Dagur - Tíminn - 28.09.1996, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn - 28.09.1996, Blaðsíða 9
iOagiir-tlIúrttrm Laugardagur 28. september 1996 - 9 RITSTJORNARSPJALL Jón Baldvin hugsar Birgir Guð- mundsson skrifar Fyrsta heimaverkefni mitt þegar ég byrjaði í háskóla í Bretlandi fyrir einum tuttugu árum var að skrifa rit- gerð um bók eftir Descartes, bók sem heitir „Umræða um aðferð“. Þetta er eitt af grund- vallarritum upplýsingastefn- unnar og spurningin sem mér var uppálagt að svara snerist um hvers vegna Guð og guðs- hugtakið væri svo nauðsynlegt fyrir aðferð Descartes. Það er í þessu riti sem hina frægu til- vitnun í Descartes er að finna: „Ég hugsa, því er ég“. Flestir þekkja þessa tilvitnun þó þeir séu sjálfsagt færri sem hafa velt mikið fyrir sér því samhengi sem hún var í. Hér verður svo sem ekki farið náið út í þá sálma, en rétt riljað upp að Descartes vildi finna sér ein- hvern óhagganlegan grundvöll til að byggja þekkingu sína og aðferðafræði á. Hann efaðist um tilvist alls ytri veruleika og á endanum var hann einungis viss um það eitt að hann efað- ist: Ég hugsa, því er ég. Brúin til veruleikans í stuttu máli reyndist Descartes þó fastur í þessum efa sínum nema hann gæti kynnt til sög- unnar yfirnáttúrulegt hugtak - Guð - til að byggja brúna frá ef- anum yfir til veruleikans sem hann skynjaði allt í kringum sig. Það var síðan á grundvelli þessara efasemda og afleiðslu út frá þeim að Descartes byggði upp aðferðafræði við þekking- aröflun sem abnennt er talin grundvöllur þess að náttúruvís- indin tóku stórt stökk fram á við. Klisjan „ég hugsa, því er ég“ hefur því afar merkilega skírskotun og ekki skrýtið þó hún sé fræg. Fyrir mér hins vegar, persónulega, vekur það jafnan upp minningar um þessa fyrstu ritgerð, Descartes, og vís- indin þegar þennan frasa ber á góma eða þá að einhver er með áberandi hætti sagður vera að hugsa. Menn sem hugsa eru einhvern veginn örugglega til. Efast um ytri umgjörð í frétt hér í blaðinu í gær er segir frá því að Jón Baldvin Hannibalsson sé jafnvel að láta af formennsku í Alþýðuflokknum. Fyrir- sögnin á fréttinni var: „Jón Baldvin hugsar stíft". Ósjálfrátt kemur Descartes upp í hugann. Það er kannski við hæfi því óneitanlega hefur Jón Baldvin fyrirferðarmikla pólitíska tilvist. En hin stífa hugsun sem fréttin greinir frá og sú umræða sem verið hefur upp á síðkastið um að Jón Baldvin sé að hætta sem formaður benda óneitan- lega til að hann sé farinn að efast hressilega um ytri umgjörð sinnar pólit- ísku tilvistar. Og þegar haft er í huga að Jón er óragur við að tala um sjálfan sig í einhvers kon- ar „ljósmóðurhlutverki fyrir stjórnmál framtíðar- innar“ - hlutverki sem hann geti ekki síður sinnt þó hann sitji ekki í formannsstóli í Alþýðuflokknum - hljóta menn að styrkjast í þeirri trú að hann hugsi sér einmitt að vera til, óháð sinni gömlu, ytri umgjörð. Þessi póiitíska umgjörð sem Jón Baldvin er nú farinn að efast um, er vitaskuid Alþýðuflokkur- inn. Sameining jafnaðar- manna Boðskapurinn í hálfkveðnum vísum Jóns síðustu daga er augljóslega sá að með efanum hafi hann uppgvötað nýja að- ferð í stjórnmálunum. En