Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Síða 11

Dagur - Tíminn - 29.08.1996, Síða 11
|Dagur-®nmmt Fimmtudagur 29. ágúst 1996 - 27 FÍNA O G FRÆGA FÓLKIÐ David Caruso Drekkur sig í hel! Ekki er langt síðan leikarinn David Caruso var einn sá heitasti í Holly- wood. Eftir að hafa slegið í gegn í lögguþáttunum NYPD Blue lét hann freistast af gylliboðum frá kvik- myndaframleiðendum og hann fékk hvert stórhlutverkið af öðru. En nú er farið að halla undan fæti. Mynd- irnar hafa ekki náð vinsældum og tilboðin eru hætt að berast. Caruso er niðurbrotinn og eyðir nú flestum kvöldum á krá í Los Angeles, þar sem hann húkir einn úti í horni og sturtar í sig viský sjússum og hlustar á hljómsveit hússins. Caruso var óvirkur alki. Hann mætti reglulega á AA fundi en nú hefur hann gefið það upp á bátinn. „David er hættur að mæta á fundi, hann sefur ekki á nóttinni og étur ekki reglulega," var haft eftir Mar- gréti, eiginkonu leikarans. „Hann er þunglyndur og sér mikið eftir að hafa hætt að leika í NYPD Blue,“ segir eiginkonan. Caruso taldi sig fullfæran um að slá í gegn á hvíta tjaldinu og yfirgaf félaga sína í NYPD Blue. En mynd- irnar hans, Kiss of Death og Jade fengu hryllilegar viðtökur. Barbet Schroeder, leikstjóri Kiss of Death, sagði að Caruso væri „erf- iðasti leikari" sem hún hafði nokk- urn tíma unnið með og Jade var val- in lélegasta mynd síðasta árs af gagnrýnendum. Nýjasta mynd hans heitir Cold Around the Heart, en ekki er búist við miklu af henni og Caruso hefur enga aðra kvikmynd í bígerð. Leikarinn góðkunni David Caruso er nær óþekkjanlegur i dag. Undanfarna þrjá mánuði hefur hann dvalið heilu og hálfu næturnar á bar í Los Angeles, setið úti í horni og sötrað ^ viský. ™ Tom Cruise Ýkt hetja Nýlega birtust fréttir af því að leikarinn Tom Cruise hefði verið sannkölluð hetja þegar hann var sagður hafa bjargað ítölskum sjóförum af brennandi snekkju undan ströndum Napolí. Fréttirnar af hetjudáðinni voru þó stór- lega ýktar, ef marka má skipherra snekkjunnar sem sökk. Giovanni Costa, vell- auðugur eigandi snekkjunn- ar, ber Cruise ekki vel sög- una. „Hann hvarf undir þilj- ur eftir að hann hafði fest atburðinn á filmu af þilfar- inu á sinni snekkju. Þegar Cruise og félagar þorðu loksins upp að hliðinni að okkur vorum við öll löngu komin yfir í björgunarbát- inn,“ segir Costa. Christy Turlington Kjöt á beinm Fyrirsætan tággranna Christy Turlington hefur verið beðin um að bæta á sig nokkrum kílóum. Það er kærasti stúlkunnar, leikar- inn Jason Patric, sem vill fá meira kjöt á beinin en orð- rómur hefur verið á kreiki um að þau hyggi á giftingu innan tíðar. En Patric hefur ekki bara áhuga á líkama stúlkunnar - hann hefur hvatt hana til að setjast aft- ur á skólabekk og sitja áfanga í háskóla. Þess má geta að Patric þessi er fyrr- verandi kærasti Juliu Ro- berts og er nú spáð miklum frama í Hollywood. Pabbi í þriðja sinn Kraftakarlinn Sylvester Stallone og unnusta hans, fyrirsætan Jennifer Flavin, eignuðust erfingja á þriðju- dag. Lítil stúlka kom í heiminn og henni var gefið nafnið Sophia Rose. Stall- one tók sér frí frá tökum á myndinni Copland, sem nu er fest á filmu í New York og New Jersey, og flaug til Maiami til að vera við- staddur fæðinguna. Áður höfðu birst fréttir um að Stallone ætlaði sjálfur að taka á móti stúlkunni í heimahúsi með leiðsögn ijósmóður, en þegar á reyndi fæddi unnusta hans á sjúkrahúsi. Úr axlarlið Matt LeBlanc, sem leikur hinn treggáfaða Joey í þáttunum Vinir