Dagur - Tíminn - 28.09.1996, Blaðsíða 12
|Dagur~©mtmt
.............. .. .
Einar
Sveinbjörnsson
veðurfrœðingur
Laugardagur 28. segtember 1996
Saumavéla-
ttgerðamaður
Pj; frá Pfaff
|t verður
í Kaupangi
laugardag
0
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Línuritin sýna Qögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Um helgina verður miðja mjög víð-
áttumikillar, en hægfara lægðar yfir
landinu. Áttin verður því breytileg á
morgun, en stinningskaldi af
norðaustri nær inn á Vestfirði og
Norðurland. I’ar mun rigna og eins
má reikna með vætu annað slagið í
flestum landshlutum. Lægðin stóra
si'gur síðan austur á bóginn á sunnu-
dag. Vindur snýst þá í ákveðna
norðanátt með kólandi veðri, fyrst á
Vestfjörðum. Og þá er bara að bjóða
haustið velkomið. Sumarið var
óvenju langt að þessu sinni.
Ufróður / fallbaráttunni
Það er fleira fóður en feitt
kjöt. Það eru einnig fleiri
lið í fyrstu deildinni en KR
og ÍA. í dag kl 14:00 hefst síð-
asta umferð Sjóvá-Almennra-
deildarinnar með leikjum Kefl-
víkinga og ÍBV, Sjörnunnar og
Breiðabliks, Vals og Fylkis,
Leifturs og Grindavíkur. Að
þessum leikjum loknum fæst úr
því skorið hvaða lið það eru
sem þurfa að bíta í það súra
epli að falla niður í aðra deild.
Staða þeirra nú er sú að Blik-
arnir sitja á botninum með 15
stig. í næstu sætum eru Kefla-
vík og Grindavík með 16 stig
þar sem Grindjánarnir rændu
Keflvíkingana örugga sætinu
með síðasta markinu í 4-0 stór-
sigri þeirra um síðustu helgi.
Þetta var jafnframt fyrsti sigur
Grindvikinga á Keflavík í fyrstu
deildinni í tveggja ára sögu
liðsins í deild þeirra bestu.
Fylkir með sín 18 stig hefur
skástu stöðu liðanna í fallbar-
áttunni. Þeir eru líka eina liðið
sem þarf eingöngu að treysta á
sjálft sig til að halda sér í deild-
inni. Þeim nægir sigur. Hin liðin
þrjú, Grindavík, Keflavík og
Breiðablik þurfa ekki aðeins að
vinna sína leiki heldur að
treysta þvx að önnur lið í fall-
baráttunni tapi sínum leikjum.
Hvað getur gerst?
Ef Breiðablik og Fylkir vinna
sína leiki og Suðurnesjamenn-
irnir gera jafntefli eða tapa fyr-
ir sínum andstæðingum halda
Blikar og Fylkismenn sætum
sínum og þar með rætist spáin
frá í vor. Vinni hins vegar Suð-
urnesjaliðin og Blikar og Fylkis-
menn tapa halda Grindavík og
Keflavík sínum sætum í deild-
inni. Því er ljóst að bæði Kefla-
vík og Breiðablik verða að
vinna sína leiki hvernig sem
aðrir leikir enda. Fylki nægir
jafntefli og Grindavík getur
nægt jafntefli fari svo að Blikar
og Keflavík nái ekki að sigra í
sínum leikjum.
Hverjir faila?
Það er alltaf bæði erfitt og
reyndar hundleiðinlegt að spá
einhverju liði falli. Vísast er það
túlkað sem fordómar gagnvart
þeim liðum er spádóminn fá í
hausinn og jafnvel illgirni. Við
látum okkur samt hafa það og
snöggsjóðum lokaspána.
Grindvíkingarnir hafa verið
að gera góða hluti í seinustu
leikjum. Þeir velgdu Skaga-
mönnum vel undir uggum og
komust í 2 - 0 en töpuðu síðan
leiknum 6-3. Þeir tóku síðan
nágranna sína á beinið eins og
margoft hefur komið fram. Þeir
hafa sjálfstraustið sem til þarf,
dugnað og elju, vinna Leiftur og
hanga í deildinni.
Það sama má segja um
Keflavík. Þeir hafa veri á ágætri
siglingu með sitt unga liði í síð-
ustu umferðum allt þar til þeir
strönduðu í Grindavík. Kjartan
Másson kemur sínu skipi á
lygnan sjó og siglir því heilu í
höfn. Þeir vinna Eyjamenn.
Valur - Fylkir: Það er nú
það. Valsarar hafa verið arfa-
slakir seinni hluta mótsins.
Metnaður er mikill á Hlíðar-
enda og ég hef trú á að þeir
skríði nú úr skel sinni og endi
mótið með stæl. Það er tími til
kominn að þeir vinni leik og þá
senda þeir Fylki niður í aðra
deild.
Lánleysi Blika hefur verið
algert nánasf allt mótið. Á því
verður engin breyting nú.
Stjarnan mallar áhyggjulaus yf-
ir þá í dag. Blikar og Fylkis-
menn styðja hvorir aðra á sinni
grýttu götu í aðra deild. gþö
Ríkharður Daðason er enn markakóngur deildarinnar en skori Bjarni
Guðjónsson ÍA, þrennu á sunnudag án þess að Ríkharður svari, nær
Bjarni titlinum.
z S * ★ BIOROR^
tjn S OSTRIN
ULI O HLÖb
uf Q AUHíAlíXAPSii AUS KOÍiiíSÍWilIIBfR AUSlíJWÖfltAK! «? Tauhib. Nucin ukö
M UJ
cc 3E
*S!o u- —» ....
Hvar finnur þú orku til að standast
vinnuálagið og reka heimili og sinna
börnunum og stunda félagslífið og stunda
líkamsrœktina og... ?
Ef þér líður stundum elns og þig vanti orku
ofurmennis til að ráða við þetta allt getur
1 belgur á dag af Ostrín CTZ plus verið
einmitt það sem þú þarfnast.
Skipagötu 6
600 Akureyri
Sími/fax 462 1889
Útsölustaðir: Heilsuhúsið í Kringlunni, Reykjavík,
Kornmarkaðurinn, Laugavegi 27, Reykjavík,
Heilsukofinn, Skólabraut 33, Akranesi.