Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Blaðsíða 2
2 - Fimmtudagur 3. október 1996 |Dagur-®tmtmt Pottormar veltu því fyrir sér hvers vegna Halldór Ás- grímsson, formaöur Framsókn- arflokksins, hefði ekki talað í útvarps- og sjónvarpsumræð- um um stefnuræðu forsætis- ráðherra. Vinsælasta kenningin er sú að hann hafi fyrrst við, þegar tillögur um breytingar á fyrirkomulagi umræðnanna voru felldar. Eins og menn muna gengu tillögurnar út á að Davíð Oddsson, forsætisráð- herra talaði við þingsetning- una, en aðrir kvöldið eftir. Mið- að var við að stjórnarand- stæðingar færu upp í and- svörum við Halldór og hann gæti síðan svarað fyrir sig. Með þessu töldu a.mk. fram- sóknarmenn að Halldór fengi það sviðsljós, sem hann ætti skilið. Þingflokkur Jafnaðar- manna hafnaði þessum tillög- um og þess vegna sátu menn uppi með þessar hefðbundnu, langdregnu umræður í gær- kvöldi og misstu af Halldóri, segja pottormar. Davíð verður að fara að hemja óbeit sína í garð for- seta lýðveldisins, var sagt í heita pottinum í gær. í viðtali við Davíð á Stöð 2 í fyrradag kom fram að hann hefði kynnt sér hvernig staðið hefði verið að húrrahrópum í tíð fyrri for- seta og komist að því að á meðan Sveinn Björnsson var forseti, hafi þáverandi forsætis- ráðherra einungis sagt „ísland lifi, húrra húrra húrra húrra.“ Sem sagt ekki minnst á forset- ann, hvorki með eða án punkts. Þetta þótti pottormum athyglisvert, einkum og sér í lagi að í forsætisráðuneytinu gæfu menn sér tíma til að leggjast í rannsóknir af þessu tagi. F R É T T I R Þorskaflinn 1996 Akureyrl Mestur þorskafli berst til Grindavíkur orskallinn fyrstu átta mánuði ársins er 112.214 tonn og hefur dregist saman um 0,63% samanborið við sömu mánuði 1995. Afla- verðmæti hefur dregist saman um 174 milljónir króna eða 2,22%, er 7,6 milljarðar króna þessa fyrstu átta mánuði ársins. Heildaraflaverðmæti sjávaraf- urða hefur hins vegar aukist um 4,9% milli ára, er nú 35,8 milljarðar króna á móti 34,1 milljarði króna á sl. ári og þar munar mestu um loðnuverð- mætið sem aukist hefur úr 2,6 milljöröum í 5,7 milljarða króna. Þorskaflinn hefur dreifst svo- lítið öðruvísi milli verstöðva nú í ár og af 70 verstöðvum sem hafa fengið einhvern þorskafla hafa 10 aflahæstu hafnirnar Aflaverðmæti landmanna á síðasta ári var um 56,4 milljarðar króna. Á töflum má sjá hvernig verðmætin skiptust milli tegunda. fengið 54,8% heildaraflans, var 52,8% í fyrra, og hefur hlutfall þeirra hæstu af heildinni aukist um 3,13% milli ára. Á meðfylgjandi töflu eru 10 hæstu löndunarhafnirnar, í fremri dálkunum aflinn en Tíu aflahæstu verstöðv- arnar með 55% af heild- araflamagninu, þar af Grindavík með 21,7% og 11,9% af heildarafla- magninu. þeim aftari breyting á hlutdeild í heildarþorskaflamagninu milli ára. Aukin sókn togara Granda í Reykjavík og ÚA á Akureyri í úthafsveiðar skýrir að hluta minnkun þorskafla þessara staða en athyglisverð er veruleg aukning þorskafla á Hornafirði eftir þrengingar í útgerð og fiskvinnslu þar undanfarin misseri en m.a. liafa þeir þurft að selja burt einn togara (til Akureyrar). Aukning þorskafla á Sauðárkróki vekur athygli í Ijósi þeirra staðreynda að starfsmönnum Fiskiðjunnar- Skagfirðings hf. hefur verið sagt upp störfum og framtíð bolfiskvinnslu þar er í mikilli óvissu. GG Grindavík 13.323 + 5,3% Reykjavík 9.968 - 9,3% Hafnarfjörður 7.332 + 5,9% Hornafjörður 6.261 + 73,3% Garður 6.063 - 0,7% Akureyri 4.685 - 26,6% Vestmannaeyjar 4.358 - 18,1% Þorlákshöfn 3.555 + 21,3% Sauðárkrókur 2.998 + 39,6% Patreksijörður 2.964 + 14,4% Formaður Léttis blæs á rök Guðmundar s Eg tel fullvíst að af samein- ingu verði, enda hafa allt að 90% þeirra sem hafa tjáð sig á fundum lýst þeim vilja. Auðvitað væri best að allir gætu gengið sáttir og ánægðir til hins nýja borðs en því miður er útlit fyrir annað. Þveröfugt við skoðun Guðmundar