Dagur - Tíminn - 30.08.1996, Page 1

Dagur - Tíminn - 30.08.1996, Page 1
Föstudagur 30.ágúst1996 79. og 80. árgangur 164. tölublað Fjórfaldur l.vinningur LÍFIÐ í LANDINU HVAR ER EFNA- HAGSBATINN Á MÍNU HEIMILI? ✓ Idag heldur Dagur-Tíminn áfram umflöllun sinni um lífskjör fólksins í landinu. Talað er við fólk sem kemur sitt úr hverri áttinni, kennara, há- skólanema, eldri hjón í Kópa- vogi og hjón á miðjum aldri á Akureyri. Þetta fólk á það sam- eiginlegt að kannst ekki við að batinn í þjóðarbúskapnum sé ekki kominn inn á þeirra heim- ili. Frekar hafi þróunin jafnvel verið í hina áttina að erfiðara sé orðið að ná endum saman í rekstri heimilisins. Sú spurning vaknar óneitan- lega hvernig þetta fær staðist miðað við þær opinberu tölur sem birtast um t.d. aukna neyslu á ýmsum sviðum. Nær- tækast er að álykta sem svo að batinn sæki heimiiin ólíkt heim eftir þjóðfélagshópun og jafnvel aldri. Er hugsanlegt að góðærið sé fyrst og fremst hjá þeim sem betur mega sín? Ýmislegt virð- ist raunar benda í þá átt. Eins og fram kom hjá forstjóra Þjóð- hagsstofnunar í gær virka háir vextir eðliiega í þá átt að þeir sem skulda eiga erfiðara. Und- anfarin ár hafa vextir einmitt verið tiltölulega háir sem kem- ur þyngra niður á þessum hópi skuldara, sem ekki síst er ungt fólk. Það er því ekki ósennilegt að ákveðin kynslóðaskipti geti verið í því hversu snemma ferskir vindar hins efnahags- lega vors fara að blása inn á heimili fólks. Fleira má tína til. Stóraukin einkaneysla er ekki síst til kom- in vegna aukinna bílakaupa og utanlandsferða. Hafa bílakaup aukist um 30% það sem af er árs og utanlandsferðir um 18%. Eins og fram kemur hér í opn- unni eru það einmitt þessir liðir sem tekjulágt fólk „sparar við sig“ og styður það þá skoðun að efnahagsbatinn komi skýrar fram hjá þeim sem betur mega sín. Þeir eigi því bróðurpartinn af aukinni neyslu á íslenskum heimilum. Einnig hefur komið fram að aukin einkaneysla er ekki bara fjármögnuð með auknum kaup- mætti. Þar koma til sögunnar verulega auknar lántökur ein- staklinga enda framboð á láns- fé mikið. Enn hærri skuldir heimilanna er vissulega nokkuð sem margir hafa áhyggjur af og var ekki á bætandi segja sumir. Ferðir/flutningar Heilsuvernd 49.300 kr. Matvörur 44.000 kr. Aðrar vömr/þj Tomstundir/ menntun H 26.200 kr Húsgögn/ heimilisbúnaður Fatnaður 17.300 kr. læði/orka .500 kr. Orkukostnaðurinn er tæpur fjóröungur af húsnæðisliðnum, einkabíllinn um 85% af liðnum ferðir/flutningar og orlofsferðir og útgjöld á veitingahúsum tæpur helmingur af liðnum aðrar vörur og þjónusta. MEÐALHEIMILISÚT- GJÖLD 238 ÞÚS.KR. ÁMÁNUÐI:________ ÞEIR TEKJULÆGSTU SPARA í BÍLUM OG ORLOFSFERÐUM Heimilisútgjöld á íslensku meðalheimili (3,6 manns) eru kringum 238 þús. kr. á mánuði, sam- kvæmt framreiknaðri neyslu- könnun Hagstofunnar 1990. Heimilisútgjöld hjá embættis- mönnum, stjórnendum, sér- fræðingum og iðnaðarmönnum eru jafnaðarlega 275-280 þús.kr. á mánuði, en hjá fiski- mönnum, bændum og verka- fólki kringum 215 þús.kr. að meðaltali. Athygli vekur að þessi mismunur kemur að lang- mestu leyti fram á einungis þrem útgjaldaliðum: Þ.e. kring- um helmings mun á rekstrar- kostnaði eigin bíls/bila, orlofs- ferðum/veitingahúsum og í hús- gagnakaupum. í þessa þrjá liði fara um 45 þús.kr. á mánuði á heimilum verkafólksins og hinna tekjulægri hópanna, en kringum tvöfalt hærri upphæð hjá stjórnendum og sérfræðing- um (sem fara með nærri 60 þús. kr. á mánuði í einkabíla- kostnað). Lágtekjuhóparnir virðast aftur á móti lítið spara við sig í matarinnkaupum um- fram þá hærra launuðu og heldur ekki í fatakaupum. Og þeir lægst launuðu eyða t.d. tvöfalt meira í tóbak heldur en þeir tekjuhæstu. SÁRÍN , ÝFÐ BORGAR- MÁNAÐARÚTGJÖLD meðalf jölskyldu = 238.300 kr. LEIKHUSI Samkvæmt heimildum Dags-Tímans er uggur í starfsmönnum Leikfélags Reykjavíkur eftir að Þórhildur Þorleifsdóttir leikhússtjóri sagði upp markaðsdeildinni vegna endurskipulagningar á starf- semi hennar. Núverandi mark- aðs- og kynningarstjóri segir tímasetninguna afleita enda mikil undirbúningsvinna fram- undan vegna 100 ára leikaf- mæli Leikfélags Reykjavíkur. LÓA Sjá nánar á bls. 17

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.