Dagur - Tíminn - 10.09.1996, Qupperneq 7

Dagur - Tíminn - 10.09.1996, Qupperneq 7
4Diigur-®mtmrt Þriðjudagur 10. september 1996 -19 MENNING O G LISTIR Auga fyrir auga Föstudaginn 6. september frumsýndi Leikfélag Hús- víkur leikritið Auga fyrir auga á heimavelli í Samkomu- húsinu á Húsavík. Verkið er eftir William Mastrosimone, en íslensk þýðing eftir Jón Sævar Baldvinsson. Leikstjóri upp- setningarinnar er Skúli Gauta- son, en hann hefur einnig hannað leikmynd og lýsingu. Leikfélag Húsavíkur hefur leik- ár sitt óvenjulega snemma að þessu sinni. Skýringin á því er framar öðru sú, að leikritið Auga fyrir auga var æft upp í sumar til þess að flytja það í heimsókn til vinaleikfélags Leikfélags Húsavíkur, Scene 2 í Nexö á Borgundarhólmi. Þar var verkið frumsýnt í ágúst í sumar. Sýningin á Húsvík er því í raun önnur sýning verksins, en vonandi ekki sú síðasta, því að vissulega á verkið erindi í samfélagi okkar. Efni verksins er nauðgun, en sá viðurstyggi- legi gerningur hefur mjög verið til umræðu undanfarið og þá ekki síður þau viðurlög, sem við honum eru og sá vandi, sem þolandinn er settur í gagnvart lögreglu, dómsvaldi og samfé- iaginu í heild. Á þessum þátt- um og öðrum tekur höfundur leikritsins Auga fyrir auga af miklu innsæi. Hann rýnir inn í huga og gerðir nauðgarans og nær vel að sýna það ferli sjálfs- þóknunar og sjálfsréttlætingar, sem með honum býr, jafnframt óhefluðum ruddaskap og vald- beitingu. Ekki síður tekst höf- undi vel að birta viðbrögð fórn- arlambsins, ótta þess og niður- lægingu, vanmátt þess og upp- gjöf. í verkinu nær höfundur einnig að túlka þá bræði, sem verður til í brjósti þess, sem orðið hefur fyrir valdbeitingu og verið niðurlægður; löngun- ina til hefnda, til að refsa eftir- minnilega, til að ná fram rétt- læti, sem stofnanir samfélags- ins iðulega virðast tregar til að veita ekki síst í málum af kyn- ferðislegum toga. Loks tekst höfundi að sýna viðbrögð sam- félagsins í orðum og gerðum hliðarpersónanna í verkinu, en í þeim koma fram frasar og við- tekin munstur, sem áhorfendur þekkja úr umræðu dagsins. Leikendur eru fjórir og eru þeir allir ungir að árum og ekki langreyndir á sviði. Engir þeirra eru þó algerir nýliðar og má sjá það á fasi þeirra og frammistöðu, að í þeim eru góð leikaraefni, sem vert er að fylgjast með. Skúli Gautason leikstjóri hefur náð vel að móta túlkun hvers leikara fyrir sig, svo að í hverju tilfelli verður til sannferðug persóna, sem svar- ar vel því hlutverki, sem henni er ætlað í heildarmynd og boð- skap verksins. Ferlið er lipurt og átakasenur verksins þaul- unnar og ganga vel upp. Þá er leikmynd vel fullnægjandi, þó að einföld sé, og lýsing við hæfi. Maggy, stúlkan, sem verður fyrir árás nauðgarans, er leikin af Júlíu Sigurðardótt- ur. Hún nær víða miklum hrif- um í túlkun sinni ekki síst í átakaatriðum, svo sem í við- fangi við nauðgarann, Rolf, í upphafshluta verksins, en einn- ig víða eftir að spilin hafa snú- ist við og heift hennar, sem er heift ailra þeirra, sem níðst hef- ur verið á, beinist að ofbeldis- manninum, sem hún er ákveðin í að láta hljóta verðuga refs- ingu fyrir óafsakanlegt afbrot sitt. Dauðir punktar koma helst ekki fyrir í túlkun Júlíu; einna helst þó í síðari hluta verksins, þegar unnið er úr viðbrögðum samfélagsins, eins og þau koma fram í samleik við Terry og Patty. Oddur Bjarni Þorkelsson fer með hlutverk Rolfs, nauðgar- ans. Oddur