Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Síða 11

Dagur - Tíminn - 20.12.1996, Síða 11
JJagur-CEtmtrm Föstudagur 20. desember 1996 - 23 Síuað &c aé g&íaót unt fkeígina? Akureyri Friðarganga á Þorláksmessu Á Akureyri hefur sú hefð skap- ast að farin er friðarganga á Þorláksmessu og verður þetta ár engin undantekning. Fyrir þessari göngu standa kórar Glerár- og Akureyrarkirkju og sjá þeir um allan undirbúning með aðstoð lögreglu. Sú breyt- ing verður á skipulagi göngunn- ar í ár að safnast verður saman á Eimskipafélagsplaninu við Strandgötu kl. 19.15 og þar verður hægt að kaupa kyndla gegn vægu verði og fá lampaohu á þá kyndla sem fólk kemur með. Gangan leggur síð- an af stað kl. 19.30 og verður gengið sem leið hggur upp á Ráðhústorg. Þar mun Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur flytja stutt ávarp og að lokum syngja allir saman jólasálminn Heims um ból. Fólk er hvatt til að mæta og taka þátt í þessari skemmtilegu hefð sem friðargangan er. Syngjum jólin inn Sunnudaginn 22. des. kl. 14 verður söngsamkoma í Hvíta- sunnukirkjunni. Kór kirkjunnar ásamt einsöngvurum og hljóm- sveitum kemur fram og flytur bæði jólalög og gospeltónlist. Ehn Svava Ingvarsdóttir flytur jólahugleiðingu. Að loknum tónleikum verður selt kaffi og meðlæti. Allir eru hjartanlega velkomnir. 70 ára afmæli 70 ára er á morgun, 21. desem- ber, Gísli J. Eyland, stöðvar- stjóri Pósts og síma á Akureyri. Eiginkona hans er Dórothera J. Eyland. Þau hjónin taka á móti gestum í Oddfellow-hús- inu, Sjafnarstíg 2 á afmælisdag- inn milii kl. 17 og 19. Skákfélag Akureyrar 7 mínútnamót fer fram sunnu- daginn 22. des. Mótið hefst kl. 14 í Skákheimilinu við Þing- vallastræti. Jólahraðskákmótið verður sunnudaginn 29. des. og hefst kl. 14. Dregið í getraun Einingarblaðsins Dregið hefur verið í getraun Einingarblaðsins. Eftirtaldir fengu vinning: 1. Viku að eigin vali í orlofshúsi fólagsins sum- arið 1997 hlaut Sigurgeir Sigur- geirsson, Brekkutröð 6, Eyja- fjarðarsvcit. 2. Matarúttekt hjá KEA Nettó að verðmæti 8.000 krónur hlaut Brynja Dögg Her- mannsdóttir, Furulundi lle, Akureyri. 3. Matarúttekt hjá KEA Nettó að verðmæti 4.000 krónur hlaut Jóna Jóhannsdótt- ir, Miðbraut 8, Hrísey. Aldrei hafa fleiri tekið þátt í getrauninni og þakkar ritstjórn frábærar móttökur. Aðventan í sveitinni Föstudagskvöldið 20. des. verð- ur hátíðarkvöld í Hlöðunni, Öngulsstöðum, þar sem Björg Þórhallsdóttir flytur nokkur lög við undirleik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur og séra Hannes Örn Blandon verður með hug- vekju. Sérstakur gestur Bjargar verður Óskar Pétursson. Húsið verðu opnað kl. 21. Aðgangs- eyrir kr. 600,- Við minnum á að enn stend- ur yfir sýning Þorgerðar Sig- urðardóttur á tréristum undir nafninu Bænir og brauð. Höfuðborgarsvæðið Félag eldri borgara Kópavogi Spiluð verður félagsvist að Fannborg 8 (Gjábakka) í kvöld, föstudag, kl. 20.30. Húsið öllum opið. Hana-nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Hana-nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Gjá- bakka, Fannborg 8, kl. 10. Ný- lagað molakaffi og dálítil jólast- emning. Happdrætti Bókatíðinda Útdregin númer föstudagsins 20. des., laugardagsins 21. des., sunnudagsins 22. des., mánudagsins 23. des. og þriðju- dagsins 24. des. eru, í réttri röð: 29.154; 20.130; 73.840; 78.263; 36.643. títdregin númer desember- mánaðar eru þá sem hér segir: 1. 83.500. 2. 27.851. 3. 69.802. 4. 40.294. 5. 70.138. 6. 68.954. 7. 83.009. 8. 69.077. 9. 21.763. 10. 13.960. 11. 90.630. 12. 65.990. 13. 84.406. 14. 82.472. 15. 