Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Side 13
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981. 13 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Hjónin Krislín Gestsdóllir og Sigurður Þorkelsson í eldhúsinu á Kánargotunní. Tréverkið bak við þau er alll smiðað af Sigurði. DV-mynd Bj. Bj. Fiskurinn reyktur í kökustampi Talið berst aftur að fiskinum og matreiðslu hans. í bókinni góðu er meðal annars kennt að reykja fisk. Það er gert í kökustampi sem lokið hefur verið gatað á. í botninn á kass- anum er sett trégrind og undir hana ýmislegt til að bragðbæta fiskinn. Kryddjurtir, birkiflögur eða hvönn. Kassinn er síðan settur yfir gastæki og fiskurinn í hann ofan á grindina. Lokið kemur svo á og þá er kveikt á gasinu. „Hugmyndina að þessu reyk- grilli fékk ég bæði af reykgrillum sem seld eru í búðum og eins af því hvernig pabbi var vanur að reykja fisk. Það gerði hann í einföldum tré- kassa. í þessu reykgrilli minu reyki ég mikið smáfisk, síld og svo hrogn. Reykt hrogn eru hreint lostæti. Ég legg mikið upp úr nýtingu á hrogn- um og eru margar uppskriftir í bók- inni af matreiðslu þeirra sagði Kristín. Til þess að gefa fólki nokkra hugmynd af því sent í bókinni er má nefna að hún skiptist í eftirtalda kafla, síld, ýsa, þorskur, saltfiskur, hrogn, rauðspretta, heilagfiski, smá- lúða, grálúða, steinbitur, skötuselur, karfi hrognkelsi, kvaíar, silungur, lax, rækjur, humar, hörpudiskur, kræklingur, ýmsar tegundir, sósur, kryddsmjör og fleira og brauð. Já, brauð. Kristín sagðist gera mikið af þvi að baka gerbrauð sem hún hefur síðan með fiskinum. Á móti fitu „Ég reyni að hafa þessar upp- skriftir mínar sem einfaldastar. Ég geri ekki ráð fyrir þvi að hvert heimili eigi fullar hillur af kryddi heldur nefni ég fáar kryddtegundir sem koma fyrir aftur og aftur í uppskrift- unum. Ég er mikið á móti fitu og reyni að hafa sem minnst af henni. Ég mæli með fersku grænmeti þegar það er til með fiskinum. Ég ntæli einnig með að nota ferskt krydd eða í það minnsta heilt krydd. Sumt krydd er hægt að rækta heimavið og annað er hægt að kaupa heilt i búðum eins og Sláturfélaginu, Hagkaupi og Víði. Hvítlauk notaði ég í margar upp- skriftirnar en lítið af honum, ég veit að fólk er dálítið hrætt viðhann. Osta nota ég mikið í matreiðslu. Úrvalið hér er orðið mjög gott frá því sem var þegar ekki fékkst annað en „venjulegur ostur” og mysuostur. Nú er eini osturinn sem mér finnst vanta er parmesan (parmigiano). Þegar sá ostur er kominn er kosta- valið fullkomið,” sagði Kristín. Hún bætti því við brosandi að hún væri í seinni tíð farin að auglýsa mikið fyrir Osta- og smjörsöluna og Mjólkurbúið. örlygur strax til „Ég hafði samband við Örlyg Hálfdánarsson símleiðis og sagði honum að ég væri hérna með upp- skriftir sem mig langaði til að gefa út,” sagði Kristín þegar hún var spurð nánar um það hvernig bókin náði að koma á almennan markað. „Hann sagði mér strax að koma með þær sem ég og gerði. Líklega hefur honum litizt vel á því hann ákvað strax að gefa þetta út. Nú teiknarinn var hér þannig að þetta passaði allt saman. Við erum mjög ánægð með það hversu vel er frá bók- inni gengið og Itún smekklega sett upp” segir Kristín. Því má bæta við að bókin kostar 345 krónur út úr búð. Við kveðjum þau hjón Kristínu og Sigurð með þeirri ósk að önnur bók um svipað efni megi fljótlega fylgja í kjölfarið. I þessa vantar til dæmis nær alveg upnskrift af veizluréttum setn svo velni.igeraúr fiski. Þær upp- skrifiirættu aö veraefni í aðra bók. bók. -DS. Sjalið ekki selt eitt sér Varð að kaupa eitthvað annað f rá sama fyrirtæki Edda Magnúsdóttir hringdi: Ég ætlaði að kaupa sjal í verzlun- inni Evu en þá kom í Ijós að ekki kom til greina að fá það keypt nema ég keypti einhverja aðra vöru í sama vörumerki. Þó var þetta alls ekki