Jóns- sonar, yrði sameining Lands- sambands hestamanna og Hestaíþróttasambands íslands til mikilla bóta fyrir hesta- mennskuna í landinu," segir Sigfús Helgason, formaður Létt- is á Akureyri. í blaðinu í gær sagðist for- maður Landssambands hesta- manna, Guðmundur Jónsson, efast um ágæti sameiningar LH og Hestaíþróttasambands ís- lands, en skipuð hefur verið nefnd til að móta tillögur um sameiningu. Sigfús Helgason segir rödd Guðmundar, sem heyrst hafi á fundi í fyrrakvöld, njóta lítils fylgis. „Ég blæs á þessi rök. Það er verið að búa til einhverja ÍSÍ-grýlu úr þessu öllu saman og rætt um afsal sjálfstæðis til ISÍ. Þessu vísa ég alfarið til föðurhúsanna. Nýtt Landssamband hestaíþrótta yrði æðsti aðili í eigin málefn- um. Það erum við sem höfum áhrif á ÍSÍ.“ Sigfús bendir ennfremur á að sparnaður ávinnist við að reka eitt samband í stað tveggja og hættan á stjórnsýslulegum árekstrum muni minnka. „Sem dæmi get ég nefnt að hér á Ak- ureyri veit hægri höndin oft ekki hvað sú vinstri er að gera en samt er sama fólkið að vinna að sömu markmiðum." BÞ FRÉTTAVIÐTALIÐ Skattleysismörk gætu hækkað um 1000 krónur Halldór Árnason skrifstofustjóri ífjármála- ráðuneytinu ígildi sérstakra launabóta að upphœð 420 miljónir kr. inná sérstökum lið ífjármála- ráðuneytinu sem hugsanlega verður hœgt að semja um við gerð næstu kjarasamninga. Verða skattleysismörkin óbreytt? „Það liggur ekki alveg ljóst fyrir fyrr en við afgreiðslu íjárlaga. Miðað við al- mennar verðlagsbreytingar í forsend- um Qárlaga, þá gætu þau hækkað um 2%. Þetta verður væntanlega skoðað nánar þegar líða tekur á árið. í þess- um forsendum er gert ráð fyrir sömu verðbreytingum og erlendis.“ Afhverju er ekkert um skattleysis- mörkin ífrumvarpi til fjárlaga? Vilja menn halda þessu opnu? „Já, það er nú það en það er dáh'tið erfitt að spá í verðlagsforsendur frum- varpsins vegna þess að kjarasamning- ar eru lausir um áramót. Þessvegna var tekin sú stefna að miða við sömu verðlagsbreytingar og aðrar viðskipta- þjóðir okkar gera ráð fyrir til að halda óbreyttri samkeppnisstöðu." Eru skattleysismörkin kannski einhver skiptimynt í komandi kjarasamningum? „Ég veit nú ekki hvað hægt er að segja um það, en það verður að ákveða skattleysismörkin fyrir áramót. En það er eðlilegt að þau breytist um einhver 2% miðað við verðlagsbreytingar. Það mundi hækka skattleysismörkin um rúmar 1000 krónur, eða uppí rúmar 60 þúsund krónur. Hœkka bœtur alamannatrygg- inga? „í forsendum íjárlagafrumvarpsins er gert ráð fyrir því að bætur almanna- trygginga hækki um 2% um áramót, eða í samræmi við almennar verðlags- breytingar." Þýðir þetta þá ekki minni hœkkun en sem nemur þeim 3,5% launa- hœkkunum sem gert er ráð fyrir í forsendum fjárlaga og þjóðhags- áœtlunar? „Það gæti alveg orðið. Enda þarf ekki að vera samhengi þar á milli. Með þessu móti yrði kaupmáttur þessara bóta óbreyttur og mundi ekki skerðast ef bætur hækka til jafns við almennt verðlag. Hinsvegar eru launabæturnar sem samið var um í síðustu kjara- samningum ekki inni í almenna trygg- ingaliðnum í frumvarpinu vegna þess að kjarasamningar eru lausir um ára- mót. Aftur á móti höfum við sett sam- svarandi íjárhæð inná lið í íjármála- ráðuneytinu.“ Er þetta eitthvað sem menn vilja hafa í bakhöndinni? „Það er þá hægt að semja um það og t.d. hvort menn vilja hafa launabæt- ur eða eitthvað annað.“ Hvað er þetta mikið sem hugsan- lega er hœgt að semja um? „Það eru samtals 420 milljónir króna inná þessum lið. Það er ígildi sérstakra launabóta bæði hvað varðar lífeyristryggingarnar og líka atvinnu- leysistryggingarnar vegna þess að það er hka teldð út þar. En af þessum 420 milljónum króna eru í kringum 300 milljónir kr. sem tengjast lífeyristrygg- ingunum,“ segir Ilalldór Árnason skrif- stofustjóri í fjármálaráðuneytinu. -grh

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.