Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Blaðsíða 3
JDagur-'ÍEmrám
Fimmtudagur 5. september 1996 - 3
F R É T T I R
1
Þjóðhagsstofnun
Laun hækkuðti Mð meira en
tekjur fyrirtækja í fyrra
Launakostnaður
fyrirtækja hækkaði
að jafnaði ívið meira
en rekstrartekjur
þeirra á síðasta ári,
samkvæmt úttekt
Þjóðhagsstofnunar á
afkomu tæplega
þúsund fyrirtækja
1995 og samanburði
við sömu fyrirtæki
árið áður.
Samanlagðar rekstrartekjur
þessara fyrirtækja hækk-
uðu um 5,7% milli þessara
ára, en samanlagður launa-
kostnaður þeirra um 7,1%.
Bókfærður hagnaður af
reglulegri starfsemi nam 4% að
meðaltali og var það hlutfall
svipað í öllum helstu atvinnu-
greinunum; verslun, sjávarút-
vegi, iðnaði, samgöngum og
þjónustu. Hagnaður bankanna
jókst stórlega milli ára, eða úr
rúmlega 7% í nærri 12% af
tekjum í fyrra, sem rakið er til
minni útlánaafskrifta. Arðsemi
eigin íjár í fyrirtækjunum þús-
und var nærri 12% að jafnað
árið 1995.
Heildarvelta fyrirtækjanna
nam samtals um 275 milljörð-
um króna í fyrra, en þessi fyrir-
tæki eru væntanlega með ein-
hvers staðar í
kringum 38%
af heildarveltu
allra fyrirtækja
í landinu. Velt-
an jókst 4%
umfram al-
mennar verð-
lagshækkanir.
Þjóðhagsstofnun vekur athygli á
að hér sé aðeins lagt mat á af-
komu tæplega þúsund fyrir-
tækja en ekki atvinnulífsins í
heild.
Launakostnaður nam að
meðaltali tæplega 22% af
rekstrartekjum þessara fyrir-
tækja (nær 62 milljörðum). En
hlutfallið er mjög mismunandi
milli greina;
frá 41% í þjón-
ustufyrirtækj-
um og veitinga-
húsum niður í
11% í verslun.
Að innláns-
stofnunum frá-
töldum lækkaði
hagnaðarhlutfallið í 3,5% í
fyrra. Eiginfjárhlutfall fyrir-
tækjanna hækkaði um eitt pró-
sentustig milli ára í 30,5%,
einnig að bönkmn frátöldum.
Frádráttur vegna vaxta og
verðbreytingafærslu lækkaði
um helming milli ára, sem rak-
ið er tU bættrar efnahagsstöðu
fyrirtækjanna. Þjóðhagsstofnun
mun síðar á árinu gefa út
skýrslu um ársreikninga fyrir-
tækja 1994—1995. Bæði verður
sú skýrsla byggð á stærra út-
raki fyrirtækja og nánari sund-
urhðun eftir atvinnugreinum.
Síðar á árinu er hka von á at-
vinnuvegaskýrslu fyrir 1994.
Stofnunin bendir á að sú
skýrsla sýni venjulega nokkru
lakari afkomu hjá atvinnuveg-
unum í heild heldur en þetta
fyrsta úrtak fyrirtækja gefur tU
kynna.
Hagnaðurbank-
anna jókst stórlega
milli ára, eða úr
rúmlega 7% í nœrri
12% af tekjum
Akureyri
Bæjarmála-
punktar
• Skipidagsnefnd hefur
ákveðið að fresta áður aug-
lýstri samkeppni um heild-
arskipulag Naustahverfis
vegna árekstra við aug-
lýsta samkeppni Reykjavík-
urborgar í Grafarholti.
Samkeppnin verður auglýst
í nóv./des. 1996 og skal
dómefndarstörfum lokið
vorið 1997.
• Hafnarstjórn samþykkti
að hafna tilboðum sem
bárust í þekjulögn á hafn-
arsvæðið í Krossanesi en
bæði tilboðin voru yfir
kostnaðaráætlun; frá Kötlu
hf. að upphæð 14,2 millj-
ónir króna og frá Þorgils
Jóhannessyni að upphæð
14,5 millónir króna en
kostnaðaráætlun hljóðaði
upp á 11,3 milljónir króna.
• Menningarmálanefnd
samþykkti að veita Sigur-
björgu Pálsdóttur starfs-
manni Amtsbókasafnsins
launalaust leyfi frá 1. sept-
ember 1996 til 30. maí
1997 til að sækja námskeið
í bókasafnsfræðum við Há-
skóla íslands. Einnig sam-
þykkt heimild til að færa
'deildarstjóra í lestrarsal í
stöðu fulltrúa amtsbóka-
varðar og auglýsa stöður
deildarstjóra útlánadeildar
og deildarstjóra í lestrarsal
og prentskHadeild.
