Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Blaðsíða 8
8 - Fimmtudagur 5. september 1996
ÞJÓÐMÁL
íDagur-®mthm
JDctgur-®ímtmt
Útgáfufélag: Dagsprent hf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Stefán Jón Hafstein
Aðstoðarritstjóri: Birgir Guðmundsson
Framkvæmdastjóri: Hörður Blöndal
Skrifstofur: Strandgata 31, Akureyri, Garðarsbraut 7, Húsavík og Brautarholt 1, Reykjavík
Sími: 800 70 80
Áskriftargjald m. vsk. 1.600 kr. á mánuði
Lausasöluverð kr. 150 og 200 kr. helgarblað
Prentun: Dagsprent hf./ísafoldarprentsmiðja
Loksins eitthvað af viti
í fyrsta lagi
Síðan Reykjavíkurlistinn kom sá og sigraði hafa
engin góð tíðindi borist af vinstri mönnum í lands-
málapólitík. í stað þess að læra af þeim sigri var
ldofningur flokka og svonefnd „sérstaða" annarra
það sem hugsanlegum kjósendum annarra en
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks var boðið uppá.
Hrakleg útreið í síðustu Alþingiskosningum skilaði
smánarlegra smárri og simdraðri stjórnarand-
stöðu. Skilaboð fólksins voru skýr: Framboð Al-
þýðuflokks, Þjóðvaka, Kvennalista og Alþýðu-
bandalags voru ekki trúverðug. Petta stofnana-
kraðak kringum tiltölulega einfalda lífssýn átti
enga framtíð.
Að samruni þingflokka Alþýðuflokks og Þjóðvaka
teljist stórfrétt sýnir hve illa er komið fyrir stjórn-
arandstöðunni. Svo sjálfsagður hlutur er eigi að
síður fagnaðarefni fyrir alla landsmenn. Öll stjórn-
mál í landinu hafa liðið fyrir þetta rugl. Nú ber að
skora á Kvennalista og Alþýðubandalag að ganga
strax til formlegs samstarfs við þennan nýja þing-
flokk. Ef ekki, eiga einstakir þingmenn þessara
flokka að taka sig til og færa sig yfir til liðs við
Þingflokk jafnaðarmanna. Hvers virði ætli hún
verði þá sérstaða hinna sem eftir sitja?
í þriðja lagi
Þakka ber Jóni Baldvini Hannibalssyni og Jóhönnu
Sigurðardóttur sérstaklega. Þeirra samvinna nú er
stórmannleg eftir það sem á undan er gengið. Nú
getur enginn stjórnarandstöðuþingmanna skorist
úr leik af „persónulegum ástæðum“. Þeir sem vilja
standa utan við samrunaferlið gera það af ramm-
pólitískum ástæðum sem hver og einn þingmanna
Kvennalista og Alþýðubandalags verður að gera
grein fyrir. Dagur-Tíminn er opinn fyrir þá um-
ræðu.
Stefán Jón Hafstein.
Á að endurskoða uvja leiðakerfi
Strætisvagna Reykjavíkur strax?
itva
s
Sigurbjörn
Halldórsson
trúnaðarmaður
vagnstjóra hjá
Strœtisvögnum
Rcykjavíkur.
Eg tel að það eigi að
endurskoða margt
í leiðákerfinu og að
það eigi að endur-
skoða strax þær leiðir
sem þegar eru
sprungnar, þ.e. leiðir
nr. 5,6 og 8. Biðtíma-
regla vagnanna á
skiptistöðvum í Ártúni
og Mjódd gengur held-
ur ekki upp. Þá vil ég
þakka yfirlýsingar for-
stjóra SVR um að hún
hafi miklar áhyggjur
af mér en ég furða mig
jafnframt á því að hún hefur aldrei látið í ljós
sambærilega móðurlega umhyggju gagnvart
farþegum SVR.
Guðjón Ólafur
Jónsson
aðstoðarmaður
umhverfismála-
ráðherra.
