Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Blaðsíða 2
18 - Fimmtudagur 29. ágúst 1996
Jlagur-®útrám
<$!>toyota
Bílasalan
Stórholt
Óseyri 4 • Akureyri
Sími 462 3300
Ford Explorer 1991.
Sjálfskiptur, ekinn 53 þús.,
upphaskkaður á 33“ dekkjum, með
spili. Toppeintak, verð 2.250.000
Toyota 4-Runner 1990.
5 gíra, ekinn 100 þús.,
upphaskkaður á 33“ dekkjum.
Verð 1.750.000.
Toyota Landcruiser MWB
mlllilangur 19Ö9.
Ekinn 163 þús., góð viðhaldsbók.
Vfcrð 1.450.000
Toyota RAV-41996.
Sjálfskiptur, ekinn 12 þús.,
brettakantar, sílsabretti, grind.
Verð 2.360.000.
Hyundai Sonata GLSi 1994.
Sjálfskiptur, ekinn 40 þús.
Verð 1.420.000.
Daihatsu Charade
S G 1300 1993.
5 gíra, ekinn 53 þús.
Verð 700.000.
Toyota Corolia L/B
GLi 16001993.
5 gíra, ekinn 71 þús.
Verð 1.100.000.
Bílasalan
Ó8eyri 4 • Akureyri
Sími 462 3300
LÍF SKJÖRIN í LANDINU
Yngra fólk flnnur
síður fyrir vorinu
í efnahagslífínu
Ýmsir spá óróa
á vinnumarkaði í
árslok
✓
opnunni hér til hliðar
eru flögur viðtöl við fólk
úr jafnmörgum starfs-
stéttum. Þar má finna þroska-
þjálfa, fólk úr sjávarútvegi,
landbúnaði, meðferðarfulltrúa
og nema. Viðmælendur blaðsins
eiga það allir sameiginlegt að
lýsa eftir góðærinu og er al-
menn óánægja með kaup og
kjör. Landverkafólk hefur aftur
óyggjandi bætt stöðu síha, eins
og sjá má á línuriti.
Ýmsir hafa að undanförnu
orðið til að spá óróa á vinnu-
markaði í árslok. Margt styður
slíkar vangaveltur, en þó heyr-
ist einnig sá tónn að láglauna-
fólk hafi hreinlega gefið upp á
bátinn hugmyndir um kjara-
bætur og fá forystumenn laun-
þegahreyfinga slaka einkunn.
Almennt er þó bjartara yfir
efnahagsmálum þjóðarinnar en
verið hefur xun langt skeið.
Horfur eru á meiri fiskafla en
reiknað hafði verið með, bæði
vegna úthafsveiða og aukinna
aflaheimilda. Hins vegar segir
Þjóðhagsstofnun að nú stefni í
meiri vöxt þjóðarútgjalda en
reiknað var með og hefur
einkaneysla aukist töluvert á
þjóðarmælikvarða. Þetta kemur
þó ekki fram í viðtölum blaðs-
ins.
Hagvöxtur verður örari en
spáð hafði verið og er talað um
4,5% á árinu. Jafnframt gerir
Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að
þjóðarútgjöld vaxi hraðar um
essar mundir en þjóðartekjur.
því felst ákveðin þensluhætta
og vaxandi halli í viðskiptum
við útlönd.
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar
segir: „Vorið er áreiðanlega fyrr
á ferðinni hjá þeim sem eru
komnir efnahagslega „fyrir
horn“, eru sem sagt eldri.
Hugsanlega er þrengra fyrir
dyrum hjá ungu fólki sem er að
koma sér fyrir á vinnumarkaði,
koma yfir sig húsnæði og þess
háttar.“
Svo virðist einmitt sem yngra
fólk berjist í bökkum víða um
land, en jafnframt biður eldra
fólkið guð að hjálpa þeim öldr-
uðu einstaklingum sem ekki
eiga sitt húsnæði sjálfir. Launa-
vísitala er nú um 6% yfir með-
altali síðasta árs og má skýra
auknar tekjur með meiri at-
vinnu og launahækkunum.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á
mann eykst því um 4,5%, skv.
nýlegri endurskoðaðri spá frá
Þjóðhagsstofnun. Þótt viðmæl-
endur Dags-Tímans segist ekki
finna fyrir þessu ennþá, standa
líkur til að þessi þróun haldi
áfram og kjarabætur komist um
síðir í vasa þeirra sem helst
þurfa á því að halda. Það leysir
þó engin framtíðarvandamál að
bæta sífellt við vinnutíma fólks-
ins, ekki síst ef atvinnuleysistöl-
ur eru skoðaðar. -BÞ
„Það er ömurlegt þegar látið er eins og störf manns séu einskis nýt, launin benda
a.m.k. til þess,“ segir Hanna María meðal annars. Hér er hún á heimili sínu ásamt
dótturinni Hólmfríði. DT-mynd: gs
Launataxti að hætti
Florence Nightingale
Hanna María Stefánsdóttir
þroskaþjálfi og Hólmfríð-
ur Jóhanna Björgvins-
dóttir, 8 ára dóttir hennar, búa í
verkamannabústað að Gullteig
1 í Kópavogi. Heimilisfangið er
tilkominnikið og íbúðin hlýleg,
en Hanna María segir að lífið
innan veggja hennar sé jafnan
fábrotið hjá mæðgunum. „Það
er alveg sama hvenær þið kom-
ið, ég er alltaf heima eftir
vinnu. Við höfum aldrei efni á
að fara neitt út,“ sagði hún þeg-
ar Dagur-Tíminn falaðist eftir
viðtali.
