Dagur - Tíminn - 30.08.1996, Blaðsíða 10

Dagur - Tíminn - 30.08.1996, Blaðsíða 10
22 - Fimmtudagur 30. ágúst 1996 Halló Akureyri! Halló Akureyri, „íjöl- skylduhátíðin“ alræmda, hefur komið róti á hug manna og vakið heitar deilur um réttmæti samkoma af þessu tagi. Það er gott að þetta mál skuli ekki liggja í þagnargildi og gleymast, svo mikilvægt sem það er að kryfla það til mergjar. Hér er um að ræða, hvort Akur- eyri eigi að „gera út“ á verslun- armannahelgarfyllirí unglinga og keppa við Vestmannaeyjar um hylli dópsala og skúrka, eða taka til rækilegrar end- urskoðunar hvaða siðferðisleg- ar skyldur þarf að hafa að leið- arljósi þegar fjöldasamkomur eru fyrirhugaðar. Ég skora á Akureyringa að sjá til þess að umræðurnar haldi áfram, þar til vilji bæjarbúa í þessum efn- um er öllum ljós. Aðstandendur hátíðarinnar, með Halló-generalinn Magnús Má í broddi fylkingar, hafa kvartað sáran undan íjölmiðl- um, sem þeir saka um að hafa gefið ranga mynd af samkomu þessari. Því er til að svara, að fjöl- miðlar hafa gegnt skyldu sinni í þessu máli; þeirri skyldu að flytja fréttir og greina frá því, sem er athyglisvert og frétt- næmt. Það er hvorki athyglis- vert né fréttnæmt að fjölskyldu- fólk í Kjamaskógi, hagaði sér ekki eins og svín; það er ekki heldur athyglisvert og frétt- næmt að fjöldi fólks, sem tjald- aði á íþróttasvæði Þórs, lét vera að brjóta og bramla, svalla, misþyrma, nauðga, selja og neyta eiturlyfja, útsvína um- hverfi sitt og halda vöku fyrir íbúum Glerárhverfis með org- um og ólátum nótt eftir nótt, ganga örna sinna undir svölum þeirra og míga inn um bréfa- lúgur. Það er hinsvegar athygl- isvert og fréttnæmt, að mikill fjöldi ungmenna kom til Akur- eyrar þessa helgi, til að stunda þessháttar hópfyllirí og svall sem hefur um langt árabil ein- kennt útihátíðir um verslunar- mannahelgina. Frægastir skipuleggjendur slíkra orgía eru án efa Vest- mannaeyingar, en margir aðrir hafa róið á þessi mið í áranna rás og nægir að nefna Húna- vershátíðarnar makalausu og Uxahátíðina í fyrra. Aðstandendur allra þessara hátíða hafa alltaf haldið því fram að þær hafi heppnast vel, fáeinir ólátaseggir hafi vissu- lega spillt gleðinni nokkuð og salernisaðstæður hefðu getað verið betri. Þeir hafa, eins og Magnús Már og félagar, verið ófúsir til umræðna um þá harmleiki sem hafa hent fjölda ungmenna á þessum samkom- um. Það er ábyrgðarleysi að víkja sér undan því að ræða opin- skátt um þær kringumstæður sem skapaðar eru með þessum samkomum og hafa valdið skefjalausu unglingafylliríi, misþyrmingum, nauðgunum og öðrum kynferðisafbrotum, eit- urlyfjasölu og neyslu sem hefur ánetjað fjölda ungmenna óvið- ráðanlegri fíkn. Það mátti öllum vera ljóst, að allt þetta myndi gerast á Akur- eyri. Reynslan frá fyrri sam- komum og aukinn fjöldi að- komu-ungmenna ár frá ári, ásamt þeim teiknum um vax- andi áhuga unglinga fyrir Akur- eyrarsamkomunni, sem fram kom í fjölmiðlum hefði átt að vera næg aðvörun, þeim sem báru ábyrgð á skipulagi og framkvæmd hátíðarinnar. Það hefði einnig átt að gefa aðvör- unum Þórarins Tyrfingssonar meiri gaum en gert var, en hann talaði um „amfetamín- sprengingu“ eftir verslunar- mannahelgina 1995. Fjöldi ungmenna hefur leitað til S.A.