Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn - 14.09.1996, Blaðsíða 2
2 - Laugardagur 14. september 1996 íQtigur-ÍIIhramt F R E T T I R Stjórnarkerfið Þrongt um sam- gönguráðherrann Gestur Einar Jónasson, hinn víðkunni útvarpsmaður frá Akureyri sem yljað hefur 68 kynslóðinni um hjartarætur und- anfarin ár með því að spila þeirra tónlist, mun nú á leiðinni í 3ja mánaða frí frá Rúvak. í pott- inum telja menn sig vita að sá sem muni leysa hann af sé Óskar Þór Halldórsson fyrrum ritstjóri Dags. Ekki ber mönnum þó saman um hvort Óskar ætli að sjá um að hlustendur fái Hvíta máfa og grátt í vöngum, því Óskar er ekki farinn að grána nærri eins mikið og Gest- ur.... að er altalað meðal lög- manna í Reykjavík að það fyrirkomulag í dómsal Hæsta- réttar, að hafa íslenska fánann á sérstakri þverslá í stað þess að hengja hann upp á vegginn bak við dómarana, eigi sér merki- lega sögu. Fullyrt er að arkitekt- ar hússins hafi ekki viljað festa fánann á vegginn því það væri arkitektúrískt stílbrot. Þversláin góða væri því þrautalendingin, því hún flokkaðisst sem hluti af innbúi eða innanstokksmunum. Halldór Blöndal, samgönguráðherra segir að ráðuneyti sitt hafi búið við mjög þröngan húsa- kost og löngu orðið tímabært að bæta úr því. Eins og fram kom í Degi- Tímanum í gær, er verið að stækka og endurbæta húsnæði ráðuneytisins í Hafn- arhúsinu fyrir 24 milljónir króna. „Erlend umsvif og samskipti hafa aukist mjög mikið síðan við gerðum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og nú er ráðuneytið einnig að taka við ýmsum verkefnum, sem Póstur og Sími annaðist áður fyrir okk- ur. Það er verið að innrétta hér fundarherbergi, geymslur og ijögur herbergi, en húsakostur ráðuneytisins er mjög þröngur." Samkvæmt íjárlögum þessa er gert ráð fyrir að verja rúmum 170 milljónum króna í viðhald fasteigna ríkisins og eru endur- bæturnar í samgönguráðuneyt- inu þar með taldar, að sögn Ifaildórs. Hann segist ekki telja þetta dýrt. „Ég veit ekki hvað er dýrt og hvað ekki. Það er allt nýtt, sem hægt var að nýta. Tilboðið var uppá 17 milljónir króna og síðan er áætlað að hönnun, eftirlit, tæki, húsbúnaður og fleira kosti um sjö milljónir króna. Eg held að þetta séu nú ekki háar tölur, miðað við það sem gengur og gerist í opinberum byggingum.“ Héraðsdómur Eureka hefur betur Eureka hefur trompin í hendinni eftir úrskurð Eggerts Óskarssonar hér- aðsdómara í máli Eureka og Friðarlands í gærdag. Ljóst virðist að reynt verður að knýja fram gjaldþrot Friðarlands í deilumáli aðilanna í kjölfar for- setakjörsins. „Þessi niðurstaða verður að öllum líkindum kærð til Hæsta- réttar, við munum berjast áfram með kjafti og klóm,“ sagði Róbert Arni Hreiðarsson héraðsdómslögmaður í gær eft- ir að Héraðsdómur Reykjavíkur felldi þann úrskurð að ekki beri að fella úr gildi kyrrsetningar- gerð Sýslumannsins í Reykjavík á hendur Friðarlandi. „Þetta gefur viss fyrirheit eða vísbendingu um hvernig mál eiga eftir að þróast á seinni stigum. Við höldum okkur við staðreyndir, meðan þeir í Frið- arlandi reyna að slá ryki í augu fólks,“ sagði Júlíus Þorfinnsson, framkvæmdastjóri auglýsinga- stofunnar Eureka í gær. -JBP Halldór Blöndal samgönguráðherra Samgönguráðuneytið bjó við of þröngan húsakost og þetta eru ekki dýrari fram- kvœmdir en gengur og gerist í opinberum byggingum. FRETTAVIÐTALIÐ Hver má gifta hvern? Torfi Hjaltalín Stefánsson sóknarprestur, Möðruvöllum Siðaneftid Prestafélags ís- lands hefiir eins og fram hefur komið sent frá sér álitsgerð í kjölfar máls sem upp kom sL sumar þegar sr. Jón Helgi Þórarinsson á Dal- víkframkvœmdi hjónavígslu utandyra við Möðruvalla- kirkju í Hörgárdal. Kirkjan var læst en sóknarprest- urinn, sr. Torfi Hjaltalín Stefáns- son, hafði lýst þeirri skoðun sinni að hann vildi ekki að aðrir prest- ar önnuðust þjónustu við hans sóknar- börn í Möðruvallakirkju. Báðir prestar gerðu athugasemd til siðanefndar. Sr. Torfi vegna þess að sr. Jón Helgi annaðist hjónavígslu sókn- arbarna hans og Jón Helgi vegna framkomu sr. Torfa og ummæla hans í fjölmiðlum. Siðanefnd metur málið svo að ágreiningur hafi orðið m.a. vegna óljósra reglna og réttaróvissu. í álits- gerð siðanefndar kemur fram að grein 3.1. í siðareglum presta feli það í sér að meginreglan skuli vera sú að sókn- arprestur annist prestsþjónustu við