Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Síða 5

Dagur - Tíminn - 21.09.1996, Síða 5
ÍDctgur-®ímtmt ÍSLENDINGAPÆTTIR Laugardagur 21. september 1996 - V Loki bundinn. Yfir honum stendur eiginkonan trygga og heldur mundlaug yfir andliti hans til að eitur drjúpi ekki á goðahrellinn. Myndin er á stein- krossi frá Gosforth. Þá sá hann að Æsir áttu skammt til hans og hafði Óðinn séð úr Hliðskjálfinni, hvar hann var. Hann hljóp þegar upp og út í ána, en kastaði netinu fram á eldinn. En er Æsir koma til hússins þá gekk sá fyrst inn, er allra var vitrastur, er Kvasir heitir, og er hann sá í eldinum fölskvann, er netið hafði brunn- ið, þá skildi hann að það myndi vél vera til að taka fiska og sagði Ásunum. Því næst tóku þeir og gerðu sér net eftir því sem þeir sáu á fölskvanum að Loki hafði gert. Og er búið var netið, þá fara Æsir til árinnar og kasta neti í fossinn. Hélt Þór öðrum net- hálsi, en hinum héldu allir Æsir og drógu netið, en Loki fór fyrir og leggst niður í milli steina tveggja. Drógu þeir netið fyrir hann og kenndu að kvikt var fyrir og fara í annað sinn upp til fossins og kasta út netinu og binda við svo þungt, að eigi skyldi undir mega fara. Fer þá Loki fyrir netinu, en er hann sér, að skammt var til sævar, þá hleypur hann yfir þinulinn og rennir upp í fossinn. Nú sáu Æsirnir hvar hann fór, fara enn upp til fossins og skipta liðinu í tvo staði, en Þór veður eftir miðri ánni, og fara svo út til sævar. En er Loki sér tvo kosti, var það lífsháski að hlaupa á sæinn, en hinn var annar, að hlaupa enn yfir netið og það gerði hann og hljóp sem snar- ast yfir netþinulinn. Þór greip eftir honum og tók um hann, og renndi hann í hendi honum, svo að staðar nam höndin við sporðinn, og er fyrir þá sök laxinn afturmjór. Nú var Loki tekinn griðalaus og farið með hann í helli nokk- urn.“ Hér lýkur að segja laxveiði- sögu Ásanna og hvers vegna laxinn er afturmjór eftir hand- tak Þórs. Eftirmáli veiðisögu En frásögninni um afdrif Loka er ekki lokið þar með og hefnd Ásanna hafði meiri áhrif á náttúruna en að breyta sköpulagi laxins. Til hennar má líka rekja land- skjálftana, sem sífellt eru að hrella mannfólkið. Hér kemur niðurlag sögunn- ar um hvað Æsir gerðu við veiði sína í hellinum, eins og Snorri segir hana: „Á tóku þeir þrjár hellur og settu á egg og lustu rauf á hell- unni hverri. Þá voru teknir syn- ir Loka, Váli og Nari eða Narfi. Brugðu Æsir Vála í vargslíki og reif hann í sundur Narfa bróður sinn. Þá tóku Æsir þarma hans og bundu Loka með yfir þá þrjá eggsteina. Stendur einn undir herðum, annar undir lendum, þriðji undir knésbótum og urðu þau bönd að járni. Þá tók Skaði eiturorm og festi upp yfir hann, svo að eitrið skyldi drjúpa úr orminum í andlit honum. En Sigyn, kona hans, stendur hjá honum og heldur mundlaugu [síðar kölluð vaskafat] undir eiturdropa, en þá er full er mundlaugin, á gengur hún og slær út eitrinu, en meðan drýpur eitrið í andlit honum. Þá kippist hann svo hart við að jörð öll skelfur. Það kallið þér landskjálfta. Þar liggur hann í böndum til ragnaraka.“ Nútíma- saga af um- breytmgum laxa Fleiri ágætar sögur eru til af umbreytingum laxa og má minna á freðlaxinn í Snæfellsjökli, sem Halldór Lax- ness segir frá í Kristnihaldi undir Jökli. Þar var þessi feiknafiskur geymdur í ís og þegar hann var færður niður og þíddur upp með seremóníum spratt upp Úa, sem ýmist var heilög eða forstöðukona pútna- húsa suður í heimi og sitthvað margt fleira. Er sú saga áhka trúverðug og frásögn Snorra af veiðiskap Ása í Fránangurs- fossi. En ólíkt eru þær skemmti- legri en margfalda frásögnin af þeim stóra sem slapp. (OÓ tók saman) Ú R HANDRAÐANUM Kláravín, feiti og mergur með ... Einu sinni var förukerling. Hún kom á bæ til fátækr- ar konu. Konan vildi gera henni gott og sótti henni fram mat að borða, meðal hvers var smjör. En þegar förukerling er búin að borða, þá segir hún við konuna: „Nú smakka ég ekki smjör fyrr en ég kem í Himna- ríki.“ — „í Himnaríki! Ertu vit- laus,“ gegnir konan, „þar sem aldrei er strokkað?" „Er þar aldrei strokkað?“ segir kerling- in. „Ég átti svo bágt sem allir vissu í mínum búskap, og bar ég þó aldrei sjaldnar í strokk en einu sinni og tvisvar á hverju einasta sumri, og bjó ég þó í hálft annað ár. — Nú, hvað er þá haft til viðbits þar, skepnan mín?