Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Side 1

Dagur - Tíminn - 24.10.1996, Side 1
f LUR VnMtm & oUm jflUuiX. •S 557 9555 q p C\ |Dctgur-®tmtmt LÍFIÐ í LANDINU Fimmtudagur 24. október 1996 - 79. og 80. árgangur - 203. tölublað LUR PiMtm i <dU* jfúnú. •s 557 9555 ROMANTISKT SALTKJOT Eiríkur Sæland, eigandi Eyjablóma, er farinn að selja saltkjöt í blóma- verslun sinni. Hann segir þetta vera svar við samkeppni KÁ sem selur blóm í stórmarkaðs- verslunum sínum tveimur í Eyjum. Fyrir skömmu fór hann einnig að selja grænmeti í verslun sinni. „Saltkjöt getur verið róman- tískt og það er hægt að setja margt annað í potta en potta- blóm. Mér finnst ekkert sið- ferði vera orðið í verslun- arrekstrinum í dag. KÁ er komið inn á mitt svið og eitt- hvað varð ég að gera,“ segir Eiríkur. Hann hefur verið beðinn af ýmsum aðilum að hætta við saltkjötssöluna en það er eins og að skvetta vatni á gæs. Ei- ríkur bara eflist. „Þetta er spurning fyrir mig að lifa eða lognast út af. Ég býst við því að grænmetissala mín sé komin til að vera en ég sé til með saltkjötið. Ég kaupi grænmetið frá garðyrkjubænd- um en ekki af milliliðum. Varan er fersk og splunkuný og gott verð á henni enda létu við- brögðin ekki á sér standa," segir Eiríkur sem seldi kartöfl- urnar á 60 kr. kg sem þykir mjög gott verð. En er ekki eðlileg þróun að stórmarkaðsverslanir selji blóm eins og hvað annað? „Það er svo sem lítið hægt að segja við því nema að mér finnst óeðlilegt að verslunarrisi sem veltir íjórum milljörðum á ári sé að vasast inn á svona sérvöru eins og við, þessi litlu fyrirtæki í þessum bæ sem höngum á horriminni, erum að bjóða upp á. Ég vil minna á að það eru ekki bara blómabúð- irnar sem eru í hættu hér í Eyj- um. Það eru einnig aðrar sér- vöruverslanir og má þar m.a. nefna Bókabúðina en KÁ var með bókasölu á nokkrum titlum um síðustu jól og lokuðu svo fyrir söluna eftir jól. Það erfitt að reka sérvöruverslun með svona vinnubrögð hangandi yf- ir sér. Ég hef rætt þetta við for- ráðamenn KÁ á Selfossi án þess að fá nokkur viðbrögð. KÁ er stjórnað frá Selfossi og mér finnst athyglisvert hversu lítil umræða er um það hér í bæn- um að KÁ á Selfossi, sem er með um 70% af matvörumark- aðinum í Eyjum, hirðir alla veltuna og gróðann á Selfoss. Ekkert verður eftir í Eyjum,“ sagði Eiríkur. ÍSLENSKT JÁTAKKÁ FLÚÐUM Forsetafrúin skoðar Límtré á Flúðum. fyrir gesti og verksmiðju Flúða- sveppa þar sem boðið var upp á morgunverð. Sveitarstjórnarmenn á Suð- urlandi ásamt þingmönnum kjördæmisins og frammámönn- um í atvinnulífi á Suðurlandi voru einnig viðstaddir. Síðan var farið í heimsóknir í fyrir- tæki á Hvolsvelli, Hellu, Selfossi og Hveragerði og framleiðsla þeirra skoðuð. -hþ. Atakið íslenskt já takk var sett að Flúðum x' gær, miðvikudag. Forseti ís- lands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir voru viðstödd þegar Finnur Ingólfsson iðnað- arráðherra setti átakið. í máli iðnaðarráðherra kom meðal annars fram að nauðsyn- legt væri að hlúa vel að íslensk- um iðnaði, þar sem hvert starf í greininni hefur margfeldisáhrif í þjóðfélaginu. Gestir skoðuðu trésmiðju Límtrés á Flúðum þar sem barnakór Flúðaskóla söng Forsetahjónin í heimsókn hjá Flúðasveppum. HVAÐÁ FJALLIÐ AÐ HEITA? Við minnum á samkeppni okkar um heiti á nýja eldíjallið í Vatnajökli. Þegar eru byrjaðar að streyma inn hugmyndir. Við tökum á móti tillögum fram til hádegis á mánudag, og birtum tillögur ásamt þeirri sem við teljum besta í þriðjudagsblaðinu í næstu viku. Verið með! Einn þeirra sem kemur með bestu tillöguna vinnur útsýnisferð fyrir 2 yfir nýja eldfj allið með Flugtaki! Sendið tillögur til Dags-Tímans, Strandgötu 31, 600 Ak, eða Brautarholti 1, 101 Reyk., símbréfsnúmer er 462 7639 og netfangið er rit- stjori@dagur.is fyrir nethausa!

x

Dagur - Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.