85.422. 16. 62.307. 17. 37.301. 18. 00.525. 19. 53.268. 20. 29.154. 21. 20.130. 22. 73.840. 23. 78.263. 24. 36.643. Tölurnar eru birtar með fyr- irvara. Faxskeyti það sem blað- inu barst var sumstaðar misvel læsilegt. Fólk getur haft sam- band við Félag íslenskra bóka- útgefenda, Suðurlandsbraut 4A, Reykjavík, sími 553 8020, fax 588 8668. Jólauppákoma í Hinu Húsinu verður í dag kl. 17. Ókeypis að- gangur. Botnleðja spilar lög af nýútkomnum geisladisk sínum „Fólk er fífl“, og Kolrassa Krók- ríðandi kynnir efni af breiðskífu sinni „Köld eru kvennaráð". Auk þessarar gæðatónlistar mun Bragi Ólafsson lesa úr bók sinni „Nöfnin á útidyrahurð- inni“, Andri Snær les smásögur og bónusljóð úr smiðju sinni og Dúsa kynnir nýútkomna ljóða- bók sína. Akstur SVR um jól og áramót 1996-1997 Þorláksmessa: Ekið eins og á virkum degi. Aðfangadagur og gamlársdagur: Ekið eins og á virkum dögum til kl. 13:00. Eft- ir það samkvæmt tímaáætlun helgidaga fram til kl. 16:00, en þá lýkur akstri. Jóladagur og nýársdagur: Ekið á öllum leið- um samkvæmt tímaáætlun helgidaga, að því undanskildu að allir vagnar hefja akstur um kl. 14:00. Annar jóladagur: Ek- ið eins og á sunnudegi frá kl. 10:00 til 24:00. Upplýsingar má fá í þjón- ustu- og upplýsingasíma SVR, 551 2700. Akstur Almennings- vagna bs um jólin Aðfangadagur og gamlársdag- ur: Ekið eins og venjulega á virkum dögum til kl. 13:00. Eft- ir það samkvæmt tímaáætlun sunnudaga til kl. 16:30, en þá lýkur akstri. Síðasta ferð leiðar 140 frá Hafnarfirði kl. 15:16 og frá Lækjargötu kl. 15:43. Síð- asta ferð leiðar 170 frá Ártúni kl. 15:45. Aukaferð frá Laxnesi kl. 16:00 og síðasta ferð frá skiptistöð kl. 16:12. Jóladagur og nýársdagur: Ekið á öllum leiðum samkvæmt tímaáætlun sunnudaga í leiða- bók AV. Akstur hefst þó ekki fyrr en um kl. 14:00. Fyrsta ferð leiðar 170 er kl. 14:12 frá skiptistöð við Þverholt og leiðar 140 kl. 14:16 frá Hafnarfirði. Annar jóladagur: Ekið eins og á sunnudögum. Þjónustustöðvar Olís og ÓB- um jólin Aðfangadagur og gamlársdag- ur: Allar stöðvar opnar kl. 7:30- 15:00. Jóladagur og nýársdagur: Lokað. Annar í jólum: Kl. 11:00- 16:00 er opið á eftirtöldum stöð- um: Álfheimar, Sæbraut, Gullin- brú, Mjódd, Langitangi, Garða- bær. Kl. 11:00-15:00 er opið að: Háaleiti, Klöpp, Ánanaust, Hamraborg, Hafnarfjörður. Korta- og seðlasjálfsalar eru á eftirtöldum stöðum: Klöpp, Álfheimum, Sæbraut, Mjódd, Gullinbrú, Hafnarfirði, Hamra- borg, Garðabæ. Seðlasjálfsalar eru á eftirtöldum stöðum: Ána- naust, Háaleiti. Jólanótt Tjamarkvartettsins í fyrra kom út diskurinn Á jólanótt með Tjarnarkvartettin- um út, en segja má að diskurinn hafi misst af jólunum sín- um og því er hann sem nýr nú. Diskurinn lenti nefnilega í hremmingum, stærðin á umslaginu reyndist of stór, fax- sendingar á milli landa misfórust og síðast stoppaði hann í fraktverkfalli í Belgíu. Á diskinum eru jólalög frá ýmsum tímum en hann var tekinn upp í Dalvíkurkirkju haustið 1995. Titillagið er nýtt og er eftir Jón Áskelsson. Á laugardag mun Tjarnarkvartettinn syngja í Byggingar- versluninni í Lónsbakka á Akureyri klukkan 14 og 15:30. Jólatónleikar Bubba Morthens Á Þorláksmessu verða hinir árlegu jólatónleikar Bubba Morthens á Hótel Borg. Þar verða flutt lög af nýju plötunni hans Bubba, „Allar áttir“. Auk þess les hann upp Ijóð úr nýju hljóðbók- inni sinni, „Hvíta hliðin á svörtu“, í bland við að flytja ódauðlegar melódíur af fyrri plötum sínum, á þann hátt sem honum einum er lagið. Með Bubba á tónleikunum spilar Jakob Smári Magnús- son á bassa. Tónleikarnir heíjast kl. 23 og er