Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Blaðsíða 2

Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Blaðsíða 2
14 - Fimmtudagur 19. desember 1996 |Dagur-®mmm Hvemig fara á með jólatréð Geymið tréð á köldum stað þangað til það er tekið inn til skreytingar. Sé jólatréð geymt utandyra er gott að veija það inn í plast svo vindur næði ekki um það. í miklu frosti verður að sýna að- gát við meðhöndlun, svo grein- arnar brotni ekki. Rauðgreni og blágreni Grenitré er gott að leggja í kalt vatnsbað yfir nótt áður en það er sett upp. Þannig eykst barr- heldnin til muna og enn frekar ef þetta er gert: Tálgið börkinn af rótarhálsi trésins, u.þ.b. 5-10 sm upp á stofninn (fer eftir stærð trésins, vitaskuld). Stingið endandum í snarpheitt vatn og látið standa í 10 mínútur eða svo. Síðan skal setja tréð í fót- inn með vatni og athugið að fyrstu dægrin þarf tréð mikla vökvun. Aldrei má verða vatns- laust í fætinum. „Suöuaðferðin" eykur getu trésins til að taka upp vatn og tefur barrnálarnar í því að rýrna af þurrki og detta af. Fura og þinur Furujólatré og þinur þurfa ekki sérstaka meðhöndlun barr- heldninnar vegna. Nálar þeirra eru festar öðruvísi en á greni- trjám og falla ekki auðveldlega af. Hins vegar halda þau ilmi og gljáa betur ef söguð er þunn sneið neðan af stofninum áður en þau eru sett í fót. Eins og önnur lifandi jólatré skulu þau ávallt standa í vatni. Og aðeins meira . . . Forðist að láta jólatré standa nærri ofni. Athugið að þegar líður á há- tíðina geta jólatré verið orðin eldíim og því verður að fara gætilega með eld í kringum þau. Notið stöðugan fót sem er í samræmi við stærð trésins. Njótið fyrirhafnarinnar. -mar MúettáÓ eru, er dót oft skil- ið eftir um allt hús. Þá er gott að hafa einhvers staðar kassa og safna í hann daglega öllum hlutum sem eru hist og her í húsinu. Svo þegar spurt er um eitthvað þá er hægt að benda á kassann. Það sem eftir er í kassanum í lok vikunnar eða mánaðar- ins, má svo gefa á næsta flóamarkað. Það er ótrúlegt hvað hlutirnir hverfa hratt úr kassanum þegar á að fara að gefa innihaldið. Þegar súkkulaði er brætt, getur verið gott að setja það í lítinn plastpoka, loka honum vel og setja hann í heitt vatn. Svo má klippa af einu horninu á pokanum þegar súkkulaðið er bráðið og sprauta því út um gatið. Sódavatn getur verið gott til að ná blettum úr fötum, svo sem öl- eða kaffiblett- um. T jósaperur l_jbrotna stundum í peru- stykkinu. Þá er oft erfitt að ná þeim úr. Gott er að setja korktappa í hálsinn á perunni, þá fæst grip til þess að skrúfa hana úr. Kaffiskán eða teskán myndast oft í bollum. Leggið boll- ana í blöndu af klór og vatni, 1/2 dl. af klór í 1 ltr. af vatni og skánin hverfur á nokkr- um mínútum. Þvoið bollana vel á eftir. Rúllugardínur eiga það til að festast og vilja ekki fara upp. Það má stund- um laga með því að taka þær niður, setja þær á gólfið, rúlla þær alveg niður og rúlla þeim svo hægt og rólega upp. Það getur mynd- ast mattur hringur í botni spari- Þ r i diskanna m \1 Tjað er mun auðveldara að hreinsa ± pönnur ef þær eru fylltar með volgu ef þeim er t staflað 1 heitum V vatni og smá uppþvottalegi strax eftir notkun. Skæri má brýna með því að nota gler- flösku, þ.e. „klippa“ utanum stútinn á flöskunni nokkrum sinnum. LV inn í skáp eftir upp- þvottinn. Setjið servíettu eða eldhúspappír á milli þeirra til að koma í veg fyrir þetta. að er stund- um erfitt að vita hversu mikið á að kaupa af mat ef von er á gestum, því ekki vill maður eiga of lítið handa þeim. List- inn hér fyrir neðan er til viðmiðunar sem lágmarks- magn af hverju fyrir sig. Kjöt, beinlaust um 175- 225 gr á mann en 100-175 g beinlaust. En ef nota á kjötið í pottrétt, þá þarf heldur minna. Fiskur bein- laus um 150-175 g en með beini um 200 225 g. Ef fiskurinn er fram- reiddur í sósu, þá þarf heldur minna. Hrísgrjón og pasta þurrkað, um 50 g ósoðið en 100 g af fersku pasta. Salat með baunum, grænmeti, og/eða pasta sem grunni, um 100 g á mann. Samlokur eða snittur fyrir veislur eru fremur smáar og má reikna með um 6-8 á mann. Ef brauð er of mjúkt til þess að gott sé að skera það í þunnar sneiðar (ef það er glæ- nýtt t.d.) þá er gott að bregða því í frystinn í 30 mín. Rjómi sem er orðinn heldur gamall til að nota en er samt ekki orðinn ónýtur, getur notast sem sýrður rjómi í pottrétti og sós- ur. Látið 1-2 tsk. af sí- trónusafa í hyrnuna og hristið. Hellið svo rjómanum í sósuna. Smá sítrónusafi getur gert kraftaverk þegar sósan er búin til. Hún verður svo miklu betri. (rotna marengs- ► botna má stundum laga með því að líma þá saman með þeytt- um rjóma. Ef þeir hafa brotnað illa þá má mylja þá niður og deila þeim á nokkra diska og setja með ávexti og þeyttan rjóma. Hvítlaukur geymist vel í olíu í lokaðri krukku. Þannig er ávallt til hvítlauk- ur og hvxtlauksolía þegar á þarf að halda. Pottrétti, sem hefur brunnið við, má oft bjarga ef hratt er brugðist við. Hellið eins miklu og hægt er af réttinum í hreinan pott. Skerið hráa kartöflu í bita og setjið útí til að taka í sig bragð- ið. Fjarlægið eft- ir 10 mínútur og kryddið með salti, pipar og Worchestersósu. Ef þetta er ekki nóg, þá má setja smá tómatpúrru útí eða sýrðan rjóma eða ósæta jógúrt.

x

Dagur - Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.