Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981.
Vínning-
arnir
ekkiaf
lakara
taginu
Við minnum ykkur, lesendur
góðir, á hina glæsilegu vinninga sem í
boði eru í jólagetrauninni. í fyrstu og
önnur verðlaun eru Philips sjón-
varpsleiktölvur — en slíkar tölvur eru
af fullkomnustu gerð. Verð þeirra
með einni kassettu eru rúmar fjögur
þúsund krónur.
Sjónvarpsleiktækið býður upp á
ótrúlegan fjölda möguleika. Það er i
senn skemmtilegur leikur fyrir alla
fjölskylduna, auk þess sem það getur
komið að góðum notum.
Með sjónvarpsleiktölvunni er hægt
að kaupa 36 tegundir af kassettum og
hver þeirra inniheldur 4—6 leiki. Má
nefna fótboltaleiki, orrustuleiki,
tuttugu og einn, golf, kappakstur,
skák, skíðaíþróttir, keiluspil, horna-
bolta, íshokkí, byssuleiki og ótal
margt fleira.
Þá eru til kassettur, sem hafa að
geyma ntargs kyns reikniþrautir.
Sjónvarpsleiktækið er fyrir utan allt
þetta heimilistölva. Hún getur kennt
yngstu börnunum að skrifa og
reikna. Og allt sent þarf að gera er að
stinga tækinu i samband í loftnets-
stungu sjónvarpsins. Allt frá einum
uppí fjóra geta leikið í einu.
Fyrir utan þessa tvo glæsilegu aðal-
vinningá, bjóðum við tíu íslenzkar
hljómplötur að eigin vali frá
verzluninni Skífunni á Laugavegi 33.
Nú er bara að halda áfram að krossa
við rétt svör og allir lesendur. DV hafa
jafnan rétl á vinningi. -KLA.
Moðal vinninga aru tiu isienzkar
hljómptötur frá verzlunmni Sk'rf-
unni.
DV-mynd Bjarnlerfur.
— Hönd þín er köld ... — Ó, þakka þér kæri jólasveinn. Þetta voru
einmitt orðin, sem mig vantaði.
JÓLAGETRAUN DV 3. HLUTI
/ dag heimsœkir jólasveinninn tónskúld. Öpera hans sem fjailar um fútœka listamenn sem þurfa að húu við ískulda í París,
er stöðugt leikin ú stœrstu leiksviðum I heimi. Stutt er siðan óperan varflutt ú fjötum Þjóðleikhússins. Hún heitir:
□
A) Mozart
„Don Juan'
B) Bizet
„Carmen
□
C) Puccini
„La Bohéme'
.................
Heimilisfang..........
Sveitarfélag..........
Þegar þú hefur sett krossinn við rétt svar, klippir þú út getraunina og loetur hana blða eftir hinum, sem enn eru óbirtar. Öll
svörin eiga að sendast í einu.
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Bjami Eincrsson or oinnig tafinn Iðc ,
logur.
Pröfkjörsslagur
framsóknarmanna
að hefjast
Prófkjör Framsóknarflokksins
fyrir borgarstjórnarkosning-
arnar í Reykjavik veröur skv.
heimildum DV 23. janúar nk.
Vitað er að margir eru
farnir að hugsa sér til hreyfíngs
varðandi prófkjörið. Meðal
þeirra sem nefndir hafa verið
eru Jónas Guðmundson stýri-
maður, Gerður Stcinþórsdótt-
ir, Jósteinn Kristjánsson, hálf-
bróðir Guðmundar G.
Þórarinssonar, Pétur Einars-
son lögfræðingur og varaflug-
málastjóri, Bjarni Einarsson,
fyrrum bæjarstjóri á Akureyri,
Eirikur Tómasson og Steinunn
Finnbogadóttir, fyrrum borg-
arfulltrúi Samtaka frjálslyndra
SUInunn DnntagaMtlr ar >ðgð
munu tfigflk út I próncgkwtag fnm-
sóknarmunna.
og vinstri manna. Óvissa ríkir
um Kristján Benediktsson en
ýmsir telja að hann hyggist
draga sig i hlé.
svartasta skammdeginu og um-
sjónarmaður Sandkóms lét
ekki sitt eftir liggja. Á
óskiljanlegan hátt var Bláa
lónið, sem við ncfndum svo i
léttum tón, sagt vera við Ál-
verið. Hið rétta er auðvitaó að
það er við Svartsengi og það er
allt annar hlutur.
Mergurinn máls-
ins
Sú grinsaga er sögð, aö ný-
legá hafi starfsmenn Skýrslu-
véla verið að dunda sér við að
prufukeyra nýja tölvu. Datt þá
einum þeirra i hug að spyrja
hana hvort kvenfólk gæti orðið
ólétt af hoffmannsdropum.
Hinum starfsfélögunum fannst
þetta hið mcsta óráð, þvi
spurningin væri alltof snúin
fyrir tölvuna. Sá gamansami
gaf sig ekki, „prógrammeraöi”
tölvuna og spuröi:
„Getur kona orðið ólétt af
hoffmannsdropum?”
Tölvan hugsaði sig um dá-
góða stund, en spýtti svo út úr
jsér svarstrimli. Þar stóð:
„Hve gamall er Hoffmann?”
Fátt á föstu-
dögum en aðsókn
ekki minnkandi
Vcitingahúsaeigendur
virðast vcra i meira lagi
viðkvæmir fyrir staðreyndum.
Við greindum frá því hér í
Sandkorni í fyrradag að Sigtún
ætti nú undir högg að sækja í
kjölfar nýrra veitingastaöa.