Á. í ár, orðnir forfallnir sprautufíklar á minna en einu ári eftir að þeir kynntust amfet- amíni í fyrsta sinn. Hinn gagnmerki og áhrifa- mikli stjórnmálamaður Pierre Elliott Trudeau, sem lengi var forsætisráðherra Kanada, bendir á það í nýlegri ævisögu (Memoirs, 1993), að Vesturveldin hafi haft ranga stefnu gagnvart sósíah'sku ríkj- unum, þegar kerfi þeirra féll í lok 9. áratugarins. Þannig hafi Sovétlýðveldunum verið boðað af ótal erindrekum Thatchers og Reagans, að þau ættu ekki annars úrkosta en taka upp frjálsan markað samstundis: Þau áttu sem sagt „að fara í kalt bað að kveldi og afnema hömlur um nóttina", eins og Þeir sem nú halda því fram að svallið og afleiðingar þess hafi verið ófyrirsjáanlegt, hafa ekki þá dómgreind og andlegt atgerfi til að bera að þeim sé treystandi til að stjórna sam- komum sem þessum. Ég legg áherslu á að ég er ekki að kasta hnútum í Magnús Má einan; ijöldi fólks lætur sem ekkert sé og auðvelt verði að koma í veg fyrir vandamál að ári. Jakob Björnsson hinn röggsami bæj- arstjóri vor, ásamt fjölmörgum svokölluðum hagsmunaaðilum, er bjartsýnn á að betur muni takast til næst; og virðist ekki sjá nokkra ástæðu til að yfir- vega þann möguleika, að neita að taka þátt í þessum leik. Enda græða svo margir á þessu að erfitt er að vera með nokk- urn tepruskap. Hvað þarf margar milljónir til að við getum sætt okkur við að 15 ára stúlkum sé nauðgað, hann komst að orði. Trudeau minnti á það, að alls konar höft, sem sett höfðu verið á Vestur- löndum í seinni heimsstyrjöld, m.a. skömmtun gjaldeyris, mat- arbirgða o.fl., hefðu verið við- loðandi allt að 15 árum eftir að styrjöldinni lauk. En sósíahsku ríkin máttu ekki þola neina bið. Afleiðingin varð glundroði, at- vinnuleysi og fjármálaspilling. f öðrum sósíalískum ríkjum, m.a. Júgóslavíu, jók frelsisæðið á ör- yggisleysi og kynþáttamisklíð, þegar tilteknir hópar óttuðust um sjálfstæði sitt. Telur Tru- deau þann kost hafa verið mikl- um mun betri að gefa öllum ungir menn stungnir hnífi, eit- urlyf seld eins og grænmeti á útimarkaði, ósjálfbjarga börn geymd ofurölvi með merkimiða eins og bögglar í geymslu þar til einhver vitjar þeirra? Allt þetta gerðist á Akureyri um verslunarmannahelgina. Á borgarafundi um „Halló Akureyri" átti Magnús Már í vök að verjast og var þess jafn- vel krafist að „skipstjórinn" yrði rekinn. Þessu svaraði virtur og vammlaus Akureyringur á þann veg að skipstjórinn hefði fiskað og því ekki nein ástæða til að reka hann. Ég held því fram að skip- stjórinn hafi róið á óhelg mið og fengið slæman afla, auk þess sem áhöfnina skorti dug til að vinna hann. Það er því óhjá- kvæmilegt að reka skipstjórann ásamt allri áhöfninni, úrelda dallinn og gera útgerðinni það ljóst í eitt skipti fyrir öll, að ef hún hyggst sækja á sömu mið aftur, verði hún svift kvótanum og rekstrarleyfið tekið af henni. Um leið og ég krefst þess af bæjarstjóra vorum að hann hætti að gera lítið úr vandamál- inu og vindi sér í að láta birta lista yfir öll afbrot og voðaverk sem framin voru á Akureyri umrædda helgi, ásamt rækilegri