hluti af neins konar setti en skilyrðið var að kaupa eitthvað annað innan sama vöru- merkis (franska merkið Casarelle), hvort sem það var pils, sokkabuxur jjafnvel, því verzlunin hafði fengið svo fá sjöl. Mig langar að vita hvort þetta telst til venjulegra viðskiptahátta og hvort þetta er yfirleitt leyfilegt. Sjalið var úti i glugga og verðmerkt á venju- legan hátt. Svar: Þar sem þetta teljast hvorki venju- legir eða leyfilegir viðskiptahættir hafði ég samband við Mörtu Bjarna- dóttur eiganda Evu. Hún sagði þarna einhvern misskilning á ferð. Sjölin hefðu kontið með prjónakjólum og væru aðeins seld með þeim. Þarna væri um sett að ræða og viðskiptin væru þvi alls ekki ólögleg. Ég hafði aftur santband við Eddu og bar fyrir hana svar Mörtu. Hún sagði að misskilningurinn næði þá greinilega til fleiri en sín. Sér hefði ekki verið trúað þegar hún fór að segja frá þessu og fleiri farið í búðina og falast eftir sjölunum. Allir hefðu þeir l'engið sömu svörin, það varð að kaupa eitlhvað annað með. Og þetta eitthvað mátti vera hvað sem er frá sama vörumerki. -DS. Jólasmákökur f rá lesanda Einn af lesendum okkar og nýr þátttakandi t heimilisbókhaldinu sendi okkur uppskrift af jólasmá- kökum. Segir hún að uppskriftina hal'i reynzt sér mjög vel. Úr henni fást um það bil 110'kökur. Púðursykurskökur: 500 g púðursykur 220 g smjörlíki lint 500 g hveili 1 Isk. malarsóli 5 Isk lyflidufl I tsk negulk 1 tskengifer 2eg« Deigið er hnoðað og skorið í 5 stykki sem rúllað er upp í jafnmargar langar pulsur. Hver pylsa er skorin með hníf í sneiðar og þeim raðað á bökunarplötur. Um það bil 20 stk. á plötuna og hafið golt bil á milli, þær renna svolítið út. Ofninn er hitaður í 170 stig jafn yfir og undirhiti. Kök- urnar bakaðar í 4—6 mínútur. Ef pylsurnar verða of linar og aflagast við að skera þær þá má setja þær í álpappír í frystinn í ca 10 mínúlur áður en þær eru skornar niður. Við þökkum kærlega fyrir upp- skriftina og vonurn að lesendur kunni aðmetahana. -Dö. Skemmuvegi 36 HILDUR Símar 76700 — 43880 Sunnlenskir sagnaþættir Safn frásagna frá liöinni tíö, skrifaö af ýmsum þekktum höfundum frá fyrri tímum. Af frásögnum í bókinni má nefna: Skipsströnd, þjóðlifsþætti, náttúruhamfarir, sagnaþætti, einkennilegir menn, þættir af Kambs- ráni, þjóðsagnaþættir o.fl. Áætlaö er framhald af þessum bókaþáttum. ISLENSK LIST ■,i>v 16 ÍSLENSKIR MYNDLISTARMENN Hitdur sem virðist hafa iifað áður JEFFfígY fVERSQN. Fotmðlit sktifnr Magnús Magnússon iFleiri en eitt líf .Frásagnir fólks sem telur sig hafa lifað áöur. Þessi bók hefur vakiö mikla at- •hygli í Bretlandi enda margt for- vitnilegt sem þar er borið fram. Landi Jvor, Magnús Magnússon, hinn þekkti Jsjónvarpsmaöur í Bretlandi, skrifar jformála aö bókinni. Örlög á Mateland-setrinu er nýjasta bók Victoriu Holt er kemur út á íslensku, er þetta 15. bók hennar. Vic- toria Holt var strax með fyrstu bók sinni, Manfreia- kastalinn afar vinsæll höf- undur. Islensk iist Saga 16 íslenskra myndlistarmanna, sem rituö er af 12 rithöfundum. Bókin er meö litmyndum og svart-hvítum myndum í stóru broti. Formála skrifar forseti ís- lands, Vigdís Finnbogadóttir. Greifinn á Kirkjubæ eftir Victoriu Holt er 2. útgáfa og má segja þaö sama um hana og Ib H. Cavling aö reynt er að koma til móts viö lesendahóp útgáfunnar. Ó AYIM Týndi arfurinn er nýjasta og 17. bók Margit- ar Ravn, bók fyrir unglinga á öllum aldri. Hertogaynjan er nýjasta bók ib H. Cavling er kemur út á íslensku. Þetta er 22. bók hans sem sýnir aö vinsældir Cavlings dvína ekki meö árunum. i w IBH.CAVLWG ERF- m\m Erfinginn eftir Ib H. Cavling er 2. út- gáfa. Vegna mikillar eftir- spurnar eftir eldri bókum Cav- lings hefur útgáfan taliö sér skylt aö endurprenta nokkrar þeirra. Símar 76700 — 43880

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.