Dagur - Tíminn - 29.11.1996, Side 4
16 - Föstudagur 29. nóvember 1996
3Dagur-®uttmn
Lífeðlisfræðileg nauðhyggja
Ragnhildur
Vigfúsdóttir
skrifar
S
Eg rakst á það í ákaflega
merkilegu vísindariti, að
karlmenn verði fyrir stór-
felldum lífeðlisfræðilegum breyt-
ingum þegar þeir eignast börn.
Margir feður verða svo gagn-
teknir umhyggju og verndunar
tilílnningu við fæðingu barna
sinna að þeir missa t.d. kynhvöt-
ina. Ég þekki einnig marga
karla sem hafa tjáð mér að þeir
hafi verið með stöðugt sam-
viskubit yfir því að verja ekki
meiri tíma með börnum sínum.
Margir þeirra hafa líka tjáð mér
að íjarvistir föður þeirra frá
heimili hafi orðið til þess að þeir
kynntust feðrum sínum lítið og
finnst að ýmsar kramir í sálarlífi
þeirra megi rekja til þessa sam-
bandsleysis við föðurinn. Þetta
gæti verið byrjun greinar Frið-
riks Erlingsonar 12. nóv sl. að
breyttu breytanda, þ.e. að skipt
væri um kyn í kenningunni. Ef
við höldum okkur við vísindaað-
ferð Friðriks þá ættum við auð-
vitað að draga þá ályktun að
staður karlmannsins væri á
heimilinu við uppeldi barna
sinna. Við gætum líka haldið
fram kenningu um að mæðra-
veldi, sem sumir halda fram að
hafi þekkst í sögunni, séu í raun
náttúrulegri en feðraveldi þau
sem ríkt hafa síðustu árþúsund.
Niðurstaðan er svo auðvitað sú
að karlmenn hafi það val í h'finu
að huga að frama sínum á
vinnumarkaði, eða vera öllum
stundum á heimilinu a.m.k.
meðan börnin eru að vaxa úr
grasi. Augljóst er að karlmenn
geta valið á milli menntunar og
starfsframa annarsvegar og
þess að eignast börn. Þetta er
nú varla boðleg rökfræði eða
hvað?
Friðrik svarar gagnrýni
minni á málílutning hans í pistli
sínum 26. nóvember og telur
mig hafa dregið sig inn í ein-
hvern hóp samsærismanna
gegn kvennabaráttu. Honum
verður tíðrætt um samsæris-
kenningar og finnst að sér veg-
ið. Friðrik þetta er nú oftúlkun
hjá þér og engin ástæða til að
fá föðursýkiskast yfir þessu. Ég
nefni hvergi orðið samsæri.
Hins vegar tala ég um bók
Faludis þar sem bent er á dæmi
í sögunni hvernig, þegar
ákveðnum áfanga er náð í
kvennabaráttu, menn spretta
fram og hver étur klisjurnar
upp eftir öðrum og styðja mál
sitt jafn vafasömum röksemd-
um og raun ber vitni. Það hefur
enginn vænt ykkur um að hitt-
ast á síðkvöldum í mörgæsar-
búningi með hettur upp í Rauð-
hólum þar sem þið leggið á ráð-
in við hrævareld. Friðrik þegar
ég setti spurningamerki við til-
lögu þína um kennslu í fram-
haldsskólum til að styrkja sjálf-
stæði ungra stúlkna og efla
styrk þeirra og þor, þá var það
ekki vegna þess að ég væri
ósammála þér, heldur vegna
þess að það virkaði fremur til-
gangslaust í ljósi lífeðlisfræði-
legrar nauðhyggju sem þú að-
hyllist samkvæmt greininni. Ég
vil að konur hafi raunverulegt
val. Að þær sem vilja eignast
börn geti samþætt móðurhlut-
verkið öðrum hlutverkum sem
þær vilja líka sinna, t.d. að
mennta sig, vinna við sitt fag og
fá mannsæmandi laun fyrir
það. Til þess að það sé hægt
þarf að breyta samfólaginu ör-
lítið, útrýma launamun kynj-
anna, tryggja öllum börnum ör-
ugga og góða dagvistun, stytta
vinnutímann, aflétta fyrirvinnu-
okinu af körlum - svo fátt eitt sé
nefnt. Það er allavega vafasamt
að tala um frjálsan vilja þegar
valið stendur um tvo kosti, að
eignast barn eða ekki. Velji
konur fyrri kostinn eru þær
samkvæmt kenningum þínum
Friðrik uppfrá því ósjálfráðir
þrælar lífeðlisfræðilegra ferla í
líkama sínum.
í framhaldi af þessu er
spurning hvort nokkur tilgang-
ur sé að ræða þetta frekar.
