Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Blaðsíða 2
14- Föstudagur 20. desember 1996
jjDagmÆEúmtm
Öðruvísi jólaumbúðir
Flestir pakka jólagjöfunum
sínum inn á hefðbundinn
hátt, í jólapappír með til-
heyrandi skrauti og merkimið-
um. En það er hægt að pakka
gjöfum inn á ýmsa vegu án þess
að koma nálægt jólapappír.
Handklæði eru alveg fyrir-
taks gjafaumbúðir, þau er
nefnilega hægt að nota seinna.
Brúnir bréfpokar, þá má
skreyta á ýmsa vegu, t.d.
strauja á þá myndir með strau-
lími, lita á þá, líma á þá skraut
og svo framvegis.
Dagblöð geta verið skemmti-
legar umbúðir, það má til dæm-
is velja íþróttasíður fyrir gjafir
sem henta íþróttamönnum,
fréttasíðin- fyrir fréttafíkla eða
teiknimyndasíður fyrir börn.
Brúnn umbúðapappír er frá-
bær, hann er eitthvað svo jarð-
bundinn og gefur tilfinningu um
að viðkomandi sé ekki sama um
jörðina okkar. Hann má skreyta
á alla kanta, líma á hann
þurrkuð blóm og grös, úða með
gulli eða silfri nafn viðtakanda
eða krumpa hann og nota svo.
Gamlar dósir, körfur, kassar
og box, þetta eru allt upplagðar
umbúðir fyrir gjafir.
Láttu nú hugmyndaflugið
ráða ferðinni og skemmtu þér
vel við innpökkunina!
Innkaup til jólanna
Stefánsdóttír
Um jól er það til siðs að hafa mikið
við í mat og drykk. Nú á dögum vill
það oftlega fara úr böndum hversu
mikið er keypt inn til heimilisins á þess-
um tíma. Oftlega má leiða að því getum
að stór hungursneyð sé á næstu grösum
er fólksfjöldi og æsingur er barinn augum
síðustu vikur fyrir jól.
Körfur eru fylltar matvælum og dag
eftir dag kemur sama fólkið og kaupir
jafnmikið og áður. Þetta mun alveg
óþarfi, þar sem flestar verslanir munu nú
vera opnar meiri hluta sólarhrings og
lögbundinn lokimartími þeirra ekki nema
um 40 klst. samfleytt yfír hátíðarnar.
Frystikistur og kæliskápar munu vera
fullir með afhrigðum þessa daga og
margir ekki tæmast fyrr en löngu seinna,
því ekki fjölgar heimilismönnum yfir jól,
þó svo ýmsir virðist halda það. Því ber
vel að gæta að innkaupum þessa daga,
láta ekki æsing og streitu hafa þau áhrif
að buddan opnist úr hófi og allt innihald
hennar týnist.
Aðeins þarf að telja helgidagana,
ákveða hvað eigi að koma á diska heimil-
Ertu í vandræðum með jólagjafirn-
ar? Hugmyndaflugið ■ ekki upp á
marga fiska? Ekki okkar heldur en
hér er listi fyrir þá sem alls engar hug-
myndir hafa:
Pabbinn, höfuð heimilisins: Verkfæri.
Ef hann á þau ekki nú þegar, er það
greinilegt vitni um að hann sinni ekki
viðgerðum á heimilinu og því best að
koma í veg fyrir það strax að hann geti
afsakað sig með því að hann eigi ekki
réttu verkfærin. Ef hann á fullt af verk-
færum, þá vantar hann örugglega eitt-
hvað í safnið samt. Pottþétt.
ismanna og kaupa það og ekkert annað.
Siður sá að kaupa þetta og hitt „svona til
vara“, er með öllu óþarfur og ætti að
leggjast af sem fyrst.
Sú spurning sem hvað mest brennur á
vörum fólks og þá helst kvenfólks síðustu
vikur fyrir jól er án efa þessi: „Ertu búin
að öllu?“ Svarið er auðvitað misjafnt eftir
aðstæðum hvers og eins og þó mun það
oftast vera á þá vegu að ótal margt sé
eftir, að viðkomandi sjái ekki framúr
verkefnum. Oft fylgir svarinu svo þungt
andvarp til að undirstrika þessa þungu
byrði sem jólunum fylgir. En þessa byrði
má auðveldlega létta.
