Málið þæft, tafið og svæft Synir hans og konunnar eru sex ára og tæplega fimm ára, en þá hefur André ekki fengið að sjá eða hitta frá því um jólin 1992, þegar yngri sonurinn var ný- fæddur. Segir hann að sonum sínum hafi kerfisbundið verið haldið frá sér. André segir að stjórnsýslu- og dómskerfið hér hafi með fuUtingi lögfræðinga gert sitt ítrasta tU að þæfa máUð, teíja og svæfa. Hafi þar ýmsum brögðum verið beitt og honum jafnvel hótað að hann yrði gerður brottrækur landinu. André hefur leitað aUra ráða til að ná rétti sínum fram, með eða án aðstoðar íslenskra lögfræðinga, en segir að alls staðar hafi hon- um verið settin- stóllinn fyrir dyrnar. Um leið hefur óyggjandi rétti hans tU umgengni við drengina aldrei verið framfylgt af yfirvöldum, þótt sá réttur sé skýr og óumdeildur. Segir André að rétt eins og Halim A1 í Tyrklandi sé faUð fyrir honum hvar dreng- irnir séu og haldi hann nú helst að þá sé að finna á Norður- landi. Dómsmálaráðuneytið tjáir sig ekki um málið „Ég fer með mál mitt til Strass- bourg vegna þess að íslensk stjórnvöld hafa ekki getað virt íslensk lög, sérstaklega barna- lög frá 1992, né heldur alþjóð- leg lög og sáttmála Evrópuráðs- ins og Sameinuðu þjóðanna - öll þessi fimm ár minnar bar- áttu. Mannréttindi hafa ítrekað verið brotin á mér kerfisbundið aUan tímann. Ég leitaði aðstoð- ar stjórnvalda heimalands míns, sem hafa hringt og skrif- að til íslenska dómsmálaráðu- neytisins. Eina svar þess var skammarlegt bréf, þar sem vanvirðingin er alger. Bréf þetta verður eitt sterkasta gagnið í máU mínu í Strassbourg," segir André Miku Mpeti. í dómsmálaráðuneytinu var blaðamanni Dags-Tímans vísað á Drífu Pálsdóttur skrifstofu- stjóra. Hiin vUdi ekki tjá sig um þetta tUtekna mál og benti á að stjórnvöldum væri óheimilt að tjá sig um einstök mál við íjöl- miðla. fþg Neysluvatnsdælur SINDRI -sterkur í verki BOBGARTUlJTTr* SÍMl 562 7222 • BREFASÍMI 562 1024 t

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.