Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.09.1997, Blaðsíða 4

Dagur - Tíminn Reykjavík - 18.09.1997, Blaðsíða 4
16 - Fimmtudagur 18. september 1997 I0agur-3Imtmn UMBÚÐALAUST Eigi vil ég Babe vera Ragnhildur Vigfúsdóttir skrifar S nýjustu Veru fær Einar Gúst- avsson fulltrúi Ferðamála- ráðs íslands í New York mínus fyrir ummæli í viðtali við tímaritið Men’s Journal. Grein- arhöfundur leitar til hans áður en hann fer til Eyjunnar í norðri, þar sem allt fallega kvenfólkið er, en Mr. Gustavs- son varar hann við að taka vin- konu sína með sér því það sé eins og að fara með kaffi til Brasilíu. „Don’t ever bring a woman to Iceland. The Viking women will come for you,“ sagði hann og rödd hans varð blíðleg. í blaði allra landsmanna, Degi Tímanum, mátti lesa fyrr í vikunni að fegurð íslenskra kvenna hafl verið í sviðsljósinu vestan hafs að undanförnu, tfl dæmis í sjónvarpsþáttum og greinaskrifum þar sem rætt hafi verið um ísland sem Babe- land. Ferðamálaráði hefur sumsé tekist vel landkynningin sem Vera gefur Mr Gustavsson mínus fyrir. Stelpurnar í Ungfrú ísland keppninni. Er það ekki slík náttúra sem selst best? Ó mig auma - Babe Ég lifi svo rólegu og vernduðu lífi ijarri heimsins glaumi að Babe-æðið hafði farið fram hjá mér. Ég kemst líklega seint í Babe-flokkinn þótt ég fegin vildi þannig að landkynning mín er enn svo gamaldags að hún markast af menningu, sögu og náttúru landsins. í gamla daga vann ég á hótelum, var farar- stjóri, setti upp sýningar á minjasöfnum og ritstýrði meira að segja bók um söfn á íslandi, en svo breytti ég um starfsvett- vang þannig að langt er síðan ég hef komið nálægt ferða- mennsku. Slag- orð Ferðamála- ráðs, Amazing Iceland, kallaði ekki fram nein viðbrögð. Pað að Ferðamálaráð skuli nota skatt- peningana mína til að kynna ís- land sem Babe-land ýtir hins vegar við löngu gleymdum for- dómum gagnvart því apparati. Hefur Ferðamálaráð gefist upp á að selja náttúru landsins og reynir þess í stað að selja nátt- úru kvenna? Kynh'fsferðir til íslands - og allt ókeypis sem þú þarft að borga fyrir í öðrum „siðmenntuðum" löndum. Hvað með kvenkyns ferðalanga? Hvers eiga íslenskir karlmenn að gjalda? Eins og þeir eru nú sætir. Er ekki hægt að auglýsa þá upp? Til dæmis hvað þeir eru sterkir, vinna mikið, drekka mikið og eru alltaf til í tuskið. „En taktu með þér smokk, það er að segja ef þú vilt ekki fara með lítinn vík- ing heim í kaupbæti," gæti þá Mr. Gustavs- son sagt við Women’s Journal sposk- ur á svip. Tveir á verði eins fengi nýtt inn- tak. Ég reyndi það sjálf í byrj- un mánaðar að gamla þríeykið trekkir enn. Bandarísk vinkona kom með eiginmann og átta mánaða son. Babe-umræðan virðist hafa farið fram hjá þeim og þau höfðu engan áhuga á að kíkja á næturh'fið, hvorki í Reykjavík né Akureyri. Þess í stað var draumurinn að sjá jökla, fossa, hveri og helst nokkur söfn. í níu daga þeysti ég með þau um landið. Krýsuvík, Geysir og Námaskarð voru amazing, Þingvellir, Gullfoss, Snæfellsnes, Goðafoss og Mývatn cool, Bláa Lónið, Árbæjarlaugin og Þela- merkursundlaugin out of this world, Listasafn íslands, Húsið og Sjóminjasafnið á Eyrar- bakka, Glaumbær og Vestur- farasetrið so interesting. Þegar ekki var hægt að sigla um Breiðafjörð eða skoða hvali í Eyjafirði vegna veðurs var því vel tekið og skellt sér í búðir, keyptar lopapeysur, loðhúfur, sfld og lax. Hann sem hafði aldrei verið hrifinn af fiski borðaði ekkert annað, rétt fékkst til að smakka lunda og lambalæri. Þegar ekki var hægt að fljúga frá Akureyri vegna roks var tekinn bílaleigubíll og ekið til Keflavíkur. íslandsferð- in kostaði þau heilan helling, en þau fóru alsæl. Þau höfðu aldrei séð neitt þessu líkt - og höfðu þó ekki rekist á svo mikið sem eitt Babe. Hefur Ferðamdla- ráð gefist upp d að selja ndttúru landsins og reynir þess í stað að selja ndttúru kvenna? m ÞU hefúr forskot á hina Alvöru ef þú ert góð(ur) á TÖLVU Bókhaldsnámskeið Tölvunám sem stenst kröfur vinnumarkaðarins Námsefnið er raunveruleg fylgiskjöl Pú lærir meðal annars: • Windows 95 ■ Skjalavistun ■ Ritvinnslu • Töflureikni ■ Glærugerð ■ Auglýsingagerð ■ Umbrot bæklinga og fréttabréfa ■ Internet = Vefur // Póstur // Spjallrásir ■ Uppsetningu forrita Tölvubúnaður Internet Allar tölvur skólans eru með 200 MHz MMX örgjörva og tengdar við Internetþjónustu nett.is um háhraðanetsgátt Þú velur morgun- eða kvöldnám Námið hefst 30. september F>ú lærir meðal annars: ■ Að merkja fylgiskjöi ■ Að færa algenga gjaldaliði, t.d. vörukaup, húsaleigu, símkostnað, þjónustugjöld banka og FIT-kostnað ■ Að færa útreikning launa og launatengdra gjalda ■ Hvernig á að reikna og gera upp VSK ■ Að færa sjóðsbók ■ Að stemma af dagbókarlykla eftir hreyfingalistum ■ Að undirbúa uppgjör fyrirtækis Að námi loknu verður vinnan við bókhaldið leikur einn ATH. Námið hefst um 29. september Offíce 97 Að sjálfsögðu kennum við á nýjustu útgáfurnar af forritunum Hafðu samband við okkur og fáðu senda ókeypis námslýsingu Innritun og allar nánari upplýsingar í síma 462 7899 ATH. Námið hefst um 30. september NÁM SEM NÝTIST TÖLVUFRÆÐSLAN Furuvöllum 13 Símar 462 7899 og 896 5383 Innritun og allar nánari upplýsingar I síma 462 7899 VISA

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.