Eigandi Sigtúns, Sigmar
Pétursson, sagði það alrangt
að aðsóknin hefði minnkað hjá
sér. Reyndar væri fátt á föstu-
dögum og hefði verið um langt
skeið, en aðsóknin á laugar-
dögum væri mjög góö.
Ekki vitum við hvernig á að
túlka tómt hús á föstudögum
öðru visi en sem minnkandi að-
sókn. Þá lét Sigmar þess getið
að húsið væri ekkert til sölu.
Vilja banna
kampavínið í
bikurunum
ÍSÍ hefur lagt það til við
íþróttafélög í landinu að þau
noti ekki verðlaunabikara
undir kampavin að sigri
loknum. Kampavín hcfur fylgt
stórsigrum í áratugi ef ekki
aldaraðir. Hefð hefur skapazt
og varla hefur nokkrum orðið
meint af sullinu. Hefur verið
haft á orði að ÍSÍ hefði þarfari
vcrkefni á stefnuskránni en
slikan sparðatíning, sem hvort
eð er enginn tckur minnsta
mark á. Menn drekka sitt
kampavín þá og þegar þeim
sýnist, hvort heldur úr verö-
launabikurum eða þar til
gerðum glösum, án tillits til til-
mæla ÍSÍ.
J______________________
Sigurður Sverrisson.
Sitt hvað
Straumsvík eða
Svartsegni
Ölium verður eitthvað á i
Tólfta
helgarskák-
in á Höf n
Tólfta helgarskákmótið verður
haldið að Hótel Höfn á Hornafirði um
næstu helgi, með þátttöku margra
beztu skákmanna landsins.
Níu umferðir verða tefldar eftir
monradkerfi og hverjum skákmanni
skömmtuð ein klukkustund til umhgus-
unar. Fjórar umferðir teflast á föstu-
dag og aðrar fjórar á laugardeginum. Á
sunnudag fer síðasta umferðin fram og
fljótlega á eftir verður hraðskákmót.
Fyrstu verðlaun karla verða 5
þúsund krónur. Konur keppa um þús-
und krónur, gamlingjar um sömu upp-
hæð, en sigurvegara í unglingaflokki
býðst skákskólavist að Kirkjubæjar-
klaustri næsta vor. Verðlaunin afhend-
ast síðan í kvöldverðarboði bæjar-
stjórnarinnar á sunnudagskvöld.
Allir geta tekið þátt og það eina sem
til þarf er tafl og skákklukka, og svo
auðvitað sæmilega klár kollur. -JB.
Samningsdrög
um Blönduvirkjun
„Það er nú vafalítið upp og ofan
hvernig þetta leggst í menn,” sagði
Torfi Jónsson, oddviti Torfalækjar-
hrepps, er DV ræddi við hann um af-
stöðu manna til Blönduvirkjunar.
„Öruggt er að samnignsdrögin verða
samþykkt í Blönduós- og Torfalækjar-
hreppi en afstaða annarra hreppa er
ekki ljós. Sveitafundir verða á föstu-
dag og laugardag og síðan hrepps-
nefndarfundir fljótlega í kjölfar þeirra.
Áliti þarf að skila fyrir 16. þannig að
það styttist í niðurstöður,” sagði Torfi.
Alls eru 6 hreppir sem eiga hlut að
máli. -SSv.
Gleymdi
að borga
Kona kom inn í verzlunina Ljós-
myndavörur — Fuji-umboðið, í Kópa-
vogi í fyrradag og fékk að skoða þar
myndavél eina ágæta. Virtist hún hafa
mikinn áhuga á vélinni, svo mikinn, að
hún tók gripinn með sér, án þess að
muna eftir að greiða uppsett verð.
Kona þessi var klædd vatteraðri úlpu,
blárri að lit og telur afgreiðslufólkið,
að hún hafi ekið brott í grænni Toyota
bifreið. Er vonazt til að hún líti við og
borgi myndavélina.
EgóogGrýlurnar
leikaáBorginni
Egó, Bubba Morthens og Grýlurnar
efna til tónleika á Hótel Borg í kvöld
kl. 21. Grýlurnar senda frá sér sína
fyrstu plötu á morgun og er því tilvalið
fyrir fólk að berja flokkinn augum.
Egóið leikur sannkallað keyrslurokk og
Grýlurnar senda frá sér tóna í þeim
dúr. Rokkið verður þvi í forsæti í
kvöld. Likast til eru tónleikarnir i
kvöld einhverjir þeir síðustu, sem
boðið verður upp á á Borginni í bráð.
_______________•_____-SSv.
Viðbót við
Drangeyjar-
sundsgrein
Þau mistök urðu í grein um Drang-
eyjarsundin gömlu, að hluti af viðtali
við Eyjólf Jónsson, lögregluþjón og
sundkappa, féll niður fyrir handvömm
blaðamanns.
f greininni segir Eyjólfur, að Drang-
eyjarsundið sé ekkert afrek, en í grein-
ina vantaði nokkrar línur. Þar sagði
Eyjólfur, að Drangeyjarsund Péturs
Eiríkssonar hefði verið stórkostlegt
afrek þar sem Pétur var aðeins 17 ára
gamall þegar hann þreytti það. Eins-
hefði Drangeyjarsund Erlings Páls-
sonar verið mikið þrekvirki, því áður
hafði enginn annar en Grettir þreytt
Drangeyjarsund.
„Drangeyjarsundið er og verður
alltaf perlan í islenzku sjósundi, það er
mikill áfangi fyrir hvern íþróttamann,
sem leggur stund á sjósund að þreyta
Drangeyjarsund,” sagði Eyjólfur.
Eyjólfur bætti því svo við, að reglu-
semi væri alger forsenda þess, að
íþróttamenn næðu árangri í sjósundi.
-ATA.