Dagur - Tíminn - 26.11.1996, Síða 3
jEtagur-ÍEmTtmt
Þriðjudagur 26. nóvember 1996 - 3
Verslun wmmwmmsmmsmm Húnavatnssýsla
Stuðjól í sölu raftækja
Sjónvarps- og hljóm-
flutningstæki allt að
20-35 þús. kr. ódýrari
hjá Raftækjaverslun
íslands vegna samn-
ings við evrópska
verslunarkeðju.
Einkaréttur á vöru-
merkjum sagður vera
liðin tíð.
GeysÚegt annríki hefur
verið hjá Raftækjaversl-
un íslands að Skútuvogi í
sölu á heimsþekktum sjón-
varps- og hljómflutningstækjum
sem eru allt að 20-35 þús. kr.
ódýrari en í hefðbundnum sér-
verslunum. Þorkell Stefánsson
framkvæmdastjóri verslunar-
innar segir að þetta sé ávöxtur
af. samningi fyrirtækisins við
evrópska raftækjaverslunar-
keðju. Hann býst fastlega við
því að samkeppnisaðilar muni
bregðast við þessu á einhvern
hátt og því viðbúið að framund-
an séu stuðjól í raftækjasölu.
Svo mikill hefur atgangur-
inn verið að starfsfólk verslun-
arinnar hefur varla haft undan
við að þjónusta ánægða við-
skiptavini og eru ýmsar vöru-
tegundir farnar að ganga til
þurrðar. Innan tíðar mun versl-
unin bjóða uppá þvottavélar,
þurrkara, ísskápa, uppþvotta-
vélar og önnur stærri heimils-
tæki á mim lægra verði en land-
inn hefur átt að venjast. En síð-
ast en ekki síst getur áhugafólk
um tölvur átt von á glaðningi
áður en langt um líður þegar
það getur keypt þessi nýmóðin-
stæki á hagstæðu verði.
Þessi viðskipti hafa farið
mjög fyrir brjóstið á umboðs-
mönnum raftækja sem telja sig
hafa einkaleyfi á síniun vöru-
merkjum. í fyrstuimi voru sum-
ir þeirra með hótanir í garð
Raftækjaverslunarinnar og m.a.
að senda fuUtrúa sýslumanns í
verslunina. Þorkell segir að
þetta hafi aðeins verið í nösun-
um á einstaka manni vegna
þess að ekkert ólöglegt sé við
þennan innflutning. Hann segir
að sá tími sé liðinn að einhver
geti eignað sér ákveðin vöru-
merki og við því verða menn að
bregðast ef þeir vilja ekki verða
undir í-samkeppninni. -grh
Þorkell Stefánsson framkvæmdastjóri Raftækjaverslunar íslands, segir að
framundan sé mjög lífiegt í sölu raftækja.
12 ára alvar-
lega slasaður
12 ára drengur úr Víðidal
liggur alvarlega slasaður á
gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkiu- eftir umferðarslys í
fyrrakvöld. Vaktlæknir á gjör-
gæsludeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur sagði í gærkvöldi að
ástand drengsins væri stöðugt
en hann slasaðist aðallega á
höfði og útlimum.
Slysið varð við Víðidalsárbrú
í V-Húnavatnssýslu um klukkan
19.00 í fyrrakvöld. Drengurinn
og félagi hans voru nýstignir út
úr rútu og u.þ.b. að nálgast far-
angur sinn þegar fólksbíll kom
úr gagnstæðri átt og varð annar
drengjanna fyrir henni. Kölluð
var til þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sem lenti á Hvamms-
tanga og flaug síðan með
drenginn á Sjúkrahús Reykja-
víkur. BÞ
Fiskiþing
Vill skólabát
Fiskiþing krafðist þess að
viðkomandi stjórnvald tryggði
að unglingar í grunnskólum
landsins fái lágmarksfræðslu
um undirstöðuatvinnuveg þjóð-
arinnar, sjávarútveg. Bent er á
nauðsyn þess að reka skólabát í
tengslum við kennsluna. GG
Útför Finns Eydal
Mikið fjölmenni var í Akureyrarkirkju í gær þegar útför Finns Eydal
tónlistarmanns fór fram. Margt tónlistarfólk söng og lék.
Smugan
Síðasta skip úr Smugu
Síðasta skip úr Smugunni
kemur til heimahafnar í
kvöld eftir vertíð sem veldur
vonbrigðum. í ár er afli íslend-
inga liðlega 24 þúsund tonn,
sem er rúmlega 10 þúsund
tonna minni afli en í fyrra. Þjóð-
hagsstofnun gerði ráð fyrir 35
þúsund tonna þorskafla utan
lögsögu á þessu ári. Togarinn
Eyborg EA-59 kemur til Hríseyj-
ar í kvöld, en togarinn er síðasta
íslenska skipið sem kemur úr
Smugunni í Barentshafi. Aflinn
var mjög tregur eins og hjá öðr-
um togurum á þessum slóðum.
