Dagur - Tíminn - 01.11.1996, Page 10
22 - Föstudagur 1. nóvember 1996 íDaguÆhmnn
3tucu) c‘t d jei/di uni ficlguui?
Akureyri
Afmæli
Tvíburarnir Guðmundur Helgi Haraldsson, bóndi á Halllandi, og Jón
Haraldur Haraldsson, Brekkugötu 37, Akureyri, verða sjötugir 3.
nóvember. í tilefni dagsins taka þeir og ijölskyldur þeirra á móti
gestum í starfsmannasal KEA, Sunnuhlíð 12, Akureyri, milii kl. 15 og 18
sama dag.
50 ára afmæli
I.augardaginn 2. nóvember verður
Ingvar Björnsson, Akurgerði llb.
Akureyri, fimmtugur. Hann verður
að heiman á afmælisdaginn.
Listmunauppboð
í Sjallanum
Gallerý Borg, Kristalbúðin og List-
húsið l'ing halda iistmunauppboð í
Sjallanum, sunnudaginn 3. nóv. kl.
21. Boðin verða upp um 70 málverk
eftir alla hclstu listamenn þjóðar-
innar og má þar nefna Kristínu
Jónsdóttur, Jóhannes S. Kjarval,
Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson,
Gunniaug Scheving og Jón Engil-
berts. Einnig verða boðin upp um
10 persnesk teppi, handunnin.
Uppboðsverkin verða sýnd í
Mánasal Sjallans laugardaginn 2.
nóv. kl. 16-18 og sunnudaginn 3.
nóv. kl. 14-18.
Þorvaldur Þorsteins í
Gailerí +
Sýningu Porvaldar Þorsteinssonar,
„Bláar myndir“, lýkur um heigina í
Gallerí +, Brekkugötu 35. Opnun-
artími gallerísins er frá kl. 14-18 á
laugardögum.
Á norrænni slóð í
Deiglunni
Á sunnudaginn lýkur sýningunni
„Á norrænni slóð“ sem stendur yfir
í Deiglunni. Um er að ræða farsýn-
ingu sem ijallar um sögu Norður-
landanna og hugmyndir um nor-
ræna menningu. Minjasafnið,
Amtsbókasafnið og Norræna félag-
ið eru umsjónaraðilar með sýning-
unni, sem er opin alla daga frá kl.
14-18.
Kvikmyndaklúbbur
Akureyrar
Næstu helgi sýnir klúbburinn
myndirnar Hatrið (La Haine) og
Frankie Starlight.
Ilatrið er frönsk frá 1995 og
hefur vakið mikla athygli í Frakk-
landi, en hún lýsir aðbúnaði inn-
flytjenda í úthverfum Parísar,
óeirðum og hatri íbúanna á lög-
regiunni. Hatrið verður sýnd
sunnudaginn 3. nóv. kl. 15 í Borg-
arbíói. Frankie Starlight er írsk
mynd sem íjaliar um dverginn
Frankie og minningar hans um
móður sína. Fylgst er með nokkr-
um árum í sögu hennar. í aðalhiut-
verkum eru Gabriel Byrne og Matt
Dillon. Allir velkomnir.
Fræðslufundur Mígreni-
samtakanna á Akureyri
Mfgrenisamtökin halda fyrsta
fræðslufund sinn á Akureyri laug-
ardaginn 2. nóv. næstkomandi kl.
14 á Hótel KF.A.
Auk kynningar á samtökunum
mun Gunnar Friðriksson, sérfræð-
ingur í heila- og taugalækningum,
ílytja fyrirlestur um mígreni, orsak-
ir, einkenni og meðferð. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
Skákfélag Akureyrar
Ilausthraðskákmót Skákfélags Ak-
ureyrar fer fram sunnudaginn 3.
nóv. kl. 14. Teflt er í Skákheimilinu
að Þingvallastræti 18 og eru aliir
velkomnir.
Guðspekifélagið
á Akureyri
Fundur verður haldinn sunnudag-
inn 3. nóv. kl. 16 í húsnæði félags-
ins að Glerárgötu 32, 4. hæð. Gest-
ur fundarins verður Þorsteinn
Antonsson rithöfundur, og mun
hann ræða um hina neikvæðu
þætti í eðli mannsins og umbreyt-
ingu þeirra. Tónlist og umræður.