á Stöð 2 lenti í óhappi við tökur á þáttunum sl. föstudag. Matt ætlaði að sýna snilli sína og stökkva upp á stól en misreiknaði sig eitthvað og flaug á hausinn. Eitt- hvað lenti strákurinn illa og við höggið fór hann úr axlarlið. Stjarnan vældi og skældi í dágóða stund. Anna Nicole Smith Barmtirinn að gefa sig? Ljóskan barmgóða Anna Nicole Smith var flutt í flýti á sjúkrahús fyrir skömmu þegar blæða fór úr brjóstum hennar. Smith, sem hef- ur viðurkennt að hafa farið í sex brjóstastækkanir, var í nokkra daga á spítalanum þar sem gert var að sárum hennar og „óbæri- legar þjáningar“ hennar voru linaðar. Ekkjan Smith stendur nú í miklum dómsmálum þar sem hún berst við að ná arfi eftir eigin- mann sinn, milljarðamæringinn J. Howard Marshall, sem lést á síð- asta ári, 89 ára að aldri. Sonur hans segir að föður sinn hafi verið elliær þegar hann giftist Önnu og hann hafi verið tældur til að arf- leiða hana að meirihluta eignanna. Anthony Hopkins þoldi ekki kuldann Leikarinn góðkunni Sir Anthony Hopkins, hneig niður við tökur á myndinni The Bookworm og var fluttur í flýti á sjúkrahús. Tökur fara fram í bænum Can- more, nærri Calgary í Kanada og Hopkins, sem er orðinn 58 ára, þoldi illa kuldann á töku- stað. Starfsmaður við myndina segir að Óskarsverðlaunahafinn hafi fundið fyrir svima, verið veikburða og átt í erfiðleikum með að tala og muna textann sinn. „Hann hefur verið undir mikilli pressu að undanförnu og reyndi bara of mikið á líkam- ann. Hann hefur lést um rúm tíu kíló og þegar hann lék í einu atriðinu í ísköldu vatni veiktist hann,“ segir starfsmaðurinn. Hopkins kennir sér einnig Anthony Hopkins ieikur nú I myndinni The Bookworm á móti Alec Baldwin og Elle Macpherson. meins í baki og hefur bruðið verkjatöflur í stórum stíl á með- an á tökum stendur. Talsmaður hans segir þó ekkert ama að honum og að leikarinn hafi ein- ungis verið í hefðbundinni læknisskoðun og sé við hesta- heilsu. Stjörnuspá Þú ert að hugsa um það núna, hvort Athena Lee beib — sem skrifað hefur stjörnuspá í Dag — sé eitthvað sorrý. Svo er ekki, enda veit Athena að hún hefur skilað frábæru starfi. Það sama er ekki hægt að segja um alla spá- menn. Fiskarnir eru að spá í hvað þeim finnst um nýja blaðið. Ekki finnst þeim stjörnuspáin a.m.k. upp á marga meðbræður sína. Hrútin-inn veltir því fyrir sér í dag hvort menn æth sér ekki að stytta nafnið á blaðinu í DT, TNT eða bara eitthvað. Stjörnur hafa skoðun sem þær þora þó ekki að upplýsa. Nautin á Norð- urlandi eiga ekki afmæli í dag og það finnst þeim súrt í broti, enda veisluglöð. Happatölur nautanna eru prímtölur undir 70, mjög áþekkar greindarvísitölu maka þeirra. Tvíbbar veru- lega indælir í dag og gjöfulir á sjálfa sig. Dadadada. Þú segir hæ við vin þinn í dag, en hann heyrir ekki neitt og horfir bara ann- að. Svolítið neyðarlegt, en samt ekkert stórmál, sko. Það var t.d. miklu verra manstu, æi, þegar klósett- pappírinn var búinn og ... Frísklegur fimmtudagur og ljón um landið allt og miðin taka menn vinstri hægri í nefið í dag. Langflottust. monster. Þú verður um- fram meðaltal í dag, sem er óvenju gott. Makinn aftur Þú verður hálf- geðbilaður í dag, ræfillinn. Kemur næst. Fór Jens til Ak- ureyrar? Einelti er hér með létt af bog- mönnum. Þeir munu slá í gegn í kvöld. Hæ, hó, jibbíei bara nýtt blað og stuð? Vonandi eru ný- ir áskrifendur hæfilega klikk fyrir þennan dálk. Annars verða stein- geitur toppfólk í dag.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.