Dagur - Tíminn - 10.09.1996, Blaðsíða 16
Þau taka hlutverk sitt alvarlega þremenningarnir sem vígja busana, þ.e.a.s. nýnemana við Framhaldsskólann á
Húsavík. Frá vinstri Björgvin Björgvinsson, Snæbjörn Ragnarsson og Júlía Sigurðardóttir, að vígja einn busann.
Mynd GKJ
inagur-SItmtttn
Þriðjudagur 10. september 1996
Einar
Sveinbjörnsson
veðurjrœðingur
Reykjavík
0
vsv 3 v3 s 3 ssa 4 ssa 4
v4 vsv 3 ssa 4 sS
Stykkishólmur
9 Mið Fim Fös Lau mm
sv 4 vsv 3 s4 ssa 5 ssa 4
vsv 4 sv 4 ssa 4 s 5
Bolungarvík
sv4 sv3 s 3 sa 4 ssa 3
vsv3 sv4 ssv 4 s5
Blönduós
9 Mið Fim Fös Lau
10-
sv3 sv2 s3 sa 4 ssa 3
vsv2 sv2 ssv 2 ssv 3
Akureyri
sv3 vsv3 sv3 vsv3 s3
v3 sv3 v3 ssv 3
Egilsstaðir
;7^\ \
wm B V
v 3 n 3 s 3 s 3 ssv3
nv3 ssa 3 ssv 3 ssv 3
Kirkjubæjarklaustur
v3 vnv3 vsv2 ssa 4 ssv3
vnv2 vnv2 ssv 2 ssv 2
Stórhöfði
v 4 vnv 4 ssv 3 ssa 6 s6
v4 v3 s4 ssv4
Hausttilboð
á innimálningu
gljástig 10
Verb:
1 lítri 499
4 lítrar 1996
Línuritin sýna flögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Yflr landinu er óvenjulega hlýtt
loft þessa dagana. Þokan sem
hefur verið og verður viðloðandi
suðvestanvert landið er einn
anginn af þessu ástandi, en inn til
landsins er einna helst að vænta
sólar. Líkur eru á að hin volduga
hæð fyrir sunnan land sem þessu
stjórnar gefi eftir hægt og bítandi
og síðar í vikunni tekið við
„eðlilegra" ástand með hlýrri
sunnanátt.
Framhaldsskólinn á Húsavík
Busavígslan yfírstaðin
Nú geta nýnemar við
Framhaldsskólann á
Húsavík farið að anda
léttar því búið er að vígja þá
inn í skólann, búið að „busa“
eins og einhverjir kalla það.
Fyrir því er löng hefð í
mennta- og framhaldsskólum
landsins að taka nýnema inn í
skólann með busavígslu sem
eldri nemendur skólanna fram-
kvæma. Þá hefur gjarnan verið
samkeppni, óopinber þó, um
það að vera frumlegastur við
framkvæmd slíkrar vígslu. Að
þessu sinni voru nýnemar í
Framhaldsskólanum mjög
margir eða 63 og þurfti heil-
mikið skipulag og útsjónarsemi
af hálfu eldri nema að undirbúa
vígsluna. Alla fyrstu vikuna í
Framhaldsskólanum urðu ný-
nemar að ganga um skólann
berfættir, bæði sokka og inniskó
hirtu eldri nemar af þeim við
innganginn í skólann, uppboð
var haldið á þeim og voru þeir
seldir hæstbjóðanda eins og
hverjir aðrir þrælar miðalda.
Urðu þeir eins og forverar
þeirra fyrr á öldum að hlýða
húsbónda sínum í hvívetna
annars var þeim misktmnar-
laust refsað. Sáust busagreyin
hér og þar um bæinn þessa
fyrstu viku berandi skólatöskur
eigenda sinna, á þvottaplönum
bensínstöðvanna að þvo, ryk-
suga og bóna bifreiðar kvalar-
anna og einstaka sást bundinn
við ljósastaura í miðbænum,
höfðu þeir að öllum likindum
óhlýðnast en enginn vogaði sér
að spyrja, hvað þá að koma
þrælnum til hjálpar.
Hin eiginlega vígsla fór svo
fram síðastliðinn fóstudag, og
til að nappa alla nýnema saman
voru þeir boðaðir á áríðandi
fund á sal skólans, sem auðvit-
að var ekkert annað en yflr-
skyn. Frá skólanum voru busar
leiddir í gegnum bæinn
haldandi í lykkjur á snæri eins
og gert er þegar leikskólinn fer
í gönguferð. Fór svo vígslan
fram í miðbænum þar sem einn
og einn busi í einu var leiddur
fyrir þrenningu nokkra, þó ekki
heilaga þrenningu, satt að segja
algjöra andstæðu þeirrar heil-
ögu, hann ausinn vatni og
smellt á hann kossi. Margur
businn andaði léttar að kossi
loknum. „Þá er ég loks fullgild-
ur nemandi við Framhaldsskóla
Húsavíkur." GKJ