Ailir velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Flóamarkaður á
Hjálpræðishernum
Flóamarkaöur á Hjálpræðishern-
um er opinn alla föstudaga kl. 10-
17. Þar or ha;gt að gera góð kaup,
því flestar ilikur eru seldar á að-
eins 100 kr. Markaðurinn er til
húsa á Hvannavöllum 10 og þar er
líka tekið á móti fatnaði alla daga
vikunnar.
Önundarfjörður
Holtsprestakall í
Önundarfirði
Barnaguðsþjónusta í Flateyrar-
kirkju sunnudaginn 3. nóv. kl.
11.15. Bænir og söngvar. Guð-
spjallið í myndum. Börnin lita og
læra. Afmaúisbörn fá glaðning.
Náttsöngur (completorium) í
Flateyrarkirkju á miðvikudögum
kl. 18.30 og í Holtskirkju á fimmtu-
dögum kl. 18.30.
Sunnudaginn 10. nóvember
næstkomandi verður haldið upp á
60 ára afmæli Flateyrarkirkju.
Akranes
Útgáfutónleikar
Sönghópsins Sólarmegin
í tilefni af útkomu geisladisks held-
ur Sönghópurinn Sólarmegin út-
gáfutónleika í sal Grundaskóla á
Akranesi laugardaginn 2. nóv.
næstkomandi kl. 15.
Á efnisskrá tónleikanna verður
sitthvað af efni disksins, sem inni-
heldur kiassísk og þjóðleg lög auk
annarra í poppstil. í sönghópnum
Sólarmegin eru 10 söngvarar og
söngstjóri er Guðmundur Jóhanns-
son. Hópurinn hefur sungið saman
síðan 1990 og haldið tónleika
reglulega víða um land. Nokkrir í
sönghópnum syngja styttri eða
lengri einsöngskafla og í tveimur
lögum er leikið undir á hljóðfæri.
Sönghópurinn mun einnig halda
tónleika á Sólon fslandus 10. nóv.
og í Hafnarborg 12. nóv. Báðir tón-
leikarnir hefjast kl. 20.30.
Höfuðborgarsvæðið
Benedikt Kristþórsson í
Gallerí Horninu
Laugardaginn 2. nóv. opnar Bene-
dikt Kristþórsson sýningu í Galleríi
Horninu að Hafnarstræti 15. Sýn-
ingin ber yfirskriftina „Kyrralífs-
teikningar" og samanstendur af
lágmyndum unnum í pappír. Bene-
dikt hefur haldið eina einkasýn-
ingu; í Luxemborg árið 1992 og
hefur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum, síðast sýningunni Samtímis
í Norræna húsinu fyrir réttu ári.
Málþing um húsvernd í
Reykjavík
Húsverndarnefnd Reykjavíkur boð-
ar til málþings um nýja stefnu-
mörkun Reykjavíkurborgar í hús-
verndarmálum. Málþingið verður
haldið í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur laugardaginn 2. nóv.
kl. 10-16. Skipulagsnefnd Reykja-
víkur samþykkti árið 1994 að hidja
undirbúning að framtíðarstefnu-
mótun í húsverndarmálum í
Reykjavik og á málþinginu verður
inntak og uppbygging hinnar nýju
stefnumótunar kynnt ftarlega.
Fjallað verður um tillögur starfs-
hóps um friðun og verndun ein-
stakra bygginga, götumynda,
svæða og byggðamynsturs.
Málþingið er öllum opið, þátt-
tökugjald verður til greiðslu á létt-
um hádegisverði og kaffi að upp-
hæð kr. 500,-
Aðalfundur SSH
SSII, Stuðnings- og sjálfshjálpar-
hópur hálshnykkssjúklinga, verður
með aðalfund í ÍSÍ-hótelinu Laug-
ardai, mánudaginn 4. nóv. kl. 20.
Stjórnarkjör. Gunnar Guðmunds-
son sálfræðingur verður með fyrir-
iestur.
Breiðfirðingafélagið
Félagsvist verður spiiuð sunnudag-
inn 3. nóv. kl. 14 í Breiðfirðinga-
búð, Faxafeni 14. Fyrsti dagur í 4
daga keppni. Kaffiveitingar. Aliir
velkomnir.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag.