Bjarni kemst víða mjög nærri þessari persónu. Best tekst honum í upphafsat- riðum verksins, þegar hann flár og undirförull kemur óboð- inn og undir fölsku yfirskyni á heimili Maggýjar. Oddur Bjarni byggir á sannferðugan hátt upp sífellt hrottalegra áreitni- ferli nauðgarans, sem reyndar nær ekki að fullu fram vilja sín- um, en kemst þó sem næst al- veg að markinu. Oddur Bjarni á marga góða spretti í síðari hlutum verksins, ekki síst í síð- ari hluta þess, og nær í heild vel að túlka fals og sjálfsrétt- lætingu persónunnar. í loka- atriði verksins nær Oddur Bjarni öðrum hápunkti túlkun- ar sinnar í niðurlægingu Rolfs, þar sem hann skríður aftur þangað, sem drasli er hent. Terry, stúlku, sem nauðgað var fyrr á ævinni, leikur Þor- björg Björnsdóttir. í þessari persónu birtir höfundur við- brögð þeirra, sem orðið hafa fyrir valdbeitingu, en samfé- lagið hefur brotið. Tilfinningar Terry eru óvissar en framar öðru bældar og tillærðar. Hún hefur leitast við að hemja heift sína og ekki síður ótta og reynir að lifa með biturri reynslu sinni. Þorbjörg kemst víða mjög nærri þessari stúlku í túlkun sinni og myndar góða andstæðu við hina ákveðnu Maggy, sem krefst réttlætis og viðeigandi refsingar. Magrét Sverrisdóttir leikur Patty. Hún er talsmaður réttar- farsins og hinna lærðu sérfræð- inga. Hún talar í frösum, sem hljóma kunnuglega í eyrum. Hún segist skilja Maggy en ger- ir það einungis á grundvelli bóknáms síns. Hún telur sig vera hinn upplýsta aðila, sem horfi kalt og skynsamlega á málin, en er í raun fulltrúi þeirra, sem leitast við að jafna úr hlutunum, breiða yfir og skápa kyrrlátt yfirborð. Mar- grét nær vel fasi og blæ þessar- ar persónu. Það sem helst lýtir er óhófleg notkun orðleppsins „ókey“, sem er væntanlega lagður henni í munn af þýð- anda verksins. Þó hefur hann tilgang í því að gera Patty enn yfirborðslegri og leggja áherslu á raunverulega íjarlægð henn- ar frá vandamálinu, sem hún þó þykist fær um að leysa. Það er full ástæða til þess að hrósa Leikfélagi Húsavíkur og hinum ungu félögum þess, sem koma fram í leikritinu Auga fyrir auga, fyrir uppsetningu þessa verks. Sú hugsun vaknar, hvort hér sé ekki verk, sem vert væri að fara með víða. Umbún- aður þess virðist ekki flóknari en svo, að hann ætti að leyfa slíkt og efni þess og efnistök eiga erindi einmitt nú á dög- um. Ilaukur Ágústsson. INNKAUPASTOFNUN V//V/ÆW REYKJAVÍKURBORGAR \ Fríkirkjuvegi 3-101 Reykjavík Sími 552 5800 - Bréfsími 562 2616 VEGAGERÐIN ÚTBOÐ F.h. borgarverkfræðingsins í Reykjavík og vega- málastjóra er óskað eftir tilboðum í gerð yfirbyggingar göngubrúar yfir Miklubraut í Reykjavík. Helstu magntölur eru: Stálsmíði: 50 tonn. Steypustyrktarjárn: 100 kg. Mótafletir: 8,0 m2. Steinsteypa: 5,5 m3. Handrið utan brúar: 52 m. Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 1997. Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: Þriðjud. 15. október 1996 kl. 11.00 á sama stað. ALÞI N G I Auglýsing til sveitarstjórnarmanna frá fjárlaganefnd Alþingis Fjárlaganefnd Alþingis ráðgerir að gefa sveitar- stjómarmönnum kost á að eiga fund með nefndinni dagana 23.-26. september f.h. Upplýsingar og tímapantanir eru í síma 563 0700 frá kl. 9-16 eigi síðar en 20. september nk. ÚTSALAN hefst í dag, þriðjudaglO. september Levi's búðin, Akureyri og Laugavegi 37. 1D R I G I N A L1

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.