Dagur - Tíminn - 19.12.1996, Page 11
jOctgur-CEmmm
Fimmtudagur 19. desember 1996 - 23
FINA FRÆGA FOLICIÐ
Viltu kaupa
húsið hans Gene Kelly?
Undanfarið hefur mikið
verið talað um það að ís-
lendingar kaupi í stórum
stíl orlofshús á Spáni. Ef einhver
vill vera frumlegur þá bendi ég
á að húsið hans Gene Kelly heit-
ins er til sölu. Húsið var heimili
Gene í 40 ár og var kallað
„Kellyfornía". Af frægum gest-
um sem heimsóttu Gene á heim-
ili hans má nefna Judy Garland
og Frank Sinatra. Ásett verð er
tæpar 140 milljónir króna.
Ég verð alltaf að gera ráð
fyrir því að þið lesendur góðir
þekkið ekki allt fína og fræga
fólkið. En það hljóta allir að vita
hver Gene Kelly var. Ég gef ykk-
ur bara eina vísbendingu: „I’m
singing in the rain...
Það kostar ekkert að gera tilboð í „Kellyforníu".
Æ, æ og við sem erum
/ -:':y ekki tvíhurar!
f . -ry .
Það er
mar-
tröð
hverrar konu
að mæta á
árshátíðina í
nákvæmlega
eins sam-
kvæmiskjól
og einhver
önnur. (Nú,
er það
ekki?). Marg-
ar eru svo
kaldar að
leigja sér kjól
og þær verða
örugglega
ekki eins fúl-
ar og þær
sem borga
stórfé fyrir
kjól sem ein-
hver önnur
birtist líka í.
Haldið þið til dæmis ekki að
hún Morgan Fairchild (þessi
ljóshærða) hafi ekki orðið spæld
þegar Lorraine Bracco (þessi
dökkhærða) gekk í salinn. -
Hún sem splæsti í kjól frá eng-
um öðrum en Valentino! (Kjóll
eins og þessi kostar rán, morð
og nauðganir eins og einn vinur
minn er vanur að segja). En
kjóllinn fer þeim stöllum mis-
vel. Þið sjáið t.d. að hún Morg-
an er örugglega í undra-
brjóstahaldara (fyrir utan það
að hún er með, þið vitið, sili-
kon-brjóst) og kjóllinn hennar
er nú allur þrengri. En þetta er
smekksatriði. Dæmi nú hver
fyrir sig eins og oft er sagt...
AKUREYRARBÆR
Samkeppni um heildar-
skipulag Naustahverfis
á Akureyri - forval
Skipulagsnefnd Akureyrar efnir til forvals vegna fyr-
irhugaðrar samkeppni um heildarskipulag svo-
nefnds Naustahverfis, sem er framtíðar byggingar-
land bæjarins suður frá núverandi byggð að Kjarna-
skógi. Valdar verða 5 vinnustofur til þátttöku og
verður greidd þóknun fyrir hverja tiliögu. Að auki
verða veitt fyrstu verðlaun. Keppnistími verður frá
s.hl. janúar og fram í apríl (3 mánuðir). Samkeppnin
er haldin í samræmi við samkeppnisreglur Arki-
tektafélags íslands.
Tilgangur útbjóðanda með samkeppninni er að fá
fram ferskar, raunhæfar tillögur að megindráttum
hins nýja bæjarhluta og öðlast með því yfirsýn yfir
þá möguleika, sem keppnissvæðið býður upp á.
Sérstaklega er vonast til að niðurstaða samkeppn-
innar geti vísað til framtíðar á nýrri öld með tilliti til
þróunar búsetu, lífs- og atvinnuhátta, og jafnvægis
byggðar og náttúru (sjálfbærrar þróunar). í frum-
áætlunum hefur verið gert ráð fyrir um 2.000 íbúð-
um í Naustahverfi og að það skiptist í tvö skólakerfi.
Skipulagsnefnd hefur lýst vilja til þess að hafa sam-
starf við verðlaunahafa um gerð skipulagsramma
hverfisins.
Val keppenda mun byggjast á mati á faglegri hæfni
vinnustofanna og getu þeirra til að takast á við verk-
efnið. Leitast verður við að velja til þátttöku ólíkar
vinnustofur, bæði hvað snertir aldur og reynslu,
með það í huga að tryggja fjölbreytni í tillögunum.
Vinnustofur sem áhuga hafa á þátttöku í samkeppn-
inni skulu gera grein fyrir hæfni sinni til að takast
verkið á hendur með greinargerð á allt að tveim A4-
síðum, sem senda skal í lokuðu umslagi merktu
„Naustahverfi - forval, Akureyrarbær, bæjarlög-
maður, Geislagötu 9, 600 Akureyri" fyrir kl. 16
fimmtudaginn 9. janúar 1997. í greinargerðinni skal
skýra frá: 1) Nafni og heimilisfangi vinnustofu, 2)
nafni og starfsheiti starfsmanna er stjórna myndu
verkefninu, 3) starfsreynslu viðkomandi starfs-
manna, 4) dæmum um verk vinnustofunnar/starfs-
manna, 5) árangri í samkeppnum, 6) öðru starfsfólki
og ráðgjöfum, 7) öðrum atriðum er máli kunna að
skipta s.s. sjónarmiðum eða áherslum í starfi vinnu-
stofunnar. Sérstök forvalsnefnd, óháð dómnefnd,
mun velja þátttakendur úr hópi umsækjenda.
Skipulagsstjóri.
(Zðtcvtíífið
Teitur Þorkelsson
skrifar
Múmín-
álfamir
Venus frá Willendorf er
sennilega eitt elsta frjó-
semistákn heims. Venus
þessi er tíu sentimetra há
stytta, fannst í Austurríki og er
frá því þrjátíu þúsundum árum
fyrir Krist. Það er skemmst frá
því að segja að styttan er það
alfeitasta frjósemistákn sem
fundist hefur á Vesturlöndum
en Afríka á hins vegar vinning-
inn þegar kemur að feitustu
frjósemistáknunum á heims-
mælikvarða. Meira að segja
Múmínálfarnir og Barbapapa-
gengið eins og það leggur sig
eru algjörar mjónur í saman-
burði. Éftir því sem tímar líða
mjókkar fegurðarímynd hinnar
vestrænu konu smám saman og
fyrirsætur Renoir, sem þykja vel
bústnar og nautnalegar í dag,
eru eins og renglulegar ung-
lingsstúlkur miðað við formóð-
ur sína. Offita sem aðal kvenna
virðist svo smám saman hverfa
með aukinni velmegun mann-
kynsins. Enda hefur Marilyn
Monroe, helsta kyntákn okkar
menningarheims á öldinni, nóg
af öllu, stór brjóst, mjúkan
maga, barneignaiegar mjaðmir
og vegleg læri en er samt ekki
feit. Hvort sem það er svo fyrir
enn meiri velmegun eða vegna
þess að hommar stjórna tísku-
heiminum að miklu leyti, virðist
fegurðarímynd nútímakonunn-
ar vera orðin svipuð rengluleg-
um unglingsdreng. Engin brjóst
og engar mjaðmir. Hvar eru
eiginlega Múmínálfarnir?
Framlag
þitt
skiptir
öllu máli
Í,
■★ *
Getur þú gejið þeim pieð þ'erP-
<ulT hjálparstofnun
Vqt/ kirkjunnar
1 - iikö þinni hjálp
Hjálparstofnun kirkjunnar kemur framlagi þínu til skila.