Guðmundur stjórnar. Opið öllum.
Göngu-Hrólfar fara fra Risinu kl.
10 í fyrramálið í létta göngu um
bæinn.
Vilhjálmur Árnason lögfræðing-
ur er til viðtals fyrir félagsmenn á
þriðjudag. Panta þarf viðtal í s.
552 8812.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist að Fann-
borg 8 (Gjábakka) í kvöld, föstu-
dag, ki. 20.30. Húsið öllum opið.
Frá Hana-nú í Kópavogi
Vikuleg iaugardagsganga Hana-nú
í Kópavogi verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka. Fannborg 8,
kl. 10. Nýlagað molakaffi.
Síðdegisuppákoma í Hinu
Húsinu
verður í dag, Tóstudag, ki. 17.
Slam-skáldið Kurt Heintz frá Chic-
ago þrumar ljóðum og myndbönd-
um inn í skilningarvit úhorfenda
og Birgitta Jónsdóttir kynnir
„Kameljónið", sem er nýútkomið á
smáskífu með undirspili Reptilicus.
Mike Pollock ílytur ljóð með tón-
listarlegu ívafi og Berglind Ágústs-
dóttir leiðir okkur inn í ævintýra-
legan furðuheim sinn. Seinast en
ekki síst kynnir Bang Gang nýút-
komna smáskífu sína „Listen
Baby". Aðgangur er ókeypis.
Stjórnin í Kjallaranum
Hljómsveitin Stjórnin verður í
diskóstellingum í Leikhúskjaliaran-
um í kvöld, föstudag, og spilar eig-
in lög í bland við diskótónlist ár-
anna 1980-1990. Sigga Beinteins
og Grétar Örvars eru sem fyrr í
broddi fylkingar ásamt Jónsa á gít-
ar, Halla á trommum og Þórði á
bassa.
Sönghátíð í Mosfellsbæ
í Mosfellsbæ eru nú starfandi 7
kórar og skólahljómsveit. Á morg-
un, laugardag, ætla aliir þessir að-
ilar, í samvinnu við menningar-
múlanefnd Mosfellsbæjar, að sam-
eina krafta sína og sönggleði og
efna til sönghátíðar í íþróttahúsinu
á Varmá. Að sjálfsögðu hafa þeir
með sór enn einn syngjandi bæjar-
búa, sem er Sigrún Hjálmtýsdóttir
(Viddú). Dagskráin verður bæði
létt og fjörug, kiassfsk og sígild.
Ilún hefst ki. 16 og aðgangur er
aðeins kr. 300.
Basar á Hallveigarstöðum
Húsmæðrafélag Reykjavíkur held-
ur sinn árlega basar sunnudaginn
3. nóvember að Hallveigarstöðum
við Túngötu og hefst hann kl. 14.
Sem fyrr verður mikið úrval af
fallegri handavinnu að ógleymdu
sérlega fallegu jólaföndri. Allur
ágóði af sölu basarmuna rennur til
líknarmála.
Basar á Hrafnistu
Á Hrafnistu í Reykjavík er nú unn-
ið að miklum krafti við undirbún-
ing á úrlegri sölu ú handavinnu.
Konur og kariar bjóða til sölu það
sem þau hafa unnið ú iiðnum mán-
uðum. Þarna er um að ræða hvers
kyns handavinnu. Ýmislegt sem
hvergi fæst annars staðar. Heitt
súkkulaði með rjómavöfflum verð-
ur einnig á boðstóium á morgun.
Basarinn verður opinn á morgun,
iaugardag, kl. 13.30-17 og mánu-
daginn 4. nóvember frá kl. 10-15 í
vinnustofunni Súðinni á 4. hæð í E-
álmu á Hrafnistu í Reykjavík.
Langur laugardagur í
Kaffigalleríi Ömmu
í tilefni af „Löngum laugardegi" á
morgun verða ýmsar uppákomur í
Kaffigalleríi Ömmu í Réttarholti,
sem staðsett er á 1. hæð hand-
verkshússins Eldgömlu ísafoldar,
Þingholtsstræti 5, á milli kl. 13 og
17. Vinnustofur hússins verða opn-
ar og hjá Ömmu munu nokkrir rit-
höfundar lesa úr framlögum sínum
til jólabókaflóðsins í ár. Á meðan
munu Trausti og Kalli klæða
Smíðagalleríisbílinn í jólabúning-
inn í stæðinu hans fyrir framan
húsið.
