Dagur - Tíminn - 29.11.1996, Qupperneq 1
Verið m
viðbúin
vinningi!
tBnmiv-Wíxxúnn
LIFIÐ I LANDINU
Föstudagur 29. nóvember 1996 - 79. og 80. árgangur - 229. tölublað
Verið
viðbúin
vinningi!
ÞINGEYSKAR KINDUR
GEGN KERFINU
Fífuhvammsland í Kópavogi í gær, - Gústaf Finnbogason fjáreigandi við fjárhús sitt, myndarlegt, einangrað hús með salerni, rennandi vatni og kaffi-
stofu. Hlutlaus aðili metur húsið á 1,7 milljónir króna, en bærinn tekur það nú eignarnámi. Eins og sjá má sækir mannabyggðin fast að fjárhúsabyggð-
ÍnnÍ. Mynd:ÞÖK.
Fjárbóndi íKópavogi er kominn upp á kant við kerjið.
Hann þrjóskast við, en íbúðabyggðin fœrist nœr. Hann er
með 10 kindur íJjárhúsi sínu í Fífuhvammslandi, -þing-
eyskt forystufé úr Þistiljirði, sem hann hefur verið að
koma sér upp. Öll bœjarstjórn Kópavogs, 11 bœjarfulltrú-
ar, samþykktu eignarnám á aðstöðu fjárbóndans á fundi
sínum á dögunum.
Einelti
bæjaryfirvalda?
„Við hjónin erum nú farin að
halda að þetta sé eitthvert ein-
elti gagnvart okkur,“ sagði
Gústaf Finnbogason, 74 ára
Kópavogsbúi, sem stendur í
stappi við bæjaryfirvöld vegna
fjárhúss síns í Fífuhvammslandi
þar sem hann ræktar þingeyskt
forystufé. Hann segir viðskipti
sín við yfirvöld í Kópavogi und-
anfarin 23 ár ekki hafa verið
sem best og þau hjónin borið
mikinn íjárhagslegan skaða af.
Gústaf og kona hans, Helga
Júlíusdóttir, komu frá Vest-
mannaeyjum 1972, en árið eftir
varð hús þeirra undir hraun-
flóðinu, það var reyndar síðasta
húsið sem varð hrauninu að
bráð. Þau settust að í Kópavogi
og byggðu sér hús að Skjól-
braut lla.
„Við vorum nýbúin að selja
húsið í Eyjum, og fengum það
nú í hausinn aftur, það var lítið
búið að borga í því. Hérna í
Kópavogi gekk illa að byggja,
ég þurfti að bíða í tvö ár með
bygginguna vegna ótal margra
og mikilla mistaka byggingaryf-
irvalda, sem kostuðu okkur
stórfé og þetta leit orðið illa út,“
sagði Gústaf.
En nú er komið upp annað
áreitismál, sem hefur verið að
gerjast undanfarin ár, fjárhúsa-
mál Gústafs og fleiri áhuga-
manna um sauðfjárrækt í bæn-
um.
Bæjarstjórinn sveik
„Ég var með Qárhús niður við
Kópavogslækinn og átti að vera
þar í 10 ár, en var ekki búinn
að vera nema 5 ár þegar ég var
hrakinn þaðan og í Fífu-
hvammslandið. Kristján Guð-
mundsson sem var bæjarstjóri
sveik okkur í þessu máli. Krist-
ján lofaði mér munnlega að
vera til ársins 2010 í Fífu-
hvammslandinu, en þangað
flutti ég í fjárhús sem ég byggði
1990 til 1991. Nú stendur þetta
loforð ekki lengur. Ég vildi ekki
fara uppeftir fyrr en ég sæi
samningana. En þeir sáu nú við
því, brutu niður allar girðingar.
Núna er komin einhver pólitík í
þetta, sem ég vil ekki fara nán-
ar út í. Húsið mitt er metið afar
lágt og ég sætti mig illa við það.
Mér skilst að þeir ætli að taka
þetta eignarnámi. Okkur er
boðið að eiga húsin og taka þau
með okkur, ef ekki kemur til
eignarnáms, en ekki vísað á
neinn stað til að setja þau nið-
ur. Eitt húsið hefur reyndar
verið rifið,“ sagði Gústaf í gær.
Mismunandi tölur í
fasteignamati
Gústaf fékk hlutlausan aðila,
Magnús Leópoldsson fasteigna-
sala, til að meta fjárhús sitt og
hlöðu í Kópavogi. Mat hans var
upp á 1,7 milljónir króna miðað
við eðlilegan lóðaleigusamning.
Bæjarstjóri bauð nýlega 900
þúsund krónur í bætur, en aðrir
eigendur hafa verið að fá 450
þúsund til 730 þúsund, en þau
hús eru til muna minna vönd-
uð. Tæknideild bæjarins hefur
líka gert mat, sem er ótrúlega
lágt. Sigurður Geirdal segir að
hann bjóði Gústafl 64% hærra
verð fyrir eignina en nemur
mati Tæknideildar.
Gústaf hafði ekki kindur úti í
Vestmannaeyjum, en á sínum
æskuslóðum á Eskifirði hafði
hann fé. Hann segist skilja þörf
bæjaryfirvalda á landinu, en
málið þurfi að leysa á eðlilegan
hátt. Hann hafi lagt í mikinn
kostnað við bygginguna og lóð-
ina í kring þar sem hann gerði
mikla fyllingu og ræktaði. Gúst-
af segist ekki vilja verða fyrir
búsifjum öðru sinni af völdum
Kópavogsbæjar.
„Það sem mér finnst sárast
eru svör bæjarstjóra og sam-
bandsleysi bæjarfulltrúa við
íbúa sína og kjósendur. Sigurð-
ur Geirdal sagði í vitna viður-
vist að hann hygðist „reka kind-
urnar upp að vegg og skjóta
þær“, þegar bærinn eignaðist
búskapinn." Bæjarstjórinn hafi
líka neitað að koma og skoða
fjárhúsið, sagði að sig varðaði
ekkert um það.
Ekki gengið frá samn-
ingum, segir bæjar-
stjóri Kópavogs
„Fjárhús þessi hafa ekki form-
legan stöðurétt," sagði Sigurður
Geirdal bæjarstjóri á bæjar-
stjórnarfundi í Kópavogi ný-
lega. Ekki hafi verið gengið frá
samningi um bráðabirgðaleyfi
til íjárbænda í Fífuhvamms-
landi þegar þeim var gert að
rýma fjárhús í suðurhlíðum
Digraneshálsins. Fjárhúsaeig-
endur hafi aldrei skrifað undir
samningsdrögin. Gústaf segir
að eigendur hafi aldrei séð þau
drög fyrr en á lokastigi málsins.
Aðalskipulag Kópavogs hafi
gert ráð fyrir íbúðabyggð á
svæðinu.
í þessum samningsdrögum
var gert ráð fyrir að eigendur
fjárhúsa vikju af staðnum með
6 mánaða fyrirvara. Fjárhúsa-
eigendum hefði verið tilkynnt
formlega í september á síðasta
ári að þeir þyrftu að fara þann
1. október 1996.
„Frá öndverðu var ljóst að
hús þessi þyrftu að víkja þegar
framkvæmdir á skipulagi krefð-
ust þess og ekki yrði um bætur
fyrir mannvirki að ræða,“ sagði
Sigurður Geirdal bæjarstjóri.-JBP