Fyrir mig hefur nýja
leiðakerfið verið til
bóta þannig að ég er
ánægður með breyt-
inguna.
♦
♦
Lilja
Ólafsdóttir
forstjóri
Strætisvugna
Reykjavíkur.
að hefur ekkert
komið fram eftir að
leiðarkerfið fór í gang
sem kallar á tafar-
lausa endurskoðim.
Það hefur alltaf staðið
til að taka á mótið
ábendingum og skoða
í ljósi reynslunnar. Á
þeim grundvelli verða
gerðar endurbætur á
kerfinu fyrir næsta
vor.
Kjartan
Magnússon
fulltrúi Sjálfstœðis-Jlokks-
ins í stjórn
Strœtisvagna
Reykjavíkur.
Yegna athugasemda
og kvartana frá
vagnstjórum og far-
þegum er rétt að
skoða kerfið gaum-
gæfilega og meta hvort
það sé á vetur setj-
andi. Það hefur verið í
gildi í þrjár vikur og
nú þegar er unnið að
því innan fyrirtækisins
að sníða af þá van-
kanta sem komið hafa
í ljós,
I 1
5 m láitíJm
Kartöfludómínó
„Efnahagskerfið er í raun for-
ritað þannig að hækkun á
ákveðnum sviðum leiði beint til
hækkana á öðrum.“
Skrifaði Stefán Ingólfsson, verkfræðing-
ur, í DV um keðjuverkandi áhrif þess
þegar framfærslukostnaðurinn hækkar,
t.d. vegna hækkunar á kartöflum.
Neysluvísitalan er miðuð við fram-
færslukostnað sem aftur er viðmið verð-
tryggðra lána.
Sýndarveruleikin er miklu
skemmtilegri
„Samtímaþjóðfélag hafi ýmsar
aðferðir til að glepja fyrir fólki
og sökkva meðvitund þess í
sýndarveruleika."
Haft eftir Páli Skúlasyni, prófessor í
heimspeki, í viðtali við Moggann um ný-
stofnaða Framtíðarstofnun.
Heimóttalegir ráðamenn
„Fólk sem þekkir ekki til ann-
arra þjóða nema af símjúkri
áfengismóðu sumarleyfa og
skyndifundaferðum til stór-
borga og ráðstefnumiðstöðva."
Skrifaði Gfsli Sigurðsson, íslenskufræð-
ingur, í Kjallara DV um þá sem valist
hafa til ráðsmennsku í þjóðfélaginu en
obbinn af þeim hefur numið lög við HÍ
en ekki við erlendar menntastofnanir og
hefur því engar forsendur til að taka
ákvarðanir í menntamálum.
Skortur á frambœrilegum kon-
um hjá Sjálfstœðisflokknum
„Eins og staðan er í dag eru
mun færri konur en karlar virk-
ar í Sjálfstæðisflokknum og
endurspeglast það í skipan
ílokksforystunar. “
Skrifaði Elsa B. Valsdóttir, varaformað-
ur Heimdallar og meölimur í Sjálfstæð-
um konum, um stöðu kvenna innan
flokksins í DT.
Heilsugæsla eða heilsurækt
Samtfmis því að neyðarástand er skollið
á í heilsugæslunni er slíkur uppgangur í
heilsuræktinni að ef heldur sem horfir
mun engin þörf fyrir heilsugæslu, vegna
þess að ræktin tekur við af gæslunni.
Heilsuræktin cr orðin svo fullkomin
að ga^slumenn kroppanna, sem sjá um
að þeir fúngeri rétt þegar eitthvað fer
úrskeiðis í líffærunum eða öðrum lík-
amspörtum, eru að verða öldungis
óþarfir.