Afmælissýningu Sneglu
að Ijúka
í tiiefni af 5 ára afmæli Sneglu iist-
húss stendur nú yfir samsýning 14
myndlistarmanna sem reka list-
húsið. Sýningin ber yfirskriftina
„Langt og mjótt“ og lýkur henni á
morgun, laugardag, kl. 17.
Snegla listhús er á horni Klapp-
arstígs og Grettisgötu.
Norræna húsið
f dag, föstudag, kl. 17 verður opn-
uð sýning í anddyri Norræna húss-
ins ú leirlist eftir finnska lista-
manninn Roger Westerholm (f.
1952). Sýningin verður opin dag-
lega kl. 9-19, nema sunnudaga kl.
12-19. Henni lýkur sunnudaginn
24. nóvember.
Sunnudaginn 3. nóv. kl. 14
verða sýndir þri'r þættir um Línu
Langsokk sem heita: „Pippi (lyttar
in i Villa Villekulla“, „Pippi ár sak-
letare och g&r pá kalas“ og „Pippi
g&r i affár“. Sýningin tekur rúm-
lega 80 mín. og er með sænsku
tali. Allir eru velkomnir og er að-
gangur ókeypis.
Bíósýningar í MÍR
í nóvember og desember verða
sýndar í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
nokkrar kvikmyndir, sem annað
hvort byggja á verkum nokkurra
frægustu rithöfunda Rússa eða
ijalla um ævi og störf ýmissa
fremstu listamanna Rússlands.
Fyrsta kvikmyndin í þessari
myndaröð verður sýnd nk. sunnu-
dag, 3. nóv. kl. 16, og hún er „Kós-
akkar“, gerð eftir samnefndri
skáldsögu Lévs Tolstoj.
Mánudagskvöldið 4. nóv. kl. 20
verður svo sýnd kvikmyndin „Rim-
skíj-Korsakov“, sem byggð er á ævi
hins fræga rússneska tónskálds. Sú
mynd er án skýringatexta, en
enskir textar eru með „Kósökk-
um“. Aðgangur að kvikmyndasýn-
ingunum er ókeypis og öilum
heimill.
Margrét Guðmundsdóttir
sýnir í Gallerí Listakoti
Á morgun, laugardag, kl. 15-18
opnar Margrét Guðmundsdóttir
„Haustsýningu“ í Gallerí Listakoti,
Laugavegi 70, Reykjavík, og eru
allir velkomnir. Sýningin stendur
til 18. nóvember og er opin virka
daga kl. 12-18 og laugardaga kl.
10-14 og er aðgangur ókeypis.
Tónleikar í Listasafni
Kópavogs
Dagana 3., 4. og 5. nóvember nk.
verða tónleikar í Gerðarsafni. Helj-
ast þeir allir kl. 20.30. Er þetta
gert í tilefni þess að hafinn er und-
irbúningur að byggingu menning-
armiðstöðvar í Kópavogi, með sér-
stökum tónlistarsal. Aðgangur
verður ókeypis að þessum tónleik-
um og komast um 200 áheyrendur
á tónleikana hverju sinni. Húsið
verður opnað kl. 20 og verða
aðgöngumiðar afhentir við inn-
ganginn meðan húsrúm leyfir.
Nýjar sýningar í
Nýlistasafninu
Á morgun, laugardag, kl. 14 opna
Steingrímur Eyíjiirö og Margrót
Sveinsdóttir tvær einkasýningar í
Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3B,
Reykjavík. í Forsal safnsins verða
sýnd framiög 50 listamanna í hug-
myndavinnu. Umsjón þeirrar sýn-
ingar er í höndum Steingríms Ey-
ijörðs og uppsetningu hafa nem-
endur á 1. ári Fjöltæknideildar
Myndlista- og handíðaskólans ann-
ast. Sjálfur sýnir Steingrímur
teikningar, texta, ljósmyndir og
þrívíddarverk á neðstu hæð, en
Margrót Sveinsdóttir sýnir oh'umál-
verk í efri sölum. Sýningarnar eru
opnar dagloga frá kl. 14-18 og
þeim lýkur 17. nóv.