“ „Til viðbits?" svarar kon- an. „Þú ert víst lærð, þú ert vel að þér, ég heyri það. Hefurðu ekki heyrt hvernig stendur í versinu: Kláravín. feiti og mergur með mun þar til rétta veitt. „Kláravín," segir kerlingin. „Ekki legg ég mér það til mimns, kláravínið að tarna. Ég man það enn, að í ungdæmi mínu var drepinn klár, hann var soðinn upp úr skinni og átti að narra ofan í mig af honum seyðið, en ég er ekki farin að drekka það enn, og þarf ekki að sækja þangað. En — ja, mun þar til rétta veitt, ekki lengur? Þar verður þá sannarlega ein- hver matarbreyting eftir rétt- irnar.“ Konan svarar: „Þá kem- ur nú til, blessuð mín, blessað slátrið eftir réttirnar, lunda- baggarnir, blóðmörinn, kjötsúp- urnar og sviðin." — „Nú svo með því móti,“ svarar kerling. „Það er þá ekki annað, skepnan nn'n, en ég snáfi þangað eins tíma fyrir það fyrsta, og fer þá burtu þaðan aftur, ef mér ekki líkar.“ Konan segir: „Hvert ætlir þú farir þá, blessuð mín?“ Kerl- ingin: „Hvert ætli ég fari? Ég held ég fari norðgin: „Hvert ætli ég fari? Ég held ég fari norður í Kelduhverfið mitt aftur, þangað sem ég er fædd og uppalin, þar hef ég lengst verið og þar hefi ég mestur maðurinn orðið.“ Konan: „Heldur þú komist þangað, blessuð mín?“ Þá svar- ar kerling: „Ég komist þangað! Ég hefi farið lengra en héðan úr Himnaríki og norður í Kelduhverfið. Ég kvíði fyrir því að komast yfir hana Stein- grímsfjarðarheiði, en komst ég það, og þá fer ég út alla Langa- dalsströnd, út Snæíjallaströnd og út á Stað í Aðalvík, svo ríð ég henni Bleikálu minni yfir ísa- íjarðardjúp og þá er ég komin á Langanesið mitt til hans sóra Halldórs míns prófasts á Sauða- nesi, og hann sér þá víst eitt- hvað um mig blessaður." (Þessa sögu hefur séra Jón eftir Stefáni Ólafssyni, víðförl- um ferðamanni, sem vonandi hefur ekki verið eins áttavilltur og kerhngin.) Hér hefur ung tófa náð sér í fýl og er ekki bjargarlaust i búi hennar þann daginn. Myndina tók Páll Hersteinsson, sem þekkir lifnaðar- hætti íslensku tófunnar öðrum mönnum betur. Tófur fluttar til íslands Það þykja boðleg vísindi að íslenska tófan sé komin frá Grænlandi og hafi farið á milli landa og heimsálfa á ís. En þeir sem bjuggu á Látrum á Látraströnd fyrir miðja síðustu öld töldu sig vita betur og fer hér á eftir frásögn sem þaðan er ættuð: Að tófan kom til íslands atvikaðist þannig: Einhver þóttist eiga bóndanum á Oddsstöðum á Melrakkasléttu hefndir að gjalda. Kom sá með tófur tvær, ref og bleyðu, og hleypti þeim á land á Oddsstöðum til að spilla æðarvarpinu. En bóndinn þar var svo fljótur að hlaupa, að hann hljóp uppi bleyðuna hvolpafulla, en sleppti henni, og fór að elta refinn, náði honum og drap og ætlaði að snúa að bleyðunni og drepa hana. En þá var hún undan komin og fann bóndi hana hvergi. Þannig breiddust tófurnar út um landið. Þetta frétti séra Jón Norðmann á Látrum. Síðan hafa bændur sem aðrir hamast við að drepa lág- fótu, en alltaf sleppa nægilega margar undan til að halda stofninum við, og þótt ein sé drepin í Svarfaðardal gýtur önnur í Þverárdal. Um hvern er spurt? 1. Hann fæddist í Skagafirði um miðja síðustu öld. Hann setti mikinn svip á menningar- og listalíf sinnar samtíðar og var mikilvirkur rithöfundur. 2. Hann nam stjórnfræði og er fyrsti íslendingurinn sem lauk prófi í hagfræði. Hann var lengi embættismaður og sat á Alþingi stuttan tíma. Hann tók mikinn þátt í félags- lífi og var stórtemplar. Síðustu áratugi ævinnar lifði hann af ritstörfum. 3. Dætur hans voru kunnir listamenn, en sjálfur var hann kvæntur konu af vel þekktri menningarijölskyldu. Hann skrifaði mörg vinsæl leikrit og var einn höfuðhvatamaður að stofnun Þjóðleikhússins. Svar unuo>|>iisi nQjn Bjuioij jnjæQ njsiunSjo sjiuoj Jippp inisuqorpn;) biibj\ eqjjej\] jba suiiq nuojsj suispunj jnjsjAijsSTUj mn tis 8o ‘ipueQoqsjnpua -ega ‘jo -siaoj jnQepejj iQupuj jtia luuij uinuis v '8l6t 1!) Jinj iqtijtits go P061 quujojs jtia QiQBjjeujpfjs J!J qbSubcJ jti'cJ iqtijjbjs 8o sujsijjæquioefSu! -Qjpqspuej jhqbuisjjbjs ucniq jsiqjoS Tiq -//gj ujpqeuuiuudnejj j ijpjdiQæjjSeq qniq uuii]j ‘6861 TiAefq/íaa i op 80 jpsi unvqqpqesnji qb Jnppæj jba uiniH uossjeuig iQijpu] jo jjnds jo uin uios uuijnQiqAj

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.