Hér áður fyrr þótti það nauðsynlegt að
hvert heimili væri þvegið og skrúbbað
fyrir hver jól og var það mikil vinna enda
verk sem unnið var aðeins einu sinni á
ári og oft ekki mikið hugsað um þrif þess
á milli. Nú á dögum er það nútímatæknin
sem gerir það að verkum að þrif hafa
verið mjög einfölduð og veggir og gólf
lögð auðþrífanlegum efnum, og þá er
þetta ekki eins mikið mál.
Þar að auki stundar fólk það að þrffa
hibýli sín í hverri viku og því ekki eins
mikil þörf á allsherjarhreingerningu eins
og áður. Og ekki má gleyma því, að skyn-
samlegra er að gera stórhreingerningar
að vori til en um miðjan vetur. Því er best
að taka þessu létt og eyða ekki of miklum
tíma í að hafa áhyggjur af óhreinindum
sem ekki sjást vegna myrkurs á þessum
árstíma. Nær er að kveikja á kertum og
Mamman, framkvæmdastjóri heimil-
isins: Smátölvu, skipuleggjara. Hún þarf
að sjá til þess að allir séu á réttum stað
á réttum tíma. Þetta fyrirbæri er á stærð
við vasareikni og getur geymt ógrynni af
upplýsingum og sumar jafnvel pípa á
fólk til að minna það á. Ekki er verra að
lauma með gjafakorti á leikfimi eða
jóganámskeið.
Afinn: Bækur, efni fer eftir áhugamál-
um viðkomandi. Líka vinsælt að gefa
áskriftir að tímaritum sem afinn hefur
gaman af en getur ekki eða vill ekki
eyða peningum í.
Amman: Myndir af (jölskyldumeðlim-
um. Listaverk eftir barnabörnin eru líka
góðar gjafir. Það má líka búa til dagatal
með myndum af öllum meðlimum stór-
fjölskyldunnar og setja inn á rétta af-
mælisdaga.
Táningarnir: Geisladiskar, ekki spurn-
ing. Hávaðamagnið fer svo eftir aldri og
þroska viðkomandi unglings. Stöku ungl-
hafa það notalegt við sælgætisgerð og
lestur góðra bóka.
Ætíð hefur það þótt við hæfi hér á
landi að fólk fengi nýja flík fyrir jól, svo
eigi færi það í jólaköttinn. Það hefur því
miður farið heldur betur úr böndum og
má segja að þjóðin endurnýi innihald
fataskápa sinna fyrir hver jól.
Oft er farið í sérstakar fatakaupaferðir
til annarra landa og þá er komið heim
með hlaðnar ferðatöskur af fatnaði, öll-
um meðlimum íjölskyldunnar til handa.
Svo er það flæði til landsins mikið að eftir
jól er hafist handa við að safna frá heim-
ilum þeim fatnaði sem eigi hefur passað
eða ekki hefur líkað og honum skipað í
söfnunargáma sem fara til fátækra
landa.
Því má segja að þjóðin klæði ekki að-
eins sjálfa sig heldur aðrar þjóðir líka og
er það vel. En til að minnka álag það sem
af þessu hlýst, bæði á buddur lands-
manna og tíma, má minna á það að föt
geta vel enst á milli ára og því ekki þörf á
því að endurnýja þau svo ört sem gert er.
Þá er hátíðin sjálf rennur upp, er mik-
ilvægt að allt sé tilbúið og helst að eigi
hafi farið svo mikill tími eða orka í þá
vinnu, að húsmóðir sé uppgefin og aðrir
meðlimir haldnir streitu af sömu sökum.
Því ber að gæta þess að taka daginn ró-
lega og ekki hafa of mikið við, best að
hafa unnið sem mest daginn áður af mat-
artilbúningi Þannig verður hátíðin öllum
jafnánægjuleg og þægileg.
ingar kjósa fatnað, en af því að smekkur
þeirra er nú eins og hann er, þá orsaka
fatagjafir það að viðkomandi verður að
velja flíkina sjálfur og það er ekkert
gaman að gjöfum sem maður veit af. Svo
er ekkert vit í því að kaupa fatnað rétt
fyrir jól, eftir nokkra daga verður þetta
allt á útsölu hvort sem er, með 50 70%
afslætti.
Börnin: Það fer auðvitað eftir kyni og
aldri. Allskonar spil eru þó vinsæl hjá
báðum kynjum, úrvalið er vægast sagt
ótrúlegt og ætti engum að leiðast sú leit-
in. Tölvuleikir eru líka ofarlega á blaði,
það þarf aðeins að athuga tegund tölv-
unnar og svo hvaða slagsmálaleikir eru
vinsælastir þessa stundina.
