Dagur - Tíminn - 28.09.1996, Page 5
Í0ajgur-®mmm
Laugardagur 28. september 1996 - 5
F R É T T I R
i |
Fjölmiðlar a Skemmtistaðir
Stöð 3 tapar 565 imlljónuin
Eldvamir
óviðunandi
Stöð 3 hefur nær
engar tekjur haft
frá upphafi. í ár er
reiknað með að
tapið verði 429
milljónir.
Stöð 3 reiknar með að tapa
rúmlega hálfum millj’arði á
árunum 1996-98. í skýrslu
stjórnar stöðvarinnar er gert
ráð fyrir að tapið i' ár verði 429
milljónir, 128 milljónir á næsta
ári og 8 milljónir 1998. Þá
verður samanlagt tap stöðvar-
innar orðið 565 milljónir, en
gert er ráð fyrir að 1999 verði
loks farið að vinna upp í þetta
gat og hagnaður verði 135
milljónir.
í skýrslu stjórnar félagsins
sem lögð var fram á aðalfundi í
vikunni er vanda félagsins lýst í
hnotskurn. Dagur-Tíminn hefur
þessa skýrslu ásamt milliupp-
gjöri og birtir blaðið hluta úr
henni hér:
„Sú staðreynd að íslenska
sjónvarpið hf. hefur ekki getað
læst útsendingum sínum frá
upphafi hefur leitt til þess að
félagið hefur nær engar tekjur
haft frá upphafi. Nú er Qár-
hagsleg staða félagsins orðin
það slæm að starfsemi þess
verður eigi haldið áfram án
þess að komið verði inn með
nýtt hlutafé. Af þessum sökum
var stjórn félagsins veitt heim-
ild til að taka ákvörðun um að
hækka hlutaféð um allt að 300
milljónir. Einungis hluti af nú-
verandi hluthöfum félagsins
hafa lýst sig reiðubúna til að
taka þátt í viðræðum við nýja
aðila um að taka þátt í hluta-
íjáraukningunni. Þeir aðilar
sem hafa lýst yfir áhuga á því
að taka þátt í hlutafjáraukning-
unni hafa lagt mikla áherslu á
að hlutafé félagsins verði fært
niður til jöfnunar þess taps sem
hefur myndast í félaginu. Til
þess að geta framkvæmt hina
fyrirhuguðu hlutaíjárhækkun er
því nauðsynlegt að lækka hluta-
Félagsmálaráðherra
Harkan sex gegn dópi
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra telur það bæði
rétt og eðlilegt að stjórn-
völd marki ákveðna pólitíska
stefnu sem felur það í sér að
ekki verði um neinn undanslátt
að ræða í baráttunni við eitur-
lyf-
„Það sem ég vil gera er að
slá því fóstu þar sem allir geta
gengið að því vísu að vímuefn-
um verður ekki gefin nein
grið,“ segir félagsmálaráð-
herra.
Sérstaklega þegar haft er í
huga að vímuefnin eru komin í
grunnskólanna þar sem nem-
endur eru farnir að selja hvor
öðrum vímuefni og þeir eldri
íjármagni eigin neyslu með því
að selja þeim yngri. Þessvegna
sé ekki annað hægt en að taka
á þessum vanda í samvinnu við
foreldra og opna augu þeirra
fyrir þessum staðreyndum.
Hann segir það óhugnanleg-
ar fréttir sem berast frá sam-
félögum úti í heimi þar sem
stjórnvöld einstakra ríkja eru
farin að útvega neytendum
fíkniefni.
Hann segir það vera merki
upp uppgjöf sem hlýtur að
leiða til falls.
Ráðherra segir að hérlendis
séu aðstæður nokkuð öðruvísi
en gengur og gerist meðal ná-
grannaþjóðanna sem felast
m.a. f landfræðilegri stöðu
landsins sem eylands úti í
miðju Atlantshafi.
Af þeim sökum eigi að vera
auðveldara að verjast þessum
vágesti sem fíkniefnin eru, en
kannski ella.
-grh
Akureyri
Bjarni Haípór
skiptir um starf
Grafarvogur
Ný með-
ferðastöð
(ýrir ung-
linga
s
AStuðlum í Grafarvogi
verður neyðarvistun fyrir
unglinga á aldrinum 12-
16 ára í bráðum vanda, auk
meðferðar í vímu-og hegðunar-
vanda. Meðferðartími verður
allt að íjórir mánuðir og 6-8
mánuðir í eftirmeðferð.
Nýja meðferðarstöðin var
formlega opnuð við hátíðlega
athöfn í gær, en Stuðlar koma í
staðinn fyrir heimilið að Efsta-
sundi og Tinda og er fyrsta ný-
byggingin sem sérstaklega er
hönnuð sem meðferðarstöð fyr-
ir unglinga.
Þá er verið að huga að stofn-
un hliðstæðrar stöðvar úti á
landi sem líklega verður stað-
sett í Eyjafirði.
-grh
Bjarni Ilafþór Helgason
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Útvegs-
mannafélags Norðurlands. Um
nýja stöðu er að ræða hjá fyrir-
tækinu og mun Bjarni sinna
innri málefnum útvegsmanna á
Norðurlandi og starfa jafnframt
í nánum tengslum við Lands-
samband íslenskra útvegs-
manna. Hann hefur störf 1.
október.