Haustönn heilsuræktarstöðvanna er
að byrja og í tilkynningum frá þeim gefst
heldur betur á að líta. Boðið er upp á
fínt form og flottar línur fyrir fáeinar
krónur, rjómaskap og að allur gaura-
gangur og stíflur í þörmum verði á bak
og burt ef leitað er til hómópata sem
kann tii verka. Það léttir líka á sálartötr-
inu, mýkir iund og eykur sálræna vellíð-
an.
ístrubelgir og Rambóar
Fitubrennsla er fast númer í nær öllum
heilsuræktarstöðvum og fyrir fáeinar
krónur er hægt að láta renna af sér
spikið með þróuðum brennsluaðferðum
og bjórvömbin hverfur eins og dögg fyrir
sólu ef maður splæsir á sig súper-fram-
haldi í íitubrennsluofnum heiisuræktar-
innar.
Allir geta orðið háir, grannir og eld-
hressir ineð því að panta rótta tíma í
ræktinni. Þeir sem
eru óheppilegir í lag-
inu fara í vaxtarmót-
un. Á Rambó-pöllum
verður maður að of-
urmenni og svo er
boðið upp á margt
spennandi og óskilj-
anlegt, svo sem funk-þol og kripalujóga
og hipphopp og heilsuaukandi trommu-
slátt.
Hér er aðeins stiklað á örfáum
bramalífselixírum nútímaræktunar lík-
ama og geðlags sem auglýstir eru í öll-
um Ijölmiðlum, en heilsuræktin er mikill
vaxtarbroddur atvinnulífsins og ekki sá
ómerkasti. Hún eykur hagvöxtinn og
lífgar upp á verslunina, því mikið þarf
að kaupa af réttum fötum og skóm og
æðisgengnum tryllitækjum til að punta
upp á kroppinn og lagfæra hann og móta
í sömu mynd og mennirnir skópu frels-
ara sinn og Rambóa sína í.
Skipt um hlutverk
Líkamsræktin og samstilling þarmafló-
runnar er öll af hinu góða, gefur mörg-
um góða stund og
öðrum gull í mund.
Þúsundir og aftur
þúsundir kvenna og
karla á öllum aldri
rækta nú líkama sinn
eins og skrautblóm í
potti eða kynbóta-
hross til undaneldis. Allir verða flottir í
laginu og eldhressir án þess að þurfa að
taka kók í nös.
Drjúgur hundraðshluti lækna landsins
ganga nú um atvinnulausir og stræka á
að sinna sjúklingum. Þótt sumir telji að
neyðarástand ríki, sýnist það ekki alvar-
legra en svo að bæði læknar og stjórn-
völd gefa sér góðan tíma til að þrasa um
launakjör lækna sem eru á leið til út-
landa þar sem sjúkir þurfa á hjálp að
halda.
En á íslandi eru hressar sálir í
hraustum líkömum sem láta líkamsrækt-
ina bæta öll sín mein og fitubrennslu-
meistarar og gamaldags hómópatar, sem
stunda smáskammtalækningar, veita
vondum vessum burtu úr kroppunum og
renna spikinu af átvöglum eins og lifrar-
bræðslumenn skildu að lýsi og grút í þá
tíð sem hoffmannsdropar og kínalífselix-
ír var allra meina bót. Og ef þeir læknis-
dómar hrifu ekki, varð bara að hafa það.
Það sýnir góða aðlögunarhæfni að
þegar heilsugæslan bregst og læknar
hætta að sinna sjúkum, þá tekur heilsu-
ræktin við og gerir alla svo undurhressa
og flotta í laginu að hálf þjóðin er orðin
á færum með að taka að sér stjórn
skemmtiþátta í sjónvörpum. Eða að því
er stefnt með ræktun líkama og anda í
tækjasölum heilsustúdíóanna.
Og kannski er ráð að þeir læknar sem
áður stunduðu heilsugæslu færu á nám-
skeið og lærðu upp á heilsurækt og opn-
uðu sínar heilsubombur og losuðu fólkið
þannig við krankleika og heilbrigðis- og
fiármálaráðuneytin við óþolandi höfuð-
verk. OÓ