Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Síða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1981, Síða 37
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981. 41 Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur Fimmtán gírar áfram eftir Indriða G. Þorsteinsson Indríði G. Þorsteinsson hefur' sent frá sér bók sem hann nefnir Fimmtán gírar áfram, sem er saga Péturs Jóns- sonar á Hallgilsstöðum viö Eyjafjörð og fleiri manna sem starfað hafa með honum gegnum árin. Almenna bóka- féiagið gefur bókina út. Kápukynning forlagsins er á þessa leið: „Það var á þeim árum, þegar bíl- stjórarnir voru hálfgerðar þjóðhetjur, gengu um með svartar gljáskyggnishúf- ur með gylltum borða og hölluðu þeim glannalega út í hægri vangann. En þrátt fyrir sjálfsöryggi á ytra borði áttu þeir verstu trúnaðarmál við bíla sína búna lélegum teinabremsum, harla við- sjárverðum á mjóum og snarbröttum malarvegunum og vegleysunum. Einn þessara bílstjóra var Pétur á Hallgilsstöðum viö Eyjafjörð. Átján vetra var hann kominn með öku- sklrteini upp á vasann, með undanþágu aldurs vegna. Þar með hafði hann fest ráð sitt — við bilinn — festi það aldrei frekar. Fyrst var Pétur mjólkurbllstjóri og skemmtiferðabílstjóri og ók fólki f .boddf’ -bílum viðsvegar um land og upp I óbyggðir. Slðar varð hann ásamt VaJdimar bróður sínum brauðryðjandi I vöruflutningum á langferðaleiðum. Fyrirtækið heitir Pétur & Valdimar, og búar frá því hafa flesta daga síðustu 30 árin verið einhvers staðar úti á þjóðveg- unum með sinn þunga flutning. Indriði G. Þorsteinsson færir hér með sinni alkunnu frásagnarsnilld sögu Pét- urs í letur eftir sögn hans sjálfs. Sjálfur er Pétur kíminn sagnamaður og al- þekkt hermikráka. Speglast það allt rækilega í þessari skemmtilegu bók.” Fimmtán gírar áfram er með all- mörgum myndum. Bókin er 180 bls. að stærð og unnin i Prentstofu G. Benediktssonar og Félagsbókbandinu. Einbjörn Hans- son eftir Jónas Jónasson Einbjörn Hansson heitir fyrsta skáld- saga Jónasar Jónassonar. Hún er ný- komin út hjá bókaútgáfunni Vöku og er jafnframt fyrsta innlenda skáld- verkið, sem forlagið sendir frá sér. Saga Jónasar er nútímasaga og sögu- svið hennar er Reykjavík. Að sögn höf- undar gæti aðalpersóna sögunnar verið maðurinn I næsta húsi, ég eða þú. Á bókarkápu stendur meðal annars: Jónas dregur upp einkar trúverðuga mynd af lifi Einbjörns Hanssonar, draumum hans og veruleika og tekst með lagni að tengja lesandann og Ein- björn traustum böndum. Þótt undir- tónn sögunnar sé alvarlegur er grunnt á Eigum fyrirliggjandi á lager mikið úrval af peysum utir Stærðir: S-M-L blátt/rautt, brúnt/drappl. gult/ljósblátt Sö/umenn: 83599-83889 SÆNSK-ÍSLENSKA SUNDABORG 9 REYKJAVIK græskulausu gamni. Lipur stUI Jónasar nýtur sín ekki síður I ýmsum spaugi- legum uppákomum en ljúfri rómantík sögunnar. Einbjörn Hansson er rúmlega 140 síður að stærð. Bókin er prentuð og bundin í Odda hf. Kápumynd gerði Þorbjörg Höskuldsdóttir, listmálari, en útlitshönnun annaðist Gunnar Baldurs- son, teiknari. Synir þrælanna eftir Sven Wernström Út er komin hjá IÐUNNI saga eftir sænska unglingasagnahöfundinn Sven Wernström. Nefnist hún Synir þræl- anna. Þorsteinn Broddason þýddi. Þetta er annáð bindi í sagnabálki höf- Það er gaman að telja eftir Richard Scarry Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hefur gefið út barnabókina „Það er gaman að telja” eftir hinn þekkta barnabóka- höfund Richard Scarry, en bækur hans hafa notið mikilla vinsælda hérlendis eins og alls staðar annars staðar. Bókinni er ætlað að auðvelda börn- um að læra að telja og auka skilning þeirra á tölum og undirstöðuatriðum í reikningi. Bókin er skreytt litmyndum og jafnframt er sögð saga þar sem ýms- ar tölur og gildi þeirra koma mikið við sögu. Þýðandi bókarinnar er Andrés Indriðason. Það er gaman að telja er sett og filmuunnin hjá Prentstofu G. Bene- diktssonar, en prentuð og bundin i Englandi. undar um þrælana, en fyrsta bókin, Þrælarnir, kom út fyrir tveim árum. Hvert bindi er sjálfstætt verk, en í ságnabálkinum er rakin saga hinna undirokuöu I Svíþjóð allt frá fornöld til siöari tíma. Synir þrælanna taka yftr sextándu, sautjándu og átjándu öld. Fyrsti hluti heitir Næturverðirnir, annar Fjórða boðorð kúgaranna og hinn þriðji Flótt- inn úr spunahúsinu. Er sin aðalper- sóna, ungur maður ánauöugur, i hverjum þætti. Synir þrælanna er fjórða bók Sven Wernström sem IÐUNN gefur út. Hún er 164 blaðsíður. Sett i Korpus hf. Synir þrælanna Sven Wernström b*x' \je' 9P HAFRAFELL \ atínhiifða 7 a.Yil 1 - a.ááOá »ST0R1 billinn fra 104 GII982erkominn * Litill en samt rumgodur 5 manna bill * 5 dyra * Framhjoladrifinn * Sjálfstæö fjöörun á öllum hjölum * Mjuk og slaglöng fjödrun * Frabær aksturshæfni * Serlega sparneytinn Gengissk. 07.11.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.