Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Page 2

Dagur - Tíminn - 03.10.1996, Page 2
14- Fimmtudagur 3. október 1996 Jlagur-Œímám llililiiillilllllllig L I F I Ð L A N D I N U Vort daglega brauð BStefánsdóttir Um allan heim borðar fólk brauð, alls konar brauð. Rúgbrauð, franskbrauð, kornbrauð, sætabrauð, kúmenbrauð, súrdeigsbrauð... /X'- Lengi hafa bakarar bakað fyrir fólk brauðið og sjald- an eins og nú og brauðúr- valið er gífurlegt, bakað í há- tækniofnum, þar sem hita og rakastigi er stjórnað frá upp- hafi til enda. Engum blöðum er um það að fletta, að gott og hollt brauð er góð fæða fyrir okkur og svo er brauð fremur ódýr matur og saðsamur. Lengi hef ég predikað það fyrir fólki að það sé mikill sparnaður í því fólginn að baka eigið brauð. Það er ekki sagt af einhverri sérstakri illgirni í garð bakara, þvert á móti, þeir vinna sitt starf vel og eiga hinar bestu þakkir skildar fyrir baksturinn. Hitt er annað mál, að ég er sannfærð um það, að bakstur og meðhöndlun deigs sé í sjálfu sér róandi og hafi góð áhrif á fólk. Það að geta alfarið ráðið því hvað fer í brauðið manns er líka kostur og svo er það bara miklu ódýrara að baka heldur en að kaupa brauð. Venjulegt heilhveitibrauð kostar um 120 kr. í búð, en það er hægur vandi að baka það fyrir 35-40 kr. heima hjá sér. Á ársgrundvelli er þessi sparnaður umtalsverð- ur, um 30.000 kr. fyrir 1 brauð á dag, 60.000 kr. fyrir 2 brauð á dag. Það munar um minna íyrir 5-10 mínútna vinnu á dag. Hér kemur svo gull- trygg uppskrift af hversdagsbrauði: Velgið 6 dl. af vatni eða hellið saman 3 dl af heitu vatni og 3 dl af köldu. Setjið það í hræri- vélarskál, myljið 1 kubb af pressugeri (um 40-50 gr) eða 1 bréf af þurrgeri út í vatnið. Setjið þar útí 1 tsk. af sykri, því gerið elskar sykur og er mun fljótara að lifna við ef það fær sykur. Þegar gerið hefur lifnað, það flýtur upp, þá sést að það er lifandi, hellið útí vatnið um 900 g af hveiti, reynið að kaupa glutenríkt hveiti, það lyftir sér betur. (5 stjörnu hveiti frá Kornax er gott), setjið svo 2 tsk. af salti samanvið, 1 bolla af hveitiklíði og um 1 dl af bragð- lausri olíu. Hnoðið þetta vel í hrærivél- inni eða höndunum. Deigið á að vera eins og leir viðkomu, hvorki þurrt eða blautt. Það má bæta annaðhvort hveiti eða vatni útí ef þarf. Vatnið má gjarnan vera vel heitt ef því er bætt við. Látið nú deigið bíða í skálinni í um það bil 1 klst, eða þar til það hefur tvöfaldast að rúmmáli. Ath. að það þarf ekki að horfa á það á meðan, það má gjarnan nota tímann í ann- að. Það gerir heldur ekkert til þó tíminn sé heldur meiri, það gerist ekkert. Látið nú deigið á borð, ef þarf má strá svolitlu hveiti á það fyrst. Skiptið deig- inu í 2 hluta, hnoðið þá aðeins og setjið í fremur stór form. Dökk form eru best, þau leiða hitann vel. Látið nú deigið bíða í um 30 mínútur, eða þar til það hefur tvöfaldast aftur. Skerið þá 2-3 skurði í hvort brauð, setjið þau í 200 C heitan ofn, neðst í hann, bakið brauðin í 40 mínútur og takið þau út. Borðist með bestu lyst og smjöri. Þetta var ekki svo erfitt, eða hvað? Ef hægt er að koma þessu inn í einhverja rútínu, þá er þetta svo lítið mál að það tekur engu tali. Heildarvinna við brauðbaksturinn er 5-10 mínútur, biðtími telst ekki vinna, þar sem hægt er að nota hann í annað. Vigdis