Hanna María útskrifaðist
sem þroskaþjálfi árið 1987.
Námið tekur 3 ár og inntöku-
skilyrði eru 6 mánaða starfs-
reynsla og stúdentspróf. Stríp-
aður taxti nýútskrifaðra
þroskaþjálfa er um 65.000 kr.
„Það væri fínt að vera þroska-
þjálfi ef maður væri ekki á
þessum Florence Nightingale
taxta," segir Hanna María, en
hún starfar á Lækjarási, sam-
býli borgarinnar fyrir fatlaða í
Stjörnugrófinni.
Mánaðartekjur eru 85.221
kr., sem þýðir að 70.941 kr.
koma í vasa hennar. Vinnutími
er frá 9-5 og enginn kostur á
meiru. Starfið felst aðallega í
líkamlegri og andlegri umönn-
un við þroskahefta einstak-
linga. „Þessi laun eru alls ekki
boðleg miðað við nám á há-
skólastigi og þá ábyrgð sem við
höfum í vinnunni. Við tökum
t.d. til lyf eftir umsögn læknis.“
Eftir að hafa fræðst um starf-
ið minnist blaðamaður á góð-
ærið „altalaða“, en mætir hörð-
um viðbrögðum. „Hvaða góð-
æri? Þetta tal um góðæri fer
beinlínis í taugarnar á mér. Ég
get ekki leyft mér að fara í bíó í
þessum mánuði, ekki frekar en
Hagtölurnar sýna ekki alltaf þann veruleika sem er á heimilunum. Samt er Ijóst að
margir eru þegar farnir að telja meiri peninga upp úr launaumslögunum. Þjóðhags-
stofnun metur svo að kaupmáttur sé nú 7% meiri en í upphafi síðasta árs. Reiknað
er með að atvinnutekjur á mann muni hækka um 7,5 % á þessu ári.
í síðasta mánuði eða mánuðin-
um á undan. Við mæðgurnar
fengum vídeótæki í sumar í af-
mælisgjöf, en fram til þess höfð-
um við aldrei haft efni á að eiga
vídeótæki. Hlutir eins og Stöð 2,
Stöð 3 og Sýn eru okkur t.d. al-
gjörlega framandi."
Eins og áður segir búa
mæðgurnar í Gullteignum í fé-
lagslega kerfinu. Með aðstoð
foreldra sem passa Hólmfríði á
vinnutíma auk þess sem faðir
Hönnu Maríu léttir undir með
rekstri bflsins, tekst henni rétt
að halda sjó. Og hún er ekki ein
á báti. „Þetta er alls staðar
svona,“ svarar Hanna María
einfaldlega, aðspurð hvort hún
þekki mörg dæmi um svipaða
stöðu.
Talið berst að svigrúmi til
launahækkana og Hanna María
telur auðvelt að bæta hag lág-
launastéttanna með því að
minnka yfírbyggingu innan
kerfisins. Hún er jafnframt
ósátt við verkalýðsöfl og laun-
þegahreyfingar. „Verkalýðsfor-
ystan hefur brugðist, hinn al-
menni félagsmaður er algjör-
lega útundan. Það er komin
upp sú staða að fólkið í landinu
er svo hrætt og kúgað að það
fer ekki einu sinni í verkfall.
Fyrir utan það að láglaunafólk
hefur engin efni á því. Það
myndi allt hrynja.
Það ætti að skylda þá sem
sitja í toppsætunum að vinna í
eina viku á vinnustað eins og
mínum, þá myndu þeir skilja
um hvað er að ræða. Það er
ömurlegt þegar látið er eins og
störf manns séu einskis nýt,
launin benda a.m.k. til þess.“
Hanna María telur að eðli-
legt væri að framfærsla hennar
og Hólmfríðar væri um 140 þús.
kr. útborgað til að komast bæri-
lega af. Hún á þó ekki von á að
úr rætist á næstunni. í lok við-
talsins berst talið að heilbrigð-
ismálum, en nýlegar reglugerð-
ir hafa komið hart niður á
Hönnu Maríu og dóttur hennar.
Hólmfríður er með astma og
þegar köstin verða slæm fer
lyflakostnaður upp í 10.000 kr.
á mánuði. Fyrir nokkrum árum
greiddi rflcissjóður hins vegar
lyfin að fullu. „Þetta er dæmi
um þróunina í þjóðfélaginu og
það sér ekki fyrir endann á
henni.“
Hanna María er alvarlega að
hugsa um að flytja út fyrir land-
steinana, bæði af illri nauðsyn
og einnig finnur hún fyrir
þverrandi þjóðarstolti. Hún seg-
ist jafnframt hafa gefið draum-
inn um umtalsverðar kjarabæt-
ur upp á bátinn. -BÞ