Dagur - Tíminn - 29.11.1996, Blaðsíða 10
22 - Föstudagur 29. nóvember 1996 jOayur-CEúnmn
Tónleikar Kariakórs
Dalvíkur
Karlakór Dalvíkur heldur tónleika
í Akureyrarkirkju nk. laugardag,
30. nóv. kl. 17. Kórinn flytur fjöl-
breytta efnisskrá. Einsöngvarar
með kórnum eru Halla Jónsdóttir
og Jónas Þórir Jónsson auk þess
sem kvartett úr röðum söngmanna
kemur fram. Kórinn heldur einnig
tónleika í Dalvfkurkirkju sunnu-
daginn 1. des. kl. 15.
Skemmtidagskrá með
kveðskap Hákonar
Aðalsteinssonar
verður á Hótel KEA föstudaginn 29.
nóv. kl. 21. Aðgangur kr. 1.200,-
Flóamarkaður á
Hjálpræðishernum
Næstsíðasti flóamarkaður ársins
verður á Hjálpræðishernum á föstu-
daginn kl. 10-17. Mikið úrval af
góðum fatnaði á börn og fullorðna.
Krabbameinsfélag
Akureyrar
Mánudaginn 2. des. 1996 kl. 20-22
mun Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis halda OPIÐ HÚS á
skrifstofu sinni á Glerárgötu 24, 2.
hæð. Þetta verður jafnframt jóla-
fundur félagsins og mun Valgerður
Valgarðsdóttir, djákni, ílytja hug-
vekju um sálusorgun og jól. Það
verður boðið uppá jólakaffi og
ALLIR ERU VELKOMNIR.
Hvítasunnukirkjan á
Akureyri
Laugardaginn 30. nóv. verður
haldinn jólabasar í Hvítasunnu-
kirkjunni v/Skarðshlíð. Húsið opn-
ar kl. 10.30-16.
Gott aðgengi
Á alþjóðadegi fatlaðra, þriðjudag-
inn 3. des. nk. standa félögin
Sjálfsbjörg á Akureyri og nágrenni,
ásamt Þroskahjálp á Norðurlandi
eystra, Akureyri, að dagskrá í
Kjarnalundi kl. 17.30. Þar fer fram
afhending viðurkenningar í fram-
haldi af úttekt á aðgengi fyrir fatl-
aða á þjónustuhúsnæði hér í ba:.
Haldið veröur diskótek f félagsmið-
stöðinni í Lundarskóla kl. 19, laug-
ardaginn 30. nóv.
Fjöllistasýningin
„Engillinn“ í Deiglunni
Næstkomandi laugardag, þann 30.
nóv. kl. 14, verður opnuð englasýn-
ing í Deiglunni á Akureyri. Til sýn-
is verða rúmlega 30 leikfangaengl-
ar frá Gullasmiðjunni Stubbi,
skreyttir af jafnmörgum lista-
mönnum. Sumir listamannanna
eiga einnig önnur verk á sýning-
unni. Sýningin er tileinkuð börnum
á öllum aldri og ætlunin er að
staldra við og hugsa um frið og
engla. Fjölmargar uppákomur
verða alla vikuna: Sunnudaginn 1.
des. les Aðalsteinn Bergdal Ævin-
týri á aðventu eftir Iðunni Ágústs-
dóttur, en önnur dagskráratriði
verða kynnt jafnóðum í Degi-Tím-
anum.
Skákfélag Akureyrar
Haustmót barna og unglinga laug-
ardaginn 30. nóv. og hefst kl.
13.30. Teflt í flokki 13-15 ára, 10-
12 ára og 9 ára og yngri. Líka er
teflt í stúlknaflokki. Teflt er í Skák-
hoimilinu að Þingvallastræti 18.
Hraðskákmót verður sunnudaginn
1. des. kl. 14.
Landið
Samsýning í Kirkjuhvoli
Á morgun, laugardag, kl. 14 opna
þau Hrönn Eggertsdóttir, Friðþjóf-
ur Helgason og Helgi Daníelsson
málverka- og ljósmyndasýningu í
Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akra-
nesi.
