Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Blaðsíða 1
Arnórskoraði
einamark
Lokeren
— sjá íþróttir
bls. 20-21
•
Svikuútvörur
meðnotkun
falsaðraskilríkja
— sjá lesendabréf
bls.6
Jólagetraun DV
-sjábls.2
•
Mannlíf
— sjá bls. 11
•
Kraftaverka-
staðaaðlosna
við Tímann
— sjá Svarthöfða
bls.4
Sandkom
-sjábls.2
Efnahagsaðgerð-
irumáramót
— sjábls.4
Allttíl
bráðabirgöa
— sjá kjallaragrein
Magnúsar
Bjamfreðssonar
bls. 15
. •
Urstórafmæli
yfirslökkvara
— sjá Fólk bls. 16
•
Grímulaus
eignaupptaka
— sjá leiðara bls. 14
14
DAGARTILJÓLA
274. TBL. — 71. OG 7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981.
Irjálst, úháð daghlað
Hörð gagnrýni formanns þingflokks Alþýðubandalagsins á
viðskiptaráðherra:
Ekkinýttað Tómas
heimti kauplækkun1
„Það er ekki nýtt, að Tómas Arna-
son viðskiptaráðherra heimti kaup-
lækkun. Hann hefur í tíð þessarar
stjórnar alltaf annað veifið staðið upp
og sagt að lækka yrði kaupið,” sagði
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins, í
viðtali við DV í morgun.
„Tómas ætti frekar að snúa sér að
þvi áð koma i framkvæmd því sem
hann hefur látið ógert al' ráðstöfunum
gegn verðbólgu,” sagði Ólafur Ragnar.
„Samkvæmt efnahagsáætlun ríkis-
I stjórnarinnar uin síðustu áramót átti
viðskiptaráðuneytið að standa fyrir
ýmsu. Meðal þess var endurskipu-
lagning á innflutningsverzluninni og
innkaupum hins opinbera,til að draga
úr verðbólgu. Viðskiptaráðuneytið
hefur brugðizt í þessu.”
■ „Auk þess er einkennilegt að Tómas
sé að leggja til minnkun opinbírra
framkvæmda, meðan framsóknar-
menn í fjárveitinganefnd standa fyrir
hækkunum,” sagði Ólafur Ragnar.
-HH.
— Sjá hls. 4.
Hafði íhót-
unum og
otaði skrúf-
járni
— tvær stúlkur kærðu
Hallgrím fyrír tveimur
árum
„Hann hafði í hótunum við okkur,
heimtaði peninga og otaði að okkur
skrúfjárni,” sagði ung stúlka sem DV
hafði samband við, en hún varð ásamt
vinkonu sinni, fyrir áreitni af völdum
Hallgríms Inga Hallgrímssonar, árásar-
mannsins sem handtekinn var um
siðustu helgi.
Tæp tvö ár eru siðan þessi atburður
gerðist. Voru þær þá á gangi um
Garðastrætið seint að kvöldi, á leið
heim frá skemmtistaðnum Óðali. Urðu
þær varar við að maður veitti þeim
eftirför og tók fljótlega fram úr þeim.
Sneri hann síðan við, gekk beint að
þeim og heimtaði peninga. Stúlkurnar
urðu að sjálfsögðu skelfdar við hótanir
hans og sáu blika í eggjárn i hendi
hans. Gátu þær þó haldið honum í
skefjum þar til bílstjóri sem leið átti
um, kom til aðstoðar og afvopnaði
manninn. Eggjárnið reyndisl vera
skrúfjárn.
Slúlkurnar kærðu manninn til lög-
reglunnar og var hann handtekinn.
Ákæra var gefin út 28. febrúar 1980.
Um þetta leyti fékk Hallgrímur á sig
nokkra dóma vegna þjófnaðarmála og
mun hegning vegna þessarar árásarhót-
unar ekki hafa verið dæmd sérstaklega.
Börn út um borg og bí undirbúa nú komu jólanna. 1 heimahúsum, skólum og barnaheimilum er
föndrað, límt og litað. Rauðir síðskeggjaðir karlar eru skapaðir ótt og títt og grýlur og leppalúðar
sjúst ú stangli. Tilhlökkunin leynir sér ekki í augum þessarar ungu stúlku. Hún heitir Iris Lind og
er önnum kafin viðföndrið á barnadagheimilinu A usturborg. D V-mynd Einar Ólason.
NIÐURTALNING KEMST
VONANDIAFTUR í GANG
segir Tómas Árnason og mótmælir því að einhliða skerðing á launum fylgi
„Fyrirsögnin á forsíðu Tímans í dag
um að ekki sé samkomulag um fram-
hald niðurtalningarinnar er röng. Það
er rétt i fréttin i sjálfri að ekki náðist
samkomulag í september um framhald
niðurtalningarinnar sem hófst um
áramót og þá voru að vísu ýmsar for-
sendur óljósar, meðal annars vegna
kjarasamninga framundan. Nú eru
málin að skýrast á ný og ég vona að
niðurtalningin komist í gang aftur”
sagði Tómas . Árnason viðskipta-
ráðherra í samtali við DV ímorgun.
„I viðtölum fjölmiðla við mig, og þar
vil ég til dæmis nefna Morgunblaðið,
hefur verið snúið út úr ummælum
mínum um niðurtalninguna. Hún felur
ekki í sér einhliða skerðingu á
verðbótum launa og miðar þvert á móti
að því að kaupmáttur launa skerðist
ekki meira en annars yrði og að
samhliða náist verðbólgan niður hægt og
bítandi með aðgerðum á öllum sviðum
I senn. Þetta tókst með aðgerðunum á
fyrri hluta þessa árs, en niðurtalningin
strandaði i september. Sá hlutur í
niðurtalningaraðgerðum sem snýr að
launum snýst um kaupmáttinn en ekki
taxta, á þessu er meginmunur því eins
og sést áþví að kaupmátturinn hefur
ekkert vaxið langalengi þótt taxtar hafi
margfaldazt í krónutölum.
Niðurtalningin felst annars í því öllu
í senn að lækka skatta og vexti, skerða
verðbætur á laun, verðlag til bænda og
fiskverð, gæta mikils aðhalds í
verðlagsmálum, peninga- og fjár-
málum og skrá gengi krónunnar þannig
að hægt sé að reka útflutningsat-
vinnuvegina.”
Nú virðast Alþýðubandalagsmenn
harðir á þVí, að þeir samþykki ekki
skerðingu verðbóta á laun. „Þeir hafa
auðvitað sín sjónarmið en ég vek á því
athygli að þeir tala unt að hrófla ekki
við forsendum kjarasamninganna Þeir
halda því opnum dyrunum.”
-HERB.