Dagur - Tíminn - 05.09.1996, Blaðsíða 2
2 - Fimmtudagur 5. september 1996
IDagur-ÍDtnrám
Þær sögur ganga sta-
flaust þessa dagana að
til standi að um stólaskipti
verði í ríkisstjórninni. Ein
sagan segir að vilji sé fyrir
því að Páll Pétursson frá
Höllustöðum taki við heil-
brigðisráðuneytinu en Ingi-
björg Pálmadóttir fari í fé-
lagsmálin. Páll mun hinsveg-
ar telja að hann eigi eftir
óunnin verk í félagsmálun-
um og sé þess ófús að tak-
ast á við hin heitu heilbrigð-
ismál. Til vara er bent á
Guðmund Bjarnason sem
heilbrigðisráðherra, hann er
hagvanur í því ráðuneyti...
Fleira er rætt í þessum
dúr. í gær fullyrtu menn í
kerfinu að Davíð Oddsson
væri þess mjög fýsandi að
hætta í þólitík og taka við
forstjórastarfinu í Landsvirkj-
un. Davíð vilji standa upp
þegar hann sé búinn að
tryggja Birni Bjarnasyni
menntamálaráðuneyti við-
eigandi embætti í stjórn
Sjálfstæðisflokksins, for-
mennsku flokksins. Sagan
segir að Friðrik Sophussyni
sé ætlað að fara fram í borg-
arstjórnarkosningum sem
trompið gegn Ingibjörgu
Sólrúnu. Þetta er ekki selt
dýrara verði en það var
keypt...
F R É T T I R
Bæjarábyrgð veitt fyrir 15 milljón
króna láni til fullnaðarfrágangs
Tekjur kirkjugarða
skertar um 50% á
síðustu 7 árum.
Nýtt líkhús og kapella
Kirkjugarða Akureyrar
við kirkjugarðinn á Ak-
ure)TÍ hefur enn ekki verið tek-
ið í notkun, þar sem ijárhags-
legar forsendur hafa brostið.
Þessa dagana er verið að vinna
úr útboði á húsgögnum í húsið
en kostnaðaráætlun vegna hús-
gagnakaupa er um 1,5 milljónir
króna. Jafnframt er verið að
teikna inn ýmis „aukahúsgögn"
í kapelluna, eins og t.d. ræðu-
púlt, altari o.fl., en kapellan
mun taka um 45 manns í sæti.
Stefnt er að því að taka húsið í
notkun á haustdögum en form-
legur vígsludagur hefur enn
ekki verið ákveðinn.
Byggingakostnaður er um 50
milljónir króna og búnaður inn-
anhúss áætlaður 5-6 milljónir,
þ.e. húsbúnaður, kæhtæki o.fl.
Kirkjugarðar Akureyrar
fengu nýlega 15 milljón króna
bæjarábyrgð tfl að ljúka fulln-
aðarfrágangi á húsinu svo hægt
verði að taka það í notkun.
Vegna samkeppnislaga verður
að reka húsið sem útfararstofn-
un í séreignarformi en ekki sem
kirkjugarða því þar með er far-
ið að mismuna einhverjum
samkeppnisaðilum úti í bæ,
sem vfldu stofna útfararstofnun
og nýta sér afnot af þessu nýja
Kristján V. Guðjónsson, starfsmaður Kirkjugarða Akureyrar, við iíkgeymsluskápa í hinu nýja húsi. Mynd: jðr, Hm
húsi. Á Akureyri fara fram um
100 útfarir á hverju ári, og til
þess að bera ekki skarðan hlut
frá borði íjárhagslega þyrfti að
hafa a.m.k. 60 þúsund króna
tekjur af hverri útför til að
standa undir rekstri, en auðvit-
að er það ekki inni í myndinni.
Líkhúsið er greitt af kirkju-
garðseigendum og er í eigu Ak-
ureyringa og verður það áfram.
Engar krufningar munu fara
fram í húsinu, heldur verður
þar eingöngu líkgeymsla, virðu-
leg aðstaða til kistulagningar og
aðstaða til að sinna börnum að-
standenda í kyrrþey í kringum
kveðjustund sem ekki geta farið
fram í kirkju vegna ungs ald-
urs.
Tekjur Kirkjugarða Akureyr-
ar hafa verið skertar um 50%
síðan árið 1989 en fram til árs-
ins 1992 höfðu þeir tekjur sem
voru ákveðinn hundraðshluti af
innheimtum aðstöðugjöldum,
útsvörum og tekjuskatti sem
nægði til viðhalds og reksturs.