• íþrótta- og tómstundaráð
hefur samþykkt að greiða
rekstrarstyrk til Bílaklúbbs
Akureyrar að upphæð 180
þúsund krónur og Skotfé-
lags Akureyrar að upphæð
200 þúsund krónur. Ráðið
samþykkti einnig að ný
þjónustuálma og sundlaug
A'erði byggð við Sundlaug
Akureyrar, uppbyggingu
fjölskyldugarðs verði haldið
áfram og eldra húsnæði
endurnýjað. Umsóknar-
frestur um starf forstöðu-
manns Sundlaugar Akur-
eyrar rann út 1. sept. sl. og
verður fundað um umsókn-
ir 4. sept. nk.
Vestnorders á Akureyri
íslenskar sjávarafurðir hf.
Hefur mikíð gildi fyrir ísland
Yfir 600 manns, þar
af helmingur útlend-
ingar, taka þátt í
Vestnorden ferða-
kaupstefunni sem
hefst í íþróttahöllinni
á Akureyri í dag.
Að henni stendur Vestnor-
ræna ferðamálaráðið,
sem er samstarf íslands,
Grænlands og Færeyja á sviði
ferðamála. Þetta er í ellefta
sinn sem Vestnorden ferða-
kaupstefnan er haldin, en hún
er annað hvert ár á íslandi og
hin árins til skiptis í Færeyjum
og á Grænlandi.
Kaupstefnan er þannig upp
byggð að þar hittast aðilar frá
ýmsum löndum sem selja ferðir
á norðurslóðir og ferðaþjón-
ustuaðilar frá löndunum þrem-
ur, íslandi, Grænlandi og Fær-
eyjum. Þar verða þannig Uðlega
200 fulltrúar ferðaskrifstofa og
ferðaheUdsala sem selja ferðir
til íslands, Grænlands og Fær-
eyja en um 370 fyrirtæki taka
þátt í kaupstefnunni, ýmist sem
kaupendur eða seljendur.
Kaupendurnir eru þá þeir út-
Unnið að undirbúningi Vestnorden í gær.
lendingar sem selja ferðir til
landanna þriggja en seljendur
eru ferðaþjónustuaðilar í lönd-
unum. Margir kaupendanna
eru að mæta á Vestnorden í
fyrsta sinn og koma þeir frá um
20 löndum og úr öllum heims-
hornum.
Magnús Ásgeirsson, mark-
aðsstjóri Ferðamálaráðs, segir
Vestnorden ferðakaupstefnuna
hafa ótvírætt gildi fyrir íslenska
ferðaþjónustu. „Þetta er tiltölu-
lega ódýr leið fyrir ferðaþjón-
ustuaðila til markaðssetningar,
því um leið og við erum farin að
gera eitthvað erlendis erum við
farin að tala um upphæðir sem
Mynd: Jón Hrói
eru margfalt hærri og ekkert
líklegri til að skila árangri,"
sagði Magnús. Þátttakendur
hafa aldrei verið fleiri sem
hann sagði til marks um að
kaupstefnan væri að festa sig í
sessi og endurspeglaði aukn-
ingu í ferðaþjónustu. HA
Nær þreföldun heildarframleiðslu
Heildarvelta ÍS jókst um fimm milljarða
króna, eða 50% fyrstu átta mánuði ársins
Fyrstu átta mánuði ársins
1996 nam heildarfram-
leiðsla frystra afurða hjá
framleiðendum ÍS hf. 100.530
tonnum á móti 41.570 tonnum á
sama tímabili ársins 1995, eða
142% aukning. Á íslandi var
framleiðslan 48.940 tonn og
jókst um 11.550 tonn og munar
þar mest um 9.250 tonna aukn-
ingu í loðnufrystingu; í Rúss-
landi var framleiðslan 47.030
tonn og jókst um 46.420 tonn
en yfirgripsmikill samstarfs-
samningur ÍS og UTRF í Petrop-
avlovsk á Kamtchatka kom til
framkvæmda 1. desember 1995
og í Namibíu var framleiðslan
4.560 tonn og jókst um 990
tonn. Þar munar mest um 28%
framleiðsluaukningu frystitog-
arans Seaflower, sem hóf veiðar
undir árslok 1995.
Heildarvelta ÍS jókst í 14,9
milljarða króna úr 9,9 núlljörð-
um króna fyrstu átta mánuði
ársins, eða um 50%, og er hlut-
ur frystra sjávarafurða lang
stærstur, eða 13,2 milljarðar
króna. Meginástæðu aukinnar
sölu má rekja til sölu freðfiskaf-
urða frá Rússlandi og Namibíu.
Mjöl og lýsisdeild ÍS hf. tók tU
starfa í Vestmannaeyjum 1.
desember 1995 og er forstöðu-
maður hennar Haraldur Gísla-
son. Selt var fiskimjöl fyrir
1.140 milljónir króna. GG