Tvö síðustu skipin í Smugunni
voru norðlensk, en Siglir SI frá
Siglufirði er nýkominn. Það að
skipin séu frá Norðurlandi kem-
ur ekki á óvart, norðlenskir út-
gerðarmenn hafa verið dugleg-
astir að sækja á þessi mið und-
anfarin ár að frumkvæði Jó-
hanns A. Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar hf.
Eyborg EA-59 fór í Smuguna
19. október sl. og hefur úthald-
ið því staðið í 38 daga. Vegna
töluverðrar lengingar á skipinu
fyrr á árinu þarf útgerðin að
skila úreldingu á móti sem er
um 570 rúmmetrar til þess að
skipið öðlist veiðileyfi í íslensku
lögsögunni. Skipið á allnokkurn
kvóta þar, en fer ekki á aðrar
úthafsveiðar. GG
Vestfirðir
Undirskriftasöfnun
vegna vegalagningar
Stefnt að því að allir
íbúar kjördæmisins
17 ára og eldri, skrifi
undir áskorun um
rannsókn á heilsárs-
vegi milli Dýrafjarðar
og Vatnsfjarðar.
s
hugamenn um
samgöngumál á
Vestfjörðum hafa
beitt sér fyrir undir-
skriftasöfnun meðal íbúa
kjördæmisins þar sem
skorað er á þingmenn
þess að beita sér fyrir
endurskoðun vegaáætl-
unar sem fyrirhuguð er í
vetur. Undirskriftasöfnun
á að ljúka fyrir jól og er
stefnt að því að aUir íbú-
ar sem hafa bflpróf skrifi undir
áskorunina en samkvæmt upp-
lýsingum Hagstofu íslands eru
það 6. 297 manns. Heildaríbúa-
tala Vestfjarðakjördæmis er
9.015 manns, eða 3,4% þjóðar-
innar. Lögð er áhersla á að veitt
verði fé til að rannsaka þá val-
kosti sem fyrir hendi eru, m.a.
að tengja saman norður- og
suðurhluta Vestfjarða með
heilsársvegi milli Dýrafjaröar
og Vatnsfjarðar á Barðaströnd,
eða 70 km leið. Margar þings-
ályktunartillögur hafa verið
fluttar um málið en engin
þeirra verið útrædd, og á síð-
ustu þremur áratugum hafa
þrjár ráðherraskipaðar
samgöngunefndir gert tillögur
um rannsókn á áðurnefndu
vegastæði, en án árangurs. í
dag er það talið eitt mesta
hagsmunamál byggðanna á
simnan- og norðanverðum
Vestfjörðum að tengja þær sam-
an með varaniegum vegi.
Hallgrímur Sveinsson, á
Hrafnseyri við Arnarfjörð, er
einn forvígismanna undir-
skriftasöfnunarinnar. „Þessi
vegur mun sameina norður- og
suðurhluta Vestfjarða og þann-
ig slegnar tvær flugur í einu
höggi. Annars vegar gætu menn
tekið bflaferjuna Baldur í
Vatnsfirði og þannig tryggt
rekstrargrundvöll skips-
ins, og hins vegar að aka
suður Barðastrandasýslu
með frekari lagfæringu
vegar þar. í fyrra skoruðu
800 manns á þingmenn að
skoða þann möguleika, en
það fólk bjó aðallega á
ísafirði og næsta ná-
grenni,“ sagði Hallgrímur
Sveinsson.
Hallgrímur segir að það
hafi verið málinu til fram-
dráttar að forseti íslands
skyldi minnast á bágborðið
vegaástand í kjördæminu þegar
hann var þar í opinberri heim-
sókn fyrr í haust. Það hafi Bisk-
up íslands einnig gert þegar
hann vísiteraði Vestfirði fyrr á
árinu. GG
Hallgrímur Sveinsson
Hrafnseyrí
„Þessi vegur mun
sameina norður-
og suðurhluta
Vestjjarða. “
Rimahvcrfi
Umíjöllun fjölmiðla íbúunurn áhyggjueftii
I
upplýsingum frá Ómari
mgu
Smára Armannssyni aðstoð-
aryfirlögreglustjóra í Reykjavík
kemur fram að uniíjöllun
sumra íjölmiðla af „ástandi“
mála í Rimahverfi hafi orðið
íbúunum veriflegt áhyggjuefni.
„Endurteknar og stundum
óraunhæfar frásagnir hafa
beint kastljósinu að hverfinu.
Dæmi eru um að „frétt“ hafi
verið komið á framfæri við fjöl-
miðil sem söluvöru," segir
Ómar Smári. Hann segir íbúana
almennt tilbúna að taka þátt í
uppbyggingu umliverfisins til
góðs.
BÞ