Kirkjugarðarnir gátu þá rækt
þær skyldur sem þeir hafa við
aðstandendur. Árið 1992 var
hlutdeild í tekjuskatti skert um
20% og árið eftir var lögum um
tekjustofna sveitarfélaga breytt
þannig að aðstöðugjöld voru
felld niður og ný lög um kirkju-
garða gerðu ráð fyrir að kirkju-
garðarnir greiddu af tekjum
sínum allan kostnað af prests-
þjónustu við útfarir. GG
FRÉTTAVIÐTALIÐ
Fundurinn styrkti
læknasamtökin
Katrín Fjeldsted
formaður Félags íslenskra
heimilislœkna.
Einstakir hópar lækna
geri ekki samkomulag
um skipulagsbreytingar
á heilbrigðisþjónustu
nema með samþykki
heildarsamtakanna.
Katrín Fjeldsted, formaður Félags ís-
lenskra heimilislækna, kvaðst ánægð
með auka aðalfund Læknafélags Is-
lands sem haldinn var í gær.
„Fundurinn veitti okkur algeran
stuðning við okkar kjarabaráttu. Hann
lýsti eindregnum stuðningi við kröfur
heimilislækna um bætt launakjör og
stjórn og samninganefnd fékk stuðning
fundarins í því að leiða samningana til
lykta með það að markmiði að leið-
rétta grunnlaun heilsugæslulækna. Ég
tel að læknasamtökin séu styrkari eftir
þennan fund,“ sagði Katrín.
f þeim ályktunum sem samþykktar
voru kemur hins vegar fram talsverð
gagnrýni á stefnuáætlun heilbrigðis-
ráðuneytisins sem kynnt var fyrr í
sumar, sem styrkja átti stöðu heilsu-
gæslunnar innan heilbrigðiskerfisins
og heimilislæknar höfðu áður lýst
stuðningi við. M.a. segir orðrétt:
„Læknafélag íslands hafnar í óbreyttri
mynd stefnuyfirlýsingu heilbrigisráðu-
neytisins um „aðgerðir til að efla
heilsugæslu og hafa áhrif á verkaskipt-
ingu í heilbrigðisþjónustu.“ Einnig eru
gagnrýnd þau vinnubrögð sem viðhöfð
voru þar sem ekkert samráð hafi verið
haft við heildarsamtök lækna í þessari
vinnu.
Voru heimilislæknar ekkert
ósáttir með þessa afgreiðslu
fundarins?
„Þetta var eitthvað sem við áttum allt-
af von á að kæmi. Orðalagið „í
óbreyttri mynd“ er milt og kveður ekki
upp úr með neitt sérstakt í plagginu.
Það þýðir að það er margt í þessari
stefnuyfirlýsingu sem menn sætta sig
vel við en annað er óunnið og þarf að
vinna betur. Þetta eru mál sem hægt er
að leysa,“ sagði Katrín.
í annarri ályktun er þeirri stefnu
Læknafélagsins lýst að sjúklingar geti
ætíð leitað til þess læknis sem það kýs
án þess að tryggingaréttur skerðist.
„Þetta er endurtekning á ályktun sem
samþykkt hefur verið áður,“ sagði
Katrín.
Margt óunnið
í ályktun fundarins segir m.a. „Það er
stefna Læknafélags íslands að félags-
menn, samtök eða samninganefndir
innan LÍ geri ekki samkomulag við
heilbrigisyfirvöld um veigamiklar
skipulagsbreytingar í heilbrigðisþjón-
ustu sem varða aðra lækna, nema með
samþykki stjórnar eða á aðalfundi LÍ,“
segir orðrétt.
Er þetta ekki talsvert hörð
gagnrýni á þá vinnu sem fram
fór fyrr í sumar og þið höfðuð
lagt blessun ykkaryfir?
„Við heimilislæknar lítum svo á að
við höfum verið að skilgreina okkar
starfsvetvang og vinna að framgangi
hans. Á þeim sviðum þar sem um er að
ræða mögulegan ágreining við aðra
sérgreinalækna er heilmikið óunnið. í
þessum ályktunum er gengið út frá að
það sé unnið í samráði við heildarsam-
tök lækna,“ sagði Katrín, aðspurð
hvort í ofangreindum ályktunum felist
ekki viss gagnrýni á þá stefnumótun
sem kynnt var fyrr í sumar.
Samingafundur í deilu heilsugæslu-
lækna við ríkið hefur verið boðaður hjá
ríkissáttasemjara í dag. HA