sóknarbörn sín og eðlilegt að hafa samráð við hann sé út af því brugðið. Það hafi í raun verið andstætt megin- hugmyndinni að baki safnaðarstarfs kirkjunnar að menn leituðu sér prests t.d. vegna persónulegra eiginleika hans. Aukið frjálsræði Hins vegar er á það bent að frjálsræði í þessum efnum hafi aukist mjög á síð- ari árum, samhliða auknu frjálsræði í samfélaginu almennt. Fram hjá mikil- vægi þessa atriðis verði ekki horft þeg- ar fjallað er um þjónustu presta við „skjólstæðinga kirkjunnar,“ eins og það er orðað. Frumskylda presta sé að veita skjólstæðingum sínum þá kirkju- legu þjónustu sem þeir með réttu óska eftir óháð stöðu þeirra, þar með talið óháð því hvaða sókn þeir tilheyra. Sóknarbörn verði ekki skikkuð til að þiggja þjónustu sóknarprests síns. Nið- urstaða siðanefndar er sú að brýna nauðsyn beri til að móta skýrari reglur og beinir hún því til stjórnar prestafé- lagsins og kirkjustjórnar að taka þetta mál upp á réttum vettvangi. Varðandi þetta einstaka mál telur siðanefnd að brúðhjónin hafi borið sig rétt að. Sr. Torfa sé ekki stætt á að neita alfarið um kirkjuna og telur nefndin að svör hans að hann sé á móti en hvorki neiti né játi, jafngildi neitun. Á móti hafi sr. Jón Helgi ekki látið á það reyna hvort hann fengi neitun heldur talið það víst. Þannig er tekið undir kæruefni sr. Torfa til siða- nefndarinnar, þ.e. að utanaðkomandi prestur hafi séð um þjónustu við sókn- arbörn sín í sínu prestakalli og án samráðs við sig. Einnig tekur nefndin undir kæruefni sr. Jóns Helga varðandi ummæli Torfa um sig á opinberum vettvangi, þ.e. í Degi 4. júlí og í Tíman- um daginn eftir. Ummælin hafi verið ómálefnaleg og ekki í samræmi við grein 3.2. í siðareglum. Nýr tónn hjá siðanefnd f svarbréfi sínu til siðanefndar bendir sr. Torfi á að ekki verði betur séð en nú kveði við nýjan tón hjá siðanefnd- inni miðað við fyrri álitsgerðir. Svo sé að skilja að sóknarskipanin sé ekki lengur í samræmi við það frjálsræði sem ríkir í þjóðfélaginu eða þær kröfur sem fólk gerir um sjálfsákvörðunar- rétt. Þetta telur sr. Torfi orka mjög tví- mælis því frelsi fólks sé „sem betur fer viss takmörk sett,“ og vísar hann þar t.d. í að fólk býr í vissum læknishéruð- um og skólahverfum, reynt er að halda í hjónabandið og enn eru umferðarlög til staðar, eins og hann orðar það. Þá bendir Torfi á að nefndin kemur með nýtt hugtak inn í kirkjulega umræðu, eða hugtakið skjólstæðingur. Telur Torfi að skyldur prests gagnvart stjórnskipan kirkjunnar hljóti alltaf að vera hærri en skylda við „skjólstæð- inga“ í víðri merkingu þess orðs, þ.e. einhver úr annari sókn sem „tilfallandi leitar til hans.“ Sr. Torfi telur að siðanefndin fari langt út fyrir sitt verksvið í úrskurðin- um því það sé ekki í hennar verka- hring að ijalla um stjórnskipun kirkj- unnar. Því líti hann svo á að athuga- semd siðanefndar, um að sér sé ekki stætt á að neita alfarið um kirkjuna, sé ekki skuldbindandi fyrir sig á neinn hátt heldur skoðist aðeins sem innlegg í þá umræðu sem verið hefur um þessi mál. í úrskurði siðanefndar er fundið að því að sr. Torfi hafi ekki fylgt málstað sínum eftir á réttum vettvangi, á veg- um prestafélags og kirkjusóknar, held- ur látið sverfa til stáls í einstöku máli, eins og það er orðað. Torfi svarar því til að hann hafi ítrekað reynt að fylgja málinu eftir á réttum vettvangi en án árangurs. Hvorki kollegar hans né sóknarfólk hafi frá upphafi virt starfs- vettvang sinn „og þrátt fyrir ítrekaðar óskir um að kollegarnir reyndu að stemma stigu við „framhjáhaldi" sókn- arfólksins, gerist ekkert í málinu." Þegar öllu sé á botninn hvolft telur Torfi að málið sé á byrjunarreit eftir þessa álitsgerð siðanefndar. Enn allt í hnút Niðurstaðan úr öllu þessu virðist því vera sú að siðanefnd telur að reglur kirkjunnar um hver eigi að annast prestþjónustu við hvern séu ekki í samræmi við tíðarandann og því ekki óeðlilegt að frá þeim sé vikið. Sóknar- presturinn telur sér engan veginn skylt að fara eftir því áliti siðanefndar að honum sé ekki stætt á því að neita sóknarbörnum um afnot af sóknar- kirkju þeirra því úrskurður um þetta sé ekki innan verksviðs nefndarinnar. Því verður ekki betur séð en úrskurð- urinn flæki ef eitthvað er þau mál sem komið hafa upp í Möðruvallasókn. IIA

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.