Hundurinn: Stórt bein eða leikfang.
Vel innpakkað svo hann sé lengi að ná
gjöfinni úr pakkanum.
Allir ijölskyldumeðlimir: Ávísanir á
vinnu, svo sem barnapössun, lestur,
gönguferðir, sendiferðir, húsverk, tíma
og annað sem gagnast getur fólkinu.
Þrjár fruinlegar
jólagjafír
Appelsínumarmelaði
Þetta er sérlega auðvelt marmelaði og auðvit-
að alveg hræódýrt.
3 appelsínur
1 sítróna
7 dl vatn
500gsykur
Appelsínur og sítróna skorin 1' stykki. Hakkað
í hakkavél eða grænmetiskvörn með hýðinu.
Sett í pott ásamt vatni og sykri og soðið við
vægan hita í 1 klst. Sett í sultukrukkur og lát-
ið kólna í sólarhring.
Athugið að marmelaðið er alveg lapþunnt
þegar því er hellt á krukkurnar, en það
þykknar smám saman meðan það kólnar.
Þetta dugar { 5-6 krukkur.
Kostnaður er um 20 kr. á krukku.
Gönrtlu, góðu belgvettlingarnir
Hér kemur uppskrift af gamaldags belgvett-
lingum, auðveld, fljótleg og ódýr jólagjöf.
Stærðir: 1/3-4/6-8/10-12/dömustærð
Efni: Flóra, vélþvæg uli frá ístex, 50-50-100-
100 g.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 314 og 414.
Prjónfesta: !8 L gera 10 sm í sléttu prjónið á
prjóna nr. 414.
Ath. prjónfestu pg skiptið um prjóna ef með
þarf.
Fitjið upp 24-26-30-32 L á sokkaprjóna nr.
314. Prjónið stroff 1 sl. 1 br. f hring, 4-5-6-6
sm. Aukið út um 4 L jafnt í síðustu umferð, þá
eru á prjónunum 28-30-34-36 L. Skiptið yfir á
prjóna nr. 414 og deilið L jafnt niður á prjón-
ana. Prjónið slétt í hring 8-9-12-15 umf, og
prjónið þ.á í fyrir þumli þannig:
Á hægri vettlingi er 1. L prjónuð, svo eru
næstu 4-5-6-6 L prjónaðar með aukabandi
(spotta í öðrum lit), þær L síðan settar aftur á
sama prjón og prjónaðar aftur með aðallit.
Á vinstri vettling er prjónað í fyrir þumli á
síðasta prjóni, þannig að 1 L verður eftir á
prjóninum þegar búið er að prjóna f f. þumli.
Prjónið nú áfram 12-16-20-24 umferðir, eða
fram fyrir litlafingur á þeim sem vettlinginn á
að fá.
Úrtaka:
Prjónið #3 L og takið 2 L saman# endurtakið
út umferðina. Prjónið 3 umferðir sléttar.
4. umf: *Prjónið 2 L og takið 2 L saman*
endurtakið út umferðina. Prjónið 2 umf. slétt-
ar. 7. umf.: •Prjónið 1 L og takið 2 L saman*
endurtakið út umferðina. Prjónið 1 umf.
slétta. 10 umf.: Prjónið 2 L saman út umferð-
ina. Slítið spottann og dragið í L og herðið að.
Gangið frá spottanum.
Þumall:
Takið aukabandið úr og takið upp 9-10-12-12
L á prjóna nr 414. Prjónið 8-12-14-15 umf.
sléttar. Prjónið nú 2 L saman þar til 4-S-6-6 L
eru eftir. Slítið bandið og dragið í L. Gangið
frá endum.
Kryddkökur
Alveg frábærar kryddkökur, fínar til gjafa.
Pakkið þeim í glært sellófan eða í fallegt box
og bindið slaufu utan um.
Setjið í hrærivélarskál 500 g hveiti, 500 g
dökkan púðursykur, 1 tsk. lyftiduft, i tsk.
matarsóda, 2 tsk. engifer, 1 tsk. negul og 1
tsk. kanil, hrærið þetta lauslega saman.
Setjið svo út í þotta 250 g lint smjörlíki og
2 egg og hnoðið, annaðhvort í höndum eða í
hrærivél.
Búið til kúlur, um 40 stk. og setjið þær á
plötu og bakið við 200°C í um 10 mínútur.
Þær renna dálítið út.
Tillögur að jólagjöfum
handa íjölskyldunni