Þessi lífeðlisfræðilega frumsetn-
ing Friðriks eru trúarbrögð og
jafn fáránlegt fyrir þann sem
ekki tilheyrir söfnuðinum að
rökræða þetta, á sama hátt og
það er tilgangslaust að ræða
réttindi homma og lesbía við
mann sem vitnar sífellt í ritn-
ingargrein í gamlatestament-
inu, en lætur lönd og leið kær-
leiksboðorð og umburðarlyndi
nýjatestamentisins. Eins og við
þann sem er forlagatrúar og
skoðar líf sitt í ljósi Tarotspila
og slíks vil ég ekki svipta þig
Friðrik trúarsannfæringu þinni,
bara biðja þig að láta það eiga
sig að klæða hana í vísindaleg-
an búning sem klæðir engan-
veginn slíka hugmyndafræði.
RS. Friðrik, ég gleymdi að
þakka þér skrifin, en hvers
vegna er ég ein þess heiðurs
aðnjótandi að fá svarbréf frá
þér? Hvað með hinar sem gátu
heldur ekki setið þegjandi undir
þessum pistli þínum?
Að elska friðinn
Elskiði friðinn og strjúk-
iði kviðinn.“ Þetta hefur
lengi þótt gjaldgengt
spakmæli hjá þeim sem eiga
annars erfitt með að muna
málshætti. Þannig minnist
Garri þess að hafa oft heyrt
heildsala nokkurn segja þetta,
sem annars kom aldrei út úr
sér óbrengluðum málshætti.
(Sbr. betri
er ein
kona á
laki en
þrjár á
þaki!)
En þeir
eru svo
sannar-
lega fleiri
en þessi
heildsali sem elska friðinn.
Það eru þó nokkrir friðar-
postular sem skilja að ómett-
ir og óstroknir magar geta
verið miklir friðarspillar og
eins það ef einhverjum löng-
unum manna oða hvötum til
efnislegra gæða er ekki full-
nægt. Fremstur í þessum
fiokki og eitt besta dæmið er
vitaskuld Ástþór Magnússon
ejgandi Friðar 2000 og fyrr-
um forsetaframbjóðandi.
Ástþór hefur verið í góðum
álnum og ekki þurft að láta
fjárhagsáhyggjur íþyngja
friðaráhuga sínum eða spilla
honum.
Friðarbaráttan
Nú er Ástþóri greininlega
farið að leiðast þófið og
finnst landsmenn ekki taka
nægjanlega vel við sér í frið-
arbaráttunni. Garri telur ein-
sýnt að hann hafi litið í eigin
barm og athugað hvað það
var sem gerði honum kleift
að elska friðinn með svo
stöðugum og langvarandi
hætti. Niðurstaðan er aug-
Ijós; til að elska friðinn þurfa
menn að geta strokið kvið-
inn.
Þar er þá komin skýringin
á því hvers vegna friðarhöfð-
inginn hefur ákveðið að taka
það stóra skref að uppfylla
óuppfylltar neysluþarfir hjá
þjóðinni og koma því þannig
fyrir að hún geti hallað sér
aftur og strokið kviðinn. Og
hann kemst að því að hin
friðspillandi neysluþörf er
mest á sviði tölvusamskipta
og tölvueignar. Þess vegna er
rökrétt að friðarbarátta Frið-
ar 2000 felist í því að gefa
landsmönnum aðgang að
Internet-
inu og út-
vega þeim
pentíum
tölvur á
góðu
verði. Auk
þessara
stóru
neyslutil-
boða felst
friðarbaaráttan í því að bjóða
73% ódýrari símtöl til út-
landa, alþjóðlega neyðar-
tryggingu og eitthvað fleira.
Þessi friðvænlegu kostatilboð
eru nú auglýst í fjölmiðlum
og taki menn þeim eru þeir
orðnir þátttakendur í friðar-
baráttunni.
í þágu friðar
Eftir að þessi miklu sannindi
runnu upp fyrir Garra, að
neyslan væri í raun í þágu
friðarins, hefur hann ákveðið
að gerast friðarsinni. Hann
ætlar að kaupa neysluvörur
af öllum friðarhöfðingjum
landsins en þá er víða að
finna því tilboð á neysluvarn-
ingi eru t.d. algeng í stór-
mörkuðum. Hins vegar er
dýrt að vera svona frið-
arsinni og það kemur fljótt í
ljós hverjir eru sannir friðar-
sinnar og hverjir berjast í
raun gegn friði. Þannig olli
það Garra t.d. mildum von-
brigðum hvað eiginkonan og
börnin hafa lítinn skilning á
friðarbaráttu hans. í stað
þess að styðja hann og
styrkja í þessari erfiðu bar-
áttu koma fram háværar
kröfur um að kreditkortinu
og ávísanaheftinu só skilað
inn. En svona er friðarbar-
áttan.
Garri.