rétt eins og Descartes greip forðum til mikið notaðrar og þekktrar samtíma-klisju á þeim tíma - guðshugtaksins - til að bjarga sér út úr einsemd efans og komast í samband við sitt ytra umhverfi, bendir flest til að „guðshugtak" Jóns Baldvins sé líka nokkuð mikið notaður og hálf þreyttur frasi. Tal hans um ljósmóðurhlutverk bendir ein- dregið til að hann sjái sjálfan sig sem eins konar guðfaðir í sameingu jafnaðarmanna á ís- landi - að ganga þurfi í verk sem hafið var eitt sinn við ann- an mann á rauðu ljósi, en hann verði einn að klára úr því sem komið er. Jón Baldvin hefur verið óþreytandi við að skilgreina stjórnmál sem list hins mögu- lega. Það væri hins vegar að sigrast á hinu ómögulega ef honum tækist að verða guðfaðir sameiningar allra jafnaðar- manna á íslandi. Mun líklegra er að hann geti möndlað málin þannig að hann yrði guðfaðir sameiningar Alþýðuflokks og Þjóðvaka og hugsanlega ein- hvers klofningsbrots úr Alþýðu- bandalaginu. Stóru tíðindin Stóru tíðindin við hina stífu hugsun Jóns Baldvins og efa- semdir hans um hina ytri um- gerð pólitískrar tilvistar sinnar, felast þó kannski ekki svo mikið í langtímamarkmiðinu um ein- hverja allsherjar sameiningu jafnaðarmanna. Tíðindin eru mun nærtækari og felast í raun- inni um efasemdir hans sjálfs. Descartes varð ekki frægur í mannkynssögunni fyrir guðs- sönnun sína. IJann varð frægur fyrir efasemdirnar. Eins er það með Jón Baldvin, að það er ef- inn um gildi Alþýðuflokksins sem pólitísks vettvangs fyrir „ljósmóður stjórnmála framtíð- arinnar", sem setur svip sinn á stjórnmálasögu dagsins. Hér verður því ekki að óreyndu trúað að Jón Baldvin hafi ekkert meint með yfirlýs- ingum sínum um að hann væri ekki embættismaður að eðlis- fari og því ekki inni í myndinni hvað hann varðar að hætta í pólitík og taka við einhverju feitu embætti hér heima eða í útlöndum. Jón Baldvin hefur hvergi sagt að hann ætli að hætta í stjórnmálum, aðeins að hann efist um að formennska í Alþýðuflokknum sé rétti vett- vangurinn fyrir stjórnmálafor- ingja eins og hann. Dagstimpill að renna ut? Menn hljóta því að spyrja hvort Alþýðuflokkurinn sem stofnun sé komin á síðasta söludag og í fram- haldi af því hver sé þá hinn rétti vettvangur fyrir stjórnmálaforingjann Jón Baldvin? Ef það er tilfell- ið að dagstimpill flokks- ins sé að renna út - hugs- anlega vegna sameining- arinnar við Þjóðvaka - er eðlilegt að Jón hugsi stíft um hvort líklegt sé að framtíðarforingi þess janfaðarmannabræðings verði sá sem situr á for- mannsstóli í öðrum hvor- um flokknum. Eða er það e.t.v. líklegra, að þegar fram í sækir muni menn sættast á þann foringja sem um hríð hefur beðið á hliðarlínunni og virkað sem friðarhöfðingi. Það verði „the grand old man“ sem í árdaga lagði upp í þessa löngu ferð á rauða ljósinu? Enn hefur Jón Baldvin ekk- ert gefið uppi annað en efann um að Alþýðuflokkurinn í nú- verandi mynd eigi framtíðina fyrir sér. Út af fyrir sig er það merkileg yfirlýsing frá sitjandi formanni og ekki skrítið þó al- þýðuflokksmenn séu upp til hópa órólegir um framtíð flokksins. En jafnt kratar sem aðrir vita að þegar Jón Baldvin hugsar stíft, þá