Þau nefna sýninguna Fjallið
okkar - AkraJJall og sýna um 90
myndir af og tengdu Akrafjalli. Við
opnunina syngur ung söngkona,
Heima Ýr Helgadóttir, nokkur lög
við undirleik á hörpu.
Hrönn sýnir málverk, sem flest
eru máluð á síðustu vikum. Frið-
þjófur sýnir svart/hvítar ljósmynd-
ir, flestar nýlegar, en Helgi sýnir
ljósmyndir í lit.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 15-18 til 15. des. n.k.
Kirkjustarf á Hvammstanga
Við upphaf aðventunnar breytir
kirkjustarf um takt og allt miðar
að undirbúningi fyrir jólahátíðina.
í Hvammstangakirkju verður efnt
til aðventumessu fyrsta sunnudag í
aðventu, kl. 14.
Þingeyrarklausturskirkja.
Fyrsta aðventukvöldið verður í
Þingeyrarklausturskirkju sunnu-
daginn 1. des. kl. 21.
Tjarnarkirkja á Vatnsnesi. Að-
ventukvöld fyrir Tjarnar-, Vestur-
hópshóla- og Breiðabólsstaðarsókn
verður á Nikulásarmessu, fimmtu-
daginn 5. des. kl. 21.
Hvammstangakirkja. Föstu-
daginn 13. des. kl. 20.30, á Lúsíu-
messu, verður aðventukvöld f
Hvammstangakirkju.
Barnastarf á aðvcntu. Barna-
samverur og -guðsþjónustur verða
í Hvammstangakirkju alla sunnu-
daga í aðventu, líkt og sunnudaga
frá því í september. Barnastarfið
er alla dagana kl. 11 fyrir hádegi.
Stúlknakór Húsavíkur
Stúlknakór Húsavíkur verður með
tónleika á sal Borgarhólsskóla
sunnudaginn 1. des. kl. 20. Tón-
leikarnir eru liður í ijáröflun fyrir
ferð kórsins til Þýskalands í sumar.
Leikdeild Eflingar í
Reykjadal
Leikdeild Ungmennafélags Eflingar
í Reykjadal frumsýnir leikritið
„Ilimnarfki" eftir Árna Ibsen í kvöld
í félagsheimilinu á Breiðumýri.
Ljósmyndasýning á
Siglufirði
Laugardaginn 30. nóv. kl. 14 opna
þeir Björn Valdimarsson og Sveinn
Hjartarson ljósmyndasýningu í Að-
algötu 8 á Siglufirði og verður hún
opin næstu tvær helgar.
Aðventutónleikar í
Skálholtsdómkirkju
Fyrsti sunnudagur f aðventu ber
upp að þessu sinni á sjálfan full-
veldisdag íslensku þjóðarinnar, 1.
desember. Þá verða samkvæmt
venju haldnir aðventutónleikar í
Skálholtsdómkirkju. Er óhætt að
fullyrða að aldrei fyrr hafa þeir ver-
ið jafn fjölbreyttir og veglegir eins
og nú stendur til. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis.
Aðventukvöld í Áskirkju
Á sunnudaginn kemur, 1. desem-
ber, verður aðventusamkoma í Ás-
kirkju kl. 20.30. Komu aðventunn-
ar mun og fagnað í guðsþjónustum
sunnudagsins í Áskirkju, en barna-
guðsþjónusta er kl. 11 og guðs-
þjónusta kl. 14.
Útgáfutónleikar Stefáns
Hilmarssonar
Á dögunum sendi Stefán Hilmars-
son frá sér nýja geislaplötu, „Eins
og er...“, sem fengið hefur góðar
móttökur. Mánudagskvöldið 2. des.
heldur Stefán útgáfutónleika í
Borgarleikhúsinu.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag. All-
ir velkomnir. Jólaföndur í Risinu
byrjar þriðjudaginn 3. des. kl. 19
til 22. Upplýsingar gefur Dóra í s.