úttekt á þeim skemmdarverk- um og ónæði sem bæjarbúar urðu fyrir; óska ég honum vel- farnaðar í því mikilvæga starfi að efla Akureyri sem menning- arbæ og griðastað allra sem unna fögru mannlífi. Það mun, þegar til lengdar lætur, gefa bæjarbúum meira í aðra hönd en þær krónur sem „hagsmuna- aðilar“ fengu í kassa sína þessa endemishelgi. Að lokum. Hver var þáttur „hagsmunaaðila" í kostnaði við hreinsun bæjarins og löggæslu? Sigurður Jónsson. þessum ríkjum tíma og tækifæri til að umbreyta hagkerfi sínu — fremur en fleygja þeim í hvirfil- vind upplausnar og hörmunga. Við eigum einn hagfræði- kappa hérlendis, próf. Þorvald Gylfason, sem skrifaði sérstaka bók með norrænum félögum sínum og hvatti til sem skjót- astrar einkavæðingar í Sovét- ríkjunum. Svo mikið þótti til höfundar koma, að honum hefir verið falið að endurhæfa efna- hag Svíþjóðar ásamt breskum samherjum. Þessir menn virð- ast ekki trúa á gamla róm- verska boðorðið: „Flýttu þér hægt.“ Viðskiptafræðingu Bréfleiðis... 99 Heimilisfangið er: Dagur-Tíminn, Strandgötu 31, pósthólf 58,602 Akureyri Flýttu þér hægt 66 jOugur-®hrm:m Títtnotaður farsi Að segja að tími flokks- blaða sé liðinn er títtnot- aður farsi í umfjöllun um fjölmiðlun hér á landi. Hitt er svo annað að þetta er bæði satt og rétt - einsog dæmin sanna. Þessi stað- reynd er jafnframt í sam- ræmi við gjörbreyttan veruleika íslenskra stjórn- mála. Fæstir hafa hug- mynd um á hvaða al- mennu línu Sjálfstæðis- flokkurinn er, sem og aðrir flokkar - til dæmis þeir sem meintir fylgja vinstri línu. Og hvaða stefnum og straumum ættu svo flokks- málgögn að fylgja þegar stefna stjórnmálaflokka er jafn óljós og raun ber vitni. í raun og veru eru stjórnmálaflokkar fyrst og fremst hagsmunabandalög fólks af svipuðu sauðar- húsi - sem gjarnan eru ættingjar, starfsystkin, ná- grannar og annað slíkt. Sáralitil völd Leiða má að því rök að völd stjórnmálamanna séu orðin sáralítil. Þekktur refur á leiksviði stjórnmál- anna sagði fyrir margt löngu að þingmönnum og ráðherrum bæri að varast að vera hvers manns við- hlægjandi og leikbrúða í höndum þrýstihópa og hagsmunaafla. Að hafa þessi orð yfir er auðvitað virðingarverð viðleitni. Hitt er svo annað að valdið á íslandi er ekki lengur þrískipt, það er löggjafar-, framkvæmda- og dóms- vald, heldur hafa þeir, sem skotsilfur eiga, ægimikil völd - og frítt spil innan þess almenna ramma sem löggjafavaldið setur. Jafn- framt eru mikil völd feng- in í hendur leiðtogum verkalýðsfélaga og ann- arra hagsmunabandalaga. Herm þúmér í ævintýrinu um Mjallhvít og dvergana sjö voru höfð fyrir þau fleygu orð „Speg- ill, spegill, herm þú mér.“ Inntak þessara orða er gott fyrir blaðamenn nú- tímans að hafa í huga, enda er þeirra hlutverk að endurspegla veruleika líð- andi stundar til lesenda sinna. Og saimleikurinn er sá að vettvangur þeirra at- burða sem endurspegla þarf af blaðamönnum er ekki endilega á vettvangi stjórnmála, hvað þá held- ur í ranni stjórnmála- flokka sem enginn veit hvaða stefnu fylgja. Þar með nálgumst við kjarna málsins, sem er sá að tími flokksblaða er liðinn. Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.