„Ég varð mjög spenntur þeg-
ar mér var boðið staífið, ekki
síst þar sem ég er fæddur í fjör-
unni á Húsavík og allt sem við-
kemur útgerð og veiðum hefur
átt sterka taug í mér. Annars
mun ég sakna fréttamanns-
starfsins og þess frábæra
starfsfólks sem unnið hefur
með mér,“ segir Bjarni.
Bjarni Hafþór lauk prófi frá
MA árið 1978 og útskrifaðist
sem viðskiptafræðingur frá HÍ
árið 1983. Síðustu 10 ár hefur
hann stafrað við fjölmiðla, fyrst
sem sjónvarpsstjóri Eyfirska
sjónvarpsfélagsins en seinni ár
sem fréttamaður fyrir Stöð 2 og
Bylgjuna. Eiginkona hans er
Laufey Sigurðardóttir og eiga
þau tvö börn. -BÞ
féð í félaginu. Hinir fyrirhuguðu
nýju hluthafar hafa á hinn bóg-
inn samþykkt að núverandi
hluthafar félagsins geti náð
hlutafjáreign sinni til baka (að
hluta til), ef rekstur félagsins
gengur vel á árunum 1996,
1997 og 1998. Gangi reksturinn
á hinn bóginn verr en menn
gera ráð fyrir, mun hlutaíjár-
eign núverandi hluthafa skerð-
ast enn frekar. Drög að sam-
komulagi við hina fyrirhuguðu
nýju hluthafa liggja fyrir á hlut-
hafafundinum til kynningar.“
í þeim drögum að samkomu-
lagi við nýja hluthafa sem hér
er vísað til kemur fram að
reiknað er með að skuldir
stöðvarinnar verði samtals 565
milljónir eftir þrjú fyrstu árin.
Þar kemur og fram að núver-
andi hlutafé verði fært niður
um 60% til að laða að nýja ljár-
festa.
S
Vaðalfundi veitinga- og
gistihúsa er haldinn var
á Hótel Húsavík hefur
komið fram samkvæmt könnun
Brunamálastofnunar að um
40% veitingahúsa í 32 skemmti-
staða úrtaki standast ekki kröf-
ur um eldvarnaeftirlit. Árni
Árnason, verkfræðingur hjá
Brunamálastofnun, upplýsir þó
að ef þessi niðurstaða sé borin
saman við ástand opinberra
bygginga komi í ljós að mun
betri eldvarnir væri að finna á
veitingahúsum.
Einnig var kannað hvort hús-
næðið væri í samræmi við
teikningar og reyndist svo vera
í aðeins 40% tilvika. í 16% til-
vika var ekki um neinar teikn-
ingar að ræða. Niðurstaða
könnunarinnar var að herða
beri eftirlit með því að sam-
þykktum teikningum sé fylgt
eftir í hvívetna ekki síst við end-
urbætur. -GKJ
fReykjavíkurborg auglýsir eftir
umsóknum um styrki til verk-
efna um jafna stöðu karla og
kvenna á fjárhagsárinu 1997
Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar auglýsir eftir um-
sóknum um styrki til verkefna á sviði jafnréttisfræðslu í
skólum og á öðrum uppeldisstofnunum og til annarra
sérstakra þróunarverkefna sem hafa það að markmiði
að jafna stöðu kynjanna.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem
liggja frammi í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavík-
ur. Umsóknir skulu sendar Hildi Jónsdóttur jafnréttis-
ráðgjafa, Ráðhúsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík, fyrir 15.
nóvember 1996.
Hægt er að fá umsóknareyðublöð send ef óskað er.
Nánari upplýsingar veitir jafnréttisráðgjafi í síma
563 2000.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
26. september 1996.
m Reykjavíkurborg auglýsir eftir
| E | umsóknum um almenna styrki
til menningar,- félags- og upp-
eldismála á fjárhagsárinu 1997
Félagsmálaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til fé-
lags- og heilbrigðismála í Reykjavík.
íþrótta- og tómstundaráð auglýsir eftir umsóknum um
styrki til íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfa í
Reykjavík.
Menningarmálanefnd auglýsir eftir umsóknum um
styrki til menningarstarfs í borginni.
Fræðsluráð auglýsir eftir umsóknum um styrki á sviði
grunnskólastarfs.
Stjórn Dagvistar barna auglýsir eftir umsóknum um
styrki til menningarstarfsemi fyrir leikskólabörn.
Auk þess auglýsir stjóm Dagvistar barna eftir umsókn-
um um styrki til þróunarverkefna í leikskólum borgar-
innar og geta umsækjendur verið leikskólar, starfs-
mannahópar eða einstaka leikskólakennarar og fag-
menn á sviði leikskólamála.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem
liggja frammi í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavík-
ur. Umsóknir skulu sendar Halldóru Gunnarsdóttur Ráð-
húsi Reykjavíkur, 101 Reykjavík, fyrir 15. nóvember
1996. Hægt er að fá umsóknareyðublöð send ef óskað
er. Þeir umsækjendur sem fengu styrk á síðasta ári
þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfun þess fjár.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563 2000 alla
virka daga milli kl. 10 og 12.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
26. september 1996.