551 0636.
Lögfræðingur félagsins er til
viðtals á þriðjudögum. Panta þarf
viðtal í s. 552 8812.
Félag eldri borgara
Kópavogi
Spiluð verður félagsvist að Fann-
borg 8 (Gjábakka) í kvöld, föstu-
dag, kl. 20.30. Húsið öllum opið.
Laufabrauð og söngur í
Gjábakka
Á morgun, laugardag, verður
venjubundinn laufabrauðsdagur í
Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi.
Ilúsið verður opnað kl. 13.30. Þ.eir
sem ætla að skera út kökur eru
beðnir að taka með sór skurðbretti
og áhöld til að skera út með (t.d.
lítinn hníf).
Klukkan 14 syngur Samkór
Kópavogs í Gjábakka og þar á eftir
syngur kór Kvennaskólans í
Reykjavík. T ón I istardagskránni
lýkur með því að nemendur úr
Tónlistarskóla Kópavogs leika á
íiðlu og píanó. Heitt á könnunni og
heimabakað meðlæti verður selt á
vægu verði. Aðgangseyrir er eng-
inn og allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Hana-nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana-nú
í Kópavogi verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10. Nýlagað molakafli.
Skaftfellingafélagið í
Reykjavík
Félagsvist sunnudaginn 1. des. kl.
14 í Skaftfellingabúð, Laugavegi
178.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur jólafund sinn þriðjudaginn
3. desember kl. 20 í safnaðarheim-
ili kirkjunnar, með hefðbundnum
jólamat og happdrætti. Til
skemmtunar verður einsöngur og
upplestur. Gestir velkomnir. Þátt-
taka tilkynnist í símum 581 2114
(Oddný) eða 553 6697 (Guðný).
Kvenfélag Kópavogs
heldur kökubasar í anddyri félags-
heimilisins næstkomandi sunnu-
dag, 1. des., kl. 13. Móttaka á kök-
um á sama stað frá kl. 10-12. Nán-
ari upplýsingar gefa Svana í s. 554
3299 eða Þórhalla í s. 554 1726.
Jólakaffi Hringsins
Hið árlega jólakaffi Hringsins verð-
ur á Hótel íslandi sunnudaginn 1.
des. og hofst kl. 13.30. Allur ágóði
rennur í Barnaspi'talasjóð llrings-
ins.
T-Vertigo á Blúsbarnum og
The Dubliner
T-Vertigo spilar ásamt Tómasi M.
Tómassyni bassaleikara laugar-
daginn 30. nóv. á Blúsbarnum við
Laugaveg og hefst skemmtunin kl.
24 og stendur til 03.
Sunnudaginn 1. des. hittast allir
sáttir og sælir við sitt í árs afmælis-
kaffi The Dubliner, Hafnarstræti,
hlýða hvor á annan og T-Vertigo
úti í horni í taumlausum rólegheit-
um. T-Vertigo spilar það sem hug-
ur þeirra girnist frá kl. 15-18.
T-Vertigo skipa þeir Sváfnir Sig-
urðarson á kassagítar, Hlynur Guð-
jóns á kassagítar og Tóti Freys á
kontrabassa.
Frá Suomi-félaginu
Kvikmyndin Benjamín dúfa verður
sýnd á vegum Suomi-félagsins í
Norræna húsinu sunnudaginn 1.
des. Sýningin stendur frá kl. 16 til
18.30. Ókeypis aðgangur.
Hátíðarhöld Suomi-félagsins
vegna þjóðhátíðardagsins 6. des-
ember verða laugardagskvöldið 7.
desember í Norræna húsinu. Timo
Váánánen hljóðfæraleikari kemur
frá Finnlandi og flytur tónlist. Að-
gangseyrir er 1.000 kr. og er mat-
ur innifalinn. Helmingsafsláttur er
fyrir stúdenta og ókeypis fyrir
börn. Dagskráin hefst kl. 19 stund-
víslega.