Stefánsdóttir. Ýmislegt smálegt Veistu að með því einu að slökkva ljósið í herbergi sem enginn er í, má spara umtalsverðar upphæðir. Hús þurfa ekki að vera upp- ljómuð eins og jólatré, það er hægt að kveikja ljós um leið og gengið er inn í herbergi og slökkva um leið og farið er út. Það sama gildir um tæki eins og t.d. útvarp og sjónvarp. Það er alltof algengt að koma í hús þar sem kveikt er á útvarpi og sjón- varpi, það látið vera í gangi stanslaust meðan íjölskyldan er á fótum án þess að verið sé að hlusta. Þetta kostar ef til vill smá nöldur til að byrja með en það borgar sig í beinhörðum peningum, sem ekki vaxa á trjám á íslandi. Þurfa gjafír að kosta peninga? Stundum langar mann til að gleðja einhvern, en á litla eða enga peninga. Þá reynir á ímyndunaraflið. Ef um barn er að ræða, má skrifa kort og lofa því að gegn framvísun kortsins, eyði viðkomandi tíma með barninu að þess ósk. Fullorðnum má gefa tíma líka, það má bjóðast til að gæta barna fyrir þá, sendast eða vinna einhver önnur störf í þágu viðkomandi. Ástvinum má helga algjör- lega kvöld eða helgi og láta við- komandi vita með fyrirvara svo hann/hún geti hlakkað til dálít- inn tíma. Áttu of mikið? Ha, hvað á konan við? Auðvitað á ég ekki of mikið, maður á aldrei nóg. Eða hvað? Hvað með öll gömlu fötin í geymslunni, allar bækurnar og tímaritin sem eng- inn les? Styttur sem eru árum saman í geymslunni, samsafn af gömlum leikföngum, hálf- kláraða handavinnu, gamlar gardínur, gömul húsgögn? Jú, flest eigum við heldur meira en við þurfum, það er vandi nú- tímavelferðarþjóðfélags (vá, þetta var langt orð). Dót sem safnast fyrir hjá okkur, ár frá ári og við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera við. Ekki er hægt að henda þessu, dýrmætar minningar kannski tengdar við hlutina, svo vill nú áræðanlega enginn eiga þetta dót, eða hvað? Jú, leik- skólar, barnaheimili og skólar geta notað bækur, gömul heil leikföng, jafnvel gömul föt sem má leika sér í. Á elliheimilum er talsvert af fólki sem hefur tíma og þolinmæði til að ljúka við handavinnu, Rauði kross- inn, flóamarkaður íslenskra dýraverndunarfélaga, hjálp- ræðisherinn og fleiri taka við fötum, gardínum og húsgögn- um, líka búsáhöldum og skraut- munum. Safnarar taka við gömlum tímaritum. Mæðra- styrksnefnd og Kvennaathvarfið taka við ýmsu líka. Svo eru það aðilar sem senda ýmislegt úr landi, t.d. nunnurnar í Karmel- klaustrinu, Steinar Waage og fleiri. Ekki henda hlutum, einhver annar gæti notað þá. Endurnýting ápappír / IDanmörku er það fjáröflun endurnýtingarstöðvum. Þetta er að safna pappír. Félög eitthvað sem mætti athuga hér. ganga í hús og safna papp- Vigdís Stefánsdóttir ír og fá greitt fyrir hann hjá Búðarugl að er eitthvað undarlegt að gerast í búðamenningu hér á landi. Einu sinni gat maður gengið inn í bókabúð og verið viss um að geta keypt þar bækur, farið á bensínstöð og keypt þar bensín og svo fram- vegis. Nú hefur orðið einhver ruglingur í þessu öllu saman. Matárbúðir selja bækur og rit- föng, bensínstöðvar selja mjólk og brauð og mat, brauðbúðir selja kartöflur og bókabúðir selja kjöt. Er eitthvað skrítið þó hinn venjulegi neytandi verði dálítið ruglaður og fari bara til útlanda að versla? Bara grín, Vigdís.

x

Dagur - Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.