Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Blaðsíða 1
Lít'ið í landinu
Heimspekilega
hliðin á lauslæti
Venjulegir og demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Fimmtudagur
5. september 1996
79. og 80. árgangur
168. tölublað
Verð í lausasölu
150 kr.
Hvammstangi
Fulltrúi P-lista
sleit meiri-
hlutasamstarfi
Afundí hreppsnefndar
Hvammstangahrepps
sl. þriðjudagskvöld
sleit fulltrúi P-listans, Árni
Svanur Guðjónsson, sam-
starfinu við B-listann. í bókun
frá honum segir m.a.:
„Samstarf mitt við oddvita
meirihlutans hefur svo að segja
frá upphafi verið stirt og sam-
skipti lítil. Nú er svo komið að
trúnaðarbrestur hefur orðið
okkar á milli og við svo búið get
ég ekki unað. Ég get ekki unað
við það að fjárhagsáætlun sveit-
arfélagsins sé „endurskoðuð“
eða öllu heldur leiðrétt miðað
við framúrkeyrslu á haustdög-
um eins og gert var árið 1995.
Ég get ekki unað við að stórir
kostnaðarliðir í viðhaldi fast-
eigna séu framkvæmdir án
samþykkis eða vitundar
hreppsnefndar.“
Arni Svanur segir að útslagið
hafi verið samstarfsörðugleikar
milli hans og oddvitans, Vals
Gunnarssonar.
Valur Gunnarsson segir að
þessi ákvörðun Árna Svans hafi
komið honum á óvart.
„Um störf þessarar sveitar-
stjórnar hefur rikt mjög góð
samstaða og flest mál hafa ver-
ið afgreidd samhljóða, einnig
með atkvæðum minnihlutans.
Samskipti okkar á milli hafa
verið býsna lítil og hann hefur
ekki leitað eftir breytingu á því.
Hann segir að ég hafi hunsað
einhver mál en ég veit ekki
hver þau eru. Hann unir ekki
við endurskoðun Qárhagsáætl-
unar hér eins og gert er í öllum
sveitarfélögum en það er nú svo
að í grófum dráttum stenst Qár-
hagsáætlun Hvammstanga-
hrepps," sagði Valur Gunnars-
son. GG
Strandir
Sjúkrallug
í Bitruflörð
Þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF, fór í sjúkraflug
síðdegis í gær í Bitrufjörð
þar sem sóttur var sex ára
gamall drengur með öndunar-
erfiðleika. Flugið gekk að ósk-
um og var lent á Reykjavíkur-
fiugvelli skömmu fyrir kl. 18 en
drengurinn var fluttur á Lands-
spítalann undir læknishendur.
-sbs.
Frá blaðamannafundi Alþýðuflokks og Þjóðvaka í gær, þar sem sameining þingflokka var tilkynnt.
Ovissa um kosninga-
bandalag í þinginu
Guðný Guðbjörns-
dóttir þingflokks-
formaður Kvenna-
lista segir óljóst
hvað verði um
kosningabandalag
stjórnarand-
stöðunnaren
Jón Baldvin viil
óbreytt samstarf.
Hún segir að það geti allt
gerst í þessum efnum og
óvíst hvað verði. Á með-
an þetta er óljóst er ekkert
hægt að fullyrða eitt eða neitt
um hvaða áhrif sameiningin
hefur í þinginu, en kosið verður
á ný í allar nefndir þegar þingið
kemur saman á ný í byrjun
næsta mánaðar.
„Það gætu öll styrkleikahlut-
föll riðlast, en líka verið
óbreytt, við vitum það ekki.
Myndin er því mjög óljós núna.
Þetta gæti haft mikil áhrif inn í
þinginu, en það þarf ekki að
vera,“ segir Guðný Guðbjörns-
dóttir.
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins boð-
aði Guðnýju Guðbjörnsdóttur
formann þingflokks Kvennalista
á sinn fund í gær þar sem hann
tilkynnti henni um sameiningu
þingflokks Alþýðuflokks og
Þjóðvaka. Hið sama gerði hann
á öðrum fundi sem hann hélt
með Margréti Frímannsdóttur
formanni Alþýðubandalagsins.
Guðný segir að á fundinum
með Jón Baldvini hefði m.a.
komið fram að hann byggist
ekki við því að neinar breyting-
ar myndu verða á
samstarfi hins
sameinaða þing-
flokks við aðra
stjórnarandstöðu-
flokka á þingi. Hún
segir að það eigi
eftir að koma í ljós
hvað verði, enda
fari það alveg eftir
því hvernig samið
verði um skiptingu
fulltrúa í nefndir.
Þannig gæti staða þingkvenna
Kvennalista ýmist styrkst,
veikst eða verið óbreytt.
Sjá Þjóðmál á blaðsíðu 9.
-grh
Eyjafjörður
Vantar
hausa
Töluverður skortur er nú á
hertum þorskhausum á
Nígeríumarkað og væri að
sögn Ásgeirs Arngrímsson-
ar, framkvæmdastjóra
Fiskmiðlunar Norðurlands
hf., hægt að selja töluvert
meira magn á Nígeríu-
markað. Líkur eru á að af-
urðaverðmæti skreiðar-
hausa á þessu ári verði
nær 800 milljónir króna en
markaður er fyrir töluvert
meira magn af hausum,
eða allt að 1.100 milljónir
króna, jafnvel meira.
Nokkrir fiskverkendur á
Norðurlandi, aðallega við
utanverðan Eyjafjörð, eru
farnir að undirbúa skreið-
arverkun innandyra en
vaxandi markaður er nú
fyrir skreið til Bandarikj-
anna og Ítalíu. Einnig eru
að opnast nýir markaðir
fyrir þessa afurð, eins og
t.d. í Krótatíu og Slóveníu.
Tryggð er hröð afskipun og
skjótar greiðslur, standist
samningar. GG
Guðný Guðbjörnsdóttir
þingflokksformaður
„Styrkleikahlutjbll
ú milli stjórnarand-
stöðuflokka tí
Alþingi gœtu riðlast
eftir sameiningu
þingflokka.