Dagur - Tíminn - 04.09.1996, Síða 8

Dagur - Tíminn - 04.09.1996, Síða 8
20 - Miðvikudagur 4. september 1996 jOagur-ÍEmTOm Köttarar Þróttar fara gjarnan úr að ofan í hita leiksins. Þessir hálfberu menn eru hluti af kjarna Köttara sem heimsótti Akureyri á dögunum. Það skal tekið fram að það er ekki skilyrði fyrir inngöngu að afklæðast fyrir ofan mitti. Mynd: jón Hró, Köttarar Þróttar hegða sér öðruvísi en aðrir stuðnings- menn knattspyrnuliða. Við erum í þessu af lífi og sál og yfirgnæfum oftar en ekki íjölmennari stuðnings- hópa,“ segir Haukur Magn- ússon, Köttari Þróttar núm- er 1. Nafnið Köttarar er komið úr máli líkamsrækt- armanna; það er að vera skorinn (cut) á skrokkinn. Köttarar Þróttar eru heit- ustu stuðningsmenn liðsins og fylgja því hvert á land sem er. Meðfylgjandi mynd- ir eru til dæmis teknar á Akureyri þegar Þróttur frá Reykjavík kom til að keppa við KA. Leiknum lauk með sigri Þróttar 2-0. „Við erum í þessu af því það er gaman að fylgja sínu liði. Hvort sem Þróttur sigr- ar eða tapar eru Köttarar glaðir með sitt lið,“ segir Haukur. „Við dýrkum rauða htinn, sem á svo vel með hinum,“ er lína úr texta úr stuðn- ingslagi Þróttar sem kemur út í haust. Textinn er við lag úr Kardimommubænum. Köttarar eru fæddir og uppaldir í félaginu, eftir því sem Haukur segir. Eldri fé- lagar styðja vel við bakið á þeim yngri til þess að við- halda anda félagsins. Fram til þess hafa yfirráð Þróttar einskorðast við svæði 104 en framundan er yfirtaka á svæði 105 þegar Þróttur flytur í Laugardalinn. Hlynur Asgeirsson er Köttari númer 2. Hann leiddi stuðnings- mennina á Akureyri. Hvað sem á dynur sleppa menn ekki rauða og hvíta treflinum. Mynd: Jón Hrói un9u pess'' Dýrkum rauða tttinn

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.