Basar og kaffisala ABC
hjálparstarfs
ABC hjálparstarf verður með basar
sunnudaginn 1. des. n.k. frá kl. 14
að Sóltúni 3 (Sigtúni 3). Seldir
verða handunnir munir. Einnig
verður á boðstólum kaffí, kakó og
meðlæti.
Málverkasýning og tón-
leikar í Hallgrímskirkju
Á fyrsta sunnudag í aðventu, 1.
des. n.k., verður að aflokinni guðs-
þjónustu opnuð málverkasýning
með verkum Helga Þorgils Frið-
jónssonar. Sama dag kl. 17 verða
haldnir kórtónleikar kammerkórs-
ins Schola cantorum.
Það er Listvinafélag Hallgri'ms-
kirkju sem stendur fyrir þessum
menningarviðburðum.
Harmonikuball í Kópavogi
Lionsklúbburinn Muninn mun
standa fyrir harmonikuballi annað
kvöld, laugardag, í Lionsheimilinu
Lundi, Auðbrekku 25, Kópavogi.
llúsið verður opnað kl. 21. Að-
gangseyrir verður kr. 1.000 og all-
ur ágóði af skemmtuninni fer í
líknarsjóð klúbhsins.
Kaldalóns-tónleikar í
Gerðarsafni
Tónleikar með lögum Sigvalda
Kaldalóns verða „Við slaghörpuna“
i' Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni
mánudaginn 2. des. og þriðjudag-
inn 3. des, og hefjast þeir bæði
kvöldin kl. 20.30.
Sigrún lljálmtýsdóttir sópran og
Óskar Pétursson tenór flytja fjölda
sönglaga tónskáldsins og auk
þeirra koma fram Björgvin Þórðar-
son tenór, Friðbjörn G. Jónsson
tenór, Eiríkur Hreinn Helgason
baritón, Kristinn Hallsson bassi og
hópur söngmanna er skipa kór,
sem ekki hefur enn fengið nafn. Við
píanóið verður Jónas Ingimundar-
son, sem hefur sett efnisskrána
saman og annast undirbúning.
Verð aðgöngumiða verður kr.
1.000.
Aðventa í sveitinni
Á næstunni mun Ferðaþjónustan Öngulsstöðum III standa fyrir dag-
skrá sem tongist aðventunni í Hlöðunni á Öngulsstöðum. Dagskráin
hefst með því að Þorgerður Sigurðardóttir frá Grenjaðarstað opnar
myndlistarsýningu þar sem hún sýnir tréristur kl. 14 laugardaginn
30. nóv. Föstudaginn 6. des. verður jólaglögg með piparkökum og
léttri tónlist í umsjá Ingólfs Jóhannssonar. Laugardaginn 7. des.
verður boðið upp á „jólaborðið hennar ömmu i' sveitinni“. Laugar-
daginn 14. des verður síðan aðventukvöld með Tjarnarkvartettin-
um. Aðgangseyrir kr. 600,- Aðventudagskránni lýkur síðan föstu-
daginn 20. des. með hátíöarkvöldi þar sem Björg Þórhallsdóttir Ilyt-
ur nokkur lög. Aðgangseyrir kr. 600,- Dagskráin hefst öll kvöldin kl.
21 nema „jólaborðið hennar ömmu i sveitinni“ en þá verður húsið
opnað kl. 19.
Hunang og Emiliana Torrini
í Sjallanuni
Tónleikar Emelíönu Torrini og hljómsveitar verða í Sjallanum nk.
föstudagskvöld ki. 22. Nýjasti geisladiskur Emeh'önu hefur nú
selst í 4000 eintökum á tæpum mánuði sem er frábær árangur.
Aðsloðarmenn Emelíönu eru þeir Jón Ólafsson, Jóhann Hjörleifs-
son, Róbert Þórhallsson, Ingólfur Magnússon, Bjarni Bragi Kjart-
ansson og Óli Öder. Miðaverð er kr. 1000,-
Hljómsveitin Hunang, sem hér sést á myndinni, leikur í Sjallan-
um á laugardagskvöldið.