forsala miða hafin á Hótel Borg og í Skífubúðun- um. ÓB - Ódýrt bensín er opið allan sólarhringinn við Fjarðar- (kaup Hafnarfirði, Holtanesti Hafnarfirði og Engjaver Grafar- vogi. Jólafriður og Skírnis- mál í Ráðhúsinu Stúdentaleikhúsið og Freysleik- ar, leikfélag Ásatrúarmanna, flytja Skírnismál í Ráðhúsi Reykjavíkur, við sólhvörf laug- ardaginn 21. des., klukkan 18.30. Verkið íjallar um ást Freys á hinni fögru jötunmey Gerði og bónorðsfor Skx'rnis, sendiboða hans til Jötunheima. Skírnis- mál eru að öllum líkum elsta varðveitta leikverk Evrópu, að grísku helgileikunum einum undanskildum. Þetta er ný uppsetning í leik- stjórn Margrétar Guttormsdótt- ur. Bxíningar og leikmynd eru gerð af Jörmundi Inga. Tjarn- arsalur Ráðhússins verður skreyttur myndum sem lýsa Skírnismálum. Þær eru unnar af Hauki Halldórssyni og Jör- mundi Inga eftir myndum á veggteppum úr Ásubergsskip- inu. Á undan sýningunni verður blásinn jólafriður á trélúðra eins og tíðkuðust á víkingaöld. Miðnæturguðsþjón- usta í Hafnarfjarðar- kirkju Á komandi jólum verður í fyrsta sinn boðið upp á miðnætur- guðsþjónustu við Ilafnarfjarð- arkirkju. Miðnæturguðsþjónust- an ber heitið „Barn er oss fætt“. Sxmgin verður jólamessa sem ber keim af enskri jólahefð. Kór Flensborgarskólans syngur undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg, en kór Hafnar- ijarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Na- talíu Chow. Hefst guðsþjónustan kl. 23. Hefðbundinn aftansöng- ur er við kirkjuna kl. 18. Vestmannaeyjar Jólatónleikar Jólatónleikar Samkórs Vest- mannaeyja og kórs Hamars- skóla verða í kvöld í Safnaðar- heimilinu í Eyjum kl. 20:30. fs- lensk og erlend jólalög og sálm- ar verða uppistaðan í dag- skránni. Bára Grímsdóttir, stjórnandi Samkórsins, hefur m.a. útsett þrjú jólalaganna sem Samkórinn flytur. Þá verða flutt tvö jólalög við ljóð Eyja- mannsins Sigurgeirs Jónssonar og eitt jólalag eftir Báru. Bæjar- búar eru hvattir til að njóta fal- legs jólasöngs á aðventu til að koma sér í hátíðarstemmningu svona rétt fyrir jólin. Stjórnandi Samkórsins og kórs Hamars- skóla er Bára Grímsdóttir. Úótau£jípð Teitur Þorkelsson skrifar Vakið með kossi Að vakna við kossa og atlot hlýtur að vera ein unaðs- legasta leiðin til að yfirgefa draumheima. Það er eins og maður sé blóm sem finnur vor- sól snerta sig. Og fyrstu geisl- arnir eru fyrirheit hins heita sumars. Hvort sem maður dott- ar yfir bók, leggur sig að degi til eða sefur út á sunnudags- morgni er alltaf yndislegt að mæta raunveruleikanum á ný á sem ljúfastan hátt. Og ef þig langar til að vakna við kossa og ástaratlot skaltu vekja þann sem þú elskar með þeim hætti. Þú kemur inn í herbergið og sérð að maðurinn þinn sefur. Þú vaknar á undan konunni þiniú, ríst upp við dogg og horf- ir á kyrrlátt andlit hennar á koddanum. Hvað er annað hægt að gera en að lúta hljóðlega yfir sviplaust andlitið og kyssa það dúnmjúkum og blíðum kossi beint á munninn? Hafðu fyrsta kossinn léttan. Kitlandi snert- ing. Kysstu vangana, ennið og augnlokin, kysstu háls og axlir. Kysstu ákveðnar, kysstu fastar. Kossar þínir læðast inn í vitund þess sem sefur og breyta stefnu draumanna. Þú veist hvert. Og þegar kossarnir verða of raun- verulegir til þess að þeir geti verið draumur hörfar svefninn og augu og hjarta opnast. Það fyrsta sem þau sjá ert þú, koss- arnir halda áfram og þeim er svarað. Draumur verður að veruleika.

x

Dagur - Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn
https://timarit.is/publication/254

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.