er hann - stjór nm álaforingi. Möðruvellir Hugleiðingar vegna læknadeilu Vilhjálmur Einarsson skrifar Nýlega er afstaðin deila milli fjármálaráðuneyt- isins og heilsugæslu- lækna. Mikill hluti lands- manna hafði verið læknislaus vikum saman, því læknar höfðu sagt upp störfum. Deil- an virtist flókin og ekki ein- vörðungu snúast um laun. Deilt var meðal annars um skilgreiningu hugtaka svo sem neyðarhjálp. Hvað er neyðar- hjálp? Hjálp í neyð? Hvað er neyð? Hvenær breytist brýn þörf í neyð? Þegar á leið og lausn var ekki í sjónmáli, fóru margir að efast um andlegt heilbrigði deiluaðila, jafnframt því sem ýmsir furðuðu sig á því hye lengi slíkt Iæknisleysi gæti varað án þess að til óskapa drægi. Var ef til vill megnið af daglegri þjónustu heilsugæslulækna óþarft? Ekki virtist auðvelt að skilja launakjör læknanna. Þegar á leið deiluna var þjóðinni kunn- gerður kjarninn lír launa- samningi þeirra. Föst laun lækna reyndust vera talsvert innan við hundrað þúsund krónur á mánuði og furðaði ýmsa á því hve lág þau voru. En þegar upp var staðið, reyndust meðaltekjur stéttar- innar á bilinu 2-300 þúsund krónur og það sem meira var: launamunur þeirra í milli íjór- til fimmfaldur! Þetta var skýrt með því að um óheyrilega yfir- vinnu, sem jafnvel væri heilsu- spillandi, væri að ræða hjá þeim tekjuhæstu. Fastar bifreiðagreiðslur skýrðu að hluta hinn mikla mun rauntekna og fastra launa, en einmitt þessi tekju- Iiður reyndist mikilvægur þátt- ur í sáttargjörðinni: Með því að kippa í liðinn og færa hann inn í föstu launin var stigið mikilvægt skref til sátta. Gert var bráðabirgðasamkomulag og ákveðið að vísa málinu í gerð. Þvílíkt launakerfi! Að loknum undirskriftum bráðabirgðasamnings hófst enn ein fjölmiðlasýningin eftir sömu formúlunni: Örþreyttir samningamenn birtust á sjón- varpsskjám landsmanna eftir að hafa verið læstir inni í sal- arkynnum sáttasemjara. Allir höfðu unnið þrekvirki, virtust sljóir af svefnleysi, en voru sáttir við niðurstöður eftir at- vikum. Eftir nokkra mánuði mun kjaranefnd kveða upp sinn Salómonsdóm um kjör læknanna og vonandi mæla þeim sanngjörn laun. Allir þeir sjúklingar, sem enn drógu andann, önduðu léttar. Ekki er ætlunin að gera grín að fulltrúum lækna í samninganefnd eða draga í efa nauðsyn þess að kjör þeirra verði endurskoðuð. Að- ferðin orkar þó tvímælis. Þvingunaraðgerðir, hvort sem heldur eru verkföll eða hóp- uppsagnir kennara eða lækna, bitna verst á þeim sem síst skyldi og ekki eru aðilar að málum: nemendum og sjúk- lingum. Kjör þessara stétta hafa þó neytt þær til slíkra að- gerða. Mál er að linni. íslenska þjóðin — ein hin ríkasta í heimi, þjóð með hátt menntunarstig og sem krefst fyrsta flokks þjónustu á sviði heilbrigðis- og skólamála — gerir sér grein fyrir því, að slík þjónusta stendur og fellur með því fólki sem hana veitir. Til þess að fá gott fólk til þessara starfa þurfa kjörin að vera góð. Þeir sem fara með íjár- veitingarvald ríkisins verða líka að skilja þetta. íslending- um sæmir ekki að settar verði á svið fleiri „sýningar“ af því tagi sem hér hefur verið Qallað um.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.